Morgunblaðið - 22.09.1981, Qupperneq 45
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRICJUtJAGUR 22. SEPTEMBER 1981
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
25
16 leikmenn skoruðu
fimm mörk eða meira
Koppnin i 1. deild var mjdK
horft. jofn og sponnandi allt fram
á síðasta loik. Þojjar mótinu lauk
• Siifurlás Þorleifsson ÍBV var
oins <>k svo oft áóur moð mórK
mork. Nú varð hann i ofsta sa.‘ti
ásamt Lárusi moð 12 mórk.
var lið Víkinss í efsta sæti o>? var
liðið vol að sÍKrinum komið.
Víkin«ar h()fðu jófnu haráttu-
Kh>ðu liði á að skipa ok verður lið
þeirra án efa storkt na'sta koppn-
istimahil moð sama liðskjarna.
Lið Fram varð í öðru sæti í
íslandsmótinu on náði að Icika til
úrslita í hikarkeppni KSÍ. Þar
tapaði liðið fyrir ÍBV. Það voru
því VíkinKur ok ÍBV sem sÍKruðu
í tveimur s*ærstu knattspyrnu-
mótum á íslandi árið 1981. Loka-
staðan í 1. deild varð þessi:
VíkinKur 18 11 3 4 30:23 25
Fram 18 7 9 2 24:17 23
Akranes 18 8 6 4 29:17 22
Breiðahl. 18 7 8 3 27:20 22
Valur 18 8 4 6 30:24 20
ÍBV 18 8 3 7 29:21 19
KA 18 7 4 7 22:18 18
KR 18 3 fi 9 13:25 12
Þór 18 3 fi 9 18:35 12
FII 18 2 3 13 20:42 7
Markaha‘stir í 1. deild: mörk
Lárus Guðmundsson VíkinK 12
SÍKurlás Þorloifsson ÍBV 12
Þorsteinn SÍKurðsson Val 9
Gunnar Jónsson í A 8
Pálmi Jónsson FII 7
SÍKurjón Kristjánsson UBK 7
,v''
,r-
• Lárus Guðmundsson VíkinK.
Allt hondir til þoss að hann vorði
na‘sti atvinnumaður ísiands i
knattspyrnu.
Kári Þorleifsson ÍBV
Ómar Jóhannesson ÍBV
Guðhjörn TryKKvason í A
Ashjörn Björnsson KA
Guðjón Guðmundsson Þór
Óskar InKÍmundarson KR
Njáll Eiðsson Val
(iuðmundur Torfason Fram
Jón Einarsson UBK
Gunnar Gíslason KA
— ÞR.
• Þorstoinn SÍKurðsson Val
skoraði níu mörk í sumar. Ilann
náði því að skora fjöKur mörk í
einum loik. Það var er Valur lék
KOKn Þór.
*\
m-J
Keppnistímabili knatt-
spyrnumanna að Ijúka
Keppnistímahili knattspyrnumanna fer nú senn að ljúka hér á landi.
íslandsmótinu i öllum flokkum er lokið ok nú standa þrjú félaKsIið i strönKU
i Evrópukeppninni. íslenska landsliðið er að ljúka síðustu leikjum sínum i
riðlakeppninni i HM og þegar þoim loikjum er lokið er tímahilinu lokið að
þessu sinni. Hér á opnunni er fjallað um íslandsmótið. Hinn kunni
knattspyrnuþjálfari og landsliðsmaður i knattspyrnu hér á árum áður. Arni
Njálsson, fjallar litillega um lið 1. deildar. Þá er fjallað um einkunnagjöfina.
staðan birt og markahæstu leikmenn deildanna.
Menn verða seint á eitt sáttir hvort nýliðið
Islandsmót var af verri eða betri tegundinni
Hugleiöíngar um íslandsmótið í knattspyrnu o.fl.
Undirritaður hefur undanfarin ár geystst nokkrum
sinnum fram á ritvöllinn og rætt nokkuð um knatt-
spyrnumál líðandi stundar og mun nú koma með 2—3
greinar svona í vertíðarlok.
Eins og mönnum mun í fersku minni var flestum
íþróttafréttariturum í upphafi íslandsmótsins tíðrætt
um óvenjulélega og dapurlega byrjun. Menn höfðu e.t.v.
nokkuð til síns máls, bentu á að lítið væri skorað af
mörkum og margir leikir enduðu með markalausu
jafntefli, þannig að meðalmennskan væri í algleymingi.
Síðan þetta var, hefur margt markið verið skorað, og
einu mest spennandi og skemmtilegasta íslandsmóti
nýlokið með sigri Víkings. Menn verða seint á eitt sáttir
hvort nýliðið íslandsmót var af verri eða betri
tegundinni. í fyrra voru menn allánægðir eftir sumarið,
og í ár má þó benda á að tveimur mörkum fleira var
skorað. Því mega menn ekki gleyma að aldrei hefur
verið byrjað við eins erfiðar aðstæður eins og á sl. vori,
þar sem seint voraði og vellir voru í óvenjulega slæmu
ástandi. m.a. þurfti að Ieika^2—3 fyrstu umferðirnar á
malarvöllum öllum til ama. Ég hefi áður bent á að ég tel
ástæðu til að byrja 1—2 vikum seinna en gert hefur
verið undanfarin ár og halda því lengur út fram á
haustið.
í upphafi spáðu sérfræðingar í
framtíðina, hverjir yrðu efstir,
hverjir um miðbik og hverjir féllu.
Undirritaður var meðal þessara
manna og var nokkuð getspakur
hvað varðaði efstu sætin. Ég spáði
Víkingi velgengni og vil hér nota
tækifærið til að óska þeim til
hamingju með íslandsmeistaratit-
ilinn. Eins og mörgum mun kunn-
ugt hefi ég um 25 ára skeið verið
íþróttakennari í Víkingshverfinu,
og því haft náin kynni við flesta
þá leikmenn sem skipa Víkingslið-
ið í dag, og átti með þeim margar
ánægjulegar stundir á þeim árum,
sem þeir voru að stíga sín fyrstu
spor á knattspyrnuvellinum. Þótt
enginn sé annars bróðir í leik
yljar það manni þó nokkuð, að sjá
þessa stráka bera sæmdarheitið
beztu knattspyrnumenn á íslandi í
dag.
Það sem skóp Víkingum titilinn
var að mínum dómi mjög sterk
liðsheild, þar sem fáir voru „kóng-
ar“. Styrkurinn lá í öguðum leik.
Liðið samanstendur af óbreyttum
kjarna sl. ár, mjög góðum mark-
verði (fyrirliði), auk þess eiga þeir
innanborðs það sem öll lið þurfa ef
vel á að vera, „Match Winner",
Lárus Guðmundsson. Skemmtileg-
asta knattspyrnumann á íslandi í
dag frá mínum bæjardyrum séð.
Fram lenti enn einu sinni í
þeirri pressu að eiga góða mögu-
leika á deild og bikartign. Slíkt
reynir á þolrifin og vill oft mistak-
ast. Þrátt fyrir miklar breytingar
frá fyrra ári þar sem m.a. komu
fjórir leikmenn frá Þrótti (gár-
ungarnir sögðu að kalla mætti
Framliðið b-lið Þróttar), sýndi
liðið á góðum degi góðan fótbolta.
Á tímabili þann bezta en slæmir
kaflar í byrjun mótsins jafnframt
að nokkur veikleiki var fyrir
hendi. Liðið virtist þola illa mót-
læti, og við það að fá á sig mörk í
byrjun virtist ýmislegt geta brost-
ið. Liðið lék taktiskan leik, stund-
um nokkuð lokaðan og ekki nógu
hvassan.
Akranes: Ég álít að í lok
íslandsmótsins hafi Akranesliðið
verið sterkasta liðið í deildinni.
Undirritaður óttaðist þá mest,
þegar lið Þórs lék gegn þeim. Mér
fannst leikmenn vera jafnlíkam-
lega sterkastir, líttþekktir menn í
byrjun blómstruðu með haustinu.
Sú furðulega staðreynd að liðið
skoraði ekki mark í 5 leikjum í
röð, er illskiljanleg, þar tel ég að
liðið hafi misst af Islandsmeist-
aratitlinum. Ég get ekki bent á
sérstakan veikleika. Þegar liðinu
tókst vel upp lék það skemmtileg-
an, hraðan fótbolta mátulega
fastan, fótbolta að mínu skapi.
Breiðablik voru líkt og krók-
usar á vori útsprungnir langt fyrir
tímann. í upphafi átti maður von
á nýju „sputnikliði", enda gáfu
fyrstu leikir merki um að svo
væri. Síðan kom þó í ljós að hið
unga lið þoldi ekki þá spennu sem
fylgir því að komast í snertingu
við meistaratitil. Liðið lék á köfl-
um hraðasta og frískasta fótbolta
sem lengi hefur sést. Veikleikinn
virtist mér iiggja í öryggisleysi að
halda fengnum hlut og of miklum
ákafa stundum. Styrkleikurinn er
í leikgleði og hraða. Liðið er ungt
og að mörgu leyti skemmtilegt.
Liðið er búið að vera efnilegt lið í
nokkur ár og árangurinn ætti að
fara að sýna sig betur, e.t.v. næsta
ár.
Vestmanneyingar héldu
áfram að leika sinn venjulega
fótbolta, þar sem kraftur, leikgleði
og áhugi liggur í fyrirrúmi, en
„taktík" og fræðimennska ekki
eins hátt metin og er það að
mörgu leyti ágætt. Ég hefi lengi
hrifist af leik Ve og þeir brugðust
mér ekki. Ég fór a.m.k. tvisvar í
fúlu skapi heim eftir leik þeirra.
Ve eru oftast óútreiknanlegir,
almennt var þeim ekki spáð vel-
gengni, en í lokin hampa þeir
þikarnum góða og traustri stöðu í
deildinni. Ve leika jafnan opinn
leik, leika fyrir ánægju og mörkin.
Leikmenn eru með á nótunum
bæði í „orði og verki". Þeir eiga
það sameiginlegt með Víkingum
að eiga „Match Winner", Sigurlás.
Leikmenn sem þyrftu helst að
vera til á hverju heimili.
Þær miklu breytingar sem urðu
á Valsliöinu, reyndust of marg-
ar til að verja titilinn enda þarf
mikið til að þola góða daga og
jafnörar breytingar á einu liði eru
varla til siðs. Styrkleikur liðsins
var að þessu sinni í varnarleik
lengst af. Spurning hvort sumir
leikmenn séu ekki að verða of
gamlir/þungir og leikgleðin e.t.v.
ekki söm og áður. Þrátt fyrir allt
blandaði Valsliðið sér í toppbar-
áttuna allt fram undir það síðasta.
Árangur KA. kom mér mest á
óvart. Ekki það að ég vantreysti
þeim í upphafi. Ég held að menn
almennt geri sér ekki grein fyrir
1. DEILD
A VELLINUM
• «
• ♦
V#
• *
• •
• *
V
hve mikla leikreynslu leikmenn
KA hafa. Flestir leikmenn liðsins
eru með 7—17 ára keppnisferil í
mfl. Slæm byrjun olli því í raun að
liðið blandaði sér ekki í toppbar-
áttuna. Liðið fékk fleiri stig en
björtustu menn þorðu að vona
(nema e.t.v. Gunni Blöndal).
Styrkleikurinn lá í fastmótuðu
leikkerfi þar sem rauði þráðurinn
var í útherjum liðsins. Ekkert lið
leikur eins gott „kantspil" eins og
KA gerði í sumar og þegar bezt
gekk var um hraðan og opinn leik
að ræða. Liðið sýndi stöðuga
framför og ætti á næsta ári að
standa sig vel.
Fáir spáðu að KR yrði í baráttu
við að halda sæti sínu í deildinni.
Þeir miklu erfiðleikar sl. ár varð-
andi þjálfara félagsins eiga trú-
lega mikinn þátt í þessu basli, sem
liðið lenti í. Liðið reyndi í byrjun
að bjóða upp á stuttan hnitmiðað-
an samleik (þýskan bolta) en tókst
ekki. Þrátt fyrir fá stig í deildinni
held ég að mun meira búi í liðinu.
Mér virtist það a.m.k. í nokkrum
leikjum sem ég sá. Ef rétt er, að 40
leikmenn hafi verið reyndir í
sumar, sjá allir að slíkt kann ekki
góðri lukku að stýra. Það fæst
engin liðsheild út úr slíkum vinnu-
brögðum. Það er því nokkuð erfitt
að staðsetja KR liðið. Mér virðist
það hvorki sýna styrkleika né
veikleika. Það vekur þó nokkra
athygli að liðið fær þó 12 stig en
skorar aðeins 13 mörk. í fyrra 16
stig og skoraði aðeins 16 mörk.
Undirritaður er ekki rétti mað-
urinn til að tíunda um ÞÓr. Liðið
verður fyrst allra liða á íslandi að
þola að falla í 2. deild á lægra
markahlutfalli en liðið við hliðina.
Liðið var skipað mjög ungum
leikmönnum, sennilega yngsta lið-
ið í deildinni. Reynsluleysi var
vafalaust helsta orsökin nokkrum
sinnum, einkum þegar leikið var
við „stóru liðin" sáust ljótar tölur
í leikslok sem síðar reyndust
þungar á vogarskálunum. Þegar
liðið lék aftur á móti við lið sem
ekki var eins mikil virðing borin
fyrir, t.d. KA og Manchester City
(fyrri hálfleik), gekk allt betur.
Veikleikinn var því í reynsluleysi
en styrkleikinn í ungum árum.
Spá mín er sú að liðið fer strax
upp í 1. deild næsta ár.
Þótt valinn maður væri í hverju
rúmi hjá FH varð það hlutskipti
þess ágæta félags að verða neðst í
deildinni. Mér er að nokkru hulin
gáta hvernig FH fór að því að fá
ekki fleiri stig miðað við mann-
skap, og á stundum ágætan fót-
bolta sem liðið lék. Þær öru
breytingar sem jafnan virðast
verða hjá FH milli ára geta vart
verið til góðs. Liðið nær aldrei að
mótast. Frá árinu 1979 þegar liðið
vann sér sæti í 1. deild eftir árs
fjarveru, sýnist mér vera búið að
vera með þrjú lið í gangi, þ.e. skipt
um liðið nær allt árlega (9—11
breytingar á ári). Liðið var eina
félagið sem hafði leikmann sem
þjálfara. Menn hafa misjafnar
skoðanir á því, en þeir sem slíkt
gera þurfa að hafa breitt bak,
álagið er mikið. í annarri deild-
inni í sumar reyndu þetta nokkur
lið, en þau sem fóru að lokum upp
í 1. deild voru ekki í þeirra hópi.
Spá mín verður sú, að ef FH
heldur sínum mannskap fer liðið
strax upp aftur.
í stuttu máli
Þrátt fyrir hrakspár og vanga-
veltur í upphafi íslandsmótsins, er
nú lokið að mínu mati skemmti-
legu og spennandi móti. Marka-
hlutfall í leik er aðeins hærra en í
fyrra, en nokkuð lakara en næstu
ár þar á undan. Ýmislegt
skemmtilegt væri hægt að tína
fram, en látum það vera. Fyrir þá
sem gaman hafa að „statistik" má
benda á að ýmsir álíta t.d. að
heimaleikur sé gulls ígildi. Af 90
leikjum unnust 34 á heimavelli, 25
urðu jafntefli og 31 vannst á
útivelli. Alls var skorað 241 mark
eða 2,67 pr. leik.
Árni Njálsson
Lið KR notaði 24 leikmenn
í 1. deildarkeppninni
ÍSLANDSMÓTIÐ i knattspyrnu 1981 hefur runnið skeið sitt á enda og
óþarfi að tíunda lokastöðuna. Hins vegar er ávallt fróðlegt að velta
fyrir sér ýmsum þáttum mótsins varðandi hvert lið, hversu marga
leikmenn þau notuðu. hversu margir leikmenn skoruðu mörk og fleira
{iar fram eftir götunum. Hér skal það helsta rifjað upp og byrjað á
slandsmeisturum Víkings.
Vikingur: íslandsmeistararnir skoruðu 30 mörk i leikjum sinum 18.
Valsmenn skoruðu einnig 30 mörk og voru það hæstu tölurnar í 1.
deild. Hjá Víkingum deildust mörkin 30 á 10 leikmenn. Lárus
Guðmundsson skoraði 12 mörk og var, ásamt Eyjamanninum
Sigurlási Þorleifssyni. markakóngur íslandsmótsins. Onnur mörk
Vikings skoruðu: ómar Torfason 4, Heimir Karlsson 3, Hafþór
Helgason. Jóhann Þorvarðarson. Helgi Helgason og Sverrir Her-
bertsson 2 hver, Magnús Þorvaldsson, Ragnar Gislason, Þórður
Marelsson eitt hver. Þá notuðu Vikingarnir aðeins 16 leikmenn i 18
leikjum.
IBV:
Bikarmeistararnir notuðu 18
leikmenn, en aðeins 6 þeirra komu
við sögu á markalistanum. Þar bar
Sigurlás Þorleifsson höfuð og
herðar yfir félaga sína, skoraði 12
af 29 mörkum liðsins. Kári bróðir
hans og Ómar Jóhannsson deildu
með sér obbanum af hinum mörk-
unum, skoruðu 6 mörk hvor. Viðar
Elíasson skoraði 3 mörk og þeir
Gústaf Baldvinsson og Jóhann
Georgsson eitt hvor.
ÍA:
í A notaði aðeins 16 leikmenn og
9 þeirra skoruðu 29 mörk liðsins.
Mörkin skoruðu: Gunnar Jónsson
8, Guðbjörn Tryggvason 6, Sigurð-
ur Lárusson og Kristján Olgeirs-
son 3 hvor, Sigurður Halldórsson,
Júlíus Ingólfsson og Árni Sveins-
son 2 hver, Sigþór Ómarsson og
Jón Alfreðsson eitt hvor, auk þess
sem eitt marka IA var sjálfsmark.
Þess má geta, að markakóngurinn
Gunnar skoraði öll mörk sín í 6
síðustu leikjum íslandsmótsins.
Ekkert lið lék jafn lengi án þess að
skora í sumar, er leikmenn ÍA
komust ekki á blað í 6 leikjum í
röð. í 7 leikjum alls tókst liðinu
ekki að skora, því athyglisvert að
mörkin yrðu síðan alls 29, eða
aðeins einu minna en hjá ís-
landsmeisturunum.
KR:
Vesturbæjarliðið átti metið
hvað varðaði leikmannafjölda eins
og vænta mátti, en alls notaði liðið
24 leikmenn í deildarkeppninni.
Mörkin urðu ekki nema 14 í 18
leikjum og breiddin var umtals-
verð í markaskoruninni, en 8
leikmenn skiptu hinum 14 mörk-
um á milli sín. Mörkin skoruðu:
Óskar Ingimundarson 5, - Elías
Guðmundsson og Ottó Guð-
mundsson 2 hvor, Willum Þórsson,
Börkur Ingvarsson, Vilhelm
Frederiksen, Sigurður Björnsson
og Sverrir Herbertsson eitt hver.
Sverrir var jafnframt eini leik-
maður 1. deildarinnar sem skoraði
fyrir fleiri félög en eitt í sumar án
þess að sjálfsmörk kæmu til.
VALUR:
íslandsmeistarar siðasta árs
voru alltaf að gera breytingar og
19 leikmenn voru notaðir meira og
minna. Liðið skoraði gjarnan mik-
ið af mörkum eða alls 30, jafn
mörg og meistararnir frá Hæð-
argarði. 10 leikmenn skoruðu
mörkin, Þorsteinn Sigurðsson 9,
Njáll Eiðsson 5, Hilmar Si-
ghvatsson 4, Jón Gunnar Bergs 3,
Þorvaldur Þorvaldsson 2, Hilmar
Harðarson 2, Matthías Hall-
grímsson 2, Magni Pétursson 1,
Valur Valsson 1 og Þorgrímur
Þráinsson 1 mark. Valsmenn unnu
stærsta sigurinn sem leit dagsins
ljós í 1. deild í sumar, 6—1 gegn
Þór. Sveiflurnar hjá liðinu sjást
síðan best á því, að seinna um
sumarið tapaði liðið 1—5 fyrir
UBK.
Fram:
Framarar voru með óvenjulega
mikinn hringlandahátt í liðsval-
inu í sumar og alls voru 20 manns
reyndir í lengri eða skemmri tíma.
Liðið skoraði 24 mörk í sumar og
komu þar 11 leikmenn við sögu.
Mörkin: Guðmundur Torfason 5,
Pétur Ormslev 4, Halldór Arason
3, Viðar Þorkelsson 3, Marteinn
Geirsson 3, Guðmundur Steinsson
1, Hafþór Sveinjónsson 1, Gunnar
Daníel
skoraði
25 mörk í
3. deild
KEPPNIN í 3. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu er geysilega
iimfangsmikil. Leikið er í mörg-
um riðlum víða á landinu. Liðin
sem sigruðu í lokakeppninni og
urðu í tveimur efstu sætunum að
þessu sinni eru lið Njarðvíkur og
Einherji frá Vopnafirði. Ba^ði
liðin sýndu dágóða knattspyrnu í
sumar ok eÍKa vafalaust eftir að
spjara sík vel á næsta ári í hinni
hiirðu keppni í 2. deild.
Guðmundsson 1, Ársæll Krist-
jánsson 1, Sverrir Einarsson 1 og
Lárus Grétarsson 1 mark. Liðið
hafnaði í öðru sætinu í deildar-
keppninni og átti möguleika alveg
fram undir það síðasta. Liðið
tapaði aðeins 2 leikjum í sumar.
Töpuðu þeir gegn FH 1—5 og Þór
0—1. Ekki þarf að minna á að það
eru einmitt liðin sem féllu í 2.
deild . . .
FH:
21 leikmaður fékk að reyna sig
með misjöfnum árangri eins og
venjan er. 19 sinnum skoraði liðið
í 1. deild og komust 8 manns á
blað. Mörkin skoruðu: Pálmi
Jónsson 7, Ingi Björn Albertsson
3, Guðmundur Hilmarsson 2,
Tómas Pálsson 2, Ólafur Dani-
valsson 2, Viðar Halldórsson 1,
Magnús Teitsson 1 og Sigurþór
Þórólfsson 1 mark. Fallstimpill
var svo sannarlega á liðinu undir
lok mótsins, en 7 síðustu leikirnir
töpuðust, flestir eftir að liðið hafði
orðið á undan til að skora.
UBK:
19 leikmenn fengu að spreyta
sig og níu þeirra skiptu með sér
hinum 27 mörkum sem urðu upp-
skera sóknarinnar. Mörkin skor-
uðu: Sigurjón Kristjánsson 7, Jón
Einarsson 5, Vignir Baldursson 3,
Valdemar Valdemarsson 3, Helgi
Bentsson 3, Sigurður Grétarsson
2, Hákon Gunnarsson 2, Helgi
Helgason og Ómar Rafnsson eitt
hvor.
KA:
Akureyrarliðið notaði 19 leik-
menn í sumar, en aðeins 6 þeirra
komu við sögu á markalistanum.
Þar var markhæstur Ásbjörn
Björnsson með 6 mörk, aðrir sem
skoruðu voru Gunnar Gíslason
með 5 mörk, Jóhann Jakobsson
með 4 stykki, Hinrik Þórhallsson
með 3, Elmar Geirsson með 2 og
Gunnar Blöndal 1 mark, auk eins
sjálfsmarks. KA átti möguleika á
meistaratitlinum undir lok mót-
sins, eftir þrjá sannfærandi sigur-
leiki í röð, en þá dró ský fyrir sólu
og þrír síðustu leikirnir töpuðust
allir.
Þór:
Þórsarar notuðu 18 leikmenn og
breiddin var mikil er í markaskor-
unina var komið. Mörkin urðu
aðeins 18 talsins, en níu leikmenn
skipta þeim á milli sín. Guðjón
Guðmundsson skoraði mest, eða 6
mörk, Guðmundur Skarphéöins-
son skoraði 4 og Nói Björnsson 2
mörk. Eitt mark hver skoruðu þeir
Jón Lárusson, Bjarni Svein-
björnsson, Óskar Gunnarsson,
Jónas Róbertsson, Þórarinn Jó-
hannesson og Örn Guðmundsson.
Þrennur og fleira:
Fremur lítið var um verulega
glæsilegt einstaklingsframtak á
sviði markaskorunar í 1. deildinni
í sumar. Tvívegis skoruðu þó
einstakir leikmenn 4 mörk í einum
og sama leiknum og tvívegis var
um þrennur að ræða. Sigurlás
Þorleifsson skoraði öll 4 mörk ÍBV
í 4—1 sigri gegn Þór fyrir norðan
og Þorsteinn Sigurðsson úr Val
skoraði 4 af 6 mörkum liðsins í
6—1 sigri gegn Akureyrarliðinu.
Þá skoraði Lárus Guðmundsson,
miðherji Víkings, öll 3 mörk
liðsins í 3—2 sigri gegn Val og
Gunnar Jónsson hjá IA skoraði 3
af 6 mörkum ÍÁ í 6—2 sigri
liðsins.
— gg-
Oli Pér varð marka-
kóngur í 2. deild
KEPPNI í 2. deild var ekki eins
jöfn ok spennandi og í 1. deild.
tvö lið. IBK og ÍBI. skáru sig
nokkuð fljótt úr og náðu forystu í
stigum. Lið Þróttar Ií. og Reynir
Sandgerði fylgdu þó fast á eftir.
Önnur lið voru nokkuð á eftir.
Lið Fylkis sótti sig veruleKa er
jíða tók á kcppnina. Lið ÍBK og
ÍBÍ urðu efst ok leika í 1. deild á
na'sta ári. Vcrður fróðleKt að
fylKjast með hvort þeim tekst að
halda stöðu sinni í deildinni eða
hvort þau fara beint niður aftur
eins ok oft vill verða með liðin
sem taka sa‘ti í 1. deild. Selfoss ok
Haukar urðu í neðstu sætunum
«>K féllu niður i 3. dcild. Þar hafa
þau varla langa viðdvöl. Loka-
staðan í 2. deild varð þessi:
Ómar EKÍlsson Fylki 8
IíaKnar MarKeirsson ÍBK 8
Knattspyrna
• Danícl Einarsson skoraði 25
mörk í 3. deildinni í sumar fyrir
lið sitt Víði í Garðinum.
Ljósm. Mhl.: Arnór.
Markaha'stir í 3. deild: mörk
Daníel Einarsson. Víði 25
Sæmundur VíKlundsson. IIV 23
Þórður Karlsson. Njarðvík lfi
Björn Rafnsson. Snæfelli 15
Elís VÍKlundsson. IIV 14
- ÞR.
Keflavík
ÍBÍ
Þróttur R.
Rcvnir
Fylkir
VölsunKur
SkallaKr.
Þróttur N.
Selfoss
Ilaukar
18 13
18 12
18
18
18
18
18
18
18
18
3
3
4
5
7
7
8
8
12 1
3
3
2
20
2
2
20
1
5 11 1
12 28
18 27
13 21
15 21
18 19
20 17
(: 4
21
23
3fi
16
ló
13
9
9
Markahæstir í 2. deild: mörk
Óli Þór MaKnússon ÍBK 10
OlKeir Sigurðsson VölsunK 9
Ómar Björnsson Reyni 9
Steinar Jóhannsson ÍBK 9
• Oli Þór úr ÍBK skoraði flest
mörk í 2. deild. Óli er mjög
vaxandi leikmaður með liði sínu.
Ljósm.: U.W
islandsmótlð 2. delld