Morgunblaðið - 22.09.1981, Qupperneq 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
West Ham og Ipswich leiða hjörðina
- Man. Utd. vann loks leik
- Garry Birtles skoraði mark!
„Ég horfði á eftir knettinum. svona rétt til að undirstrika oj? ganga
úr skuKKa um að hann var í rauninni á leið í netið,“ höfðu fréttaskeyti
AP eftir Garry Birtles, miðherja Manchester Utd„ sem skoraði um
heÍKÍna fyrsta mark sitt i deildarleik fyrir United, en hann var
keyptur til liðsins fyrir offjár, fyrir tæpu ári. Siðan hefur hann verið
fastamaður i liði United, leikið yfirieitt prýðilega, nema hvað að
markheppni hans yfirgaf hann með öllu. Birtles hélt áfram: „Undir
niðri hefur það lfklega farið i taugarnar á mér, hvað það hefur xenKÍð
illa að skora, þó svo að ég hafi ekki oft fundið fyrir pressunni. bar
hefur spilað inn í, að áhangendurnir hafa verið mér góðir og
þolinmóðir, en ég er ekki viss um að því hefði verið að heilsa hjá
mörgum öðrum félögum en United.“ Mark sitt skoraði Garry Birtles í
fyrri hálfleiknum gegn Swansea á OJd Trafford. Það var jafnframt
eina mark leiksins og þvi vann United þarna fyrsta sigurinn á
keppnistímabilinu. lyfti sér af botninum. Sigurinn var sanngjarn. en
leikurinn daufur. Urslit leikja i 1. deild urðu sem hér segir:
Birmingham — M City 3—0
Brighton — Coventry 2—2
Leeds — Arsenal 0—0
Liverpool — Aston Villa 0—0
Manch. Utd. — Swansea 1—0
N. County — Ipswich 1—4
Southampton — Middlesbr. 2—0
Stoke — Nott. Forest 1—2
Sunderland — Wolves 0—0
Tottenham — Everton 3—0
WBA — West Ham 0—0
Vantaði bara mörk
á Anfield
Það vantaði ekkert nema mörk-
in á Anfield Road í Liverpool, þar
sem ensku meistararnir Aston
Villa komu í heimsókn til Evrópu-
meistaranna. Bæði liðin hafa átt í
basli í upphafi þessa keppnis-
tímabils, en léku stórgóða knatt-
spyrnu á laugardaginn. Fyrri hálf-
leikurinn var frekar jafn og skipt-
ust liðin á um stórsóknarkafla og
markverðirnir báðir urðu hvað
eftir annað að grípa inn í. En er
leið á síðari hálfleikinn fór þúngi
Liverpool-sóknarinnar vaxandi og
reyndu leikmenn Villa þá með
öllum brögðum að hanga í jafn-
teflinu. Mark Villa slapp nokkrum
sinnum ævintýralega á lokakafl-
anum, sérstaklega er Ken
McNaught bjargaði af línu eftir
darraðardans í vítateignum, einn-
ig er Terry McDermott komst einn
í gegnum vörn Villa eftir frábæra
stungusendingu frá Graeme Sou-
1. DEILD
Wrsl llam 5 .12 0 10:1 II
Ipswirh 5 12 0 12:0 11
Southampton 5 111 ÍM 10
Swansca 5 10 2 llí) 9
Totlrnham 5 1 0 2 9
NottinKham For. 5 2 2 1 715 8
Man. (’ity 5 2 2 1 7:7 8
Hirmimrham 5 2 12 lOrft 7
(’ovcntry 5 2 12 ÍB 7
NottH ('ounty 5 2 12 7:9 7
Stoke 5 2 0 1 9:8 0
llrÍKhton 5 111 7:0 0
Sundrrland 5 13 1 0:7 0
Aston Vitlu 5 12 2 2:5 5
We»t Bromwirh 5 12 2 5:5 5
Man. (<nitrd 5 12 2 1:5 5
Arscnal 5 12 2 1:1 5
Livrrpool 5 12 2 1:1 r A
Kvrrton 5 12 2 5:7 r»
liprds 5 12 2 5:10 r»
MiddirshrouKh 5 113 líl i
WJdvrrhampton 5 111 2:9 i
2. DEILD
Shrffirld Wrd. r» i I 0 8:1 11
Luton r> i 0 1 9:0 12
(irimshy i> i 1 1 8:0 10
W atford i 1 1 0:1 10
Norairh r> i 1 1 8:8 10
(íurrns Park K. r» i 0 2 9:5 9
Hlarkhurn .*» i 0 2 7:5 9
liarnslry r» 2 1 2 9:1 7
Drrby ’* 2 1 2 8:9 7
Shrrwshury í» 2 1 2 7:8 7
Lrirrstrr r» 2 1 2 0:7 7
Oldham i 1 1 Ö 0:1 0
( amhridttr r» 2 0 1 7.-0 0
Chrlsra r» 2 0 2 5:5 0
( rystal f*alarr r» 2 0 1 1:1 0
( harlton i 2 0 2 1:5 0
Kothrrham r» 2 0 1 5:7 0
Orirnt i 1 1 2 3:5 1
Nrwra.stlr i 1 0 1 2:0 3
( ardiff i 0 1 1 1:8 1
W rrxham i 0 1 3 1:7 1
Itolton i 0 0 1 1:9 0
ness. Skot McDermotts fór í
stöngina og framhjá. Sem sagt,
engin mörk, en Ray Kennedy var
rekinn út af á 80. mínútu.
Ipswich sýndi sínar
bestu hliðar
Lið Ipswich er að ná sama
styrkleika og um tíma á síðasta
keppnistímabíli, er ekkert lið
hafði roð við því. Notts County
átti aldrei glætu gegn Anglíu-lið-
inu og hefði sigur þess hæglega
getað orðið stærri. Staðan í hálf-
leik var 1—0 og skoraði Alan
Brazil markið strax á 6. mínútu.
Snemma í síðari hálfleik skoraði
John Wark annað mark Ipswich
með þrumuskoti af 20 metra færi
og þess var ekki langt að bíða, að
Arnold Muhren bætti þriðja
markinu við. Russel Osman, mið-
vörður Ipswich varð fyrir því óláni
að skora sjálfsmark rétt fyrir
leikslok, en það kom ekki að sök,
því Alan Brazil bætti fjórða marki
Ipswich við 3 mínútum fyrir
leikslok. Áhorfendur voru aðeins
rúmlega 12.000.
Southampton eins
on skuggi
Southampton fylgir efstu liðun-
um eins og skuggi og þykir liðið
líklegt til afreka, a.m.k. eins og
það hefur leikið í fyrstu umferð-
unum. Middlesbrough átti aldrei
möguleika á „The Dell“ og 2—0
sigur heimaliðsins var í minnsta
lagi. Bæði mörkin voru skoruð á 20
fyrstu mínútunum, Mick Baxter
skoraði fyrst og síðan skoraði
markaskorarinn mikli, Steve Mor-
an, fyrsta mark sitt í deildar-
keppninni að þessu sinni. Fjöldi
dauðafæra fór síðan í súginn.
Fátt um mörk
West Ham hefur forystu í deild-
inni þegar hér er komið sögu,
hefur sama stigafjölda og Ipswich,
en betri markatölu. Liðið hefur
enn ekki teflt fram lykilmanni
sínum, Trevor Brooking, sem er að
ná sér af meiðslum og er velgengni
liðsins því þeim mun athyglisverð-
ari. West Ham var sterkari aðil-
inn gegn WBA, sem lék án Remi
Moses og Bryan Robson. En mörk-
in létu ekki sjá sig. Þess má geta,
að Moses var seldur í síðustu viku
til Manchester Utd. og kom hann
inn á sem varamaður fyrir liðið í
síðari hálfleiknum gegn Swansea.
Hugsanlegt er að Robson fylgi
félaga sínum til Old Trafford áður
en langt um líður.
Sunderland var mun sterkari
aðilinn í annars afleitum leik gegn
Wolverhampton. Ally McCoist,
hinn ungi skoski framherji Sund-
erland, klúðraði þremur opnum
færum fyrir lið sitt og fleiri góð
tækifæri fóru forgörðum. Úlfarn-
ir, sem léku án Andy Gray áttu
aðeins tvö umtalsverð skot að
marki Sunderland, en Barry Sid-
dall í marki heimaliðsins af-
greiddi bæði eins og að drekka
vatn.
Leeds og Arsenal skildu einnig
jöfn í markalausum leik og var
það mál AP og BBC, að viðureign-
in hafi síður en svo boðið upp á
betri tilþrif heldur en leikurinn á
• Þrir af lykilmönnum Tottenham, sem allir iéku vel um helgina, f.v.
Ardiles, Villa og Perryman.
• Ray Kennedy, Liverpool, lenti í handalögmálum við Alan Evans,
miðvörð Aston Villa, og fékk fyrir vikið að sjá rauða spjaldið hjá
dómaranum.
Roker Park í Sunderland. Bæði
liðin hugsuðu mest um varnarleik-
inn, en ef nokkuð var, þá var lið
Arsenal meira sannfærandi, ef
hægt er að nota það orð í þessu
tilviki.
Góðir sigrar
Tottenham og Nottingham For-
est náðu sér vel á strik og unnu
sannfærandi sigra. Tottenham
fékk Everton í heimsókn og vörð-
ust gestirnir framan af mjög vel.
En sóknarþungi Tottenham braut
vörn Everton að lokum á bak aftur
og þrjú mörk á síðasta hálftíman-
um færðu heimaliðinu þrjú dýr-
mæt stig. Graham Roberts, Chris
Houghton og Glenn Hoddle (víti)
skoruðu mörkin og er Everton í
hópi neðstu liða deildarinnar
þrátt fyrir geysilegan fjölda nýrra
stjörnuleikmanna.
Nottingham Forest mátti þola
að Stoke skoraði fyrst á heima-
velli sínum og virtist Stoke til alls
líklegt eftir tvö tapleiki í röð.
Adrian Heath skoraði markið
strax á 5. mínútu leiksins og var
Stoke betri aðilinn í fyrri hálfleik.
En leikmenn Forest tóku höndum
saman í síðari hálfleik og þá
jafnaði fyrst Colin Walsh á 51.
mínútu og sðan skoraði Garry
Mills sigurmarkið með þrumu-
skoti á 81. mínútu.
Enska
knatt-
spyrnan
liðið leika frísklega sóknar-
knattspyrnu. Heimaleikur liðsins
var að sögn fréttaskeyta og BBC
skemmtilegur á að horfa. Mick
Robinson náði forystunni fyrir
Brighton á 23. mínútu, en Cov-
entry tókst að jafna rétt fyrir
leikhlé, gegn gangi leiksins, með
marki Hollendingsins Rudi Kaiz-
er. Coventry náði síðan forystunni
á 56. mínútu, Steve Hunt skoraði
þá eftir ljót mistök Steve Gatting
rétt fyrir utan vítateig Brighton.
En heimaliðið jafnaði aðeins fjór-
um mínútum síðar, er Neil McNab
skoraði úr víti.
• *
2. deild:
Bolton 0 — Oldham 2 (Palmer,
Heaton)
Cambridge 2 (Mayo 2) — Barnsley
1 (Banks)
Cardiff 1 (Ronson) — Blackburn 3
(Stonehouse, Pontin sj.m.)
Charlton 2 (Walsh 2) — Grimsby 0
Leicester 1 (Lyne víti) — Luton 2
(White 2)
Norwich 2 (Watson, Jack) —
Newcastle 1 (Waddle)
Orient 0 — Wrexham 0
QPR 1 (Stainrod) — Cr.Palace 0
Sheffield Wed. 1 (Megson) -
Derby 1 (Powell)
Shrewsbury 1 (Biggins) — Chelsea
0
Watford 1 (Armstrong) — Rother-
ham 0
Eina þrennan
Tony Evans, framherji Birm-
ingham, vann besta markaskorun-
arafrekið á laugardaginn, en hann
skoraði öll mörk liðsins í góðum
3—0 sigri. Evans skoraði fyrst á 2.
mínútu, síðan á 47. mínútu og loks
á 78. mínútu, eftir að Joe Corrigan
í marki City hafði misst frá sér
knöttinn eftir þrumuskot Franks
Worthington. John Bond, foring-
inn hjá City, gerði miklar breyt-
ingar á liði sínu fyrir leikinn, setti
meðal annars út báða bakverðina
og inn í þeirra stað m.a. strák son
sinn, Kevin Bond. En drengurinn
var slakur og átti að sögn
fréttaskeyta nokkra sök á því
hvernig fór.
Fjörugur leikur
Þeir þykja jafnan fjörugir leik-
irnir hjá Brighton, enda þykir
Bennett
til
Cardiff
ENSKA 2. drildar knattspyrnu-
liðið Cardiff City festi í siðustu
viku kaup á kunnum 1. deildar
framherja. Er um Dave Bennett
að ræða. hinn svarta miðherja
Manchester City. Bennett var
góður síðasta keppnistimahil,
en hefur ekki tryggt sér sa-ti í
liöinu í haust. Cardiff greiddi
City 120.000 sterlingspund
fyrir gripinn.