Morgunblaðið - 22.09.1981, Side 22
MORGUNBLAtíIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
Skipstjórinn á SæborKÍ í skipstjórnarstólnum. Brotsjórinn kom inn um
KÍUKKana vinstra mcKÍn við hann ok fkcddi yfir sÍKÍinKar- ok
fiskilcitarta'kin scm sjást á myndinni. Við hæKri hönd skipstjórans cr
stjórnhoröið fyrir stýri ok vél cn sjórinn fór þar í ok olli skammhlaupi.
Ljósm. Mbl. Úlfar.
Bv. Sæberg ÓF
laskaðist í brotsjó
ísafirAi. 21. soptrrtiber.
BROTSJÓRINN hvolfdist yfir bakhorðskinnunK skipsins. Andartaki
síðar flæddi sjórinn ásamt kuriuðu KÍcri úr fjórum KÍUKKum í brúnni yfir
stýrimanninn Kolbcin SÍKurðsson þar sem hann sat i skipstjórnarstólnum
<>K hclt skipinu upp í vind ok sjó fjorutíu mílur NA af Horni.
Sjórinn flæddi um alla brúna,
viðkvæm stjórn- ok siglingartæki
fóru úr sambandi, þar á meðal
rafmagnsstýri og stjórnpúlt fyrir
aöalvél.
Skipið rak stjórnlaust i um það bil
10 mínútur á meðan vélstjóri tengdi
vélina við stjórnborð í vélarrúmi og
handstýrið var tengt. Öll siglingar-
tæki nema segulkompásinn biluðu
og var haft samband við bv Sigur-
björgu OF sem fylgdi Sæbergi inn á
ísafjarðardjúp.
Bv Sæberg hafði verið á togveið-
um þegar óveðrið skall á ásamt
fjórum öðrum togurum. Um átta-
leytið um kvöldið var trollið tekið
inn i átta til níu vindstigum og
talsverðum sjó. Togarinn hélt sjó á
sömu slóðum þar til klukkan eitt um
nóttina að skipið fékk á sig brotsjó-
inn.
Litlar skemmdir urðu á skipinu
aðrar en í brúnni. Þó slitnaði
ískastarinn af brúarþakinu. Engin
aivarieg slys urðu á mönnum, þó
skarst stýrimaðurinn nokkuð í and-
liti af glerbrotunum. í aftanverðri
brúnni má sjá djúp för eftir glerbrot
sem sjórinn hefur þrýst inn í
innréttingarnar.
Nú er búið að gera við gluggana í
brúnni og viðgerð að ljúka á einum
radar og gírókompás og fer skipið
væntaniega til Ólafsfjarðar í dag,
mánudag.
Togarinn Sæberg var smíðaður í
Frakkiandi 1974 eign samnefnds
hiutafélags á Ólafsfirði. Áhöfnin er
16 menn og skipstjóri er Björn
Kjartansson. Úlfar.
Morðmálið:
Fréttatilkyiming Rann-
sóknarlögreglu ríkisins
RANNSÓKN vcKna láts Þjóðverj-
ans Ilans Fritz Joachim Arnoid
Wicdhusch lciddi til þess, að
nokkru fyrir hádcgi í Kier var
handtckinn 28 ára gamall Itcyk-
víkingur. (ícstur Guðjón Sigur-
hjörnsson. iðnvcrkamaður. Skál-
holtsstÍK 2A. vcgna máls þcssa.
Hefur Gestur Guðjón játað við
yfirheyrslur hjá rannsóknarlög-
reglu ríkisins að vera valdur að
dauða Hans Wiedbusch. Hafi þeir
hist á skemmtistað í Reykjavík
aðfaranótt fimmtudagsins 17. þ.m.
og farið síðan saman heim til
Hans Wiedbusch að Grenimel 24.
Þar hafi þeir báðir neytt áfengis,
ennfremur telur Gestur Guðjón
sig hafa reykt mariuhana, sem
hann hafi þegið af Hans Wied-
busch. Kveðst Gestur Guðjón við
þetta hafa komizt undir áfengis-
og vímuáhrif og orðið sljór og
utan við sig. Lagðist Gestur Guð-
jón síðan fyrir til svefns í íbúðinni
en kveðst síðan hafa vaknað við
það, að Hans Wiedbusch var að
hafa við sig kynmök. Kveðst
Gestur Guðjón þá hafa orðið
ákaflega hræddur og þá ennfrem-
ur verið gripinn þeirri hugsun, að
hann yrði að ganga frá manni
þessum. Komst hann frá honum,
fann til skæri og rak þau í brjóst
Hans Wiedbusch. Til nokkurra
átaka mun hafa komið á milli
þeirra, en þá mun Gestur Guðjón
hafa náð að grípa til hnífs og
annarra skæra, og með þeim lagði
hann til Hans Wiedbusch mörgum
sinnum unz yfir lauk. Áður en
Gestur Guðjón fór af vettvangi
tók hann með sér nokkra hluti úr
eigu Hans Wiedbusch, sem hann
fleygði síðar á afviknum stað, en
þeir hafa síðan fundist eftir tilvís-
an hans.
Gestur Guðjón hefir skýrt svo
frá, að hann hafi átt við vanheilsu
að stríða um hríð og af þeim
sökum legið m.a. á geðdeild
Landspítalans.
Að kröfu Rannsóknarlögreglu
ríkisins, hefir kærða, Gesti Guð-
jóni, með úrskurði sakadóms
Reykjavíkur, verið gert að sæta
gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar
þessa máls til 2. desember nk. svo
og til að sæta rannsókn á geðheil-
brigði sínu og sakhæfi.
Brotsjór reið yfír Albert GK:
Stóll í brúnni bjarg-
aði lífi skipstjórans
„ÞAÐ ER mesta mildi að ekki fór verr, en það sem bjargaði mér var
það að stóllinn tók af mesta höggið og skýldi mér,“ sagði Sævar
Þórarinsson skipstjóri á Albert GK frá Grindavik í samtali við
Morgunblaðið í gær. En Albert varð fyrir miklum brotsjó út af
Vestfjörðum síðdegis á laugardag, og skemmdist skipið mikið. Lenti
brotsjórinn á brúnni stjórnborðsmegin, braut inn hurðina og flæddi
sjór um allt skipið. Engan sakaði af áhöfninni.
Sævar sagði þá hafa verið á leið
til lands undan veðrinu er óhappið
varð, en veðrið hefði orðið kolvit-
laust. Við brotsjóinn fór rafmagn-
ið af skipinu og öll tæki urðu
óvirk, og tók tvo tíma að koma
rafmagninu á aftur. Vélar stöðv-
uðust hins vegar ekki, og tókst því
að halda skipinu upp í veðrið uns
viðgerð til bráðabirgða var lokið.
Á sunnudag var síðan siglt til
Reykjavíkur, þar sem viðgerð fer
fram, en tjónið á skipinu sagði
Sævar vera verulegt, og auk þess
sem áður er nefnt eyðilagðist
nótarenna. Um 200 tonn af loðnu
voru í skipinu, en það hafði nýlega
landað afla á Bolungarvík.
Albert GK er smíðaður árið
1967 og er 316 tonn að stærð.
Áhöfnin er alls þrettán manns, og
sakaði engan skipverja sem fyrr
segir. Sævar skipstjóri telur að
stóll sá er hann stóð við í brúnni,
hafði jafnvel bjargað lífi sínu, því
á honum lenti hurðin er brotnaði
inn. Svo mikið var höggið, að
stóllinn brotnaði mélinu smærra,
en hurðin straukst aðeins við
Sævar. Stóð hann að vísu á kafi í
sjó, en sakaði þó ekki.
AÐSTAÐA
BÚNAÐARBANKINN
Austurstræti
BÚNAÐARBANKINN
Hlemmi
Tvær flugvélar frá Flugleiðum á ísafjarðarflugvelli. Ljmm. Úif»r.
Skátaskáli Valkyrja
skemmdist mikið
ísafirrti. 21. september.
HÖRKUÁHLAUP gerði hér á ísafirði síðastliðinn
iaugardag eins og sagt var frá í Morgunblaðinu á
sunnudag. Þá átti að vera gangnadagur í Skutulsfirðin-
um en frekar lítið varð úr göngum. Þó urðu gangna-
menn á Dagverðardal varir við að skorsteinn hafði
fallið á Dyngju, útileguhús kvenskátafélagsins Valkyrj-
unnar, og skemmt húsið verulega. Félagar úr hjálpar-
sveit skáta fóru fljótlega á staðinn og lokuðu húsinu en
þekjan hafði rofnað og fjórar sperrur brotnað. Áætlað
er að tjónið sé að minnsta kosti 50 þús. nýkrónur og er
það mjög tilfinnanlegt fyrir kvenskátana því húsið fæst
ekki tryggt og miklu fé hefur verið varið á undanförn-
um árum við byggingu þessa nýja skála.
Ekki er vitað um önnur dagsins lenti þó í vanda, því
meiriháttar óhöpp, þó losn-
uðu bátar frá bryggju en
það tókst að ná þeim aftur
án þess að skemmdir yrðu.
Einhverjir þakhlutar fuku
af húsi í smíðum á Fjarð-
arsvæðinu.
Vegurinn inn í fjörð og
út í Hnífsdal varð illfær á
tímabili og eitthvað var um
að menn yrðu að skilja bíla
sína eftir.
Á sunnudag hafði veðrið
gengið nokkuð niður. Þá
var ruddur vegurinn yfir
Breiðdals- og Botnsheiði og
vegirnir auglýstir færir.
Fólk úr Súgandafirði sem
ætlaði yfir seinnihluta
ekki hafði verið farið niður
í Botnsdalinn til moksturs,
sennilega talið óþarfi, en
þar var vegurinn tepptur
pg varð fólkið að fá bíl frá
Isafirði til að koma til móts
við sig en sjálft gekk það
upp dalinn milli bílanna.
Ekki var talið útlit fyrir
flugveður á sunnudag, það
lyftist því heldur betur
brúnin á ísfirðingum þegar
Fokker Flugleiða birtist í
hálfrökkri eftirmiðdagsins
og síðan önnur eins í stél-
far þeirrar fyrri. Isfirð-
ingar fengu því, þrátt fyrir
óveðrið, helgarblöðin til af-
lestrar á sunnudagskvöld.
Úlfar.