Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
+
HANS WIEDBUSCH,
Grenimel 24,
Reykjavík,
lézt 17. þ m.
Rjarni Finnsson og Hendrik Berndsen.
Eiginmaöur minn. + GÍSLI SIGHVATSSON
frá Sólbakka, Garöi,
andaöist 19. september.
Helga Steinsdóttir.
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
DAGNYR BJARNLEIFSSON,
skósmiöur,
andaöist í Borgarspítalanum aö morgni hins 20. þ.m.
Útför hans verður auglýst síöar.
Steinunn Síguröardóttir
og börnin.
+
Systir mín,
GUÐRUN J. KRISTMUNDSDÓTTIR
frá Kírkjubóli, Skutulsfíröi,
lést á Elliheimilinu Grund 20. september.
Fyrir hönd vandamanna,
Annas Kristmundsson.
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
KRISTÍN VIKTORÍA GÍSLADÓTTIR,
Jaðri, Garöi,
andaöist í Borgarspítalanum 20. september. sl.
Jaröarförin auglýst síöar.
Olafur Haraldsson,
Þórdís Haraldsdóttir,
Margrét Haraldsdóttir,
Benóný Haraldsson,
Þorbjörg Haraldsóttir,
Þórdis Malmquist,
Gunnar Guðbjörnsson,
Magnús Kolbeinsson,
Vilborg Jóhannesdóttir,
Ingimundur Arngrímsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Eiginmaður minn, faöir, tengdafaöir og afi,
RAGNAR ÓLSEN
fyrrverandi veghefilsstjóri,
Skipasundí 84,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 23. sept-
ember kl. 3.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Styrktarfélag lamaðra
og fatlaöra.
Anna Skarphéöinsdóttir,
Rannveig Ragnarsdóttir,
Ólöf Ragnarsdóttir,
Guörún Ragnarsdóttír,
Elin Ragnarsdóttir,
Ester Ragnarsdóttir,
og barnabörn.
Ragnar Olafur Ragnarsson,
Guðmundur Karl Sveinsson,
Stefán G. Eövaldsson,
Haukur Hallsson,
Páll Þorgríms Jónsson
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns, fööur, tengdafööur og afa,
GUNNARS AUSTFJÖRO
pipulagningameistara,
Munkaþverárstræti 9, Akureyri.
Olína Austfjorö,
Heiðar Austfiörö, Jóhanna B. Austfjörö,
Erla Austfjörð, .löróur Þorfínnsson,
oarnnbörn
Páll Gíslason á
Aðalbóli - Minning
Fæddur 18. janúar 1912.
Dáinn 23. ágúst 1981.
Nú er Páll Gíslason á Aðalbóli
aliur. Hraustmennið sem lék sér
að því um langan aldur að heyja
harðsótta glímu við náttúruöflin,
bjóða þeim byrginn og bera hærri
hlut í þeirri viðureign, féll í valinn
fyrir þeim sem engin grið gefur,
fremur en Níðhöggur, sem nagaði
rætur Yggdrasils forðum. Læknar
Borgarspítalans háðu harða en
vonlitla baráttu við sjúkdóm Páls
og gáfu honum af kunnáttu sinni
hálfs árs viðbót við of stutta en
viðburðaríka ævi. Þessari viðbót
eyddi Páll heima á Aðalbóli, uns
ekki var lengur vært þar, fyrir
ásókn þess sem engu hlífði. Hafði
þó greinilega verið setið heima
meðan sætt var, því að ferðin frá
Aðalbóli til fyrirheitna landsins
tók aðeins tíu daga, og var þó
komið við bæði á Egilsstöðum og í
Reykjavík í þeirri ferð.
Það er erfitt að horfa á hraust-
mennin falla, en aðdáun hlýtur
alltaf að vekja, begar þau kveinka
sér hvorki við sár né bana. Páli
var kunnugt um, að hverju
stefndi, en hann tók á móti
gestum með spaugsyrði á vörum,
meðan hann gat gengið óstuddur.
Heljarmenni hafa yfir sér
ævintýraljóma á Islandi. Á marg-
an hátt átti Páll heima í hópi
heljarmenna, svo mikill var hann
vexti, kraftalegur og burðarmikill.
Hann var eini maðurinn sem ég
hef séð setjast flötum beinum við
100 kg síldarmjölspoka, seilast
annarri hendi í horn á pokanum
yfir öxl sér og standa upp með
hann á bakinu. Og það var sama
að hvaða verki hann vann, allt
virtist leikandi létt í höndunum á
honum sem var erfiðisvinna þeim
sem af minna höfðu að taka.
Það var eðlilegt, að maður með
burði, atorku og skaphöfn Páls
leitaði á brattann og sækti þangað
sem afkomuvonin var góð, þó að
mikið þyrfti fyrir lífinu að hafa á
stundum og við margháttaða erf-
iðleika þyrfti að glíma. Það þurfti
kjarkmikinn bjartsýnismann til
Móöir okkar,
STEFANÍA BRYNJÓLFSDÓTTIR
frá Starmýri,
lézt í Landspítalanum 20. september. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 25. septemberT<l. 10.30 f.h.
Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á aö láta
Elliheimiliö Grund eöa Sjálfsbjörg njóta þess.
Oddný Þórarinsdóttir,
Elís Þórarinsson.
+
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
VALGERDUR ANDRÉSDÓTTIR,
Framnesvegi 5,
andaöist í Landakotsspítalanum 20. sept.
Lýður Björnsson, Guöbjörg Óskarsdóttir,
Ólafur Björnsson,
Elínborg Björnsdóttir, Hans Rödtang,
Sigurbjörg Björnsdóttir, Höskuldur Stefánsson,
Örn Grundfjörö,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
RUNÓLFS RUNOLFSSONAR
frá Hólmi í Landbrotí.
Vandamenn.
+
Þökkum innilega auösýnda vináttu og samúö viö andlát og útför
GUDBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Eyjabakka 6, Reykjavík.
Haukur Claessen,
Hailgrímur Arason, Guörún Ófeigsdóttir,
Björn Arason, Kristín Sveinsdóttir,
Sigríöur Aradóttir, Björn Finnbjörnsson
og barnabörn.
+
Viö sendum innilegar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúö
og vináttu viö andlát og jaröarför dóttur minnar, móöur okkar,
tengdamóöur og ömmu,
HULDU VALDIMARSDOTTUR WHITE.
Valdimar Jónsson
Ágústa Olsen, Grétar Jónsson,
Valdimar Olsen Þórhildur Árnadóttir,
Hulda Margrét Waddel,
barnabörn.
+
Faöir minn, tengdafaöir, afi, bróöir okkar og mágur,
GUNNLAUGURJÓNSSON,
fyrrv. starfsmaöur hjá Eimskipafélagi íslands,
veröur jarösettur miövikudaginn 23. sept. kl. 1.30 frá Fossvogs-
kirkju.
Anna Vígdís Gunnlaugsdóttir, Sigurjón Markússon og börn,
Salvör Jónsdóttir, Guörún Jónsdóttir,
Einar Jónsson, Sigríöur Hrefna Guömundsdóttir,
Agústa Jónsdóttir, Kristinn Óskarsson,
Salvör Guömundsdóttir.
+
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
ÓLÍNU EYJÓLFSDÓTTUR.
Eyjólfur Tómasson, Elínborg Guömundsdóttir,
Magnús Tómasson, Þorbjörg Eiösdóttir,
Ólafía Tómasdóttir Meeks,
Tómas Ó. Tómasson, Hjördís Ragnarsdóttír,
Sigmundur Tómasson, Anna S. Jensen,
Sigríöur M. Tómasdóttir, Erlingur Antoníusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
að flytja að Aðalbóli í Hrafnkels-
dal sumarið 1945. Þá voru flest
hús þar orðin léleg og engin tök á
að hafast við með fjölskyldu í
bæjarhúsunum vetrarlangt. En
Páll heyjaði þar um sumarið, bjó
þar einn með féð um veturinn,
gerði upp bæjarhúsin um vorið og
sótti svo konu sína og tvö elstu
börnin, sem þá voru fædd til sín
sumarið 1946.
Búskaparsaga Páls á Aðalbóli
var að sumu leyti ekkert ólík sögu
margra annarra á öllum öldum
Islandsbyggðar, sem komust yfir
jarðnæði inni í afdal, byggðu þar'
upp og komu upp stórum barna-
hóp. Það sem skar sig úr með
búskap Páls á Aðalbóli var það, að
hann sótti á móti straumnum.
Þegar aðrir fluttu frá jörðum
sínum í afdölunum og freistuðu
gæfunnar í þéttbýlinu, flutti Páll í
afdalinn og fann gæfuna þar. En
Páll fór ekki einsamall í
hamingjuleitina í Hrafnkelsdal-
inn. Eftirlifandi kona hans, Ing-
unn Einarsdóttir, er bæði kjark-
mikil, áræðin, úrræðagóð og glað-
sinna. Hún þurfti oft á öllum þeim
eiginleikum að halda í lífsbarátt-
unni á Aðalbóli, en þar byggðu
þau hjón stórhýsi yfir fjölskyld-
una upp úr engu og komu upp níu
mannvænlegum börnum. Páll var
umhyggjusamur heimilisfaðir, og
sérstaklega var hann nærgætin
við ung börn.
Það er ekki heiglum hent að búa
i næsta nábýli við öræfi íslands.
Páll bjó i innsta bæ í Jökuldals-
hreppi og land Aðalbóls liggur að
víðlendu og gróskumiklu afrétt-
arlandl, Vestur-Öræfum, sem eru
afréttur Fljótsdælinga.
Aðalbólsfé leitaði oft langt inn á
Vestur-Öræfi eftir síðustu haust-
göngur en Páll lét sig ekki muna
um að skreppa eftir því lengst inn
á öræfi, þó að mörgum öðrum
hefði þótt það kvíðvænlegt. Einu
sinni fór hann við annan mann í
eftirleit inn á Vestur-Öræfi, þegar
komið var fram að jólaföstu.
Smöluðu þeir félagar þá í leiðinni
Kringilsárrana, en hann er
gróskumikið landssvæði milli Jök-
ulsár á Brú og Kringilsár inni við
Vatnajökul. I Rananum voru ein-
göngu ljónstyggar útigöngukind-
ur, sem þeir félagar tóku með
hundum og drógu á streng yfir
Jökulsá á Brú milli skara. Kindun-
um urðu þeir að sleppa lausum
austan árinnar, þegar þær komu
úr ánni, því að mikið frost var, og
töpuðu þeim út í myrkrið, því að
daginn þraut, áður en þær voru
allar komnar yfir. Þeir fóru þá út
í Sauðárkofa og gistu þar um
nóttina. Daginn eftir náðu þeir
kindunum síðan saman og ráku
þær án hvíldar út í Aðalból og það
dagsverk tók alls um 30 klukku-
stundir.
Einstæðasta þrekvirki sitt, sem
lengi mun í minnum haft, vann
Páll þegar hann féll úr kláf í
Jökulsá á Brú og bjargaði sér úr
því foraðsvatnsfalli á sundi.
Páll var fróðleiksfús og sjófróð-
ur, og hann átti eitt af stærstu
bókasöfnum í einkaeign í landinu,
þegar hann féll frá.
Páll var eftirminnilegur maður
á allan hátt. Margir munu minn-
ast hans nú við fráfall hans, og tek
ég undir samúðar- og saknaðar-
kveðjur þeirra til eftirlifandi
eiginkonu hans, barna, tengda-
barna og barnabarna.
Megi hans lengi minnst verða.
Stefán Aðalsteinsson