Morgunblaðið - 22.09.1981, Side 40
O Armúla 23 — Simi 86755
fltagmtúnfrifr Valur Aston Villa Eftir 8 daga
ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
Áhofn Tunjíufons fyrir utan hótelið sem þeir ííistu á í Penzance (f.v.) Þorsteinn. Hallur. HailKrimur, Gunnar,
Theodór, Steinar, Vijfnir, Gísli, Aðalsteinn, borbjörn og Ragnar. Símamynd-Árni Johnsen.
„Barðist í von um
að sjá dóttur mína“
- sagði HaUgrímur Hauksson sem bar út í sortann frá skipinu
Frá Árna Johnson. hlaðamanni
MorKiinhlaðsins i Londun.
_ÉG a'tlaói aó stökkva i gúm-
hjorgunarhátinn frá skipshliö.
en hitti okki. þvi aö á niöurlciö-
inni kippti alda hátnum undan
og cg súrraöi i sjóinn. cn
straukst þ<> við hátinn." sagöi
llallgrimur Hauksson. 2. stýri-
maður um svaöilfarir sínar. þcg-
ar Tungufoss sökk.
„Um leiö og ég var kominn í
sjóinn, var ég eins og seglbátur,
stórsjór og vindur fleyttu mér og
veltu eins og litlum korktappa. Ég
réði ekki neitt við neitt og hef þó
alltaf talið mig góðan sundmann,
en þetta var vonlaust og ég var
alveg búinn, þrotinn af kröftum á
þessum stutta tíma, sjórinn var
svo hrikalega þungur og mikil
brot í honum, eins og í brimgarði.
Mig bar aftur með skipinu og
framhjá brezka björgunarbátn-
um, sem bakkaði á eftir mér með
stjaka á lofti. Það munaði marg-
oft hársbreidd, að ég næði taki á
stjakanum, en þegar það loksins
gekk, var það heljartak, sem ég
Hallgrímur Hauksson
tók. Það er alveg víst, að við
værum ekki allir á lífi, ef bátur-
inn hefði ekki komið á réttu
augnabliki, ef svo má segja, og
líklega hefði enginn komizt lífs af
til dæmis á hafinu milli íslands
og Færeyja.
Það er óskemmtileg lífsreynsla
að lenda í slíku, en það sem ég
fann brenna heitast á mér eitt
andartak, þar sem ég barðist í
sjónum, var sú von að komast
heim til þess að sjá dóttur mína.
Það er hrikalegt að björgunar-
búnaður skipsins kom ekki að
neinu gagni í þessu slysi. Björgun-
arsveitarmennirnir brezku sögðu
að manntjón væri að meðaltali
90% í slíkum slysum sem þessum
á svæðinu, þannig að við megum
vel við una. Það var mikill munur
að lenda í þessum hrakförum, eða
taka þátt í þeim æfingum, sem við
sjómenn fáum í meðferð björgun-
artækja í sundlaugum. Brezku
björgunarmennirnir stóðu aldeilis
fyrir sínu og það var gott að lenda
í þeirra höndum eftir alla sjó-
drykkjuna, því ég hafði drukkið
rosalega í þau mörgu skipti, sem
ég fór í kaf.
Hvað er framundan? „Bíða og
sjá til, maður hefur svo sem um
ekkert að velja nema fara á
sjóinn, því ekki hefur maður efni
á að setjast á skólabekk. Ætli það
verði ekki sjórinn, maður prófar
að minnsta kosti hvernig taugarn-
ar verða."
Frystihúsamenn á Vestíjörðum:
Megn óánægja
og hart deilt
á ráðherrann
Á FUNDI Félags fiskvinnslustöðva, sem haldinn var á Isafirði í ga rdag kom
fram mikil óánægja og ádeila á sjárvarútvegsráöherra. Steingrim Hermanns-
son. en auk ráðhcrrans sátu fund þennan ólafur Daviðsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, Eyjólfur tsfeld Eyjólfsson forstjóri SH auk um tuttugu
forráðamanna frystihúsa á Vestf jörðum.
í framsöguræðu, sem Guðfinnur
Einarsson í Bolungarvík flutti i upp-
hafi fundar um stöðu frystiiðnaðarins
á Vestfjörðum kom fram, að staða
hans er víðast hvar mjög slæm. Þá
deildi Guðfinnur hart á afstöðu
stjórnvalda og sagði m.a.: „Er málum
virkilega þannig komið, að við verðum
að horfa upp á fyrirtæki okkar verða
gjaldþrota hvert á fætur öðru.“
Þá flutti Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson
forstjóri SH yfirlitsræðu um stöðu
frystihúsanna i landinu og sérstak-
lega á Vestfjörðum. Hann fjallaði
einnig um fiskverðsákvarðanir og
sagði í því sambandi frá könnun sem
SH hefur gengist fyrir á stöðu sex
frystihúsa í landinu, þar af tveimur á
Vestfjörðum. í niðurstöðum könnun-
arinnar kemur m.a. fram að framlegð
frystihúsanna sem talin er eiga að
vera 20% er í raun aðeins 14%. Sagði
Eyjólfur ástæðu þessa mismunar vera
breytingar, sem orðið hafa á þessu ári,
hvað varðar ýmsar aðstæður frysti-
húsa almennt.
í framhaldi af þessu benti Eyjólfur
á, að Þjóðhagsstofnun hefði ekki tekið
þessa þætti inn í grundvöll útreikn-
inga sinna til fiskverðsákvörðunar.
Þar væri eingöngu beitt framreikn-
ingsstuðli. Hann sagði, að auk .6%
mismunarins kæmi einnig inn í mynd-
ina 3,4% gengissig, þannig að allt í
allt væri um að ræða 9,4% misvísun
milli framreikningsstuðuls og raun-
veruleikans.
Það vakti athygli á fundinum, að
ráðherra æskti þess, að blaðamaður
Mbl. yfirgæfi fundinn áður en hann og
aðrir opinberir aðilar tóku þar til
máls. Samkvæmt því sem Mbl. kemst
næst, mun ástæða þess vera sú, að á
fundinum hafi verið rætt um að
Þjóðhagsstofnun muni breyta grund-
velli útreikninga sinna til fiskverðs til
samræmis við þá þætti sem Eyjólfur
Isfeld benti á í ræðu sinni og sagt er
frá hér að ofan.
Mbl. ræddi við fjölmarga aðila í
gærkvöldi, en fékk ekki staðfestingu á
þessu. Sjó frásögn á bls. 47.
Samtalsbók við dr.
Gunnar Thoroddsen
- kemur út í nóvember næstkomandi
VIÐTALSBÓK með endurminn-
ingum og skoðunum dr. Gunnars
Thoroddsens forsætisráðherra
mun koma út frá Bókaútgáfunni
Vöku fyrrihluta nóvcmbermánað-
ar na'stkomandi. að því er Ólafur
Ragnarsson bokaútgcfandi stað-
festi í samtali við blaðamann
28 ára gamall Reykvikingur játar að hafa orðið Hans Wiedbusch að bana:
„... gripinn þeirri hugsun að hann
yrði að ganga frá manni þessum“
Rannsóknarlögrcgla ríkisins
handtók laust fyrir hádcgi á laugar-
daginn 28 ára gamlan Rcykvíking.
Gcst Guðjón Sigurhjörnsson. iðn-
vcrkamann. Skálholtsstíg 2A. og
hi fur hann játað að hafa orðið llans
W icdhusch. 15 ára gomlum hlóma-
skrcytingamanni. að hana aðfara-
nótt fimmtudagsins 17. scptcmhcr
siðastliðinn.
Samkvæmt upplýsingum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins, voru atvik
mcð þeim hætti að þeir Wiedbusch og
Gestur Guðjón hittust á veitingahús-
inu Óðali laust eftir miðnætti umrætt
kvöld og þáði Gestur Guðjón heimboð
Hans Wiedbusch, og héldu þeir síðan
með lcigubíl að Grenimel 24, til
heimilis Wiedbusch. Við yfirheyrslur
hefur Gestur Guðjón sagt, að þeir
hafi þar báðir neytt áfengis og
ennfremur telur Gestur Guðjón sig
hafa reykt mariuhana, sem hann þáði
af Wiedbusch. Segir hann sig hafa
„komist undir áfengis- og vímuáhrif
og orðið sljór og utan við síjí“ og síðan
lagst til svefns í íbúðinni. Síðan
kveðst hann hafa vaknað við að
„Hans Wiedbusch hafi verið að hafa
við sig kynmök. Kvaðst Gestur Guð-
jón þá hafa orðið ákaflega hræddur
Lögreglumenn leita að segulbandstæki og kvikmyndatökuvél, sem Gestur
Guðjón fleygði í Tjörnina.
og þá ennfremur verið gripinn þeirri
hugsun, að hann yrði að ganga frá
manni þessum."
Þessu næst greip hann skæri og rak
þau í brjóst Wiedbusch og kom þá tii
átaka á milli þeirra. Náði þá Gestur
Guðjón til annarra skæra, auk hnífs,
og með þeim lagði hann til Wiedbusch
og særði hann mörjfum sárum, uns
yfir lauk. Eftir að hafa banað Wied-
busch tók Gestur Guðjón segul-
bandstæki og kvikmyndatökuvé! úr
Ljósm. Mbl. Júlíus.
íbúðinni og fleygði hann hlutunum
síðar í Tjörnina.
Gestur Guðjón hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 2. desember
og einnig til að sæta rannsókn á
geðheilbrigði og sakhæfi. Hann situr
nú í Síðumúlafangelsinu. Hefur Gest-
ur sagt að hann eigi við vanheilsu að
stríða og þess vegna legið á geðdeiid
Landspítalans.
Um aðdraganda að dauða Hans
Wiedbusch er það fleira að segja, að
Wiedbusch átti von á gestum á
miðvikudagskvöldið. Tveir gestanna,
maður og kona, komu til hans um
klukkan 21.45 og síðan kom til hans
maður milli 22.30 og 23. Sá fór
skömmu síðar, en hinir gestirnir,
maðurinn og konan, fóru laust eftir
klukkan 24 og óku þau Wiedbusch að
veitingahúsinu Óðali, þar sem hann
síðan hitti Gest Guðjón.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Þórir Oddsson vararannsóknarlög-
reglustjóri ríkisins, að upplýsingar
þær sem leiddu til handtöku Gests
Guðjóns, hefðu borist lögreglunni á
laugardagsmorgun. Aðspurður gat
Þórir þess að rannsóknarlögreglan
hefði verið komin á sporið og mætti
ætla að ekki hefði liðið langur tími
þar til Gestur Guðjón hefði verið
handtekinn. Þórir sagði að upplýs-
ingar þessar hefðu komið sér mjög ,vel
og hefðu flýtt fyrir greiðri uppljóstr-
an málsins. Hann sagði ennfremur að
rannsóknin hefði gengið mjög vel, en
á annan tug rannsóknarlögreglu-
manna vann að henni þegar mest var.
Þá hvíldi og mikið starf á herðum
tæknideildar RLR undir stjórn Ragn-
ars Vignis aðstoðaryfirlögregluþjóns.
Sjá hlaðsiðu 30.
Morgunblaðsins i gær. Olafur
sagði cndanlcgt nafn á bókina
ekki vera ákveðið, en í henni
rifjaði dr. Gunnar upp ýmislegt
frá löngum stjórnmálaferli sínum.
og greindi frá skoðunum sinum á
mönnum og málefnum. Þá sagði
Ólafur að inn í viðtölin væri
fléttað margvíslegum fróðleik, svo
sem samtíma hlaðafrásognum af
þeim athurðum er rætt væri um.
Ólafur hefur sjálfur skráð bókina.
og kvað hann hana ritaða að sinu
frumkva'ði.
Ólafur kvaðst í gær ekki vilja
ræða einstök efnisatriði bókarinn-
ar á þessu stigi. En í bókinni væri
víða komið við á löngum stjórn-
málaferli forsætisráðherra, og fjöl-
mörg atriði og atvik rædd. Sagðist
Ólafur hafa átt mjög ánæjyulegt
samstarf við dr. Gunnar í sumar,
sem fallist hefði á að eyða stærst-
um hluta frítíma síns í viðtölin.
Lífshlaupið
selt úr landi?
_ÞAÐ ER aðcins eitt tilhoð kom-
ið fram í Lífshlaup Kjarvals og
það er danskt," sagði Guðmund-
ur Axelsson í Klausturhólum,
cigandi verksins, er Morgunblað-
ið innti hann eftir þvi hvc mörg
tilboð hefðu komið fram.
Guðmundur sagðist ekki vilja
segja neitt um upphæðir í sam-
bandi við þetta tilboð, en gat þess
að Sigurjón Pétursson, forseti
borgarstjórnar, hefði átt við sig
óformlegar viðræður vegna „Lífs-
hlaupsins" fyrir rúmri viku, en
ekki komið fram með formlejrt
tilboð. Það danska væri það eina
enn sem komið væri.
Sjá nánar grein Geirs Borg
um Lifshlaup Kjarvals á
miðopnu hlaðsins i dag.