Morgunblaðið - 27.09.1981, Page 25

Morgunblaðið - 27.09.1981, Page 25
— — ------------------------------------- MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981 2 5 THE OBSERVER Mynda \instr\mem\ stióra \ Gr\kk\aivd\í Þingkosningar fara fram í Grikklandi 18. október nk. og ef marka má skoðanakannanir kann svo að fara. að i fyrsta sinn í grískri sögu setjist vinstrisinnuð ríkis- stjórn að völdum að þeim loknum. Samkvæmt grísk- um kosningalögum þarf flokkur aðeins að fá 40% atkvæða til að hljóta meirihluta á þingi, sem er skipað 300 mönnum, og stendur nú slagurinn á milli Sósíalistaflokks And- reas Papandreous og Nýja demókrataflokksins með George Rallis í farar- hroddi. Nýi demókrataflokkurinn hefur farið með völdin í Grikklandi síðan 1974 og því verður ekki neitað, að hann hefur komið ýmsu í verk. Grikkir hafa gerst aðilar að - eftirheiðar- legustu kosn- ingar frá lokum síð- ari heims- styrjaldar Efnahagsbandalaginu, sam- skiptin við Tyrki hafa stór- batnað og lífskjör almennings eru betri en áður. Þrátt fyrir þetta virðist ekki mikill móð- ur í stuðningsmönnum flokks- ins. Eftir sjö ára stjórn sama flokksins er Grikki farið að hungra eftir breytingu, jafn- vel bara breytinganna vegna, og á þá strengi hefur Sósíal- istaflokkurinn kunnað að slá. Líklega verður gríska orðið „alagi", breyting, eitthvert áhrifamesta slagorðið í kom- andi kosningum. Þau stjórnmálaöfl, sem nú ráða í Grikklandi, hafa farið með völdin í rúmlega 15 ár, bæði fyrir og eftir tímabil herforingjastjórnarinnar 1967—1974. Papandreou hefur sakað núverandi stjórn um að vera svifasein og getulaus og að hún beri ábyrgð á því, að í Grikklandi sé þunglama- legasta og ómannúðlegasta skriffinnskukerfi, sem um getur í Evrópu. Þessi áróður hefur fallið í góðan jarðveg hjá grískum kjósendum og þá ekki síður þær yfirlýsingar hans, að í innanlandsmálum verði heldur betur tekið til hendinni, gjaldþrota fyrir- tæki þjóðnýtt og klíkuskapur- inn gerður útlægur. Það er ekki síst þetta síðastnefnda, sem höfðar til margra Grikkja, miklu fremur en sú stefna Papandreous að semja að nýju um aðildina að EBE Andreas Papandreou George Rallis og loka bandarískum her- stöðvum í Grikklandi. Auk sósíalista og nýrra demókrata bjóða sjö aðrir flokkar fram í kosningunum en enginn þeirra er líklegur til að fá umtalsvert fylgi nema kommúnistaflokkurinn, Moskvusinnaður flokkur sem talinn er geta fengið allt að 10% og orðið þar með þriðji stærstur á þingi. Hvorir- tveggja nýir demókratar og sósíalistar hafa reynt að biðla til sumra þessara hópa, sem næst þeim standa, en ekki haft erindi sem erfiði til þessa. Þeir munu líka hvort eð er hafa lítil áhrif á næsta þingi, jafnvel þótt hvorugum stóru flokkanna tækist að ná meirihluta. Það mál, sem gæti valdið hvað mestri óvissu eftir kosn- ingarnar, jafnt í Grikklandi sem á alþjóðavettvangi, er það, að kommúnistar ákvæðu að styðja sósíalista en jafnvel þessi möguleiki virðist ekki raska þeirri rósemi, sem ríkir fyrir kosningarnar nú, og er þá herinn ekki undanskilinn. Eins og fyrr segir verður kosið í Grikklandi 18. okt. nk., eftir tæpan mánuð, og þennan tíma notar nú Karamanlis, forseti, til skrafs og ráðagerða við stjórn og stjórnarand- stöðu um fyrirkomulag kosn- inganna sem líklega verða heiðarlegustu kosningar í Grikklandi frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Ljósm. RAX. sjálfstæðismanna lýsti þessari viðleitni réttilega á fundi sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík fyrir skömmu. Davíð sagði, að Reykvík- ingar hefðu séð einkar ljóslega ofan í hugarheim Alþýðubanda- lagsins í húsnæðismálaum- ræðunum, „séð hvað þar er í raun að finna þegar svipt er í burt hulu þess borgaralega yfirbragðs, sem valdakjarninn í kommúnista- flokknum hefur sveipað sig að undanförnu til að glepja fólk til stuðnings við þau öfl. í ljós kemur, að þar hefur lítið breyst, þegar til kastanna kemur, formyrkvunin er ennþá hin sama og áður.“ Og Davíð Oddsson sagði einnig: „Stefna okkar sjálfstæðismanna í húsnæðismálum annars vegar og vinstrimanna hins vegar er glögg. Við viljum ýta undir einstakling- inn, viljum tryggja að hann geti komið yfir sig því húsnæði, sem hugur hans stendur til. Við viljum ekki koma öllum á klafa hins opinbera valds. Það eina, sem vinstri meirihlutinn hefur gert í húsnæðismálum Reykvíkinga, er að draga sem mest kjarkinn úr þeim sem vilja eignast eigið hús- næði, það hefur þeim tekist með töluverðum árangri." A sama fundi benti Magnús L. Sveinsson borgarfulltrúi á, að húsnæðisvandinn í Reykjavík ætti ekki síst rætur að rekja til þess, að verulega hefur dregið úr lóðaút- hlutunum í tíð vinstri meirihlut- ans. Þá væri mikil öfugþróun á lánamarkaðinum. Húsnæðismála- stjórnarlán væru nú aðeins tæp 20% af byggingarkostnaði, en þau voru áður allt að 40%, vaxta- og lánakjörin væru mönnum ofviða og félagslegar byggingar tækju fé af almenna markaðnum. Þriðji framsögumaðurinn hjá sjálfstæðisfélögunum, Gunnar S. Björnsson formaður Meistara- sambands byggingarmanna sagði, að stefna stjórnvalda í húsnæð- ismálum miðaði að því að færa forráð einstaklinga af eignum sín- um yfir í hendur einhverra fárra skömmtunarstjóra, þetta væri verið að gera í það miklum mæli, að yrði ekki staðið duglega á móti, yrði meginhluti húsnæðis þjóðar- innar komið undir forræði skömmtunarstjóra á vegum vinstrimanna fyrr en varði. Alþýðubandalagsmenn gera markvissa atlögu að eignarréttin- um með stefnu sinni í húsnæðis- málum, þeirri atlögu verður ekki hrundið nema hafna völdum þeirra og áhrifum. Alva Myrdal og misnotkunin Oftar en einu sinni hefur nafn Ölvu Myrdal sést á síðum Þjóðvilj- ans undanfarnar vikur og hefur helst mátt skilja, að stefna hennar og blaðsins í öryggis- og afvopn- unarmálum falli saman. Alva Myrdal var á sínum tíma ráðherra í ríkisstjórn sósíaldemókrata í Svíþjóð. Hún hefur fyrir hönd Sví- þjóðar tekið þátt í afvopnunar- störfum á vegum Sameinuðu þjóð- anna og einkum lagt sig fram um að kynna hættuna af kjarnorku- vopnum. í málgagni Æskulýðs- sambands Danmerkur Du bladet birtist nýlega viðtal við Ölvu Myrdal og var hún fyrst spurð að því, hvað nú bæri hæst í barátt- unni fyrir friði. Svarið var á þessa leið: „Andstaðan gegn kjarnorku- vopnum skiptir mjög miklu. Ég er sannfærð um, að þeirra er ekki þörf á evrópsku landi. Besta svarið við SS-20 eldflaugum Sovétríkj- anna er að koma gagneldflaugum fyrir á skipum á Atlantshafi. Það er mikilvægt að ná nokkrum höf- uðmarkmiðum og einnig að fylgja sveigjanlegri stefnu, það er ekki nóg að vera á móti kjarnorku- vopnum og með friði ...“ I viðtalinu leggur Alva Myrdal á það áherslu, að í baráttunni fyrir friði, þurfi menn að hafa yfir- gripsmikla þekkingu, vilji þeir færa fram rök gegn vígbúnaðar- kapphlaupinu. Auk þess verði menn að gæta þess að hlaupa ekki til að óyfirveguðu ráði og hefja baráttu gegn stríði, skyndisamtök í þágu friðar geti ekki starfað án haldgóðra upplýsinga. Þá er Alva Myrdal spurð, hvers vegna hún hafi ekki verið félagi í neinni frið- arhreyfingu. Svarið er á þessa leið: „Ég hef ekki getað ákveðið hvaða hreyfing það ætti að vera, líklega vegna þess að ég er hrædd um að vera notuð í röngu pólitísku samhengi. Þess vegna hef ég til þessa lagt höfuðáherslu á upplýs- ingamiðlunina — hina innri bar- áttu.“ Greinilegt er af þessu, að Þjóð- viljinn á það yfir höfði sér, að Alva Myrdal sendi ritstjórn hans kvörtunarbréf, vilji svo ólíklega til að skrif blaðsins um hana berist til hennar. Hún telur áreiðanlega, að Þjóðviljinn noti nafn sitt í „röngu pólitísku samhengi", og síst af öllu vakir það fyrir blaðinu að fjalla um öryggismálin út frá haldgóðum upplýsingum og þekk- ingu. Og spyrja má: Styður Þjóð- viljinn það sjónarmið Ölvu Myr- dal, að gagneldflaugakerfi Vestur- landa, Pershing II-eldflaugunum og stýriflaugunum, verði fyrir komið á skipum á Atlantshafi?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.