Morgunblaðið - 27.09.1981, Síða 26

Morgunblaðið - 27.09.1981, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981 Vargöld og víg- öld, og bræð- ur börðust... Eftir þetta hlaut aö draga til tíðinda með þeim Gizuri og Sturlu, og ljóst varð að annar varð að falla. Hefur mönnum löngum gengið erfiðlega að skilja aðgerðir Sturlu við Apa- vatn, að hann skyldi ekki ann- aðhvort friðmælast af heilind- um við Gizur, eða þá hreinlega taka hann af lífi, í stað þess að safna glóðum elds að höfði sér með því að efna til óvináttu við Gizur. Líklegasta skýringin á hegðan Sturlu er þó auðvitað, að hann hafi viljað fara að vilja konungs og drepa ekki höfð- ingja fyrr en í fulla hnefana. Örlygsstaða- bardagi 1238 Sturla réði nú Vesturlandi og faðir hans miklum hluta Norð- urlands, svo vel máttu þeir við una, um sinn aö minnsta kosti. En það gerði Gizur ekki, og taldi hann að sér væri ekki óhætt fyrr en hann hefði gengið á milli bols og höfuðs á Sturlu, og gekk hann í bandalag við Kolbein unga. Þar kom að bar- dagi varð ekki umflúinn, og mættust herir Sturlu og Sig- hvats annars vegar og Gizurar og Kolbeins unga hins vegar, hjá Örlygsstöðum í Skagafirði 1238. Þar voru mörg hundruð manns undir vopnum af beggja hálfu, og voru Sunnlendingar þó sýnu fleiri. Tókst allsnarpur bardagi, þar sem allt fór í handaskolum hjá Sturlungum. Lauk bardaganum svo að þeir féllu báðir, Sighvatur og Sturla, og þrír aðrir synir Sighvats. Voru margir fylgismenn Sturl- unga hart leiknir og aðrir drepnir að bardaganum lokn- um. Víg Snorra 1241 Sturlungar voru nú án for- ystu, þar sem Þórður kakali tók ekki upp merki bræðra sinna fyrr en síðar. En er Snorri Sturluson, sem þá var í Noregi, frétti fall Sturlu og Sighvats, vildi hann ólmur komast út hingað, og fór í óþökk konungs. Varð það til þess að konungur bað Gizur, er þá var honum handgengnastur íslendinga, að koma Snorra utan aftur, eða drepa hann ella. Gizur reyndi ekki að koma Snorra til Noregs, heldur fór að honum í Reykholti 1241, og lét lífláta hann þar. Þar lýkur sögu Snorra, og þar með efnisþræði kvikmyndarinn- ar í kvöld, þótt talsvert væri enn eftir af Sturlungaöld og valdabaráttu höfðingja hér heima. Þar komu áfram við sögu menn eins og Gizur Þor- valdsson og nýir merkisberar Sturlunga, Þorgils skarði, Þórð- ur kakali og fleiri. - AH Ásbirningar Ásbjörn Arnórsson u Ingunn Þorsteinsdóttir (17. ættskrá) I Arnórr v Guðrún Daöadóttir I Ko/beinn (d. 1166) u Herdís Porkelsdóttir • ' Böövarr Sigríðr lngunn Þorsteinn Eiríkr Valgerðr u Hallr Hrafnsson Arnórr (d. 1180) u Ouörún Brandsdóttir Kolbeinn kaldaljós (d. 1246) u Margrét Sæmundardóttir I Halldóra u Jón Sig- mundarson Tumi (laung., d. 1184) u 1. Guðrún Þórisdóttir* 1 u 2. Þuríör Gizurard. I Brandr (d. 1246) Páll Valgerðr Ingigerðr u Jórunn Kálfs- áStað u Helgi (laung.?) dóttir Hámundars. 2: Koíbeinn Arnórr Halldóra u Álfheiðr u (d. 1208) (d. 1221) Sighvatr Ingimundr u Gyðríðr u Ásdís Sig- Sturluson Grímsson Þoivarðsdótt- mundard. Þorsteinn ábóti (laung., átti börn) Arndís (laung.) u Steingrímr Þorvaldss. Eldjárn prestr Þorgeirr Kálfr u Guðný Sturlud. Þorgeirr Arnórr Eiríksson Ko/beinn ungi Sigríðr Herdís (d. 1245) u 1. Hall- u Böðvarr u Böðvarr bera Snorrad. (19. at Stað í Bæ ættskrá)ö2. Helga Sæmundard. Arnbjörg u Órækja Snorrason v Broádi (laung.) orleifsson 1 Þeirra dóttir Sigríðr v 1. Ingimundr prestr Þorgeirsson v Sigurðr Ormsson Haukdælir /s/e/fr a/zurarson biskup (d. 1080) v Dalla Þorvaldsdóttir I Oizurr biskup (d. 1118) I Gráa v Ketill biskup Þorsteinsson Teitr prestr í Haukadal (d. 1110) Hallr prestr í Haukadal (d. 1150) v Þuríðr Þorgeirsdóttir Þorvaldr í Hraungerði Rannveig v Hafliði Másson O/zurr lögsm., djákn (d. 1206) v Álfheiðr Þorvaldsdóttir Þorvaldr prestr Hallr prestr Magnús biskup Þuríðr Kolfinna Halldóra Vilborg (d. 1235) u 1. Jóra lögsm., ábóti (d. 1237) v v 1. Tumi v 1. Ari (laung.) v Bersi (laung.) Klængsd. (d. 1230) V Halldóra Kolbeinsson sterki Halldorsson v Teitr v 2. Þóra Herdís Svein- Hjaltadóttir v 2. Sigurðr v 2. Oarða- Hauks- Guðmundardóttir bjarnardóttir Ormsson Snorri son Hallfríðr Magnús (laung.) Hjalti Oizurr djákn V Steinvör Sáms- (d. 1248) (d. 1255; dóttir I Sámr Halldóra Val- Þórdís gerðr (laung.) v (laung.)u Þorsteinn Teitr Ás- Jónsson láksson 1: Ouðmundr Klængr Björn (d. 1221)1 Einarr djákn v Hallveig Orms- djákn (d. 1210) dóttir (d. 1240) ______________i • _____________I Klængr Ormr Teitr Herdís (d. 1241) (d. 1250) lögsm. v Þórir (d. 1258) tottr 1 Björn tók við Dalverjagoðorði eftir Omi Breiðbæling, tengdaföður sinn. Iögsm.(d. 1259) r jarl v Ketill v 1. Ingibj. Snorra- Þorlákss. dóttir v 2. Oróa Álfsdótt- KlængríTunguu 1. Ásta Andréas- dóttir v 2. Þorgerðr Þorláksdottir 1: Jón 2: Hallr (d. ísleifr Ketil- 1253) v Ingi- (d. 1253)björn björgSturlu- (sér dóttir um móð- ur) 1: Ormr í Bræðratungu, Þorvaldr 2: Ásta V síðar Haukadal (varr hólmr Jónsson (d. 1287) ' Minning: Svanborg Guðmunds- dóttir Hellisholtum Útför Svanborgar Guðmunds- dóttur var gerð að Hrepphólum laugardaginn 22. ágúst sl. Hún lést í Landspítalanum 18. sama mánaðar. Þegar hún Svana er horfin af þessu tilverusviði kemur margt í hugann. Er ég kom í þessa sveit fyrir nærri 40 árum, fór ég í hús, sem Svana og Olgeir höfðu byggt og búið í. Þar ilmaði allt af hreinlæti og bar vott nostursamra húsmóð- urhanda. Alla tíð síðan hefur ver- ið náin vinátta milli heimila okkar. Oft var farið að Hellisholtum til að fá úrlausn allskonar viðfangs- efna, því að Olgeir var smiður og var einkar lagið að gera við vélar og hluti sem bilað höfðu. Alltaf var gott til hans að leita. I eldhúsinu hjá Svönu var nota- lega „hlýjan", góða kaffið, flatkök- urnar og kleinurnar. Löngum strokkaði hún smjör og bjó til skyr. Allt var það með þeim góða brag sem einkenndi allt sem hún gerði, enda var hún sá eljumaður sem ekki lét bugast þó að heilsan væri ekki sterk. Ung að árum varð hún fyrir því að veikjast alvarlega og var skorin upp heima í Dalbæ. Var það eina tiltæka ráðið sem orðið gat henni til bjargar. Það var Lúðvík Nor- dal, læknir á Eyrarbakka, sem framkvæmdi það afrek ásamt að- stoðarlækni og Sigríði systur Svönu. Fáheyrt mun það vera, að -.... ráðist sé í slíkan holskurð við svo frumstæð skilyrði. Læknishendur Lúðvíks, fórnfýsi og natni Sigríðar gerðu gæfumun- inn, því allt sumarið stundar hún systur sína, gerði að sári hennar sem var haldið opnu nokkurn tíma. Á hverjum degi fór hún með það sem sjúklingum tilheyrði á hver, til suðu og sótthreinsunar. Ekki var það þó við bæjarvegginn, heldur þriggja kortera gang frá Dalbæ. Svanborg Guðmundsdóttir var fædd í Dalbæ 7. júlí 1908. Foreldr- ar hennar voru hjónin Guðfinna Kolbeinsdóttir frá Stóru-Más- tungu í Gnúpverjahreppi og Guð- mundur Guðmundsson frá Gafli í Flóá. Svana ólst upp í Dalbæ í glaðværum systkinahópi, við mikla vinnu eins og tíðkast hefur um aldir og lífsbaráttan hefur krafist. Árið 1931 giftist hún Að- alsteini Hallgrímssyni. Hann ólst upp í Skarði í Gnúpverjahreppi. Þeirra samvera varð ekki löng, því að Aðalsteinn lést 1934. Á þeim tíma hafði þeim fæðst drengur sem dó nýfæddur. Árið 1938 giftist hún Olgeiri Guðjónssyni, Jónsson- ar frá Syðra-Seli hér í sveit. Olgeir fæddist í Auðsholti í Bisk- upstungum 2. desember 1911. Fjöl- skyldan fluttist síðan að Stokks- eyri þar sem Olgeir ólst upp hjá foreldrum og systkinum. Við lát móður hans tvístraðist þessi stóri systkinahópur. Olgeir kom hingað í Hrunamannahrepp að Kópsvatni til afabróður síns, Guðmundar Jónssonar og var hér í hreppnum alla tíð síðan. Sama ár og þau Olgeir og Svana gengu í hónaband, byggðu þau lítið hús á jarðarparti sem sveitin átti að Flúðum, en 1944 tóku þau Hellisholtin til ábúðar þar sem þau höfðu byggt íbúðarhús svo og öll útihús er Olgeir lést 1976. Lengst af búskap þeirra stund- aði Olgeir nokkra vinnu utan heimilisins. Kom þá í hlut Svönu að annast bústörfin, sem var henni einkar lagið, því hún var skepnumaður sem kallað er. Þau erilsömu og erfiðu verk vann hún með natni þess manns sem ann hjörð sinni. Sama ár og þau fóru að Hellis- holtum tóku þau kjörson og gáfu nafnið Garðar. Hann var Svönu mikil harmabót og lífsfylling þeim hjónum. Garðar þýr nú með konu sinni Önnu Ipsen og sonunum tveim, Karli Olgeiri og Ásgeiri Ey- þóri í nýju og myndarlegu húsi í Hellisholtum. Heimilið hennar Svönu í Hellisholtum var henni sá starfsvettvangur, sem hún annað- ist af sinni eðlislægu snyrti- mennsku. Vakti hún yfir öllu sem gera þurfti úti og inni, veitul og velviljuð gestum og gangandi. Erfiðleika lífsins, sem ekki fóru hjá garði hennar, bar hún með stilltri ró liðinna kynslóða. Við Hermann þökkum löng og góð kynni og óskum Garðari og fjölskyldu hans allra heilla, og vottum þeim samúð okkar. Katrín Jónsdóttir Kanadískur lögfræðistúdent, 25 ára, óskar eftir bréfasambandi við stúlkur á aldrinum 19 til 26 ára. Hefur mikinn áhuga á ferðalög- um, hjólreiðum, ljóðum og tónlist. Hyggur á íslandsferð á næsta ári: Leslie Thomas Reissner, 3052 Riverview Street, Oakville, Ontario, Canada L6L 1L4. Ógiftur 36 ára Tékki skrifar og segist í leit að ævifélaga. Er pípulagningamaður að mennt, reykir ekki, skrifar á góðri ensku: Ladislav Kuba, Ústi n/L, Kamenny vzch, Novó c. 1407/38 Checkoslovakia 40003. Sextán ára japönsk stúlka með íþróttir og póstkortasöfnun að áhugamáli: Miki Nagao, 124 Takigahara, Miyahara — cho, Arida — shi, Wakayama, 649—04 Japan. Átján ára piltur frá Ghana með margvísleg áhugamál: Skrifar á ágætri ensku: Daniel K. Odoom, c/o Mrs, Ilannah Qunachie, Box 75, Sunyani, Ghana. Bandaríkjamaður, sem ekki get- ur aldurs, óskar eftir bréfasam- bandi við frímerkjasafnara: Russ Robarge, 6 Ronald Ct., Essex Jct. Vt. 054 USA Tíu ára gömul brezk stúlka með margvísleg áhugamál: Julie Evangelista, 57 Rivington Drive, Burscough, Nr. Ormskirk, Lancashire.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.