Morgunblaðið - 27.09.1981, Page 28

Morgunblaðið - 27.09.1981, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981 Á skákborðinu gjörþekkja þeirhvor annan Karpov eða Korchnoi 1981 Á fimmtudaginn verður fyrsta skákin í einvígi þeirra Anatoly Karpovs, heimsmeistara, og Viktor Korchnois, áskoranda, um heimsmeistaratitilinn í skák tefld í Merano á Ítalíu. Samkvæmt venju mun Morgunblaðið gefa lesend- um sínum kost á að fylgjast með einvíginu frá degi til dags, en þar til það hefst verður ferill þeirra Karpovs og Korchnois rifjaður upp og kannaðar horfur í komandi keppni þeirra. I dag birtast brot frá fyrri einvígjum þeirra, en þeir hafa tvisvar áður mæst í keppni um heimsmeistaratitilinn í skák. eftir MARGEIR PÉTURSSON Þeir Viktor Korchnoi og Ana- toly Karpov eru ekki að setjast andspænis hvor öðrum við skák- borð í fyrsta skipti. Alls hafa þeir teflt hvorki meira né minna en 68 kappskákir, sem jafngildir því að þeir hafi setið á móti hvor öðrum yfir tafli í fimmtán sólarhringa samfleytt. Karpov hefur unnið þrettán sinnum, Korchnoi ellefu sinnum og jafnteflin eru orðin 44 talsins. Þeir gjörþekkja því hver annan, enda hafa þeir teflt tvö iöng og erfið einvígi í heimsmeist- arakeppninni og eytt mánuðum, ef ekki árum, í að rannsaka stíl og byrjanakerfi hins. Einvígið sem nú fer í hönd er í raun fjórða einvígi þeirra því árið 1971 var ágætur vinskapur á milli þeirra eftir að þeir höfðu farið saman á alþjóðamótið í Hastings og hinn kornungi stórmeistari Karpov bauðst til að tefla æf- ingareinvígi við Korchnoi, sem var að undirbúa sig fyrir þátttöku í áskorendaeinvígjunum. Það ein- vígi er þó varla marktækt, því Karpov hafði hvítt í öllum skák- unum sex og fékk að vita fyrir fram hvaða byrjun Korchnoi ætl- aði að beita. Einviginu lauk 3:3 hvor vann tvær skákir og tvær urðu jafntefli. Á þessum tíma mættust þeir fimm sinnum á kappmótum og unnu af þeim skákum tvær hvor, en aðeins einu sinni varð jafntefli. Síðan kom að því árið 1974 að þeir mættust í fyrsta sinn í heims- meistarakeppninni. í einvíginu sem fram fór í Moskvu var teflt um áskorendaréttinn á Bobby Fischer, þáverandi heimsmeist- ara. í raun hefur þó síðan verið litið á þetta einvígi þeirra sem heimsmeistaraeinvígi, því Fischer hirti ekki um að verja titil sinn og hefur ekki teflt síðan. Moskva 1974 Hinn 23ja ára gamli Karpov tefldi af mikium fítonskrafti í upphafi, en Korchnoi, þá 43ja ára, virtist finna sig illa. Franska vörnin (1. e4 — e6) hefur löngum verið uppáhaidsvopn Korchnois með svörtu, en að þessu sinni hugðist hann beita öðrum meðul- um og var harðlega refsað fyrir það, því Karpov var mjög vel und- irbúinn. I annarri skákinni beitti Korchnoi hinu tvíeggjaða dreka- afbrigði í Sikileyjarvörn og kom ekki að tómum kofunum hjá hin- um unga andstæðingí sinum. Því hefur jafnvel verið haldið fram síðar að næstum öll skákin hafi komið upp í undirbúningsranns- óknum Karpovs og aðstoðar- manna hans fyrir einvígið. I þess- ari vel þekktu stöðu hafði Karpov nýja og hættulega áætlun á takteinum: Svart: Korchnoi. 16. Rde2! - Da.r), 17. Bh6 - Bxh6. 18. Dxh6 - IIfc8. 19. IId3! - II4c5? Yfir borðinu mistekst Korchnoi að finna svar við vel heppnuðu heimabruggi Karpovs. Betra var 19. - Dd8 eða 19. - Be6. 20. g5! - Hxg5. 21. IId5! - Hxd5. 22. Rxd5 - He8, 23. Ref4! - Bc6, 24. e5! - Bxd5. 25. exf6 - exf6. 26. Dxh7+ - Kf8. 27. Dh8+ og Korchnoi gafst upp. Með hvítu komst Korchnoi ekk- ert áleiðis í fyrstu skákunum og í fjórðu skákinni tryggði franska vörnin honum jafntefli með svörtu. En hann virtist enn ekki hafa lært af reynslunni og í fimmtu skákinni beitti hann vafa- sömu afbrigði af Petroffs vörn (1. e4 — e5, Rf3 — Rf6) og eins og í annarri skákinni tókst Karpov að nýta sér tækifærið með því að taka framúrskarandi vel á móti illa undirbúinni atlögu Korchnois. Sigurvegari varð sá er fyrr vann fimm skákir og margir töidu útséð um að Korchnoi stæðist hinum harðskeytta ungling snúning. í sjöundu og áttundu skákunum var Karpov nálægt sigri, jafnvel þó að Korchnoi beitti frönsku vörninni í hinni síðarnefndu. Eftir þetta virtist Korchnoi kominn yfir erf- iðasta tímabil einvígisins. í fyrsta hluta þess hafði Karpov teflt af gífurlegri hörku og tekist að stilla andstæðingi sínum hvað eftir ann- að upp við vegg en síðan var'sem færi að ganga á orkuforðabúr hans. Eftir að hafa haft frum- kvæðið og verið í sókn í nærri því hverri einustu skák fór hann nú greinilega að gera sig ánægðan með jafntefli. Hann hafði líka tveggja vinninga forskot og sam- kvæmt reglunum nægði að vera yfir eftir 24 skákir, þá væri einvíg- inu lokið. Næstu átta skákum lauk með jafntefli, en nú var það yfirleitt Karpov sem var í vörn. í 11. skák- inni tryggði hann sér ekki jafn- tefli fyrr en eftir 81 leik og í þeirri 13. sótti Korchnoi að honum í 91 leik eða 11 klukkustundir áður en jafnteflið var samið. Flestum virstist nú sem herzlunmuninn skorti aðeins hjá Korchnoi, en í 17. skákinni brást honum heldur en ekki bogalistin. Hann var orðinn naumur á tíma og í stað þess að velja framhald sem hefði gefið honum aðeins betri stöðu gætti hann ekki að sér og tapaði að lok- um skákinni. Svart: Karpov 30. Rc5?? (30. Rxf6+ var sjálfsagð- ur leikur.) 30. — Re5!, 31. IId2 — b6, 32. f4 - bxc5, 33. Íxe5 - Ðxe5. 34. Bb7 - Ilc7, 35. De4 - Dal+, 36. Kg2 — Dxa3, 37. bxc5 - Ilxc5, 38. Hd3 - Da5, 39. Df3 - Db6, 40. IId7 - Hf5, 41. Dg4 - DÍ2+. 42. Kh3 - g6 og Korchnoi gafst upp. Að flestra áliti var nú aðeins tímaspursmál hvenær einvíginu lyki með sigri Karpovs, því nú var forskotið orðið þrír vinningar og aðeins sjö skákir eftir. 17. skákin bar líka augljósum þreytumerkj- um vitni hvað Korchnoi varðaði. En eftir að 18. skákin hafði orð- ið átakalítið jafntefli urðu Karpov og aðstoðarmanni hans Furman á sjaldgæf mistök i biðstöðurann- sóknum sínum á þeirri 19. og Korchnoi tókst að vinna jafntefl- islegt endatafl. I næstu skák hugð- ist Korchnoi síðan láta kné fylgja kviði með svörtu og beitti nú vafa- sömu afbrigði af spænska leikn- um. Þótt Karpov væri að vísu aldrei í taphættu var snerpan frá því í upphafi einvígisins horfin og að þessu sinni náði hann ekki að refsa andstæðingi sínum fyrir tví- eggjað byrjanaval. Tuttugasta skákin kom síðan öllum gífurlega á óvart: Hvítt: Korchnwi. Svart: Karpov. Drottningarindver.sk vörn 1. d4 - Rf6,2. Rf3 - e6,3. g3 - b6. 4. Bg2 - Bb7, 5. c4 - Be7, 6. Rc3 - 0-0, 7. Dc2 - c5!?, 8. d5 - exd5, 9. Rg5 - Rc6?! í fimmtu skákinni lék Karpov 9. — g6, sem er öruggara. 10. Rxd5 - g6, 11. Dd2! - Rxd5?! Betra er 11. — He8. 12. Bxg5 - Hb8?? Svartur átti ekkert betra en 12. — Bxg5. Þessi yfirsjón er hreint ótrúleg af verðandi heimsmeistara og sýnir hversu mikil þreyta var farin að há Karpov. 13. Rxh7! - He8 Svarta staðan er nú þegar töp- uð. Ef 13. - Kxh7 þá 14. Dh6+ - Kg8,15. Dxg6+ - Kh8,16. Dh6+ - Kg8,17. Be4 — f5,18. Bd5+ — Hf7, 19. Dg6+ og vinnur. 14. Dh6 - Re5, 15. Rg5 - Bxg5, 16. Bxg5 — Dxg5, 17. Dxg5 — Bxd5, 18. 0-0! — bxc4, 19. f4 og Karpov gafst upp. Skyndilega var Karpov kominn í óþægilega aðstöðu. Forskotið hafði minnkað niður í einn vinn- ing og hann nýbúinn að tefla verstu skák ævi sinnar. í skákun- um þremur sem eftir voru þurfti hann að taka á öllu sínu. Kunnug- ir sögðu að hann hefði gjörsam- lega misst matarlystina og hann léttist um mörg kílógrömm, svo mikið er víst. En hvað sem því leið tókst Kar- pov að halda jafnvæginu í þessum þremur skákum og tryggja sér þannig sigurinn í einvíginu. En margir veltu því fyrir sér hvað hefði gerst ef hámarksskákafjöld- inn hefði ekki verið 24 skákir, heldur ótakmarkaður, eins og í heimsmeistaraeinvíginu 1978. Baguio 1978 Nú var í fyrsta sinn teflt heims- meistaraeinvígi með ótakmörkuð- um skákafjölda eins og Fischer hafði stundið upp á. Sá sem fyrr ynni sex skákir færi með sigur af hólmi í einviginu engu skipti hvort skákirnar yrðu sex eða 600, nú dygði ekki að vinna eina skák og tefla síðan stíft tii jafnteflis. Eftir að Korchnoi flýði land árið 1978 var hann opinberlega for- dæmdur sem föðurlandssvikari í Sovétríkjunum og loftið í Baguio á Filippseyjum þar sem einvígið fór fram var lævi blandið. Fimm skákmenn aðstoðuðu Korchnoi meðan á einvíginu stóð, Englend- ingarnir Keene og Stean, ísraels- maðurinn Murei, Panno frá Arg- entínu og góðkunningi Islendinga, séra Lombardy. AUk þess var með liöi hans, svissnesk ekkja Petra Leeuwerik sem gætti þess að Rússar gerðu ekkert á hluta Korchnois meðan á einvíginu stæði. Hún sakaði þá um að smygla boðum til Karpovs í jóg- úrtdollu svo sem frægt varð auk þess sem hún taldi þá beita dulsál- arfræðingnum Zoukhar til að trufla Korchnoi. Af fréttum í fjölmiðlum mátti helst ráða að einvígið í Baguio væri einn allsherjar skrípaleikur þar sem taflmennskan sjálf skipti minna máli en taugastríðið sem fram fór utan skákborðsins. Svo var þó auðvitað ekki. Einvígið var mikilvægur skákviðburður þar sem báðir lögðu allt í sölurnar til þess að ná sigri. Undirbúningur- inn var gífurlegur, hvor um sig hafði á sínum snærum fjölda sterkra skákmanna við rannsókn- ir á byrjunum og skákstíl tilvon- andi andstæðings. Með Karpov í Baguio voru þeir Balashov, Zaitsev og Mikhaii Tal, fyrrum heimsmeistari sem var þó skráður sem blaðamaður, auk margra annarra hjálparmanna, svo sem Zoukhars. Einvígið fór rólega af stað. Helst kom á óvart svar Korchnois við uppáhaldsleik heimsmeistar- ans 1. e4. Nú valdi hann opna af- brigðið í spænska leiknum (1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5 - a6,4. Ba4 — Rf5, 5. 0-0 — Rxe4), byrjun sem leiðir venjulega til opinnar stöðu sem krefst hvassrar tafl- mennsku. Franska vörnin, sem Korchnoi tapaði ekki skák með í einvíginu 1974 var hins vegar lögð á hilluna, enda við því að búast að Karpov og félögum hefði tekist að finna vænlegar leiðir gegn henni. Fyrstu fjórar skákirnar urðu fremur litlaus jafntefli og haft var á orði að með slíku áframhaldi yrði einvígið endalaust. Loks í fimmtu skákinni fékk Korchnoi mun betri biðstöðu. Eftir bið brá Karpov á það ráð að fórna peði, en það dugði skammt og eftir að hann hafði leikið of hratt til að notfæra sér tímahrak Korchnois kom upp þessi staða: Svart: Karpov. 55. Be4+?? Skákmenn um allan heim voru orðlausir er þeir sáu þessa stöðu ... Hvernig gat Korchnoi, jafvel þótt hann væri í tímahraki, sézt yfir hinn sáraeinfalda vinnings- leik 55. Bf7+. 55. — Rexe4, 56. Íxe4+ — Kxe4, 57. Dg4+ — Kd3 og á endanum slapp Karpov með skrekkinn, þó ekki væri samið fyrr en 70 leikjum síðar. Sjötta skákin varð bragðdauft jafntefli, en í þeirri sjöundu brá til beggja vona. Fyrst stóð Korchnoi betur, en staðan var svo flókin að hann réði ekki við hana í tímahrakinu og Karpov fékk unna biðstöðu að því er virtist. En í einni af hinum frægu biðstöðu- rannsóknanóttum í Baguio kom- ust báðar sveitir að þeirri niður- stöðu að Karpov hefði leikið af sér rétt fyrir bið og staðan sem allir höfðu talið vonlausa væri í raun og veru jafntefli. Því var samið um biðstöðuna án þess að einum einasta leik væri leikið. Loks í áttundu skákinni fengust úrslit. Korchnoi var of djarfur með svörtu og eins og í einvíginu 1974 lét refsingin ekki á sér standa. Ilvítt: Karpov. Svart: Korchnoi. Spænski leikurinn. I. e4 - e5. 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5 - a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 - Rxe4, 6. d4 - b5, 7. Bb3 - d5, 8. dxe5 - Be6, 9. Rbd2 - Rc5, 10. c3 - g6?! Áætlun svarts er of tímafrek eins og Karpov sýnir fram á. í 10. skákinni lék Korchnoi 10. — d4, sem Karpov svaraði með hinum skemmtilega leik 11. Rg5!? Hug- myndin er 11. — Dxg5, 12. Df3. II. De2 - Bg7,12. Rd4! - Rxe5, 13. f4 — Rc4, 14. 15 — gxf5, 15. Rxf5 — Hg8, 16. Rxc4 — dxc4, 17. Bc2 - Rd.3. 18. Bh6! - Bf8, 19. Hadl - Dd5, 20. Bxd3 - cxd3, 21. Hxd3 - Dc6, 22. Bxf8 - Db6+, 23. Khl - Kxf8, 24. Df3 - Ile8, 25. Rh6 - IIg7

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.