Morgunblaðið - 27.09.1981, Page 39

Morgunblaðið - 27.09.1981, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981 39 leið útúr vandanum? Biðröð eftir eldspýtum. Jafnvel eldstokkar eru illfáanlegir í þessu landi. leggja starfið í fyrirtækjunum af einhverju viti. Þá sté Jarúselski í ræðustól og hafði naumast annað að segja en að öllum bæri að bera virðingu fyrir forstjórum og hinu sósíaliska ríkisvaldi. Menn höfðu búist við að hann ætlaði að hreinsa til í nefndarfarganinu, og Jarúselskí hefur nú misst traust manna. Jarúselskí skipaði nefnd til að ráða bót á kreppunni, en lítið hef- ur heyrst frá þeirri nefnd. Þá hófu stjórnvöld samninga um inngöngu í Alþjóðlega gjaldeyrissjóðinn til að afla frekari lána, en sjóðurinn setur tvö skilyrði fyrir inngöngu. I fyrsta lagi að lánin renni til arð- bærrar starfsemi, og í öðru lagi að starfsmenn sjóðsins fái að heim- sækja landið og gera úttekt á stöðu efnahagsmála þar, sem er almenn starfsregla sjóðsins við aðildarlönd. Það er ómögulegt að uppfylla fyrra skilyrðið við núver- andi aðstæður, og hið seinna geta stjórnvöld ekki uppfyllt af póli- tískum og hugmyndafræðilegum ástæðum. Kanía, leiðtogi flokksins, heim- sótti nýverið Poznan þar sem upp- þotin urðu hvað hörðust 1956 og hélt fund með framámönnum kommúnista þar um slóðir. Þeir voru allir hreinskilnir í ræðum sinum og vildu endurvinna traust fólksins með því að vinna sjálfir heiðarlega. Kanía nefndi ekkert slíkt á nafn í sinni ræðu, en hann gat þess að félagi Brésnef hefði þegar þungar áhyggjur af ástand- inu. Svo gagnrýndi hann Sam- stöðu fyrir kröfuhörku. Aðgerðarleysi stjórnvalda hefur vakið þær raddir, sérílagi meðal ungs fólks, að í raun ríki bylt- ingarástand í Póllandi. Lenín skilgreindi byltingarástand svo, að það væri þegar lægri stéttirnar gætu ekki haldið lengur áfram að óbreyttu og yfirstéttin gæti ekki lengur stjórnað að óbreyttu. Unga fólkið segir, að slíkt ástand hafi skapast í landinu i ágúst í fyrra. Spurningin er því, hvað verður úr þessari byltingu. Það var sagt að ef ungverska byltingin hefði feng- ið að þróast hefðu Ungverjar skapað þjóðfélag, sem væri hvorki austrænn kommúnismi né vest- rænn kapitalismi. Eins konar millistigsþjóðfélag. En það veit enginn hvernig það hefði í raun- inni orðið. Og það veit enginn hvað kemur útúr hræringunum í Póllandi. Þar er við fáar forskrift- ir að styðjast og menn verða að fikra sig áfram. Frumkvæði Samstöðu Vegna þessarar allsherjar löm- unar í landinu sá Samstaða sér ekki annað fært en hafa frum- kvæði að tillögum um efnahags- mál og aðgerðum á vinnustöðum. Kolaframleiðsla hefur minnkað verulega síðustu misseri og geta Pólverjar ekki lengur flutt út kol sem öfluðu þeim helstra gjaldeyr- istekna. Samstaða hefur lagt á það áherslu að koma kolafram- leiðslunni í samt lag og skorað á námamenn og aðra verkamenn að vinna á laugardögum fyrir sama kaup og aðra daga vikunnar. Al- menningur hefur ekki skorast undan að vinna á laugardögum. Þá skoraði Samstaða á fólk að létta undir með bændum yfir háupp- skeruna, svo enginn matur færi nú forgörðum. Samstaða hefur ítrek- að lagt til að verkamenn fái nokk- urn rétt til ákvörðunartöku á vinnustöðum, en stjórnvöld sitja við sama heygarðshornið. — Þið lofuðuð að vera verkalýðshreyfing, segja þau, þið skrifuðuð uppá það. Þið eruð ekki þjóðmálahreyfing, þið eruð að fara út fyrir ykkar svið. Áróðurinn núna um að Sam- staða sé að reyna að ná undir sig völdum, er einhvers konar nauð- vörn ríkisstjórnarinnar við þrýst- ingi frá verkafólkinu. Það hlýtur að koma til þess að stjórnvöld láti undan þeim þrýstingi og gangi til samninga. Þau verða á endanum að samþykkja frelsi í menning- armálum, víðsýni í fréttaflutningi og ég get ekki skilið að Samstaða láti nokkurn tímann af kröfu sinni um stjórnaraðild verkamanna í fyrirtækjunum. Það þarf að finna hæfilegan milliveg, og fyrsta skrefið til hans er að koma á lýðræðislegri stjórn á vinnustöð- unum. Það er hugsanlegt innan ramma kerfisins, að þingið verði virkara og taki ríkari þátt í störf- um ríkisvaldsins. Nokkurt val í kosningum er heldur ekki útilok- að. Þeir tveir flokkar sem leyfðir eru í landinu auk Kommúnista- flokksins gætu orðið atkvæða- meiri, þó ekki sé um fjölflokka- kerfi að ræða í vestrænum skiln- ingi. Samstaða viðurkennir Flokk- inn sem leiðandi afl í pólska rík- inu, samþykkir þátttöku Pólverja í Varsjárbandalaginu og Comecon — en á þetta þrennt hlýtur Sovét- stjórn að leggja höfuðáherslu. Hin póli- tíska kreppa Stjórnvöld eru í rauninni milli steins og sleggju, því komist þau í náð með pólskum almenningi falla þau í ónáð hjá Rússum. Við því var búist eftir flokksþing Komm- únistaflokksins í sumar, að stjórn- völd ætluðu að sætta sig við orð- inn hlut og festa í sessi hin nýju þjóðlífsform, en nú er að koma á daginn að þau ætla sér ekki að samþykkja nema sem minnstar breytingar. Sá er einmitt kjarninn í hinni pólitísku kreppu í Póllandi, að stjórnvöld geta blátt áfram ekki samið um innanlandsfrið, með þeim skilyrðum sem almenningur í landinu setur, og um leið geta þau ekki það, sem þau helst vildu, ráðið niðurlögum hinna frjálsu verkalýðsfélaga. Þau hafa ekki afl til þess. Og verkafólkið getur ekki hvik- að frá stefnu sinni um málfrelsi, ritfrelsi, réttinn til að starfrækja frjáls verkalýðsfélög, og kröfu um aukna stjórn verkamanna í fyrir- tækjunum. Stjórn verkamanna í fyrirtækjunum fer sérstaklega fyrir brjóstið á stjórnvöldum. Þau segja, að það myndi þýða „upp- lausn í pólitískri skipulagningu í fyrirtækjunum". Og Rússar geta ekki sætt sig við neitt sem rýrir alræði flokksins og „glæsilegan árangur sósíalismans". Innrás? Menn setja gjarnan atburðina í Póllandi í alþjóðlegt samhengi, eins og gefur að skilja, en Pólverj- ar segja: — Við höfum áhuga á því hvað okkar stjórn gerir gagnvart okkur, áhrifin útávið skipta okkur minna máli. Öllum er þó ljóst, að það er fylgst náið með málefnum Póllands. Kanía hitti Brésnef að máli við Svartahaf 15da ágúst sl. og að fundi sínum loknum gáfu þeir langa og ítarlega yfirlýsingu, skrifaða í þeim sérkennilega kans- ellístíl sem tilheyrir. Þó stíllinn sé torskilinn, mátti ráða að í yfirlýs- ingunni fælust fyrirheit af hálfu stjórnar Sovétríkjanna um að grípa ekki inn í gang mála í Pól- landi að svo komnu máli, og jafn- framt að æðstu menn Sovétríkj- anna hefðu lagt hart að Kanía, að koma aftur á röð og reglu í land- inu. Og við vitum hvað það þýðir. Af yfirlýsingum Tass síðustu daga er berlega ljós afstaða Sovét- stjórnarinnar — hafi hún þá ein- hvern tímann verið óljós. í sumar bárust fregnir af verkföllum inn- an Sovétríkjanna sjálfra og fyrir nokkrum árum var gerð þar til- raun til þess að stofna frjáls verkalýðsfélög, en sú tilraun var snarlega kæfð. Nágrannaríkin hafa áhyggjur af því að pólska farsóttin breiðist út, en hvort þær áhyggjur leiði til beinna aðgerða er erfitt að segja um. í Austur- Þýskalandi og Tékkóslóvakíu er hönd stjórnarinnar það sterk, að það er varla við því að búast að þar gerist neinir svipaðir viðburð- ir og hafa verið að gerast í Pól- landi. Maður getur ímyndað sér, að stjórn Sovétríkjanna vilji láta at- burðina í Póllandi hafa sinn gang, að svo miklu leyti sem þeir valda ekki skaða í samfélagi sósíalískra ríkja. Að því tilskildu sem sagt, að Pólverjar verði áfram í Varsjár- bandalaginu og Comecon, og leyfi sovéskum her að vera áfram í Póllandi og láti hann njóta nauð- synlegrar aðstöðu og allra sam- gangna, fremur en stofna til Vi- etnam-stríðs í Evrópu. Þeir ráða illa við Afganistan og ekki geta þeir brauðfætt alla Pólverja. Þá myndi og allur hinn vestræni heimur væntanlega taka fyrir öll viðskipti til Sovétríkjanna. Mat- vælaástandið er ekki of gott í þessu stóra landi, og þeir eru einn- ig mjög háðir innflutningi á tæknivörum frá Vesturlöndum. Það er hjákátlegt til þess að hugsa, að Pravda er prentað með bandarískum vélum. Imre Nagy sagði Ungverja úr Varsjárbanda- laginu í nóvember 1956 og það gátu Rússar ekki þolað. Ekkert slíkt stendur til í Póllandi, eins og ég hef þegar nefnt. En fréttir, sem nú berast af þingi Samstöðu, hafa leitt til harkalegra viðbragða sov- éskra leiðtoga, og ályktun Sam- stöðu um að verkafólk í nágranna- löndum, öðrum ríkjum undir kommúnisma, eigi að fara að dæmi þeirra, er óvarkárni og vatn á myllu andstæðinganna. ★ Pólland er vestræn menningar- þjóð og allur þankagangur Pól- verja er vestrænn. Þeir mega vera stoltir af menningu sinni sem byggir á latneskum grunni. Þeir gengu í gegnum endurreisnina og þú finnur ekki mun ef þú ferðast: Pólland — Vín — Flórens — Nap- ólí — Róm. Byggingarstíllinn er sá sami. Og Pólverjar hafa ævin- lega barist fyrir frelsi sínu. Um Tékka gegnir til dæmis öðru máli. Þjóðernishyggja þeirra á 19du öld, fólst í því að endurreisa tékkneska menningu, en ekki í beinni frels- isbaráttu. Pólverjar hafa aftur á móti löngum orðið að berjast fyrir frelsi sínu og barist hart. Enn í dag eru Pólverjar að berjast fyrir frelsi sínu. J.F.Á. Fyrir nokkru efndu þessir strákar til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra og söfnuðu þeir 200 krónum til félagsins. Þeir heita: Páll Svavar Pálsson, Iiálfdán Lárus Petersen og Ingi Kristinn Pálsson. Hér á þessari mynd eru stöllurnar Ilrafnhildur Baldursdóttir, Bryn- dís Baldursdóttir og Ágústa Valdís Jónsdóttir. — Þær efndu til hluta- veltu til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra og söfnuð tæp- lega 90 krónum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.