Morgunblaðið - 08.10.1981, Síða 2

Morgunblaðið - 08.10.1981, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 Fær Amarflug leyfi á Þýzkaland og Sviss? STEINGRÍMUR Hermannsson, samKönKuráðherra, er sam- kvæmt upplýsinKum Mbl. kom- inn mjöK nálægt þvi, að taka ákvörðun um að veita ArnarfluKÍ áatlunarflunleyfi á Þýzkaland ok Sviss <>k Frakkiand sé jafnvel inni i myndinni, en beiðni um þetta ÍIuk frá ArnarfluKÍ JÍKKur nú til meðferðar í ráðuneytinu. í beiðni sinni sótti Arnarflug um áætlunarleyfi á Zurich í Sviss, París í Frakklandi og Frankfurt og Hamborg í Vestur-Þýzkalandi. Flugleiðir hafa hins vegar verið með leyfi til áætlunarflugs til Frankfurt og Dússeldorf í Vest- ur-Þýzkalandi og Parísar í Frakklandi. Samgönguráðherra hefur marg- lýst því yfir að hann telji heppi- legt að hér á landi verði starfandi tvö millilandaflugfélög, eitt stórt, þ.e. Flugleiðir, og eitt minna, þ.e. Arnarflug. Samkvæmt venju fer umsókn Arnarflugs um áætlunarleyfin frá ráðuneytinu til Flugráðs, sem er ráðgefandi aðili fyrir ráðherra, en lokaákvörðun í málinu er síðan á hendi samgönguráðherra. Annar ársfjórðungur: Minni iðnaðar- framleiðsla FRAMLEIÐSLUMAGN í iðn aðarframleiðslu hefur lítil- lega minnkað á 2. ársfjórð- ungi miðað við sama tíma á árinu 1980, segir í Ilag- sveifluvog iðnaðarins. Gerð var úrtakskönnun, sem að þessu sinni náði til 90 iðnfyr- irtækja í 22 greinum. Vegið hlutfall fyrirtækja í úrtakinu með framleiðslu- minnkun er 38%, en fyrirtæki með framleiðsluaukningu eru 34%. Hér gætir sömu tilhneig- ingar og á fyrsta ársfjórðungi á þessu ári, nema hvað sam- drátturinn er heldur vægari. Það eru fyrirtæki í öl- og gosdrykkjaframleiðslu, papp- írsvöruframleiðslu, ásamt sút- un og álframleiðslu, sem gefa framleiðsluminnkun til kynna. Rétt er þó að geta þess, að ál- framleiðslan vegur mjög þungt í framleiðslumagni heildarinnar. Væg framleiðsluaukning eða óbreytt framleiðsla kemur fram hjá ullariðnaði, fatagerð og húsgagnaframleiðslu. Aðr- ar greinar telja framleiðsluna hafa aukizt. Sölumagn telja framleið- endur hafa aukizt á 2. árs- fjórðungi í ár miðað við sama tíma í fyrra, þegar litið er á iðnaðinn í heild. Telja 49% fyrirtækjanna söluna hafa aukizt, en 24% þeirra telja hana hafa minnkað. Söluhorfur á 3. ársfjórðungi eru taldar nokkuð ámóta og á Maðurinn. sem drukknaði í Eski- (jarðarhöfn, Elías Valur Bene- diktsson. Elías var fæddur 10. janúar 1958. Hann var búsettur í Þor- lákshöfn og lætur eftir sík tæp- leKa tveKKja ára dóttur ok unn- ustu............................. 2. ársfjórðungi fyrir heildina. Verulega lakari söluhorfur koma þó fram í prjóna- og ull- ariðnaði, öl- og gosdrykkjaiðn- aði, húsgagnagerð, sápu- og þvottaefnagerð, plastvöru- iðnaði, skipasmíðum og skipa- viðgerðum. Bjartsýni gætir hins vegar í brauðgerð, sælgætisgerð, mat- vælaiðnaði og málningargerð, en fyrirtæki í þessum greinum spá töluverðri söluaukningu á 3. ársfjórðungi. Bylgja fékk á sig brotsjó við Færeyjar ÞEGAR vélbáturinn Bylgja var á leið i söluferð til Hull fyrir helgi varð báturinn fyrir brotsjó suður af Færeyjum. Við brotsjóinn skolaði þvotta- kari út af dekki og ennfremur stíufjölum. Þá komst sjór í brú bátsins og skemmdust við það siglinga- og fiskileitartæki. Eftir óhappið hélt Bylgja inn til Fær- eyja og þar tókst að gera við öll tæki í brú a.m.k. til bráðabirgða og að nokkrum klukkustundum liðnum hélt Bylgjan áfram til Hull. Sigurbáran til Þorlákshafnar NÚ ER búið að selja Sigurbáru VE, sem strandaði á Sólheima- sandsfjöru sl. vetur, og hafa aðil- ar i Þorlákshöfn fest kaup á skip- inu. Sigurbára var dregin í sumar til Akureyrar og hefur skipið verið síðan í viðgerð hjá Slippstöðinni hf. Mun nú vera langt komið að gera við skipið, meðal annars hafa sérfræðingar frá vélaframleiðend- um skipsins yfirfarið allan véla- búnað. Gert er ráð fyrir að skipið verði tilbúið til afhendingar síðar í þessum mánuði. Eins og kunnugt er, þá keypti Björgun hf. skipið á strandstað. Það eru Hafliði hf., Suðurvör hf. og fimm einstaklingar tengdir þessum fyrirtækjum í Þorláks- höfn, sem hafa keypt skipið. Ný loðnunót kost- ar nú yfir 1 millj. kr. NÚ MUNU vera liðin tvö ár síðan íslenzk útgerð lagði i þann kostn- að að kaupa nýja loðnunót, frek- ar eru næturnar sem eru I notkun smám saman endurnýjaðar, enda er kostnaðurinn við kaup á nýrri nót orðinn það mikill, að flestum óar við. Morgunblaðinu var tjáð í gær að ný loðnunót af stærðinni 300x80 faðmar, en það mun vera meðal- stærð af nót, myndi nú kosta í kringum 1,1 millj. kr. Talið er að efni í slíka nót kosti um 110 þús. dollara eða um 800 þús. krónur, teinaefni kostar um 100 þús. kr., flot á nótina kostar um 60 þús. kr., blýið, væntanlega um 4,8 tonn, 43—45 þús kr. og snurpuvír um 25 þús. kr. Þá er talið að 1500 vinnu- stundir fari í það að setja nótina upp og kostnaður við það er í kringum 100 þús. kr. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra: Brottflutningur ungs fólks úr byggðarlögum vegna aassfíf-4 upplausnarástands Skora á Alþingi að virkja Blöndu næst HINN 3. október sl. hélt kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins i Norður- landskjördæmi eystra aðalfund sinn í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri. Fjögur framsöguerindi voru flutt á fundinum. Alþingismennirnir Lárus Jónsson og Halldór Blöndal ræddu um stjórnmálaviðhorfin. Knútur Otterstedt flutti erindi um orkumál og Gunnar Ragnars talaði um iðnaðarmál. Að loknum framsöguerindum voru allmiklar umræiV ur. Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: „Aðalfundur kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna í Norður- landskjördæmi eystra vekur at- hygli á þeirri þróun sem orðið hef- ur í atvinnumálum á síðustu miss- erum. Hún sýnir að framleiðslu- og útflutningsgreinarnar eiga við vaxandi rekstrarörðugleika að stríða sem sums staðar hafa leitt til lokunar fyrirtækja, en önnur safnað skuldum. Þetta ástand veldur upplausn í byggðarlögun- um og leiðir til brottflutnings fólks, einkum ungs fólks. Þetta upplausnarástand verður umfram allt rakið til rangrar stefnu í at- vinnu- og efnahagsmálum. Kostn- aðarliðirnir hafa hækkað úr hófi fram, ekki síst opinber þjónusta, og mun meira en tekjumöguleik- arnir gefa tilefni til. Boðað hefur verið að þessi halli verði jafnaður með erlendum lántökum fyrir milligöngu ríkisstjórnarinnar. Þeirri leið hljótum við að hafna. Þess í stað er nauðsynlegt að vinna bráðan bug að því að búa atvinnuvegunum eðlileg rekstr- arskilyrði, þar sem frjálst fram- tak nýtur sín og efnahagur fyrir- tækjanna batnar. Það er forsend- an fyrir því að hér sé hægt að halda uppi menningarlífi og veita þá þjónustu í heilbrigðis- og fé- . ■ íagsmálum, sem ætlast er til í nú- tíma þjóðfélagi. Kjördæmisráð telur að gera verði sérstakt átak í orku- og atvinnumálum á Norður- landi og bendir á þá staðreynd að virkjun Blöndu sé tvímælalaust besti virkjunarkostur lands- manna. Augljóst er, að hún er til þess fallin að verða lyftistöng nýrrar sóknar í atvinnumálum fjórðungsins alls og tryggir að Norðlendingar verði í fylk- ingarbrjósti í framfarasókn þjóð- arinnar. Því skorar kjördæmis- ráðið á Alþingi að ákveða þegar í stað að næsta stórvirkjun verði í Blöndu og að unnið verði að því að koma nýiðnaði og stóriðju á fót í tengslum við virkjunina. Kjör- dæmisráð telur eðlilegt að slíkum stórfyrirtækjum sé valinn staður í Eyjafirði eða við Húsavík." Stjórn kjördæmisráðs var endurkjörin og er hún þannig skipuð: Formaður Svanhildur Björg- vinsdóttir, Dalvík. Aðrir í stjórn: Höskuldur Sigurgeirsson, Húsa- vík, Sigurður B. Björnsson, ólafs- firði, Sigurður Hannesson, Akur- eyri, Valdimar Kjartansson, Hauganesi. Til vara: Helgi ólafs- son, Raufarhöfn, Sveinbjörn Steingrímsson, Dalvík, Þórunn Sigurbjörnsdóttir, Akureyri, Tryggvi Pálsson, Akureyri, Guð- mundur Frímannsson, Akureyri. rjúpnaveiðimöimum Rjúpnaveiðitíminn hefst 15. október nk. eða fimmtudaginn i næstu viku. Nokkur brögð hafa verið að því undanfarin ár að rjúpnaskyttur hafi haldið of fljótt til fjalla í rjúpnaleit. Vegna þessa mun lög- reglan í Reykjavík fylgjast með ferðum manna í nágrenni borgar- innar næstu daga og verður sér- stakt eftirlit nú um helgina. Þeir veiðimenn, sem þjófstarta, verða umsvifalaust gripnir og kærðir. O INNLENT Þungfært víðast hvar FÆRÐ A landinu var í gær viðast hvar þung, að undanskildu Vest- ur- ok Suðurlandi. að sÖKn vega- eftirlitsmanna. Nokkuð mikill snþir var á Vestfjörðum, Nórður- landi, einkum Norðurlandi eystra <>K á Austfjörðum. Þá var í þess- um landshlutum víða éljaganKur (>K óvist um hvort tækist að haida vegum opnum. í gær opnaðist leiðin alveg vest- ur á firði að vestanverðu, en Þorskafjarðarheiði er ófær. Þá var sæmileg færð norður Holtavörðu- heiði og um vestanvert Norður- land. Aðeins var fært jeppum og stærri bílum norður á Hólmavík um Strandir, reynt verður að lag- færa veginn þann á föstudag. Þá var fært til Siglufjarðar í gær, eftir að mokað var í fyrradag. Þar hefur verið éljaveður og óvíst hversu lengi vegurinn helst opinn. í gær var verið að moka Öxna- dalsheiði og ætti hún að vera sæmilega fær. Sömu sögu er að segja um Ólafsfjarðarmúla. Fært var um Dalsmynni austur til Húsavíkur og um miðjan dag í gær alveg austur með ströndinni allt til Vopnafjarðar. Þó var einhver fyrirstaða á Sandvíkurheiði á milii Bakkafjarðar og Vopnafjarðar. í Mývatnssveit var svokallaður kísilvegur mokaður í fyrradag og var þar fært í gær. Þar var éljaveð- ur og því óvíst um framhaldið. Sæmilega fært var um Hérað í gær, en snjór var á öllum vegum og hált. Möðrudalsöræfi voru ófær og Vatnsskarð einnig talið ófært. Fært var jeppum og stórum bílum um Fjarðarheiði og Oddsskarð var opnað í gær, en ófært suður með fjörðum. Snjólaust var í gær eftir að kom- ið er suður í Hornafjörð og á Suð- urlandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.