Morgunblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 — Á hverju ári kemur upp sama vandamálið er fjalla skal um árlega haustsýningu Félags íslenzkra myndlistarmanna, sem er, að sýningin virðist ekki hafa fastan grunn né saekja í sama mæli í erfavenju og hefðir eins og hliðstæðar sýningar erlendis. Sumir vilja álíta hið lausa form styrk sýningarinnar og vísa þá gjarnan til frjálslyndis, en það er ekki alskostar rétt þar sem slíkar sýningar eiga hvorki að bera vott um frjálslyndi né íhaldssemi og einfaldlega kynna þverskurð á vinnu starfandi félagsmanna. Vil ég að nokkru kryfja þessi mál í þessari umfjöllun. — Verk sem tekin eru til sýn- ingar mega ekki vera eldri en fimm ára og þeirri reglu hefur nokkurn veginn tekist að fram- fylgja í gegnum árin. Yfirbragð hverrar sýningar markast svo af innsendum verkum og skoðunum meirihluta kjörinnar sýningar- nefndar- hverju sinni. Sýningar- nefndin er þannig ósjálfrátt undir smásjá er dæmt er um sýningarn- ar í heild því að hún hefur valið úrtak úr innsendnum verkum. Þessi sýning er langtífrá sérís- lenzkt fyrirbæri enda sniðin eftir eriendu mynstri haustsýninga víða um heim og ber að miða störfin við það og gera ekki minni kröfur. Sýningarnefnd er mikill vandi á höndum enda hefur það t.d. þráfaldlega skeð erlendis, að þeir sem hafnað er, hafa ekki sætt sig við þann úrskurð og áfrýað honum undir dóm almennings og gagnrýnenda með sérstökum opnum sýningum. Ekki er ég að hvetja til þessa hér enda mun óhægt um vik hérlendis vegna lít- ils fyrirvara og engrar samstöðu fórnardýranna. En minna má á það, að að því gæti komið hvenær sem er ef upp úr sýður. — Vegna þess, að núverandi fyrirkomulag um þóknun fyrir innsendar myndir hefur vakið furðu og umtal manna á meðal, vil ég gjarnan upplýsa, að því var upprunalega komið á fyrir frum- kvæði mitt þegar ég var í sýn- ingarnefnd. Einnig voru þá samin lög fyrir haustsýninguna í sam- ræmi við hliðstæðar sýningar er- Sýningarnefndin ásamt tveim gesta haustsýningarinnar, þeim Hildi Hákonardóttur (lengst til vinstri) og Björgu Þorsteins- dóttur (önnur frá hægri). Mynúllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Andlitsmynd Ragnars Kjart- anssonar af heiðursmannin- um og listvininum Hallsteini Sveinssyni. en þess nýtur ekki lengi á þessum árstíma. Þetta tímabil í list Ragn- ars er mjög athyglisvert en á skömmum tíma gerði hann margt ágætra portrettmynda og þó voru þær um margt mýkri og sterkari í leirnum áður en þær fóru í brennslu. — Björg Þorsteinsdótt- ir hefur fengið heilan endavegg undir myndaröð sína „Bréf til Ástralíu", og mætti því ætla hana aðalgest sýningarinnar. Frúin kynnir í fyrsta skipti ný vinnu- brögð í blandaðri tækni, grafík og akryl. Það er sterkur heildarsvip- ur yfir verkinu og minnir það um sumt á vinnubrögð Andy Warhol og myndaraðir hans, en formið er annað og óhlutlægara. Myndaröð- in ber dugnaði listakonunnar fag- urlega vitni en það er mikil spurn- ing hvort verkið hefði ekki orðið Braga bórs Gíslasonar. Framlag sumra þessara listamanna nær kafnar í þrengslum og nýtur sín alls ekki á meðan aðrir fá feyki- nóg rými. Mynd Braga Þórs „Konumynd", litblýantur, er mjög athyglisverð og nútímaleg í teikn- ingu og minnir á „súperrealisma" í fyrsta gæðaflokki. En menn uppgötva þetta ekki fyrr en við nákvæma skoðun vegna þess hve einangraðar myndir hans eru í upphengingu. Þá njóta myndir Einars Bald- vinssonar sín mjög illa í gangin- um og eru að auki hörmulega hengdar upp og svo er einnig með myndir Sveins Björnssonar en margur hefði tekið þær í burtu í hans sporum. Hins vegar nýtur mynd Guðbergs Auðunssonar sín vel þar sem hún er staðsett í HUGLEIÐINGAR Á HAUSTSÝNINGU lendis. Starfsreglur getur hver og ein sýningarnefnd mótað sér eftir geðþótta og kynnt þeim er áhuga hafa á þátttöku, en lögum getur einungis aðalfundur breytt. Papp- íra með upplýsingum um lög, regl- ur og stefnumörk á hver og einn að geta fengið í hendurnar löngu fyrir skilafrest á verkum. Menn hafa þá rúman tíma til ákvörðun- artöku, hver og einn veit að hverju hann gengur og verður því síður fyrir óafturkræfum fjárút- látum. Eins og er renna margir blint í sjóinn og því verður eðli- lega margur illur er verkum er hafnað. Þetta er einmitt gert er- lendis og svo var það í upphafi einnig hér og án þessa tel ég eng- an grundvöll fyrir því að krefja menn um gjald fyrir innsendar myndir. Allar stórsýningar þurfa að hafa sitt markvissa form, ann- ars gengur dæmið ekki upp. Gjarnan má minna á að í lögum sýningarnefndar segir m.a., að einungis sýningarnefnd megi koma nálægt upphengingu verka, en því miður virðist þetta ekki alltaf vera haldið auk þess sem óskráð lög hafa verið brotin og það er tvímælalaust ein af orsök- um þess að ekki þykir jafn eftir- sóknarvert að senda inn myndir og áður. Þessi lög voru einmitt samin þegar markmiðið var að gera Haustsýningu FÍM að mesta viðburði ársins á myndlistarvett- vangi hérlendis og þá yrði það sjálfkrafa jafnan mikill heiður og listasigur fyrir utanfélagsmenn að fá inn myndir. Álíta má að þeim stefnumörkum hafi verið náð því að þáverandi sýningar- nefnd skilaði af sér fyrirtækinu í miklum blóma og uppgangi og hún ber enga ábyrgð á síðari þróun. í þann tíma var enginn hörgull á myndum félaga í FÍM, svo að ekki þurftum við að fylla upp í eyðurnar með boðsgestum og þó voru sýningarnar helmingi stærri. Hins vegar er hugmyndin um gesti á haustsýningarnar ágæt t.d. í því formi er Louise Matthíasdóttir var gesturinn fyrir nokkrum árum. En nú eru gestirnir orðnir fullmargir í einu og framlag þeirra ríkjandi þáttur sýningarinnar og ef svo heldur fram verður lítill veigur í því að vera þátttakandi í framtíðinni nema sem gestur! — Máski hafa menn ekki athugað þennan mögu- leika í upphafi né að fyrirkomu- lagið gæti fælt frá viðkvæma fé- lagsmenn er vilja ekki vera ann- ars flokks á félagssýningu. Þetta, að stefna að ákveðnu sýningar- mynstri í upphafi og láta hug- myndina svo ráða ferðinni frekar en innsend verk, — búa frekar til fallega sýningu en forvitnilega, tel ég ranga stefnu. Ætla mætti að hlutverk sýningarnefndarinn- ar væri m.a. að leitast við að laða að sem flesta gesti með áhrifa- mikilli kynningu á verkum félags- manna. Einnig með veglegustu sýningarskránni, boðskortinu, veggspjaldinu og best hannaða útiskiltinu. En allt þetta er með búralegasta svipmótinu í ár og sýningarskrá að auki án formála með greinargerð og stefnumörkun sýningarnefndar. Það er vissulega mikil hugsjón í því að búa til fallega sýningu og þá einkum ef menn hafa efni á því, en slíkt skal helst ekki gert á kostnað annarra. Rétt er t.d. að Haustsýningin í Osló er fyrir neð- an allar hellur hvað upphengingu áhrærir frá ári til árs, en hún nýt- ur gífurlegrar aðsóknar og met- sölu ár hvert. Mætti ætla að margur skildingurinn renni þá í vasa félagsmanna og þeir vilja frekar þetta form áfram en fal- lega sýningu er fólk myndi síður sækja. Það er til umhugsunar, af hverju hinir ýmsu myndlistar- geirar innan félagsins halda yfir- leitt miklu vandaðri sýningar en móðurfélagið virðist treysta sér til. Þá má sýningarnefnd ekki láta það stíga sér til höfuðs þó ein- hverjir séu ánægðir með sýning- una vegna þess að hún er í þeim bás, sem þeir vilja hafa FÍM. Um leið og FIM sýnir stórhug og djörfung munu félagsmenn verða með á nótunum um þátttöku á haustsýningunum en fyrr getur félagið ekki ætlast til þess að sýn- ingarnar veki óskoraða athygli, umtal og fá þá ríkulegu umfjöllun í fjölmiðlum sem eðlileg má telj- ast. - O - — Haustsýningin í ár er í heild svipuð að gæðum og í fyrra og þarmeð langtum betri en árin þar áður en þá var hún við botninn. Engin verkanna á sýningunni koma áhorfandanum á óvart né í opna skjöldu. í sýningarsalnum ríkir frekar friður og ró þrátt fyrir torskilin verk inn á milli. Mikið rými fer í gestina og verk þeirra njóta sín yfirleitt vel, þó er afleit lýsing á brjóstmyndum Ragnars Kjartanssonar þannig að einungis myndirnar af Jóni Engilberts og Leikkonunni njóta sín til nokkurrar hlítar á aðalsýn- ingarsvæðinu. En myndirnar njóta sín þó ágætlega við dagsljós sterkara við grisjun um helming og þá meira myndverk um leið. — Hrólfur Sigurðsson er sá gest- anna er vekur mesta og almenn- asta athygli fyrir glæsilega mál- aðar myndir, í senn formsterkar og litríkar. Hrólfur er mjög ná- lægt því að vera óhlutbundinn í túlkun sinni á landslagi en ein- hvers staðar glittir þó jafnan í þekkjanlegar útlínur landslags. Hildur Hákonardóttir virðist vera á krossgötum í myndhugsun sinni og hélt ég í fyrstu að þrír listamenn væru að sýna í básnum þar sem verkum hennar hefur verið valinn staður. Frúin hefur oft verið með öflugari verk á sam- sýningum og ég vel þann kostinn að bíða átekta um framvinduna. Svo undarlega sem það nú hljómar halda margir að Jóhann- es Geir sé einn gestanna því að svo sterkt kemur hann út í hinum sex stóru og litríku landslags- myndum sínum auk þess sem þær eru allar í einkaeign. Jóhannes kafar ekki djúpt í yfirborð lands- lagsins frekar en félagi hans Hrólfur Sigurðsson og lætur sér nægja þekkjanlegar útlínur. En hann gerir það kröftuglega og þetta eru hrifmiklar myndir. Þeir félagar Árni Páll og Magnús Kjartansson eru samir við sig og virðast vilja endurvekja popp- tilraunir sjötta áratugarins og gera það með „bravúr". — Vatns- litamyndir Eyjólfs Einarssonar og akrylmyndir Einars Þorláks- sonar eru íétt og leikandi verk og komast vel til skila í upphenging- unni. Hinar minni myndir eiga annars örðugt uppdráttar á sýn- ingunni t.d. myndir þeirra Ás- geirs Lárussonar, Arnars Her- bertssonar, Sigurðar Örlygsson- ar, Kristínar Jónsdóttur og ganginum og fram kemur að þessi listamaður er í mikilli lit- og formrænni framför. Skúlptúrverk Ilelga Gíslasonar og Sigrúnar Guðmundsdóttur eru ágætlega staðsett og ber hönfundunum vel vitni. Hrifmikil en frekar hrá og ópersónuleg akryl-málverk Kjart- ans Ólafssonar vekja athygli. Lcifur Breiðfjörð kynnir óaðfinn- anlega fágun í verkum sínum en Örlygur Sigurðsson sér um húm- orinn á sýningunni, — af tveimur myndum hans af heiðurshjónun- um Arngrími og Bergþóru þykir mér önnur mikið best (141). Teikningar Arnars Þorsteinsson- ar eru nostursamlega útfærðar og hið sama má segja um myndir Sigrúnar Eldjárn og akrílmyndir Rúnu Gisladóttur. Sigurþ<)r Jak- obsson og Sigurður Þórir Sig- urðsson staðfesta hæfileika sína í grafíkinni. María Kjarval á hér fagurlega ofið naivistískt teppi, — myndir Sigurlaugar Jóhannes- dóttur úr hrossahári „Totem I og 11“ njóta sín ekki sem skyldi vegna lýsingarinnar og Temma Bcll hefur sýnt á sér sterkari hliðar í olíumálverkinu. Þeir ný- Iiðar Haukur og Hörður sýndu þrjú verk á gólfi, sem ég hefði viljað skoða betur en eins og búist var við þá gekk það ekki að sýna þau án þess að hafa gervigler- kassa yfir þeim og voru þau því fljótlega fjarlægð. Kostnaðurinn við að koma verkunum í öruggar umbúðir reyndist hinum ungu mönnum ofviða. Nýliðar eins og Guðmundur Pálsson, Gunnar Kristinsson, Pjetur Stefánsson og Stefán Geir Karlsson eru óskrifað blað og erfitt að dæma verk þeirra, til þess eru þau of fá og hér kemur ekkert nýtt og úr- skerandi fram er hrífur ...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.