Morgunblaðið - 08.10.1981, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.10.1981, Qupperneq 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 20 IÐNÞRÓUN OG ORKUMÁL HELZTU HAGSMUNAMALIN Virkjun Blöndu forsenda uppbyggingar iðnaðar og atvinnuöryggis á Norðurlandi - segir Áskell Einarsson, framkvæmda- stjóri Fjórðungssambands Norðlendinga „ÞETTA ÞING var í sjálfu sér ekki frábrugðið öðrum þingum, en það er merkilegt að því leyti að það hefur tekizt á þessu þingi að taka á ýmsum stórum málum. Því miður hefur það kannski einkennt fjórðungsþingin um of, að þau hafa gengið of langt í málamiðlun- um og fært sig undan að taka á viðkvæmum málum. Þarna var tekið á stórum málum eins og virkjunar- og iðnþróunarmálum og menn eru að verða raunsæir að mínu viti,“ sagði framkvæmda- stjóri fjórðungssambandsins, Ás- kell Einarsson. „Á þessu þingi voru það orku- og iðnþróunarmál, sem yfir- gnæfðu allt annað, en það voru ýmis önnur góð mál reifuð á þessi þingi og þar vil ég helzt nefna starf nefndar, sem er að vinna að skipulagningu samgangna á Norð- urlandi með það í huga að gera viðskiptatengsl auðveldari og samræma samgöngukerfið, bæði við fjórðunginn og innan héraða. Ef vikið er að menningarmálun- um, þá er það mikilvægt mál að fjórðungssambandið hefur gengizt fyrir könnun á menningarsam- skiptum á Norðurlandi og ætlar að beita sér fyrir samtökum menn- ingaraðila. Nú, ef við snúum okkur svo að þjónustu og viðskiptum, þá hefur það komið fram, að æ meira af mannaflanum leitar í þessar greinar og jafnframt fækkar í framleiðslugreinunum og þingið tók nú þessi mál til meðferðar í fyrsta sinn og haldnir hafa verið fundir með ýmsum aðiium á þessu sviði og nú má segja að fjórðungs- sambandið hafi í fyrsta skipti mótað byggðarlega stefnu á þessu sviði. Þetta eru allt stór mál, en á þinginu var fjallað um mörg önn- ur merk mál, til dæmis að fram- undan er að gera úttekt á stöðu landbúnaðar á Norðurlandi með tilliti til 100 ára afmælis búnaðar- fræðslu á Hólum og á vegum sam- bandsins hefur verið unnin frum- skýrsla á skiptingu ríkisútgjalda í a-hluta fjárlaga miðað við þjóðar- tekjur og dreifingu eftir lands- hlutum. Lokaniðurstöður hennar í stórum dráttum eru þessar: 1. Ríkisbúskapurinn með hinni miklu miðstýringu fylgir ekki þeim megin markmiðum, sem markviss byggðastefna verður að byggjast á. 2. Með tilliti til þess að æ stærri hluti vinnuafls þjóðarinnar leitar til þjónustustarfa, sem meðal ann- ars eru að stórum hluta tengd rík- isstarfsemi, er ljóst að staðsetning stjórnsýslu og velferðarstarfsemi ríkisins getur haft úrslitaáhrif um búsetuþróun í landinu. 3. Margt bendir til þess ef ekki verði unninn bugur á miðsækni ríkiskerfisins fyrr en komið verði á valddreifingu til byggðanna og sveitarstjórna eða samtaka. Þeim verði falin umsjá margra velferð- arverkefna, sem nú eru á vegum ríkisins og eru rekin frá einni miðstöð í landinu. 4. Ríkisbúskapur er það stór hluti þjóðfélagskerfisins, að ekki verður til frambúðar komið á hyggðaaðgerðum, nema uppbygg- ing og skipulag ríkiskerfisins að- lagist grundvallaratriðum ríkj- andi byggðastefnu, sem byggist á uppbyggingu framleiðslustarf- semi, sem undirstöðu í þjóðfélag- inu. 5. Það er fullkomlega tímabært vegna atvinnuhagsmuna höfuð- borgarsvæðisins að breyta at- vinnusamsetningu landshiutanna þannig að eðlilegt hlutfall milli framleiðslu, úrvinnslu og þjón- ustustarfsemi verði hliðstæð um allt land. 6. Ekki er hægt að telja það sök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu, að ríkiskerfið hefur safnazt þar. Þetta er liður í rangri stjórn- un á Islandi, sem verulegan þátt hefur átt í því að skapa spennu í atvinnukerfi höfuðborgarsvæðis- ins. 7. Byggðastefna stendur á tíma- mótum. Nú er öllum að verða Ijóst, að ekki verður mótuð varanleg byggðastefna, nema þjónustukerfi þjóðarinnar verði aðhæft byggða- sjónarmiðum. Aukin valddreifing nauðsynleg Þá hefur einnig verið fjallað um valddreifingu í þjóðfélaginu á veg- um fjórðungssambandsins og í því tilefni vil ég vekja athygli á því, að í fyrirsjáanlegri framtíð verður breyting á stjórnarskrá og kjör- dæmaskipan á þann veg að röskun verður á þingsætastyrk á milli nú- verandi kjördæma og allir stjórn- málaflokkar hafa lýst sig fylgj- andi tilfærslu til Faxaflóasvæðis- ins. Það er ljóst að ekki verður staðið í mörg ár enn gegn jöfnun kosningaráttar og það er stað- reynd, sem dreifbýlismenn verða nauðugir viljugir að standa frammi fyrir. Vandinn er sá að finna ráð til mótvægis vegna minnkandi áhrifa á fjárveitingavald og stjórnsýslu. Eina leiðin er aukin valddreifing í þjóðfélaginu með eflingu heimastjórnar í sveitarfé- lögum og í landshlutum. Það verð- ur að afhenda sveitarfélögum og samtökum þeirra framkvæmd verkefna og umsjón með starf- semi, sem nú er rekin af ríkinu frá einni miðstöð fyrir landið allt. Þetta gerist ekki nema sveitarfé- lögin séu jákvæð um að sækjast eftirverkefnum og þau byggi upp samtök sín til að fást við stærri verkefni. Á móti þurfa að koma auknir tekjustofnar eða bein framlög úr ríkissjóði til reksturs verkefna, sem falin væru sveitar- félögum og samtökum þeirra. Hér er vafalaust um að ræða stærsta verkefni landshlutasamtakanna og íbúa dreifbýlli landshluta í endurskipulagningu stjórnsýsl- unnar. Þá er á vegum sambandsins ver- ið að undirbúa úttektarráðstefnu á atvinnumálum hér á Norður- landi, því er ekki að leyna, að víða er anzi þröngt á dalnum, það er samdráttur víða, til dæmis í iðn- aði á Akureyri og örlaði á því, að gamli draugurinn lét bera á sér, það er árstíðabundið atvinnuleysi. Áhrifamáttur fjórðungs- þinganna að færast í vöxt Hver er áhrifamáttur þings sem þessa? „Áhrifamáttur þess fer auðvitað eftir því hvort menn vilja hlusta á raddir þingsins og ég verð að segja, að það fer í vöxt að tekið sé tillit til fjórðungsþinga og alþing- ismenn hafa lýst því yfir að þeir geri það í vaxandi mæli. Það er sérstaklega sterkt í þeim tilvikum, sem áberandi meirihluti næst á fjórðungsþingi eins og nú varð fyrir ályktunum um orku- og iðn- þróunarmál. Eins og allir vita eru fjórðungssamtökin óháð, frjáls fé- lög landshluta og þau verða að lifa á sjálfum sér þar sem þau hafa enga stoð í lögum. Hitt er annað mál, að það er mjög nauðsynlegt að samtök sem þessi hafi ein- hverja stoð í lögum, en ekki endi- lega innan ríkiskerfisins. Hins vegar hafa flest svipuð félög í landinu einhverja lagastoð og ég held að svo verði í fyllingu tímans hvað varðar fjórðungssamtökin. Þó fulltrúar á fjórðungsþingum séu yfirleitt fulltrúar í sveitar- stjórnum sinna byggðarlaga, er ekki þar með sagt að þeir leggi áherzlu á framkvæmd samþykkta þingsins heima fyrir, þar sem þær eru aðallega ætlaðar út á við og fjórðungssambandið sinnir minna beinum málefnum einstakra sveit- arfélaga. Þó á fjórðungssamband- ið auðvitað mikið samstarf með sveitarfélögunum og ein af tíma- mótasamþykktum þingsins var að það beitti sér fyrir auknu sam- starfi sveitarfélaga og jafnvel sameiningu þeirra, væri vilji fyrir hendi." Nú telja sumir fjórðungssam- bandið of mikið bákn. Hver er þín skoðun á því? „Jú, þetta er rétt, það hafa kom- ið raddir um það. En þegar litið er á þá staðreynd að lýðræði er dýrt, að sambandiö hefur fjölmenn fjórð ungsráð og miiliþinganefndir, sem kostar gífurlega mikið að halda úti, svona lýðræðislegri félags- starfsemi. Þetta mætti einfalda með því að gefa lítilli stjórn ein- veldi milli þinga, en ég held að enginn myndi óska eftir því. Nú, fjórðungssamband Norðlendinga tekur fremur lág árgjöld, það hef- ur hundraðshluta af álagningar- tekjum og jöfnunarsjóðsframlagi sveitarfélaga innan fjórðungsins og það hefur staðið óbreytt í mörg ár, þótt allir aðrir opinberir aðilar hafi aukið sína skattheimtu. Þá má því alltaf deila um það hvort þetta borgar sig, en eitt er víst, að ef svona samtök væru ekki til stað ar væri skarð fyrir skildi og við, sem erum orðnir gamlir í hett unni, munum þá daga, þegar engin slík samtök voru. Og loks eftir að þau komu til sögunnar, hefur í fyrsta sinn náðst nokkur árangur í byggðaþróun á þessu landi og þau hafa þannig haft veruleg áhrif. Allt þetta kostar verulegt fé, en ég tel að það sé mjög lítið miðað við þann árangur, sem náðst hefur." Hver er þín persónulega skoðun á atvinnumálum í fjórðungnum og hvað er helzt til úrbóta? Virkjun Blöndu forsenda uppgangs Norðurlands „Það er mjög mikilvægt að við Norðlendingar dettum ekki í þá gildru, eins og sumir menn, að sjá aðeins eitt í einu. Landbúnaður og sjávarútvegur eru nátturulega grundvallaratvinnugreinar hér og verða það áfram. En þessir at- vinnuvegir geta ekki tekið við þeirri fólksfjölgun, sem fyrir- sjáanleg er, og við megum ekki gleyma því, að það hefur gerzt, sem enginn þorði að spá fyrir 10 árum, að Norðurlandið myndi ná meðalfólksfjölgun. Þegar Norður- landsáætlun var gerð, var reiknað með því að í mesta lagi 90% þess fólks, sem hér kæmi upp, yrði þar kyrrt, en það varð enn stærri hluti. Nú, við verðum síðan að átta okkur á þeirri staðreynd að nú er það orkan, sem við verðum að nýta okkur. Þá verðum við að gera okkur grein fyrir því, að það er þýðingarlaust að byggja hér upp stórfelldan iðnað, ef margfeldið af framleiðslunni flytst burt úr fjórðungnum, þess vegna verður þetta allt að haldast í hendur. Hvað varðar orkumálin, þá er það stærsta spurningin hvort Blanda verður virkjuð eða ekki. Mér er það alveg ljóst að það verður farið út í verulegan stóriðnað, hverjir sem stjórna þessu landi og ef Norðurland á að fá þá vítamín- gjöf, sem þarf, verður að koma hér stóriðja á borð við álver. Af því verður ekki, ef haldið verður áfram að virkja sunnanlands, virkjun Blöndu er því forsenda fyrir uppgangi Norðurlands í því orkukapphlaupi, sem nú á sér stað. Stóriðja við Eyjafjörð er líka grundvöllur þess, að það verði hægt að halda áfram og ráðast í byggingu Fljótsdalsvirkjunar," sagði Áskell. Bygging álvers við Eyjaf jörð tvímælalaust til hagsbóta fyrir Norðlendingafjórðung - segir Ingólfur Árnason, rafveitustjóri á Akureyri „ÉG ER mjög ánægður með að Fjórðungsþingið skuli hafa sam- þykkt ályktun um stóriðju á Norð- urlandi. Þetta hefur verið á dagskrá áður, en ekki verið sam- þykkt fyrr en nú og ég tel að hér hafi verið um tímamótasamþykkt að ræða og hún sé tvímælalaust öllum Norðlendingum til hags- bóta," sagði Ingólfur Árnason, rafveitustjóri á Akureyri. „Það hefur komið fram hjá sum- um fulltrúum hér á þinginu ótti við uppgangi Akureyrar, en það held ég að hljóti að vera á mis- skilningi byggt. Að mínu mati er það myndun sterks byggðar- kjarna, sem veitt gæti fjórðungn- um alhliða þjónustu, sem skort hefur í byggðastefnuna til þessa. Þessu hlutverki getur Akureyri vel sinnt. Menn verða að gera sér grein fyrir því að byggðastefna felst ekki aðeins í því að. halda útkjálkunum í byggð, heldur verð- ur að kappkosta að ná sem mestri þjónustu inn í fjórðunginn, svo ekki verði að leita út fyrir hann í eins ríkum mæli og verið hefur, slíkt hlýtur að vera til hagsbóta fyrir allan fjórðunginn. Reykjavík er ágæt höfuðborg og ekki má taka af henni skrautfjaðrir henn- ar, en ástæðulaust er engu að síð- ur að sækja alla þjónustu þangað." Hvað hafa svona fjórðungsþing og samþykktir þess að segja út á við? „Þetta eru auðvitað bara vilja- yfirlýsingar, þingið er alveg valda- Iaust sem slíkt, en ég held að menn hljóti á einhvern hátt að fara eftir samþykktum fulltrúa jafn fjölmenns landshluta og Norðurland er. Svo má alltaf deila um fjölda þingmála og hvort það er heppilegt að reyna að fjalla um mikinn fjölda mála í stað þess að einbeita sér að ákveðnu máli, en þess ber að geta að í stórum fjórð- ungi eru sjónarmið margvísleg og því eðlilegt að þetta verði marg- brotið. Það sem mig uggir mest í þessu sambandi er ótti dreifbýlis- manna við vaxandi miðstöð í fjórðungnum og þeir virðast ekki gera sér grein fyrir því að það eflir landbúnað og ýmsa þjónustu utan þess byggðakjarna, sem í þessu tilfelli er Akureyri. Hana ber að efla enn frekar að mínu mati svo hún geti í enn ríkari mæli sinnt hlutverki sínu sem menningar- og þjónustumiðstöð. Stór þáttur í efl- ingu bæjarins er bygging álvers við Eyjafjörð og aukin atvinna og velmegun, það myndi tvímæla- laust hleypa nýju blóði í landbún- að í Eyjafirði. Því tel ég það óþarfa fyrir bændur í Eyjafirði að setja sig upp á móti byggingu ál- vers og tel enga ástæðu fyrir þá að óttast mengun, varnir gegn henni eru það langt á veg komnar. Hvað varðar eignaraðild að álveri, er ekki okkar hér að ákveða, heldur ríkisstjórnarinnar og ég sé enga ástæðu til að setja mig upp á móti einhverri eignaraðild útlendinga, en legg þó áherzlu á sem mestan hlut Islendinga og forræði. Ég tel því að bygging álvers við Eyja- fjörð og áframhaldandi uppbygg- ing Akureyrar sé til heilla fyrir Norðurland," sagði Ingólfur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.