Morgunblaðið - 08.10.1981, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 08.10.1981, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 21 Fulltrúar á f jórðungsþingi Norðlendinga teknir tali FJÓRÐUNGSÞINGI Norölendinga, sem haldiö var á Húsavík, lauk fyrir allnokkru og voru því þá gerö skil aö nokkru í fréttum Morgunblaðsins. Á þinginu voru ennfremur tekin viötöl viö nokkra þingfull- trúa, en ekki hefur reynzt mögulegt aö birta þau í blaöinu fyrr en nú. Stofnun menningarsamtaka á Norð- urlandi hagur allrar þjóðarinnar „ÞAÐ hafa verið umræður og hugmyndir um stofnun menning- arsamtaka á Norðurlandi síðan 1979 og í desember í fyrra boðaði Kristinn G. Jóhannsson, formaður félags- og menningamálanefndar fjórðungssambandsins til fundar um það mál. í kjölfar þess fundar var ég svo fenginn til að fara í könnunarferð um Norðurland til að komast að því hvernig menning- armálum í fjórðungnum væri hátt- að. í samtölum mínum við menn á nær öllum stöðum kom fram mikill áhugi á stofnun slíkra samtaka og því er ályktun þingsins, um að svo skuli verða, mjög ánægjuleg," sagði Örn Ingi Gíslason, myndlistarmað- ur á Akureyri. „Menningarmálanefnd og undir- búningsnefnd þessarar könnunar var á þeirri skoðun að þörf væri á upplýsingum um mannleg sam- skipti fólks innan fjórðungsins og því var spurt í könnun minni um stöðu menningarmála, tíðni listvið- burða og fleira. Þá var spurt um það, hvað ylli slæmri stöðu þessara mála, ef svo væri og komu fram ýmsar ástæður, svo sem skortur á kynningu, framtaksleysi, mikil vinna og fleira, en aldrei peninga- leysi. Það kom fram í könnuninni að verulegur aðstöðumunur var á milli listgreina og var þá myndlist- in hvað verst sett. Tónlist virtist mér vera í mikilli framþróun en þar var mest um sönglist. Leiklistin var sömuleiðis talsvert öflug víða. Menningarlif sumra staða reynd- ist mjög þröngt og byggðist á starfi fárra manna og flytjist þeir burt getur það leitt af sér tímabundna hnignun og er vissulega leitt til þess að hugsa að menningarlíf byggist á svo hæpnum grunni. Það væri góðra gjalda vert að maður frá menntamálaráðuneytinu gerði sér ferð út um landsbyggðina og kenndi mönnum hvernig bezt væri að standa að framkvæmd menningar- mála og því, sem henni tengist, ég held að skipulagning menningar- mála sé með þeim hætti hjá öðrum - segir Örn Ingi Gíslason, myndlistarmaður á Akureyri Norðurlandaþjóðum. Það var ýmis- legt sem kom mér á óvart og ég vissi að þetta væri óplægður akur og þekkti ekki jarðveginn með tilliti til sáningar. En það sem kom mér mest á óvart var hve mikið var óplægt, en jafnframt líklegt til frjósemi og til hve mikils væri raunverulega að vinna. Sums staðar var menningarstarfið algjörlega á núlli og það er nánast skortur á mannréttindum hve fólk á slikum stöðum, sem vinnur undir miklu álagi, hefur notið fárra þátta þess, sem flokkað er undir mannleg sam- skipti. Þetta fólk getur ekki haft frumkvæði um uppbyggingu mála, sem það þekkir ekki. Þetta fólk borgar sín gjöld til ríkisins og á rétt á að njóta þessara þátta eins og aðrir." Hverja telur þú framtíðarmögu- leika menningarsamtaka sem þess- ara? „Það hefur enn sem komið er eng- in neikvæð rödd heyrzt, fólk hefur verið ákaflega jákvætt og það hlýt- ur að koma til af því, að úrbóta er þörf og við svo búið má ekki sitja. Það er ljóst að óvíst er með hvaða hætti slík sambönd geta náö virkni, en sem stefnuskrá yrði, númer 1, 2 og 3, að fólk standi saman við að notfæra sér þessi samtök og glæði þau þannig lífi. Samtökin yrðu að vera sjálfstæð, en þó tengjast öðru menningarlífi í landinu, sem í dag er kannski ekki burðugt, en hlýtur að standa til bóta og i því sambandi verður ríkið að koma til hjálpar. Aðalviðfangsefni samtakanna verður væntanlega í fyrstu sam- vinna út og inn á við og að þreifa fyrir sér á gagnkvæmum grund- velli, kynna sér hvað helzt er að gerast, sérstaklega á höfuðborgar- svæðinu þar sem nánast er um offramboð að ræða og sennilega yrði það áhrifaríkasta framkvæmd- in til að jafna menningarlíf þjóðar- innar, að listir og listamenn dreifð- ust meira um landið. Ég vil undir- strika það, að með stofnun þessara samtaka er ekki aðeins hagur Norð- lendinga borinn fyrir brjósti, held- ur allrar þjóðarinnar, um það verð- ur ekki deilt," sagði Örn Ingi. Virkjun Blöndu tvímælalaust lyftistöng fyrir fjórðunginn - segir Jón ísberg, sýslumaður á Blönduósi „ÉG er yfirleitt ánægður með sam- þykktir þingsins, sérstaklega hvað varðar orkumál, stóriðju og and- stöðuna gegn lögréttunni. Ég er mjög fylgjandi virkjun Blöndu og tel það mikið hagsmunamál Norð- lendinga svo og allra landsmanna," sagði Jón ísberg, sýslumaður á Blönduósi. „Því vona ég að samningar heima í héraði takist og verði svo bendir allt til þess að virkjunarkostur eitt verði fyrstur í forgangsröðinni um næstu virkjanir landsins, annars gæti orðið löng bið á virkjun Blöndu, fjórðungnum til mikils óhagræðis. Það er fjórðungnum mikil nauðsyn að byggja upp iðnað og auka atvinnu og það verður ekki gert nema með virkjun Blöndu og í framhaldi þess, byggingu álvers við Eyjafjörð, steinullarverksmiðju á Sauðárkróki og pappírsverksmiðju á Húsavík. Ég óttast ekki hvernig eignaraðild álvers verður háttað, því það er að mínú mati sama hvort það er í eigu útlendinga, sem þá greiði af því skatta og taki fjár- hagslega áhættu, eða það sé í eign okkar og við tökum þá lán, sem verður að greiða hvernig sem geng- ur og áhættuna, sem því fylgir. Nú, ef við snúum okkur svo nánar að heimahögunum, þá er það helzt að frétta að hafnargerð er hafin á Blönduósi, verið er að byggja vöru- höfn, sem gæti þá hugsanlega komið að notum við virkjunarframkvæmd- ir. Allar aðstæður til hafnarbygg- ingarinnar eru mjög góðar, grjótið er tekið úr hafnarstæðinu sjálfu og þetta verður því ódýr framkvæmd. Kostnaðaráætlun frá í fyrra hljóð- aði upp á 5 til 6 milljónir og í þess- ari lotu verður unnið fyrir eina og allt bendir til að heildarkostnaður verði minni en áætlað var, en fram- kvæmdahraði fer svo eftir fjárveit- ingum. Þá er nú unnið að byggingu vegar upp Ása vegna Blönduvirkj- unar og hefur 4 milljónum verið varið til þess verks. Það er sem sagt ýmislegt að gerast hjá okkur en ekki er vafi á því að virkjun Blöndu yrði mikil lyftistöng fyrir Húnavatns- sýslur," sagði Jón. Norður-Þingeyjarsýsla má ekki gleymast við áætlanagerð Framkvæmdastofnunar - segir Kristján Ármannsson, oddviti á Kópaskeri „ÞAÐ hefur yfirleitt einkennt þessi þing að á þeim hefur verið forðast að ræða staðbundin mál- efni. Því hefur frekar verið fjallað um málefni, sem fjórðunginn varða í heild, en nú hefur verið gerð undantekning á þessu með ályktunum um staðsetningu stór- iðju og áður með umfjöllun um byggðaþróun í Norður-Þingeyjar- sýslu. Hvað réttast muni í skipu- lagningu þingsins er annars erfitt að segja um, því ræður ástandið á hverjum tíma fyrir sig. Áhrifa- máttur þingsins getur verið veru- Iegur og eru umræður um Blöndu- virkjun gott dæmi þess, en þó er árangurinn tæplega í samræmi við vöxtinn," sagði Kristján Ár- mannsson, oddviti á Kópaskeri. Bitur reynsla aí áætlanagerð F ramkvæmdastoínunar „Annars finnst mér fjórðungs- þingið vera að verða anzi mikið bákn og málafjöldi of mikill. Því er ef til vill minna tekið eftir ályktunum þess, auk þess sem fjölmiðlar ráða miklu um það hver árangur ályktananna verður. Fjöl- miðlar virðast oft hafa tilhneig- ingu til að gera meira úr þeim málum, sem ósamkomulag er um, og sleppa þá jafnvel frásögnum af ágætum málaflokkum, sem ein- hugur hefur verið um. Að þessu sinni voru orkumálin höfuðmál þingsins, en mér er nú hugstæðari tillaga um að starfsemi Fram- kvæmdastofnunar ríkisins verði tekin til gagngerrar endurskoðun- ar. Mér finnst Framkvæmdastofn- un alls ekki hafa staðið undir nafni hvað byggðastefnu varðar. Hún er nánast eins og hver önnur lánastofnun. Byggðastefna hlýtur í sjálfu sér að vera mismunun ef hún á að standa undir nafni, en nú virðast starfsreglur Fram- kvæmdastofnunar svo fast bundn- ar í lögum að stærri staðirnir standa jafnfætis þeim, sem minna mega sín, hvað varðar lánveit- ingar og fyrirgreiðslu. Norður- Þingeyingar hafa bitra reynslu af áætlanagerð Framkvæmdastofn- unar, þó sumir starfsmenn hennar séu hlynntir réttum breytingum, það er að fyrirgreiðsla eigi ekki að vara um aldur og æfi, eftir að hún hefur einu sinni fengizt, ef við er- um sammála um að halda landinu í byggð. Nú er uggvænlegt atvinnu- ástand um allan fjórðunginn og því er spurning hvort ekki hefði mátt fjalla meira um það í heild í stað þess að einskorða sig við ákveðna staði eins og gert var í ályktun um álver við Eyjafjörð, pappírsverksmiðju á Húsavík og steinullarverksmiðju á Sauðár- króki. Ég tel rétt að fara mjög varlega í stóriðjuna, þar sem auk- in fylgisaukning við hana gæti lamað þróun hefðbundinna atvinnugreina og því yrði erfitt fyrir stóriðjuna að taka á móti þeirri mannaflaaukningu, sem þá yrði. Ég er þeirrar skoðunar að eðlileg uppbygging atvinnuveg- anna hafi verið vanrækt og af því stafi vandinn og hann verði að leysa með því að byggja upp þá atvinnuvegi, sem fyrir eru. Útsvarstekjur í hreppnum hafa farið minnkandi Ef við snúum okkur svo að ástandinu í Norður-Þingeyjar- sýslu og þá helzt á Kópaskeri, þá er það, sem efst hefur verið á baugi, fyrirhuguð togarakaup til lausnar atvinnuvandanum. Þessi mál hafa fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum, en heldur einkenni- lega og oft hefur gleymzt að taka nokkrar staðreyndir með í þá um- fjöllun. Árið 1970 var byrjað á byggingu frystihússins og var því ætlað að taka á móti afla af heimabátum. 1973 til 1974 varð svo aflabrestur á miðum þessara báta og olli hann miklu vandamáli og var það ieyst á allt annan hátt en heimamenn vildu, það er með kaupum á gömlu óhappaskipi og rekstur þess gekk að sjálfsögðu illa og gerði atvinnuástandið enn einhæfara og ótryggara. Það tók Raufarhöfn talsverðan tíma að ná sér eftir hvarf sildarinnar og fara yfir í annað og nú eru hendur hreppsins algjörlega bundnar af rekstri Jökuls og Rauðanúps, allt annað skortir og atvinnan því ein- hæf og ótrygg. Reksturinn hefur einkennzt af bráðabirgðalausnum og vandinn því undið upp á sig eins og nú er komið í ljós. Kópa- sker er ekki stór staður, en þar hefur verið þjónustumiðstöð fyrir sveitirnar í kring frá því 1970 og atvinnuástand nokkuð stöðugt þrátt fyrir áðurnefndan aflabrest og þróun staðarins nokkuð ör. Rækjuveiðarnar tóku við eftir aflabrestinn, en nú hafa þær veið- ar líka brugðizt og allar líkur á því að miðin verði nú lokuð í tvö ár. Því er ætlunin að breyta rækju- vinnslunni í frystihús, en allflestir útgerðaraðilar á staðnum eru farnir á hausinn og því hefur verið reynt að fá fisk frá Raufarhöfn eða Húsavík og er hvort tveggja í athugun og þarf að ákveða sem fyrst. Tekjur í hreppnum hafa farið verulega minnkandi að undan- förnu. I fyrra var meðaltalshækk- un útsvarstekna í fjórðungnum þ7% en aðeins 38% hjá okkur. Til þess að þessi þróun haldi ekki áfram verður að byggja upp nýjar atvinnugreinar, en það tekur sinn tíma. Nú er verið að byggja upp kjötvinnslu hjá Kaupfélaginu og hugað að hugsanlegri nýtingu rekaviðs. En til þess að raunhæf úrlausn fáist verður að bregðast við fyrr en seinna og Norður- Þingeyjarsýsla má ekki gleymast í áætlanagerð Framkvæmdastofn- unar,“ sagði Kristján.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.