Morgunblaðið - 08.10.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981
23
MORÐIÐ Á ANWAR SADAT
MUBARAK
Sá sem Sadat valdi til að
axla með sér ábyrgðina
Fyrir fjórum árum kallaði Sadat hann fyrir sig og sagði: „Mig vantar
varaforseta sem er fær um að axla með mér ábyrgð á stjórn rtkisins á
öllum sviðum. Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér og ríkisleynd-
armál mega ekki vera á vitorði eins manns. Það er aldrei að vita hvað
gerist."
Þetta er formáli Sadats að itarlegri skýrslu um málefni ríkisins. Siðan
var Hosni Mubarak hans hægri hönd. Sadat fól honum margvísleg
trúnaðarstörf og síðasta verkefnið af því tagi var för á fund Bandaríkja-
forseta til að skýra honum frá áhyggjum egypzku stjórnarinnar vegna
sívaxandi átroönings Sovétmanna og Líbýumanna í Afríku. Úr þeirri för
kom Mubarak tveimur dögum áöur en Sadat var veginn.
Hosni Mubarak sagði skömmu eftir að Sadat gerði hann að varafor-
seta sinum: „Ég er maöur sem leitar fullkomnunar og trúmennsku í starfi.
Líf mitt hefur verið samfelld röð óvæntra atburða." Hér átti hann án efa
við skipunina í varaforsetaembætti, en hún kom flestum á óvart, ekki sízt
honum sjálfum.
Hosni Mubarak fæddist áriö 1928 í smábæ í óshólmum Nílar. Hann
lauk prófi frá egypzkum herskóla áriö 1948 og frá akademíu flughersins
þremur árum síðar. Hann gat sér orð sem frábær flugmaður og kenndi
viö akademíuna allt til ársins 1961, en þá tók viö þjálfun í Sovétríkjunum.
Árið 1967 var hann settur yfir akademíu flughersins og tveimur árum
síðar var hann skipaður æðsti yfirmaöur egypzka flughersins. Hann var
enn hækkaöur í tign og skipaöur aöstoöarvarnamálaráöherra árið 1972.
Sama ár fór hann með Sadat til Moskvu til að semja um vopnakaup, en
þá tók við undirbúningur flughersins fyrir stríðið gegn israel 1973, og
hann var sá sem stjórnaöi árásinni miklu í Sínaí. Eftir sigur Egypta í þeim
átökum var Mubarak gerður aö flugmarskálki, en tengsl hans innan
hersins eru talin traust.
Náið og mjög persónulegt varö samstarf Sadats og Mubaraks ekki
fyrr en eftir hina óvæntu og dirfskufullu heimsókn forsetans til Begins i
Jerúsalem haustiö 1977, en sá tímamótaatburður í málefnum Miöaust-
urlanda kallaöi tvímælalaust á þaö aö Sadat tryggöi sig í sessi og byggi
svo um hnúta að stjórn rikisins væri í tryggum höndum nyti hans ekki
lengur við. Segja má að frá því aö Sadat fór á fund Begins hafi hann lifað
í skugga dauöans, en afturhaldsöfl um allan hinn arabíska heim líta á
hvern þann sem réttdræpan svikara er rýfur hina „algeru samstööu
Araba“ gegn „Zíonismanum”.
Eftir Jerúsalem-förina lagöi Sadat vaxandi áherzlu á að þjálfa Mubar-
ak í alþjóöasamskiptum og sendi hann iöulega í sinn stað á fundi
erlendis. Útlendingar sem kynnzt hafa Mubarak í slíkum erindum Ijúka á
hann lofsorði og telja hann skarpskyggnan, afkastamikinn og sköru-
legan. Til marks um það traust sem Sadat bar til hans má nefna, aö hann
var sá sem forsetinn sendi á vit vina sinna í Ryadh og Kartoum daginn
sem Camp David-sáttmálinn var undirritaður til að gera þeim grein fyrir
samkomulaginu og falast eftir stuöningi viö það.
Hosni Mubarak er 53ja ára aö aldri. Hann er tveggja barna faöir og á
konu sem heitlr Suzan en hún er nútímakona — af þeirri kynslóð sem
Jihan Sadat hefur lagt mikla áherzlu á aö ala upp í Egyptalandi á
undanförnum árum — og lauk nýlega prófi frá ameríska háskólanum í
Kairó. _ Á.R. (Heimild: AP)
Fjölskylda Sadats:
Tveir bústaðir og
árlegur líf eyrir
Kairó, 7. október. AP.
SÉRSTÖK nefnd á veKum egypska þingsins lagði i dag til, að fjölskyldu
Sadats heitins forseta yrðu fengnir tveir bústaðir til dvalar og árlegur
lifeyrir að auki. Talið er að sonur Sadats heitins, Gamal Sadat, hafi í gær
haldið heim til sin frá Bandarikjunum.
Bústaðirnir tveir, sem lagt er til
að fjölskylda Sadats fái til umráða,
eru í eigu forsetaembættisins og
eru á Nílarbökkum í miðborg Kairó.
Ekki er vitað hver lífeyrir fjöl-
skyldunnar verður.
í fréttum frá Bandaríkjunum,
sem taldar eru áreiðanlegar, segir
að sonur Sadats, Gamal Sadat, hafi
í gær haldið heim á leið, en hann
hefur að undanförnu verið í fríi þar
vestra.
Blæðingar
í brjóstholi
drógu Sadat
til dauða
Kairó, 7. október. AP.
LÆKNARNIR, sem í gær reyndu
að bjarga lifi Sadats forseta eftir
banatilræðið við hann, gáfu i dag
út opinbera tilkynningu, þar sem
skýrt var frá þeim sárum, sem
Sadat hlaut i árásinni og drógu
hann til dauða.
í tilkynningunni segir, að þegar
komið hafi verið með Sadat í
sjúkrahúsið, hafi enginn andar-
dráttur fundist og augun engin
viðbrögð sýnt þegar ljósi var beint
að þeim. Tvö skotsár voru á
brjóstkassanum vinstra megin,
skotsár á hálsi og vinstra læri
mjög tætt og lærleggurinn brot-
inn. Blóð streymdi úr munninum.
Sadat heitinn forseti var fluttur
á skurðarborðið þar sem brjóst-
kassinn var opnaður og gerviönd-
un beitt. Reynt var hjartahnoð og
blóðgjöf og sérstöku efni dælt í
hjartað til að koma því af stað.
Þegar allt kom fyrir ekki, heilinn
hættur að starfa og önnur við-
brögð engin, var Sadat úrskurðað-
ur látinn. Þá var liðin klukku-
stund og tíu mínútur frá því að
komið var með hann í sjúkrahúsið.
Dauði Sadats, segja læknarnir,
stafaði af taugaálagi og innvortis
blæðingum í brjóstholi, þar sem
vinstra lunga og helstu æðar voru
sundurrifin.
Borgarstjóri
í Róm látinn
Róm, 7. október. AP.
LUIGI Petroselli borgarstjóri í
Róm lézt af hjartaslagi i dag, 49
ára að aldri. Petroselli, sem var
úr flokki kommúnista, var fyrst
kjörinn borgarstjóri árið 1979 og
endurkjörinn i september sl.
Ilann beitti sér mjög fyrir því að
gera umhverfið notalegra fyrir
einstaklinginn, m.a. með þvi að
skipuleggja göngugötur, lista-
sýningar og menningarsamkom-
ur á almannafæri.
■ ■■
ERLENT,
APsimamynd.
Dr. Sufi Abu Taleb, forseti
egypska þjóðþingsins. Eftir
morðið á Sadat tók Taleb við
embætti forseta Egyptalands
til bráðabirgða.
VERÐ aðgöngumiöa er kr. ,20 fyrir börn,
kr. 60 stæði og kr. 80 stúka.
Sterkasta knattspyrnuliö Bandaríkjanna í áraraöir
leika gegn Valsmönnum, sem hafa fengið til liös
viö sig stjörnuna frægu
laugardaginn 10. okt.
kl. 14.00.
Lokahóf knattspyrnumanna verður nk. laugar-
dagskvöld á Hótel Borg. Heiðursgestir veröa:
Georgie Best og Cosmos.
FLUGLEIDIR Á
HAPPDRÆTTI
Aðgöngumiðar gilda sem happdrættismiðar
og vinningurinn er helgarferð meó flugleiö-
um til New York á heimaleik Cosmos, uppi-
hald og gisting í heimsborginni New York.
í liði Cosmos leika margir af þekkt-
ustu leikmönnum Evrópu, Brasilíu
og Bandaríkjanna.
G COSMOS
leika i
eUesse
búningum
ÚTILÍF
Glæsibæ,
sími 82922.
5^ A
Valur