Morgunblaðið - 08.10.1981, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981
35
-
Ekki létu fulltrúar sambands
Dýraverndunarfélaga íslands
heldur sjá sig að þessu sinni. Þetta
hefði þó verið kjörið tækifæri til
að vekja á sér athygli, því heims-
pressan var á staðnum til að fylgj-
ast með samtölum við aðmírálinn
og forsætisráðherrann, ef sam-
band skyldi nást. Það mátti lesa
andagt úr andlitum fjölmiðla-
fólks.
Mér finnst að fulltrúar íslensks
dýraverndunarfólks hefði átt að
mæta, þó ekki væri nema til að
bæta nafnspjaldi á kassann. Slíkt
hefði borið vott um hjartagæsku
og vináttu, og verið í anda barátt-
unnar, því dýravernd er hægt að
sýna líka öðruvísi en með rassa-
köstum eins og kýr á yxnatíð.
Varðskipið
bjargaði málinu
Eitthvert þras varð út af reikn-
ingi fyrir sendibílinn, en talið var
að slíkt yrði að sjálfsögðu greitt af
fjarstöddum umboðsmanni
„World Wildlife Fund“ í Reykja-
vík, því samferðamenn Valla voru
blankir. Einhver gárungi benti á
að forsætisráðuneytið væri
kannski útbært á peninga, ef
opinber boðsferð Valla skyldi enn
standa yfir.
Annríkið var mikið en tafir voru
augljósar. Fáir virtust hins vegar
sinna Valla. Hugulsamur starfs-
maður Flugleiða reyndi hins vegar
að færa honum vatn á meðan aðrir
höfðu öðru að sinna.
Líklega hafa íslensk yfirvöld
verið farin að hafa áhyggjur af
langri og vandræðalegri dvöl
Valla á Keflavíkurflugvelli og
kannski óttast að ferðalagið kynni
að enda með skelfingu. Þá er hætt
við, að nafnspjöldin á kassanum
yrðu dregin til baka.
Enn sýndu íslensk yfirvöld
mikla reisn með því að bjóða
flaggskip flotans til Grænlands-
ferðar, enda hafði sendibíllinn
verið afþakkaður fyrir löngu. Það
voru liðnir nær tvær sólarhringar,
þegar Valla var skipað á skipsfjöl.
Nafnspjöldin mynduð
Þess var gætt, að fylgdarlið
Valla væri veglegt. Það þótti mik-
ils um vert, að Valla yrði sleppt á
vit hins ókunna á þann hátt að
myndatökum yrði við komið, því
auðvitað yrðu nafnspjöldin á kass-
anum að sjást, svo unnt yrði að
dásama velgjörðarmennina, sem
lögðu á sig þetta einstæða dýra-
verndunargóðverk í þágu Valla.
íslenskir blaðalesendur mega alls
ekki hneykslast, því þetta er skít-
billeg landkynning og ber vott um
mikla hjartahlýju, líka á íslandi.
Hörður Ólafsson, umboðsmaður
„World Wildlife Fund“ í Reykja-
vík, kvartaði yfir því í blaði, að
þakkir hefði ekki borist til réttra
aðila a.m.k. ekki til hans eða mín.
Þetta er mesti misskilningur að
því er mig varðar, því ég var rétt í
þessu að frétta að Sædýrasafninu
væri ætlaður kassinn utan af
Valla, sem er vissulega einstæður
minjagripur, ef plakötin hafa ekki
orðið fyrir hnjaski.
Ég get því verið þakklátur, en
harma hins vegar, að Hörður skuli
hafa orðið afskiptur. Hann verður
þá bara að hugga sig við reikning-
inn fyrir sendibílinn. Hann er líka
sérstæður, ekki síst ef hann hefur
borgað hann sjálfur. Kannski
hann sé líka kominn í forsætis-
ráðuneytið ásamt kvittun fyrir
flugmiðanum.
Dýraverndunarfor-
setinn sat heima
Jórunn Sörensen, forseti Sam-
bands Dýraverndunarfélags ís-
lands, þakkar svo í Morgunblaðinu
2. okt. öllum þeim, sem komu í veg
fyrir að Valli skyldi koma við í
Sædýrasafninu. Það telur hún
vafalaust að hefði kórónað annars
skrautlegan feril Valla. Það var
reyndar furðulegt, að hún skyldi
vera víðs fjarri og þurfa að þakka
öðrum.
Ég held hins vegar, að henni
hefði þótt ég standa illa að verki,
ef ég hefði staðið með þvílíkum
ósköpum að bramboltinu með
Valla f.h. Sædýrasafnsins og látið
hann dúsa í kassanum allan þenn-
an tíma. En kannski á hennar
vafstur ekkert skylt við dýra-
vernd. Ég kom hins vegar hvergi
nálægt þessu máli hans Valla,
nema að svara því játandi að leyfa
honum að gista 2—3 daga, ef á
þyrfti að halda, því ég trúi því
raunverulega, að honum hefði lið-
ið þar betur en í kassanum. Þar að
auki hefði hann átt kost á vatni og
fæðu, ef hann var þá eins heil-
brigður og þeir bresku velgjörð-
armenn vildi vera láta.
Valli krydd í lífinu
En nú geta allir verið ánægðir.
Valli er kominn til Grænlands, og
allir sem við sögu hafa komið,
hafa hlotið sínar þakkir, og mynd-
ir er hægt að birta um ókomna
framtíð, sem vott um makalausa
gæsku og fórnfýsi þeirra, sem
lögðu á sig ströng ferðalög, skít-
blankir, alla leið norður í
Dumbshaf, í gegnum flókin papp-
írskerfi misviturra manna.
Ævisaga Valla verður aldrei
skráð, því hann gat aldrei útskýrt
hvers vegna hann var að flækjast
á breskar fjörur og í veg fyrir ís-
lenskan ráðherra á ferðalagi.
Ekki verður heldur skráð saga
Valla, eftir að hann þakkaði Guð-
mundi Kærnested fyrir sig, en
hann kallaði Valla eins konar
krydd í lífinu.
Valli nú án
dýraverndunar
En Valli verður að fara varlega
á slóðum grænlenskra veiði-
manna, sem eru líka víðfrægir á
sínu sviði, og þurfa líka eitthvað
að éta fyrir sínar stóru fjölskyldur
og alla sína stóru sleðahunda. Nú
er ekkert óeigingjarnt góðverka-
fólk til að líta eftir Valla. Kannske
er líka varla þörf á dýravernd á
svæðum, þar sem heimspressan og
Morgunblaðið ná ekki til og ekki
hægt að vegsama góðverkin og
þakka, og fáir til að lesa plaköt.
Við hinir, efasemdarmennirnir,
sem líka höfum samúð með græn-
lenskum veiðimönnum með stóra
barnahópa og marga svanga
hunda, vonum að þeir drepi allt
annan rostung en Valla víðförla.
Það er svo erfitt að hugsa sér
hann sem sunnudagssteik eða
hundamat, jafnvel þó enginn sjái
til.
Ef hins vegar illa tekst til með
Valla, verður Valli allavega dýr-
asta steik allra tíma.
Með bestu kveðju, skrifað
um borð í m/b Guðrúnu á
Selvogsbanka 3. okt. 1981.
Jón Kr. Gunnarsson
kostnaðar og öðrum raunhæfum að-
gerðum. Heimilað verði að reikna
vexti af vöruvíxlum smásölu inn í
vöruverðið eins og heildsölu er
heimilt að gera. Enn fremur ítrekar
fundurinn fyrri samþykktir um að
Byggðasjóði verði falið nú þegar að
veita fyrirgreiðslu til uppbyggingar
smásöluverslunar á landsbyggð-
inni.
Fundurinn lýsir furðu sinni á að
enn skuli verslunarfyrirtækjum
mismunað í skattlagningu, eftir fé-
lagsformi, og krefst tafarlausra
leiðréttinga á þessu máli.
Fundurinn skorar á umboðs- og
heildverslanir svo og framleiðendur
að selja EKKI framleiðslu- og
dreifingarvörur sínar til einstakl-
inga og fyrirtækja, sem ekki hafa
verslunarleyfi, eða starfandi versl-
un á félagssvæði Kaupmannafélags
Austfjarða. Verði ekki farið að
þessum tilmælum, sjá kaupmenn
sér ekki annað fært, en sneiða hjá
viðskiptum við viðkomandi aðila.
Beri ofangreind samþykkt engan
árangur felur fundurinn stjórn fé-
lagsins að leita annarra úrræða.
I stjórn félagsins var kjörinn á
aðalfundinum, Gísli Blöndal, Seyð-
isfirði, formaður, Gunnar Vignis-
son, Fellabæ, varaformaður, Mar-
geir Þórmóðsson, Fáskrúðsfirði, rit-
ari, Gunnar Hjaltason, Reyðarfirði,
gjaldkeri og meðstjórnandi var kos-
inn Elís H. Gunnarsson, Eskifirði.
M UI.VSIMíASIMINN Kli:
2248 0 QjSJ
JH»rounbI«Öib
Góð reynsla af Sparkrite
rafeindakveikjubúnaði
Sparkrite, rafeindakveikjubún-
aðurinn hefur á skömmum tíma
náð festu á íslenskum bílamark-
aði.
Samdóma álit notenda er m.a.;
örugg gangsetning, jafnari gang-
ur. minni bensínnotkun, aukinn
kraftur.
Við spurðum bræðurna Jón og
Ómar um þeirra reynslu af
Sparkrite:
„Við fengum góða prófun á
Sparkrite SX 2000 rafeindabún-
aðinum í hinu erfiða Ljómarallý.
Það reyndisi okkur frábærlega
vel. Mjög örugg gangsetning bíls-
ins, frábær neisti og aukinn
kraftur.
Við mæium hiklaust með Spark-
rite.“
Útsölustaðir eru:
Bílanaust Síðumúla 7-9 R.
Citroen viðgerðir Súðarvogi 54 R.
Vélsmiðjan Þór ísafirði.
Höldur s.f. Fjölnisgötu 1 Akur-
eyri.
Vélaverkstæðið Foss Húsavík.
Kaupfélag Árnesinga Selfossi.
Bifreiðaverkstæðið Berg Kefla-
vík.
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgar-
nesi.
Bílaverkstæði Guðjóns, Patreks-
firði.
Vélsmiðjan Sindri, Ólafsvík.
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðár-
króki.
Bifreiðaverkstæði Dalvíkur.
Verslunin Kjami, Vestmannaeyj-
um.
Kaupfélag Skaftfellinga, Vík í
Mýrdal.
Bifreiðaverkstæðið Múlatindur,
Ólafsfirði.
Nú getum viö í fyrsta skipti boðið Ford
Transit DIESEL-sendibíla frá Þýska-
landi
Eftirfarandi gerðir eru fyrirliggjandi:
Transit 100 sendibíll kr. 138.000,-
Burðarþol 1100 kg.
Transit 130 sendibíll kr. 162.000,-
Burðarþol 1400 kg.
Til atvinnubílstjóra:
Transit 100 sendibíll kr. 126.000,-
Transit 130 sendibíll kr. 148.000,-
Transit 100, 12 sæta sendibíll
kr. 146.000,-
&> Sveinn Egi/sson hf\
SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100