Morgunblaðið - 13.12.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
63
komið verði á laggirnar „ráðgef-
andi félagsmálaráði", sem aðstoði
ríkisstjórnina. Félagar Samstöðu
vilja ræða hvers konar tilboð um
„þjóðarsættir", þótt þeir efist um
að slíkar umræður borgi sig, en
samtökin halda fast við harðar
kröfur sínar um aðgang að fjöl-
miðlum, lýðræðislegar byggða-
kosningar, sjálfstætt dómskerfi og
efnahagsráð, sem hafi - áhrif á
stjórnarstefnuna.
í svipinn lítur út fyrir að við-
ræður Samstöðu og ríkisstjórnar-
innar fari út um þúfur. Afleiðing-
in verður sennilega sú að ekki
reynist unnt að knýja fram efna-
hagsumbætur, þar sem stjórnina
skortir myndugleika. Jafnvel þótt
matvæli fyndust yrði erfitt að af-
stýra pólitískum árekstrum, sem
mundu færa Pólland fram á barm
borgarasty rj aldar.
Alvarlegur klofningur er uppi
bæði í röðum Samstöðu og komm-
únistaflokksins. Jaruzelski hers-
höfðingi, sem er forsætisráðherra
og auk þess landvarnaráðherra og
leiðtogi flokksins, virðist þó hafa
heldur betri stjórn á fylgis-
mönnum sínum en Lech Walesa.
Jaruzelski hefur sýnt að hann get-
ur látið skjótt til skarar skríða ef
hann vill það við hafa elns og þeg-
ar hann leysti námamannaverk-
fallið í Sosnowiec á tveimur sól-
arhringum, þótt deilan væri kom-
in í vonlausa sjálfheldu. Þjóðin er
trygg hernum frá gamalli tíð og
seta herforingja í ríkisstjórn hef-
ur áhrif á hana. Jafnframt hafa
herflokkarnir, sem sendir voru út
á landsbyggðina, unnið að því að
uppræta dugleysi og spillingu með
nokkrum árangri og haft á hendi
það „forystuhlutverk", sem gert er
ráð fyrir að flokkurinn gegni.
Arangur gæti komið Jaruzelski i
vanda, þar sem hann er á góðri
leið með að víkja sjálfum flokkn-
um úr sviðsljósinu. Hann stjórnar
eins og hermaður og forsætisráð-
herra fremur en flokksleiðtogi.
Þess vegna taka Pólverjar enn
minna eftir tilraunum flokksins
til að vekja á sér athygli. Þeir taka
aðeins eftir öfgamönnunum úr
flokknum — mönnum eins og Alb-
in Siwak og stuðningsmönnum
hans sem virðast fjandsamlegir
j ....................................
allri „endurnýjunarþróuninni"
eins og tímarit þeirra ber með sér.
WALESA RÁÐRÍKUR
Erfiðleikar Lech Walesa eru að-
eins sumpart honum sjálfum að
kenna. Hann er vanur að taka
mikilvægar ákvarðanir án þess að
ráðfærast við samstarfsmenn sína
og þeim finnst það stríða gegn lýð-
ræðisanda Samstöðu. En hann
virðist einnig hafa orðið að gjalda
þess að í ljós hefur komið að mikið
bil er á milli verkalýðsins, sem
hann heillar enn með alþýðlegri
pólitík og framkomu, og virkra
starfsmanna hreyfingarinnar,
sem eru að verulegu leyti úr röð-
um menntamanna og fyrrverandi
stúdenta og eru sú manngerð, sem
helgar sig því hlutskipti að sitja
alla ævi í reykmettuðu andrúms-
lofti bakherbergja þar sem
ákvarðanir eru teknar.
Skoðanir þessa fólks um lýðræði
bera keim af trúarhita og því
finnst Walesa of stjórnlyndur og
of fús til að samþykkja málamiðl-
unarlausnir. „Það er allt í lagi að
taka þátt í svona viðræðum (við
stjórnina)," sagði einn úr þessum
hópi, „en þær gætu orðið til þess
að þjóðin yrði ekki eins vel á verði.
Það er ríkisstjórnin, sem ætti að
laga sig að okkur. Það eru ekki
nýjar viðræður, sem við þurfum
heldur nýtt skipulag."
Baráttufólkið hefur sjálft klofn-
að meir og meir, annars vegar í
stuðningsmenn frjálslyndra eða
sósíaldemókratískra hugmynda
þeirra manna er áður studdu KOR
(Varnarnefnd verkamanna) og
hins vegar í stuðningsmenn gam-
aldags og róttækrar þjóðernis-
hyggju, sem er farin að breiðast út
meðal ungs fólks í Póllandi.
Bandalag sjálfstæðs Póllands
(KPN) hefur komizt til áhrifa í
nokkrum miðstöðvum Samstöðu
og heldur fram miskunnarlausri
þjóðernishyggju „sverðs og fána“.
Gyðingahatur er vopn, sem nú er
óspart notað gegn keppinautunum
úr KOR, enda eru nokkrir þeirra
af Gyðingaættum, og gamla, ljóta,
pólska orðið „zydokomuna"
(kommajúði) hefur skotið upp
kollinum.
Fyrir nokkrum mánuðum sagði
gamall Pólverji að „pólitískt vald
lægi í göturæsinu, en enginn tæki
Unglingar velta lögreglubifreið
fyrir framan lögreglustöðina í
Katowice þar sem dreifing and-
sovézkra flugmiða var bönnuð.
það upp“. Nú er sagt að þess sjáist
merki að menn úr KPN vilji nota
sér þetta. KPN hefur verið legið á
hálsi að hafa þá einu stefnu að
trúa í blindni á algert sjálfstæði,
áróður gegn Rússum og gömul
tákn pólskrar hernaðarstefnu og
einræðisstjórnar. Fylgi hreyf-
ingarinnar eykst ört. Bæði kirkj-
unni og Samstöðu mislíkar KPN,
en kirkjan þorir ekki að stiga það
ótvíræða pólitíska skref að for-
dæma KPN og fullt frelsi stjórn-
málasamtaka er stefna sem Sam-
staða er skuldbundin til að fylgja.
Kirkjan hafnar sem fyrr hug-
myndinni lím kaþólskan stjórn-
málaflokk. Um endurreisn gamla
pólska sósíalistaflokksins tala
menn yfirleitt aðeins í kaffihús-
um.
En nýlega voru stofnaðir
„klúbbar sjálfstjórnarlýðveldis" á
fundi á heimili Jacek Kuron,
fyrrverandi leiðtoga KOR, og þessi
nýja hreyfing virðist gera ráð
fyrir að Pólland stefni í átt til
pólitísks „fjölræðis". Stjórnin tel-
ur þetta stórhættulegt. Klúbbarn-
ir vilja færa lögin í „mannúð-
legra“ horf og útbreiða pólitíska
menntun „með því að skapa hæfi-
leg skilyrði fyrir ótakmörkuð
skipti á félagslegum og pólitískum
hugmyndum". Þeir gera ráð fyrir
að fyrir hendi séu „kjarnar fram-
tíðar stjórnmálaflokka í lýðræð-
isríki“ og hvetja m.a. til alvar-
legra umræðna um stjórnmála-
ágreining. Þetta er að sjálfsögðu
villutrú í augum pólskra leiðtoga
og Rússa. Jafnframt vara klúbb-
arnir Samstöðu við hættunni á því
að mynda samsteypu með stjórn-
inni og glata séreinkennum sínum
og segja hreyfingunni að hún eigi
á hættu að leggja of mikla áherzlu
á kaþólskar hugsjónir, en gleyma
grundvallarreglum lýðræðis.
Klúbbarnir geta orðið hættu-
legir Samstöðu og ríkisstjórninni.
Að lokum getur herforingjastjórn
í einhverri mynd orðið möguleiki í
Póllandi. Hugmyndin með henni
yrði sú að hún sæti til bráðabirgða
og yrði skjaldborg eða kjölfesta,
sem gerði mögulegt að framfylgja
áætlunum um efnahagsumbætur
og koma á laggirnar varanlegri,
pólitískri „einingarfylkingu". Yf-
irlýsingar stjórnarinnar um að
hún sé þess albúin að banna verk-
föll, sennilega um leið og lýst verði
yfir einhvers konar herlögum,
sýna að möguleikinn á herfor-
ingjastjórn er ekki fjarlægur.
Baráttuhugur og sjálfstraust
Samstöðu er þó engu minna en áð-
ur og Samstöðumenn trúa því
vafalaust að guð og páfinn séu
með þeim. Og þótt við blasi eymd
og vannæring, sem má næstum
því teljast ótrúlegt í stóru, iðn-
væddu Evrópuríki á friðartímum,
standa Pólverjar ekki andspænis
hungursneyð. Að sumu leyti halda
svartamarkaðsviðskipti uppi efna-
hagslífinu, þótt óréttlát séu, og
tryggja að matvæli berast á mark-
að þrátt fyrir rýrnandi verðgildi
peninga. Matvæli erlendis frá eru
bráðnauðsynleg nú, en þegar fram
í sækir verður aðeins hægt að
leysa matvælakreppuna með víð-
tækum efnahagsumbótum, sem
munu að miklu leyti byggjast á
enn einni og víðtækri fjárhags-
aðstoð frá Vesturlöndum.
Demantar —
Pitt er va,lið
Kjartan Ásmundsson,
frullsmíðav.
Aðalst r:i'1 i S
Myndskreytt bréfsefni
ásamt umslögum í gyafamöppu. Kr.: 35.-
Plaköt
Myndskreyting frægra norrænna listamanna:
RolfLidberg IBThaning
Ib Spang Olsen Carl Larsson
Stærð Verð
30 x 40 sm 24,-
50x70sm 35.-
Sendum í póstkröfu. Pöntunarsimi 13135
EYMUNDSSON
Austurstræti I 8
Þuma-
lína
Matrósukjólar, blússur, skyrtur, vesti og buxur. Fallegir velour úti- og innigallar, loöhúfur,
loðgallar og treyjur. Heilir gallar og tvískiptir í mörgum gerðum og litum. Skíðagallar til 10 ára
aldurs. Vagnar og vagnteppi og kerrur og kerrupokar, vöggusett, vögguklæðningar, bleyju-
pokar og bleyjur.
Tækifærisfatnaður í úrvali. Tækifærisbrjósthöld.
Nuddtækin: Fakir rúllan gegn fitukeppum og þreytu.
Nova fónninn gegn gigt og þrautum.
Hvað fæst ekki i Þumalínu? Sjón er sögu ríkari. Næg bílastæði.
Póstsendum. Þumalína, Leifsgötu 32. Sími 12136.