Morgunblaðið - 13.12.1981, Side 24
72
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
Brýnt að gera
atvinnulífið hér
fjölbreyttara
I VIK í Mvrdal búa kringum 370 manns, en séu íbúar Hvammshrepps alls taldir
eru þeir 489. Oddviti hreppsins er Jón Ingi Kinarsson og ræddi Mbl. við hann um
atvinnumál hreppsins og greindi hann einnig frá því helsta, sem Víkurbúar starfa
við um þessar mundir.
— Atvinnulífið hér er fremur ein-
hæft og það sem við þurfum að vinna
að, og höfum gert, er að auka fjöl-
breytni þess, sagði oddvitinn. —
Hingað vantar hvers konar iðnað og
hér eru líka ýmis verkefni t.d. fyrir
iðnaðarmenn. Nokkur röskun varð
þegar lóranstöðin var lögð niður og
hafa t.d. verið stofnaðar hér prjóna-
stofan Víkurprjón og ofnasmiðjan
Hrafnatindur. Þá hefur mikið verið
um byggingarframkvæmdir að und-
anförnu. Eru í smíðum 5 til 7 íbúðir
fyrir einstaklinga, hrepparnir eru að
láta reisa íbúðir fyrir aldraða, nýlega
var lokið byggingu heilsugæslu-
stöðvar og skólabyggingu. Þeir sem
starfa að byggingariðnaði hafa því
haft nóg að gera.
Hér munu vera kringum 140 störf
á vetrum og nokkru fleiri á sumrin
og yfir sláturtíð, en segja má að at-
vinnulífið hér sé ekki fullkomið þeg-
ar hægt er að galdra fram kringum
100 manns úr nærsveitunum yfir
sláturtíðina. Þetta bendir til að hér
sé e.t.v. um dulið atvinnuleysi að
ræða. Við þyrftum að fjölga atvinnu-
tækifærum og hér vantar t.d. störf
fyrir vörubílstjóra og yngra fólkið
fer burtu á vertíð eða flytur úr
byggðarlaginu þar sem það finnur
ekki og fær ekki vinnu við sitt hæfi.
Þá sagði Jón Ingi að Hvamms-
hreppur og Dyrhólahreppur hefðu
með sér nokkra samvinnu og væru
jafnvel uppi hugmyndir um að auka
hana. Helsti hvati þess væri að nú
þegar væru ýmis verkefni rekin sam-
eiginlega, t.d. brunavarnir og ef fara
ætti út í hafnarframkvæmdir væri
óhjákvæmilegt að skoða samein-
ingarmálin nánar. — Aðalrökin, sem
mæla með sameiningu eru að þannig
ná hrepparnir hagkvæmari rekstrar-
einingu með því að margvísleg þjón-
usta yrði rekin sameiginlega, en
sjálfsagt má finna á sameiningunni
félagslega vankanta, sagði oddvitinn.
— En aðalatriðið fyrir okkur er
það að tryggja og efla byggðina hér í
Mýrdalnum sem hefur átt í vök að
verjast síðasta áratuginn, sagði Jón
Ingi. Meðal þess sem hann nefndi að
gert hefði verið að undanförnu er að
opna tjaidstæði með hreinlætisað-
stöðu, þar sem er rými fyrir 400
tjöld, en hótelaðstaða í Vík er lítil.
En aftur skal vikið að atvinnumálum
og oddviti nefnir að útræði hafi
nokkrir Víkurbúar stundað um skeið
í litlum mæli:
— Sennilega má auka sjósókn héð-
an, en það gerist ekki nema með ákv-
eðnum úrbótum á lendingarað-
stöðunni. Héðan er stutt á góð mið og
þvi er ekki úr vegi að þessi möguleiki
verði athugaður sérstaklega, enda
má segja að fyrirgreiðsla opinberra
sjóða fáist helst ekki nema hugm-
yndin sé að fjármagna útgerð. Ef
ætlunin er að fá fé til uppbyggingar
fyrirtækja þá virðist það torsótt mál,
en manni hefur sýnst næsta auðvelt
að biðja um lán fyrir eins og einum
skuttogara. En um sjósóknina er það
að segja að héðan hafa nokkrir menn
róið á 3 til 4 plastbátum með utan-
borðsmótor. Arið 1978 fóru þeir 17
róðra og öfluðu 6.110 kg, 1979 fengu
þeir 13.700 kg í 32 róðrum, 1980
15.650 kg. í 32 róðrum og í sumar fóru
þeir 30 róðra og fengu tæp 27 tonn.
Þessir róðrar fara þannig fram, að
vögnum með bátunum á er ekið niður
í fjöru og síðan er róið. Að loknum
róðri verða menn svo að sigla beint í
vagnana og það gefur auga leið að
veður má ekkert breytast ef ekki á
illa að fara. Þess vegna höfum við
lagt áherslu á við fjárveitingayfirv-
öld að fé fáist til úrbóta.
Morgunblaðið á ferð í Vík í Mýrdal:
Jón Ingi Einarsson oddviti og sr. Gísli Jónasson sóknarprestur, en myndin en tekin viö kirkjuna
Séð yfir tjaldsvæðið ofan úr brekkunum. Þó haustið væri komiö haföi enn ekki snjóað að marki
Til að verjast hugsanlegu
hlaupi vegna Kötluelda hefur
verið ýtt upp miklum varnar-
garði austan við þorpið, en
þar viö er flugbrautin. Taldi
oddvitinn með ólíkindum ef
þessi varnargarður brysti þótt
til hlaups kæmí, enda væri
hann vel gerður og vafamál
hvort hlaupið gæti náð til
þorpsins.
Ljosm. Rax.
NÝ PLATA NÝ PLATA