Morgunblaðið - 13.12.1981, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
79
Smælki
GRÝLURNAR gáfu út sína
fyrstu plötu nú á föstudag-
inn. Hún er 12 tommur að
þvermáli, snýst 45 snún-
inga á mínútu og hefur að
fíeyma fjögur lög. Poka-
hornið hefur ekki enn heyrt
þessa fyrstu afurð Grýl-
anna en að öllum líkindum
er á ferðinni hressileg
rokkplata ef marka má
heimildamenn okkar.
Þeyr gefa á morgun út
stóra plötu semsagt var frá
í síðasta Pokahorni. Platan
heitir „Mjötviður mær“ og
er önnur LP-plata Þeysara
(ef menn telja Þagað í hel
með, en hún kom eiginlega
aldrei út, að minnsta«kosti
ekki ógölluð).
Þess má og geta að Þeyr
halda tónleka á Borginni
nú á fimmtudagskvöldið.
Auk þeirra kemur Von-
brigði fram.
Bodies, sem hafa mikið
spiiað að undanförnu eru
nú farnir að huga að plötu-
útgáfu og gætu upptökur
hafist nú eftir áramótin.
Það hefur einnig heyrst
að Þursar séu að fara að
hljóðrita plötu. Það ættu að
vera hæg heimatökin fyrir
þá með upptökur, þar sem
þeir hafa nú innréttað sitt
eigið stúdió.
Lokatónleikar
í NEFS
Eins og kunnugt er af fréttumm stendur nú fyrir dyrum að loka hinum
vinsæla tónlistarklúbb SATT og Jazzvakningar, NEFS, sem starfræktur
hefur verið í Félagsstofnun stúdenta nú í vetur. Ástæðan fyrir þessari
ákvörðun mun að sögn forráðamanna NEFS eiga rætur sínar að rekja til
pólitískra deilna innan Háskólans. Þrátt fyrir að Félagsstofnun hafi haft
ágætar og öruggar tekjur af starfseminni að því er heimildamenn okkar
telja og að þar hafi blómgast mikið tónlistarlíf nú í vetur, eru ákveðnir
aöilar sem finna þessari starfsemi allt til foráttu. Stórýktar sögur um
mikla drykkju hljómleikagesta og skemmdarstarfsemi hafa t.d. komist á
kreik. Annars mun Pokahornið fjalla nánar um þetta mál í næstu viku og
kynna sjónarmiö beggja aðila.
Eins og áður kemur fram er þetta síðasta vikan sem klúbburinn verður
starfræktur og verða haldnir þar þrennir tónleikar á næstu dögum. Á
miðvikudag og fimmtudag verða þar unglingatónleikar. Fyrra kvöldið munu
Þeyr og Vonbrigði o.fl. koma fram, en á fimmtudagskvöld spila Purrkur
Pillnikk. Jonee Jonee ásamt einhverju fleiri. Tónleikarnir hefjast klukkan níu
bæði kvöldin og munu standa fram yfir miðnætti. Á laugardagskvöldi
ðverða svo síðustu tónleikar í NEFS ef svo fer sem horfir. Þá munu koma
fram margar af helstu hljómsveitum höfuðborgarinnar og má þar nefna
Purrk Pillnikk, Þey og Þursaflokkinn. Auk þeirra má reikna með að þrjár til
fjórar hljómsveitir til viöbótar komi fram. Á þessum tónleikum sem standa
frá því klukkan átta um kvöldið til þrjú um nóttina veröur reynt aö bæta viö
þann fjölda sem kemst inn meö því aö opna niður í stúdentakjallarann auk
þess sem reynt verður að opna hliðarsal. Eins og áöur sagöi er þetta i
siðasta sinni sem fólki gefst kostur á að eyöa kvöldstund í NEFS yfir góöri
tónlist og Ijúfum veigum.
Vonbrigði er meöal þeirra hljómavaita sem koma fram í NEFS nú í
vikunni.
fjallað um hljómsveitina i blööum
erlendis, „Love Will Tear Us Apart“
fór i topp 10 i Bretlandi og Closer
náði hátt á listanum yfir stórar plöt-
ur þar.
Joy Division var á þessum tíma
orðin umtalaöasta hljómsveit ný-
bylgjurokksins en var í rauninni
horfin þegar hún hlaut þessa al-
mennu viðurkenningu. Þegar leiö á
haustið spiluðu hinir eftirlifandi
meðlimir Joy Division í fyrsta sinn
opinberlega. Þaö var i heimaborg
þeirra, Manchester, í litlum klúbbi.
Tónleikar þessir voru ekki auglýstir
og þeir þremenningar spiluöu undir
hinu sérkennilega nafni „The Surviv-
ing Members of the Crawling Cha-
os“. Þar léku þeir eingöngu ný lög
og upp frá því hafa þeir ekki leikið
opinberlega þau lög sem út komu á
plötum Joy Division. Nokkrum vik-
um síðar var þaö kunngjört aö þeir
Albrect, Morris og Hook heföu valið
hljómsveitinni heitið New Order.
Nafn þetta vakti strax mikiö umtal á
meðal blaöamanna sem skrifuöu
harðorðar og ásakandi greinar gegn
því. Töfdu þeir aö nafnið fæli í sér
tengsi viö hina svokölluöu „New
Order" hreyfingu evrópsks fasisma.
Þessi hreyfing stóð m.a. fyrir
sprengjutilræðinu á járnbrautar-
stööinni í Madrid í fyrra, þar sem yfir
100 manns létu lífið. Bernard Al-
brecht svaraði þessum ásökunum í
viðtali viö Melody Maker i maí síö-
astliðinn. Hann undirstrikaöi að
nafn hljómsveitarinnar fæli ein-
göngu í sér meininguna „Nýtt upp-
haf“. Nýtt upphaf á tónlistarferli
þeirra þriggja. „Viö erum ekki fasist-
ar,“ sagöi hann og bætti síöan viö
aö þeir heföu alls engan áhuga á
pólitík. New Order héldu áfram
samvinnu viö útgáfufyrirtækið Fact-
ory í Manchester en þaö fyrirtæki
gaf út allar plötur Joy Division. j
sumar kom svo út lítil plata með
þessari nýju hljómsveit. Á A-hliö
hennar er lagið Ceremony sem
einnig er aö finna á Still (hljómleika-
plötunni). Á bakhliö þessarar plötu
er lagiö „In a Lonely Place", en það
lag var leikið af plötunni í upphafi
tónleika New Order.
Á meðan var Ijósskímu beint aö
míkrafóni á sviöinu og meðlimir
hljómsveitarinnar týndust inn á
sviöiö. Eftir aö New Order hófu
regluiegt tónleikahald bættist nýr
meölimur i hljómsveitina, Gillian,
sem leikur á sinþesæsera og gítar.
Um mitt sumar kom svo út önnur
tveggja laga plata „Everythings
Gone Green". Hún hlaut mjög góöar
viðtökur og sat m.a. í efsta sæti
„independent" listans í Englandi í
nokkrar vikur.
Tónlist Joy Division og New
Order á eölilega margt sameigin-
legt, en það hvernig þessar tvær
hljómsveitir hafa samið og unnið
tónlist sína er þó að vissu leyti með
ólikum hætti. Textar Joy Division
voru samdir af lan Curtis en hinir
meðlimirnir sköpuöu jafnan ryþm-
ann og sömdu tónlistina. í New
Order er þetta á annan hátt. Allir
meðlimir hennar eiga þátt í bæöi
tónlist og textum. „Ekkert lag er
samið af einhverjum einum okkar,“
segir Albrecht.
Movement, fyrsta LP plata þeirra,
er mjög heilsteypt og vönduö plata.
Tónlistin er ekki jafn magnþrungin
og áöur var enda áttu textar lan
Curtis mikinn þátt í að skapa þann
anda sem var í tónlist Joy Division.
Lagasmíöar eru ekki með ósvipuöu
sniði og áöur en breytingar má
greina í útsetningum. Hljómborð
spila stærra hlutverk og gefa þeirri
tónlist sem New Order flytja fínlegra
eða léttara yfirbragö. Hiö mikla um-
tal og athygli sem Joy Division fékk
var óneitanlega mikil og erfiö próf-
raun fyrir þá Peter Hook, Steve
Morriis og Bernard Albrecht. Þeir
stóðust prófiö fyllilega. New Order
uppfylla þær vonir sem bundnar
voru viö hljómsveitina og Movement
er meö athyglisverðari hljómplötum
þessa árs.
Við kynnum
ný húsgögn
kynningar
afslætti
Ávallt eitthvað nýtt í
yoo
HÚSGAGNAVERSLUN
SMIÐJUVEGI 8 KÓPAVOGI SlMI 78880
, .Víndum
víndum
vefjum
band”
í Handíð er bæði mikið og gott úrval vandaðra vef-
stóla frá Lervad, Bergaa og Normalo.
Allt frá litlum borðvefstólum, sem eru heppilegir
fyrir aldraða og sjúkraþjálfun, til fullkominna
gagnbindingarstóla með allt að 140 sm vefbreidd
og 12 sköftum. Höfum einnig myndvefstóla með
100 sm vefbreidd en getum útvegað með stuttum
fyrirvara myndvefstóla með allt að 240 sm vef-
breidd.
(tarlegir leiðbeiningabæklingar fylgja stólunum
okkar.
Bjóðum einnig vefgrindur með og án skila og
skeiðar og skyttur fyrir bandvefnað, auk allra ann-
arra nauðsynlegra fylgihluta.
HANDÍD
Laugavegi 26 og Grettisgötu
sími 29595