Morgunblaðið - 13.12.1981, Side 44
92
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
Með
morgunkaffinu
ást er...
... að fara saman i
kvöldskóla.
TM Rec U.S. Pat. Off.-al rtghts reservad
® 1981 Los Angetes Times Syndicate
pa.rf cxb fa eir\s háa brunairygai oga
og 'eg 0et Fenýo -fyrir Aa&sta •föstuotags-
kv/6'lol.,,
l>ad liggur við að ég öfundi þig af
því ad fá tækifæri til að hætta að
reykja!
HÖGNI HREKKVISI
_•«
a-
■<r\
ík
7)
cr<i£3
Æ7? V/¥>St*/r * / "
mmLmm
„Fóstrið fær á sig mannsmynd
snemma á meðgöngutímanum.
Myndin til vinstri sýnir mannsfóst-
ur á 6. viku. Myndin til hægri sýnir
mannsfóstur á 9. viku. Myndirnar
eru fengnar úr bókinni Mannslík-
aminn eftir Jóhann Sæmundsson."
I.A. skrifar:
„í Dagblaðinu & Vísi þann 4.
desember sl. er greinin Kvenna-
völd eftir Helgu Sigurjónsdóttur
þar sem hún ræðir um ýmis mál,
sem konur berjast fyrir og er
flest gott um þann málflutning
að segja. En ein er sú málsgrein,
er ég hnýt um. Hún er svona:
„Nú má vitaskuld hugsa sér að
konur myndu beita sínu eigin
valdakerfi (þ.e. valdi sem mótast
af lífspólitík/kvennapólitík) jafn
ómannúðlega og karlaveldið ger-
ir og hefur gert frá því að sögur
Endurheimtum iífsrétt
hins ófædda barns
hófust. Því viljum við hinsvegar
ekki trúa enda þá til lítils barist.
Það yrði þá a.m.k. í fyrsta sinn í
veraldarsögunni sem mæður
gengju að því markvisst og með-
vitað að upphugsa sem ferlegust
drápstæki til að myrða þau börn
sem þær sjálfar hefðu gengið
með, haft á brjósti og fóstrað til
manns. Hingað til hafa mæður
grátið yfir þeim börnum sínum
sem karlveldið hefur hrifsað af
þeim í byssu- og sprengjufóður."
Betur að þessar fullyrðingar
stæðust að öllu leyti. En því er
nú miður að svo er ekki. Fyrir
nokkrum árum var hér hart deilt
um réttmæti fóstureyðinga og
man ég ekki betur en það væru
einmitt konur sjálfar, að vísu
innan rauðsokkahreyfingarinn-
ar, sem harðast börðust fyrir
frelsi hverrar konu til að láta
eyða fóstri sínu, ef henni bauð
svo við að horfa, þótt enga lækn-
isfræðilega nauðsyn bæri til.
M.a. fyrir baráttu þessara
kvenna voru fósturmorð lögleidd
á alþingi og eru nú framkvæmd
árlega í hundraða tali, eins og
um sjálfsagðan hlut væri að
ræða, en ekki nein voðaverk, svo
sem þau raunverulega eru. Því
barn er óumdeilanlega maður,
hvort heldur fyrir eða eftir fæð-
ingu. Jafnvel örfáum vikum eftir
getnað, hefur fóstrið tekið á sig
fullkomna mannsmynd.
Ef kvennasamtök og kvenna-
framboð eiga að vera meira en
að sýnast, þá er hér eitt af meiri-
háttar verkefnum, sem konur
ættu að berjast fyrir. Leiðrétt-
ing á þessari illu lagasetningu,
og einkum framkvæmd hennar,
er eitt þeirra mála sem ekki má
dragast. Og engir þegnar þjóð-
félagsins hafa betri möguleika
en einmitt konur, til að berjast
fyrir lífsrétti hins ófædda
barns."
Þessir hringdu . . .
Var auglýst sem
fjölskylduskemmtun
Anna hringdi og hafði eftirfarandi
að segja: — Við hjónin fórum ásamt
tveimur sonum okkar á Vals-bingóið
í Broadway, sem minnst var á hér í
dálkunum í dag (föstudag). Við fór-
um með strákunum fyrst og fremst
af því að við héldum að þeir kæmust
ekki einir inn í húsið. Við komum um
kl. hálf átta, en fengum þrátt fyrir
það engin sæti, heldur sátum eins og
margir fleiri á gólfinu. Það sem mér
fannst stinga mig mest við þessa
skemmtun, sem var rækilega auglýst
sem fjölskylduskemmtun var að allir
barirnir voru opnir. Það fannst mér
óviðeigandi undir þessum kringum-
stæðum og ég heyrði að börnin töl-
uðu um þetta. Sumir voru orðnir vel
mjúkir undir lokin og þá var til-
kynnt að nú yrði dansað til kl. eitt.
Ég tek það hins vegar skýrt fram að
þrátt fyrir fólksmergðina sem þarna
var, og ég er viss um að það hafa
ekki verið færri en tvö þúsund
manns, að þá skemmtu sér allir vel.
Og ég vona að svona skemmtanir
verði endurteknar í framtíðinni, með
þeim breytingum einum, að fullt til-
lit verði tekið til þess að um
fjölskylduskemmtun er að ræða.
Endursýnið
EI Salvador-þáttinn
Inga á Akureyri hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Ég vona að
sjónvarpið sjái sér fært að endur-
taka þáttinn um E1 Salvador. Um
það leyti sem þátturinn var sýndur
var rafmagnslaust í 40 mínútur á
Vestur-, Norður- og Austurlandi, svo
að margir hafa orðið af því að sjá
hann. Vinsamlegast endursýnið
þáttinn.
Af hverju leituðu
þeir ekki af sér
allan grun?
Einar Jónsson umsjónarmaður
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
— Það er leitt að vita til þess að
björgunarmenn eins og lögregla,
síökkviliðs- og sjúkraflutningamenn
skuli sífellt eiga það yfir höfði sér í
sínu starfi að vera gabbaðir, þ.e.a.s.
kallaðir út að tilefnislausu. Og
sjaldnast er líklega hægt að skera úr
um það fyrir fram, hvort um gabb er
að ræða eða ekki. Þess vegna er það
afar brýnt, að öll tvímæli séu tekin
af um það í hvert sinn, ef svo virðist
sem um gabb hafi verið að ræða, en
ganga ekki að því sem gefnu þó svo
virðist vera við fyrstu sýn, þegar
komið er á vettvang. Ég var svolítið
hissa á þeim t.d. í þessu Þverholts-
máli, að þeir skyldu ekki leita af sér
allan grun, eftir að hafa fengið þær
upplýsingar sem fyrir lágu. En það
er e.t.v. hægara um að tala en í að
komast. Fróðlegt væri að heyra sjón-
armið þeirra sem þarna áttu hlut að
máli.
Langar að heyra
Ijóðin aftur
(iamall Austfirðingur hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Ég
hlustaði á sr. Sverri Haraldsson,
sóknarprest í Borgarfirði eystra
flytja Ijóð eftir sig í útvarpinu fyrir
skömmu. Mér fannst Ijóðin athyglis-
verð, ekki síst fyrir stemmninguna
sem ríkt hefur þegar þau voru ort.
Og þarna var allt vel gert og flutn-
ingurinn líka. Gaman væri að fá að
heyra Ijóðin aftur, eða sjá þau á
prenti.
Sovétmenn aðgangsharðir að íslenskum stjórnvöldum:
Vilja leyfi til tilraunaveiða, samn-
inga um flugmál og nýtt einbýlishús
i tilraunaveiAar h*r við jWtrikjanna með flugvrlum
mun i hiirerð að wt;a ntr dugi *a aígreið.1 j.ammmrur wm
nrluirerA um rannaðkmr »ve«k ðjurmold hafa irert við
n. br,. .1 .Mn "“ ■”
_ Sovéimrnn kafa hvað unnar til að ganira trviorílegar frá «uv*»kar '»lar. *»m lenita a
rrti ,___________ ollu. »m að vlikum rannaóknum Kefla.ikurfluir'elli Samk'»ml
I _.»■ So.einkiaana m Ivtur ,« veitmiru l»>fa til þeirra al|»»óðnaamninirum er rkki unnt
1971 var undirntað umkumular að neila Sovetmonnum að l»nda á
milli rikiantjðrna laianda <m Sov K»flavikurflu*v»lli a»u aðatvður
t var i ráðt. að Slain ’ rtrikjaana um vamvmnu i aviði eðlilnrar llina »r þð að Ireta að
i .•_••■.■•..» ..•„r.,t ra»«ahr mm fiakvriAo iut muno snemma ir• Itnoi. akommu eflir
i Afiranislan. neituðu
Vísa vikunnar
Rússneska hástéttin loðin um lófa
lítið oss minnir á öreigans vörn,
samanber auðuga „Offa“ og „Kova“
alveg frá Melum og niður að Tjörn.
Hákur