Morgunblaðið - 13.12.1981, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
95
75 kg
1) S. Alexander, Bretlandi 280 175 297,5 752,5
2) L Backlund, Svíþjóð 270 190 272,5 732,5
3) S. Oskarsson; íslandi 285 125 290 700
4) B. Waddell, Astralíu 277,5 152,5 252,5 682,5
5) K. Skybak, Noregi 257,5 145 270 672,5
6) O. Wiken, Noregi 255 142,5 267,5 665
7) P. Delohen, Frakklandi 200 135 255 590
8) I. Singh, Indlandi 192,5 150 240 582,5
9) M. Hillier, Frakklandi 230 120 230 580
10) V. Eiji, Japan 205 150 210 565
11) S. Matt, Indlandi 210 115 220 545
—) B. Martin, Nýja Sjál. — —
Sunnudaginn 8. nóvember var
síðasti keppnisdagurinn og áttu
nú stóru strákarnir að keppa og
meðal þeirra Jón Páll. Hann var
nú orðinn vel þekktur í borginni
vegna sjónvarpsins, sem sýnt
hafði hann við æfingar á hótelinu
fyrir mótið. Á keppnisstað sem
annarsstaðar vakti hann mikla at-
hygli, sem algjör andstæða við
innfædda, nærri 2 m á hæð, ljós-
hærður og 125 kg. Svona maður
hafði ekki sést fyrr á Indlandi.
Innfæddir vissu af islensku þjóð-
erni hans og var mikil furða hve
vitneskja þeirra var mikil um
landið okkar. Á keppnisstað hafði
Jón nóg að gera við að sitja fyrir á
myndum með indverskum fjöl-
skyldum með börn á handleggnum
og eiginhandaráritanir sem hann
gaf skiptu hundruðum.
Meðan á keppninni stóð var
ástandið þannig að múgurinn
trylltist af æsingi og fagnaðarlát-
um þegar Jón lyfti, en keppinaut-
um hans var tekið með þögn.
Til keppni í flokknum með Jóni
voru mættir 10 keppendur. Allir
ofurmenni að burðum og stæði-
legir. Frá Ástralíu var Lonsdale,
117 kg, Seese, Vestur-Þýskalandi,
116 kg, reyndur keppnismaður, frá
Japan Nakamura, 115 kg, svoli
mikill en þó góðlegur, frá Frakk-
landi Brulois, 124 kg og ákaflega
þéttur á velli, frá Noregi Wien, 113
kg, hafði lést um mörg kíló í ferð-
inni, en þó furðu brattur, frá
Finnlandi Nevenpáá, 121 kg, í út-
liti eins og jarðýtustjóri og vafa-
laust heljarmenni eins og finnska
vörumerkið gefur ávallt til kynna,
frá Kanada Magee, 122 kg og held-
ur stærri en Jón Páll og vel limað-
ur og glæsilegur á velli, frá Sví-
þjóð Ekström, 120 kg og illúðlegur
að vanda, núverandi Evrópumeist-
ari, og síðast en ekki síst Hackett
frá Bandaríkjunum, 120 kg og
sagður hafa lést um 23 pund við
dvölina í Indlandi.
Byrjunartölur gáfu til kynna að
Ástralinn, Þjóðverjinn og Japan-
inn yrðu ekki hættulegir andstæð-
ingar. Reyndist svo vera, þar sem
þeir réðu ekki við byrjunarþyngd-
ina. Norðmanninn hafði Jón alltaf
unnið og þrátt fyrir að Frakkinn
væri góður var fljótt séð að hann
væri ekki nógu góður til að ógna
Jóni. Þeir voru því 6 í toppbarátt-
unni og fagnaðarlæti áhorfenda
leyfðu Jóni Páli ekki að hugsa um
annað en verðlaunasæti.
í hnébeygjunni sigraði Hackett
og lyfti 375 kg, annar var Magee
með 355 kg og þriðji Nevanpáá
með 350, síðan komu Norðmaður-
inn og Jón Páll með 337,5 kg og
Svíinn með 335 kg, hafði mistekist
við 345 kg eins og Norðmanninum.
Jón Páll lyfti af miklu öryggi 310
kg í fyrstu, 325 kg í annarri og
337,5 í þriðju og fögnuðum við því
að Jón hafði yfir Evrópumeistar-
ann.
Bekkpressuna vann Magee með
235 kg, annar varð Hackett með
230 kg, þriðji Ekström með 227,5
kg, fjórði Jón Páll með 220 kg,
fimmti Nevanpáá með 217,5 kg og
sjötti Wien með 192,5 kg. Jón Páll
lyfti af engu minna öryggi í
bekkpressunni og byrjaði á 200 kg,
svo 217,5 kg og síðast 220 kg, hafði
gert allar sínar lyftur gildar eins
og Magee.
Jón var í fimmta sæti eftir tvær
fyrstu greinarnar og með því að
lyfta 340 kg í fyrstu tilraun sinni í
réttstöðulyftu fór Jón upp fyrir
Nevanpáá. Magee lyfti í annarri
tilraun sinni 337,5 kg og var þá
kominn með 927,5 kg í saman-
lögðu, Svíinn bað um 350 kg í
fyrstu tilraun og lyfti því ekki fyrr
en í annarri tilraun og þar sem
Jón þurfti að lyfta 5 kg meira en
hann til að komast yfir voru sett
355 kg á stöngina fyrir Jón. Því
lyfti Jón við gífurleg fagnaðarlæti
áhorfenda. Ekström reyndi svo við
357,5 kg í siðustu tilraun sinni svo
Jón Páll hafði tryggt sér bronsið.
Hackett lyfti þeirri þyngd í síð-
ustu tilraun sinni og varð sigur-
vegari, þótt ekki væri það með yf-
irburðum. Jón Páll reyndi síðan
við 370 kg í síðustu tilraun sinni,
aðeins 12,5 kg frá heimsmeti og
lyfti því upp að hnjám. Lyfta þessi
hefði gefið Jóni silfurverðlaun, en
þau féllu honum þó í skaut þar
sem Tom Magee var vísað úr
keppninni eftir að niðurstöður
lyfjaprófs lágu fyrir. Jón Páll
vann því silfurverðlaun á 912,5 kg,
jafnt Islandsmetinu.
Er upp var staðið voru menn að
vonum ánægðir. Báðir okkar menn
á verðlaunapall, það hlýtur að
vera árangur, sem allir hljóta að
gleðjast yfir og hlýtur að réttlæta
svo langa ferð.
Árangur varð annars þessi og
eru verðlaunamenn bara nefndir,
nema í flokkum okkar manna.
Keppendur í 125 kg flokki á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum sem fram fór í
Calcutta á Indlandi. Jón Páll er fyrir miðri mynd. Jón Páll vann þann frækilega árangur
á mótinu að vinna silfurverðlaunin í keppninni. I.jósm. < Mafur S.
Ný skíðalyfta Breiðabliks í
Drottningargili í Bláfjöllum
82,5 kg
1) M. Stamm, V-Þýskalandi 310 175 295 780
2) V. Kumpuniemi, Finnlandi 265 155 330 750
3) J. Nyyssönen, Finnlandi 305 185 260 750
90 kg
1) W. Thoraas, USA 350 227,5 352,5 930
2) K. Mattsson, Svíþjóð 337,5 220 310 867,5
3) T. Maeda, Japan 305 167,5 290 762,5
100 kg
1) T. Stevens, Bretlandi 330 215 320 865
2) R. Eriksen, Noregi 290 180 290 760
3) H. Vierthaler, V-Þýskalandi 220 150 250 620
110 kg
1) H. Saarelainen, Finnlandi 350 240 330 920
2) A. White, Bretlandi 320 190 345 855
3) R. Dagitt, Kanada 305 232,5 300 837,5
125 kg
1) E. Hackett, USA 375 230 357,5 962,5
2) J. Sigmarsson, íslandi 337,5 220 355 912,5
3) R. Ekström, Svfþjóð 335 227,5 350 912,5
4) A. Nevanpáii, Finnlandi 350 217,5 310 877,5
5) K. Wien, Noregi —) T. Lonsdale, Astralíu —) S. Nakamura, Japan —) F. Seese, V-Þýskalandi 337,5 192,5 322,5 852,5
125+ kg
1) P. Wrenn, USA 427,5 235 365 1027,1
2) A. Kapica, Ástralíu 350 215 310 875
3) R. Rigby, Ástraliu 300 187,5 342,5 830
Að afloknu mótinu var haldin
heilmikil veisla á hótelinu, þar
sem veitt var vel í mat og drykk.
Við íslendingarnir tókum nú
ósleitilega til matar okkar í fyrsta
sinn að við vikum frá íslenska
matseðlinum. Áttum við enn
minningar um indverska matinn
tveimur vikum eftir veisluna og
blessuðum nestið okkar íslenska.
Án þess hefði allt eins getað farið
svo að bronsið hans Skúla og silfr-
ið hans Jóns væru í annarra fór-
um.
Heimleiðis var haldið mánudag-
inn 9. nóvember og er lent var í
London eftir sólarhrings ferð
fylltumst við feginleikatilfinningu
yfir að vera komnir burt frá Ind-
landi.
Ólafur Sigurgeirsson
ÞEIR SEM leið hafa átt í Bláfjöll í
haust hafa veitt þvi athygli að mikið
hefur verið um að vera á skíðasvæði
Breiðabliks í Drottningargili, sem er
miðja vegu milli svæðis Bláfjalla-
nefndar í Kóngsgili og svæðis Fram
í Eldborgargili.
Þar hafa að undanfornu unnið
8—14 manns um hverja helgi og er
nú lokið við að reisa glæsiiega skiða-
lyftu sem er nú tilbúin til notkunar
þegar nægur skíðasnjór kemur.
Fyrir nokkrum árum var Breiða-
blik úthlutað skíðasvæði við Drottn-
ingargil sem komið er að nokkru
áður en komið er að skíðalyftum
Bláfjallanefndar. Svæðið liggur
mjög vel við og hentar mjög vel til
hverskonar skíðaiðkana.
Skíðaáhugamenn f Kópavogi hef-
ur löngum dreymt um að koma upp
skíðalyftu á svæðinu, en þar er fyrir
skáli í eigu bæjarins og reynt hefur
verið að reka þar litla lyftu sem eng-
an veginn er samkeppnisfær við þær
skíðalyftur sem nú eru í Bláfjöllum.
Aðsókn að þeim lyftum sem fyrir eru
bendir til að mikil þörf sé fyrir fleiri
lyftur í Bláfjöll.
Fyrir rúmu ári tóku nokkrir
áhugasamir Kópavogsbúar sig
saman um skíðaíþróttir og stofn-
uðu Styrktarfélag Skíðadeildar
Breiðabliks. Tilgangur félagsins
var að reisa nýja og fullkomna
skíðalyftu í Drottningargili.
Formaður félagsins var kosinn
Steinar Lúðvíksson. Hófst félagið
þegar handa um undirbúning
framkvæmda. Leitað var stuðn-
ings bæjarstjórnar Kópavogs við
málið og fékk það mjög góðan
stuðning frá henni. Jafnframt var
hafin almenn fjársöfnun meðal
fyrirtækja í bænum og fengust
þar undirtektir.
Félagið leitaði tilboða í skíða-
lyftu og bárust tilboð frá ýmsum
framleiðendum. í maí sl. var
ákveðið að taka tilboði frá fyrir-
tækinu Doppelmayr í Austurríki,
sem framleitt hefur margar lyftur
sem í notkun eru hér á Iandi,
þ.á m. stóllyftuna í Bláfjöllum
sem flestir kannast við.
Lyfta sú sem keypt var er
svonefnd T-lyfta og fara tveir
íflEMHHfflMH
saman á T sem smeygt er aftur
fyrir læri skíðamannanna. Er
þetta nýjung hér á landi en hefur
mjög rutt sér til rúms í skíðalönd-
um erlendis að undanförnu.
Heildarlengd lyftunnar er um
520 metrar og hæðarmunur er 126
metrar en meðalhalli brekkunnar
sem lyftan stendur í er rúmar 17
gráður. Á hún að vera auðveld öllu
skíðafólki. Lyftan mun flytja 808
manns á klst. og er lyftan 2 mínút-
ur 23 sek. að flytja fólk upp á topp.
Skíðabrekkan skiptist í tvo
hluta, efri og neðri brekku. Eiga
báðar brekkurnar í venjulegu færi
eins og áður sagði að vera þægi-
legar öllu skíðafólki. í haust var
unnið að því að laga hjallann milli
efri og neðri brekkunnar, þannig
að þar ætti að vera auðveldara að
fara og auk þess að setjast meiri
snjór en áður.
Styrktarfélagið hefur haft um-
sjón með framkvæmdum og notið
stuðnings fjölmargra aðila við
ýmsa þætti framkvæmdanna. Auk
þess hafa félagar styrktarfélags-
ins lagt af mörkum mikla sjálf-
boðavinnu við uppsetningu og
annan undirbúning.
Fjárhagsstuðningur fjölmargra
fyrirtækja og einstaklinga hefur
stuðlað að því að þessi áfangi hef-
ur náðst.
Styrktarfélagið mun halda
áfram að leita til Kópavogsbúa,
sem kunna að meta þetta framtak
og leita eftir fjárframlögum til að
endar nái saman. Fjárframlög til
félagsins eru undanþegin tekju-
skatti.
Skíðalyftan verður rekin á svip-
aðan hátt og aðrar lyftur í Blá-
fjöllum og gilda kort og roiðar í
lyftu Breiðabliks eins og aðrar
lyftur á svæðinu.
Skíðadeild Breiðabliks mun
selja árskort sem gilda í allar lyft-
ur á svæðinu auk þess sem seld
verða ferðakort.
Forsvarsmenn Styrktarfélags
Skíðadeildar Breiðabliks vænta
þess að þessi framkvæmd verði
skíðaíþróttum í Kópavogi mikil
lyftistöng og komi öllu skíða-
áhugafólki til góða.
íþnóttip