Morgunblaðið - 12.01.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982
7
Konur athugið:
Bjóöum 10 tíma kúra í okkar vinsæia solarium í
svartasta skammdeginu.
Megrunar- og afslöppunarnudd
Vil vekja sérstaka athygli á 10 tíma megrunarkúrn
um. Megrunarnudd, partanudd og afslöppunarnudd.
Nudd — sauna — mælingar — vigtun — matseðill.
Nudd- og sólbaösstofa
Opk> til kl. 10 öll kvökl Ástu Baldvinsdóttur,
BÁsttaöi. Sími 40609. Hrauntungu 85, Kópavogi.
=r===
úrn"
Lærið að prjóna
lopapeysur
Álafossbúöin, Vesturgötu 2 efnir til námskeiös þar
sem kennt er að prjóna lopapeysur. Námsgjald er
ekkert og efni fæst allt í verzluninni. Námskeiöiö
hefst föstudaginn 15/1 og veröur mánudag, miöviku-
dag og föstudag, frá kl. 13—15.
Leiöbeinandi á námskeiðinu veröur Astrid Erlingsen.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í verzluninni í
síma 13404.
A /4a1össbúðin
Vesturgötu 2 - simi 13404
z^Dale .
Carnegie
námskeiðiÖ
I RÆÐUMENNSKU OG MANNLEGUM SAM-
SKIPTUM ER AO HEFJAST.
Námskeiöiö mun hjálpa þér aö:
Öölast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST
Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og staöreyndir.
Láta í Ijós SKOÐANIR þínar af meiri sannfær-
ingarkrafti i samræöum og á fundum.
Stækka VINAHÓP pinn, ávinna þér VIRÐINGU og
VIÐURKENNINGU.
Taliö er að 85% af VELGENGNI þinni sé komin
undir því, hvernig þér tekst aö umgangast aðra.
Starfa af meiri LIFSKRAFTI — heima og á vinnu-
staö.
Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíöa.
Veröa hæfari aö taka viö meiri ABYRGO án óþarfa
spennu og kvíða.
Okkar ráölegging er því: Taktu þátt í Dale Carn-
egie námskeiöinu.
FJÁRFESTING í MENNTUN GEFUR þÉR ARO
ÆVILANGT.
Innritun og upplýsingar í dag og næstu daga í síma
82411
t nk.fh yf,
h l/ / I i K \/ f. /f
STJORNUNARSKÓLINN
x 1 'r-/v/ ll>l\ Konráð Adolphsson
Leikfélag Reykjavíkur 85 ára
Ætli annað menningarstarf hafi yljað og skemmt Reykvíking-
um oftar eða betur en það, sem fram hefur fariö á vegum
Leikfélags Reykjavíkur í 85 ár (?), en félagið átti 85 ára afmæli í
gær. Þetta aldna en síunga félag hefur í hugum margra unnið til
sess „heiöursborgara“ í reykvísku samfélagi, en varla er þó búiö
aö því í samræmi við þaö.
Spurning
og svar
Helgarpósturínn birti á
dögunum viðtal vid leik-
stjóra LR, tvíeykid l>or
stein Gunnarsson og Stef-
án Baldursson. l'pphafsorð
viðtalsins vóru þessi:
„Hefur orðið einhver
grundvallarbrevting í af-
stöðu borgaryftrvalda til
LK með tilkomu vinstriafla
í borgarstjórn — vinstri-
meirihlutinn, einkum AL
þýðubandalagið, hefur
Íengi montað sig af menn-
ingarvináttu — nýtur LR
meiri skilnings?
l>orsteinn: l*að var yfir
lýst stefna Njálfstæðis-
flokksins í sambandi við
byggingarmálin að þegar
lyki byggingu myndlLstar
húss, þ.e. Kjarvalsstaða,
myndi Borgarleikhús verða
næsti áfangi. Það var gerð
um þetta áætlun 1976. Og
bygging 1. áfanga hófst. I
tíð núverandi meirihluta
hafa framkvæmdir legið
niðri um tveggja ára skeið,
þar til fyrir skemmstu að
LK fékk myndarlegan
arf...“
Stefán: Við höfum átt
ágæt samskipti við núver
andi meirihluta, nema
hvað þeir hafa valdið
okkur vonbrigðum í bygg-
ingarmálinu — verulegum
vonbrigðum.
SÍS-frysti-
hús og
Bæjarútgerð
Reykjavíkur
Annað tvíeyki, félags-
málaráðherra og ritstjóri
Tímans, koma við sögu
þessa dagana. Stöðvun
nskveidiflotans, lokun
fiskiðjuvera og verkleysi
sjómanna og fiskverkunar
fólks er allt stjórnarand-
stöðu að kenna, samsæris-
aðgerð, sem „ætlað er að
klekkja á ríkisstjórninni",
eins og ráðherra orðaði
það.
(Letur það verið að Bæj-
arútgerð Reykjavíkur, und-
ir vinstri stjórn borgar
mála, og SÍS-frystihús séu
þátttakendur „samsæris"
stjórnarandstöðu til að
„klekkja á ríkisstjórn-
inni?“ „Eigum við að trúa
því,“ spyr Alþýðublaðið,
„að SÍS-frystihús, sem eins
og önnur hafa sagt upp
starfsfólki sínu vegna hrá-
efnisskorts, geri það til
þess að klekkja á Stein-
grími Hermannssyni, for
manni Kramsóknarflokks-
ins og sjávarútvegsráð-
herra?"
iH-gar slíkur málflutn-
ingur er settur á odd póli-
tískrar „rökhyggju" er
flest orðið hey í málefna-
legum harðindum ríkis-
stjórnarinnar!
Merk réttar-
bót blindra
Rétt fyrir þinghlé var
samþykkt frumvarp til laga
um breytingu á kosninga-
lögum, sem fól í sér ferns
konar breytingar: 1) laug-
ardagskosningu, 2) styttri
kærufrest, 3) aukið öryggi
námsfólks erlendis til að
nýta kosningarétt og 4)
notkun veltistimpla við
utankjörstaðakosningu,
sem auðveldar blindum,
skjálfhentum o.fl. kosn-
ingu. Fyrsti flutningsmaður
þessa lagafrumvarps er
Salome l*orkelsdóttir, al-
þingismaður.
IFm síðasta atriðið segir
Halldór Kafnar, formaður
Blindrafélagsins, í viðtali
við Þjóðviljann á gamla-
ársdag:
„Mér finnst einkum
tvennt hafa gerst á þessu
ári, sem er mikið réttinda-
mál fyrir blinda, það er í
fyrsta lagi sú réttarbót sem
við fengum fram við breyt-
inguna á kosningalögunum
í ár og Salome l*orkelsdótt-
ir barðist fyrir. Nú eiga all-
ir að nota sérstaka stimpla
í utankjörstaðakosningum.
Hingað til hefur fólk þurft
að skrifa bókstafinn sinn
sjálft, en auðvitað geta
ekki nærri allir gert það.
Blint fólk og skjálfhent
getur þetta td. ekki. Frum-
varpið gerir sem sé ráð
fyrir, að allir sitji hér við
sama borð. I»etta er merki-
legasta réttarbótin, sem við
höfum fengið á ári fatl-
aðra.“
Atvinnutæki-
fflpri á
Suðurlandi
Garðar Sigurðsson, þing-
maður Alþýðubandalags,
gagnrýndi stjórnvöld í
þingra-ðu harðlega fyrir
sinnuleysi í atvinnumálum
Sunnk-ndinga. „Næstum
allt rafmagn, sem framleitt
er hérlendis, er til orðið á
Suðurlandi," sagði Garðar,
„en iðnaðaruppbygging,
samhliða þessari fram-
leiðslu, hefur orðið ann-
arstaðar. Það er alveg
sama, hvað hér er sam-
þykkt um það, sem ske á á
Suðurlandi, því er öllu hent
í ruslakörfuna. Það hverfur
allt á bak við prentsmiðju-
framleiðslu iðnaðarráðu-
neytis og annarra ráðu-
neyta. I>eir sjá ekki orðið
hver annan fyrir pappír og
þaðan af siður til sólar í
þr'ssum efnum ...“
Máski stjórnarþingmað-
urinn Garðar Sigurðsson
hafi hitt á skýringu þess,
hvað langt virðist milli
ráðherra skoðanalega
þt'ssa dagana, meðan allt
er t kaldakoli í þjóðfélag-
inu, að þeir sjá ekki hvern
annan fyrir skýrsluhlöðum
iðnaðarráðherra.
FYRIRFERÐALÍTIL EN FULLKOMIN
Olympia SGE 45 rafritvélin hefur kosti stórrar skrifstofuvélar
þótt hún sé bæði minni og ódýrari. Fram og
aftur dálkaval, 44 lyklaborð, 8 endurtekn -
ingalyklar, hálft stafabil til
leiðréttinga o.m.fl.
Rétt vél fyrir þann sem
hefur lítið pláss
en mikil verkefni.
Leitið nánari upplýsinga
o Olympia
[MlÆ\©[í^y]^ KJARAIM HF [
ARMULI 22 - REYKJAVÍK - SlMI 83022
VANTAR ÞIG VINNU (n]
VANTAR ÞIG FÓLK %
Þl AI GLÝSIR L’M ALLT
LAND ÞEGAR Þl' Al'G-
LYSIR I MORGINBI.ADIM