Morgunblaðið - 12.01.1982, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 12.01.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982 11 „Hverfum frá niður- skurðarsteftiu sl. árs“ - segir Pétur Guð- finnsson framkvæmda- stjóri Sjónvarps „Við hverfum frá þeirri nidur skurðarstefnu sem einkenndi árið 1981 og vinnum innan svip- aðs ramma og var 1980 og fyrr,“ sagði Pétur Guðfinnsson fram- kvæmdastjóri sjónvarps í sam- tali við Mbl. „Vetrardagskrá verður í ár til 1. júní og byrjar aftur 1. október, og lokað verð- ur vegna sumarfría í júlí mán- uði. A síðasta ári tókst okkur að stytta skuldahala stofnunarinn- ar, afnotagjöld fylgdu nokkurn veginn verðbólgu og auglýsingar voru heldur meiri en búist hafði verið við þannig að við búum við bætta fjárhagsstöðu og getum gengið út frá heldur rýmri dagskrárgerð en síðastliðið ár, þar sem verulegt tap var á árun- um 79 og ’80.“ Framkvæmdir hjá Lista- og skemmtideild Hinrik Bjarnason forstöðumaður Lista- og skemmtideildar sagði að árið ’82 liti út fyrir að verða betra ár en það sem liðið er. Meðal skemmtiefnis sem deildin kemur til með að vinna á árinu nefndi hann tvo myndaflokka, annar yrði unn- inn úr áramótaskaupum fyrri ára og þættirnir sendir út hálfsmánað- arlega frá byrjun þessa árs. Hinn er í sex þáttum, heitir „Félags- heimilið" og verður tekinn upp fyrir sumarlokun og sýndur seinni hluta ársins. Að auki er gert ráð fyrir um fimm stökum skemmti- þáttum, sem teknir verða upp og sendir út á tyllidögum. Barna- og unglingaefni verður með svipuðu sniði, Stundin okkar heldur áfram, ákveðið er að taka upp eitt barnaleikrit, sem sýnt hef- ur verið í leikhúsunum, og ein smá- saga verður kvikmynduð. Þá er ætlunin að vinna þrjá 20 mínútna tómstundaþætti fyrir börn og fullorðna. Skonrokk heldur áfram í svipuðu formi, og auk þess verða gerðir átta 20 mínútna þættir með íslenskum hljómsveitum. Fyrirhugað er að taka upp fimm leikrit í sumar, sem sýnd verða næsta vetur eða ár. Þar af eru þrjú ný verk sem sérstaklega eru skrif- uð fyrir sjónvarp og eru afrakstur höfundanámskeiðs, sem haldið var á vegum sjónvarpsins 79 en þau eru: „Þú skalt ekki stela" eftir Böðvar Guðmundsson, „Hver er sinnar gæfu smiður" eftir Þorstein „Leggjum mikla áherslu á gerð þátta um pólitíska baráttumenn á fyrri hluta aldarinnar og hefur Útvarpsráð samþykkt að unnið verði að heimildarþætti um Jónas frá Ilriflu á árinu,“ sagði Baldur. „Að auki eru fyrirhugaðir þættir um Ólaf Thors og Jón Baldvinsson." Frá vinstri: Baldur Hermannsson, Pétur Guðfinnsson og Hinrik Bjarnason. Ljósm. Mbl. Krisiján Marelsson, og verk eftir Ásu Sól- veigu, sem enn hefur ekki hlotið nafn. Þá verða tekin upp tvö leik- rit, sem sýnd hafa verið í leikhús- unum, hugmyndir eru um „Stund- arfrið“ og „Ofvitann" en það er þó ekki ákveðið enn. Að auki mun sjónvarpið endursýna nokkur verk, bæði leikrit og annað efni. Einnig verða teknir upp fjórir 30 mín. þættir með Sinfóníunni og aiitað sjö 20 mínútna þættir með einsöngvurum og einleikurum, þrír þættir verða með kórum og tveir með jasstónlist. Vaka verður með svipuðu sniði og áður, en einnig verða gerðir sjö myndlistarþættir ýmist um ein- staka myndlistarmenn eða aðferðir þeirra. „Ef Ríkisútvarpið gerir samning um flutning á Listahátíð verða eflaust 5—6 þættir í því sam- bandi,“ sagði Hinrik, „en það er þó ekki ákveðið enn.“ Að auki er hugsanleg dagskrá vegna afmælis Halldórs Laxness 23. apríl nt., en Hinrik sagði að ekki væri farið að ræða fyrirkomu- lag á slíku við skáldið enn. Frétta- og fræðsludeild Baldur Hermannsson sagði að fastir þættir yrðu óbreyttir á árinu og að auki yrðu unnar stakar heim- ilda- og fræðslumyndir. Framhald verður á þáttum um atvinnumál, en fyrsti þátturinn um mjólkuriðn- að, „Mjólk í mál“, var sýndur í byrjun desember sl. Þættir þessir verða um 30—40 mínútna langir, um fimm talsins, og verða tveir um stóriðju, einn um tölvuvæðingu, annar um nýtingu jarðvarma og einn um starfsemi verðlagsstofn- unar. Þá sagði hann að samþykktar hefðu verið ýmsar hugmyndir um félagsmál en ekki ákveðið enn hvað tekið verður fyrir, en m.a. hefur verið rætt um heimildarmynd um Landspítalann, félagsaðstöðu fyrir unglinga og fleira. Varðandi menntamál er ætlunin að fjalla töluvert um skóla, kynnt- ar nýjar hugmyndir sem fram hafa komið, bæði í formi fræðslu- og umræðuþátta. Þá hefur komið upp hugmynd um að gera mynd um ýmis tækni- leg atriði varðandi handritin, svo sem hvernig blek var búið til, hvernig skinn voru unnin, hvernig handritin hafa varðveist og hvern- ig þeim er haldið við. Fyrirhugaður er þáttur um byggð á Islandi fyrir landnám, minjar Papa hér á landi, og komið fram með kenningar þar að lút- andi, þar sem ekki er miklum stað- reyndum fyrir að fara til að byggja á. Samþykkt hefur .verið af Út- varpsráði að gera mynd um Jónas frá Hriflu, en sjónvarpið hefuf þeg- ar sýnt þætti um Brynjólf Bjarna- son og Óskar Garibaldason. Síðar er hugmyndin að gera sambærilega þætti um Ólaf Thors og Jón Bald- vinsson. Baldur lagði áherslu á mikilvægi þátta sem þessara, þar sem rætt er við samtíðarmenn þessara manna er búa yfir ógrynni af vitneskju sem ekki má glatast. Árið 1983 eru 200 ár síðan Skaft- áreldar hófust og verður unnið að heimildarmynd um þá atburði á ár- inu og myndin síðan sýnd 1983. Gerðar verða þrjár útilífs- og náttúrumyndir, og lokið við mynd um Viðey. Þættir verða um lögfræðileg málefni, „Réttur er settur“, sem tekur fyrir húsaleiguákvæði, og auk þess verða gerðir tveir þættir í samvinnu við laganema um fast- eignaviðskipti og bílaviðskipti. Þátturinn Maður er nefndur verður sendur út í mars og að þessu sinni verður rætt við Eirík Kristó- fersson. Að auki eru þrír þættir um nýjar eða endurvaktar búgreinar, hér á landi, laxeldi, loðdýrarækt og kornrækt, langt komnir í vinnslu og verða sýndir fljótlega. „Þessi upptalning er engan veg- inn tæmandi, en þetta er það helsta sem við komum til með að fást við,“ sagði Baldur að lokum. Kosningar í Tyrklandi ’83 Ankara. Al*. KENAN Evren, hæstráðandi Tyrkl- ands, skýrði frá því í nýjársboðskap sínum, að stjórn hans hygðist efna til almennra þingkosninga síðla árs 1983. Evren sagði, að kjördagur hefði ekki verið ákveðinn enn en það myndi gert með hliðsjón af hvernig gengi að semja nýja stjórn- arskrá fyrir landið. Evren sagðist vilja fullvissa landa sína og banda- menn Tyrkja um að herforingja- stjórnin væri staðráðin í að beita sér fyrir því, að horfið yrði að nýju til lýðræðis. Stjórn Evrens hefur sætt mikl- um þrýstingi frá ríkisstjórnum í Vestur-Evrópu um að tilkynnt yrði, hvenær herforingjastjórnin myndi láta af völdum og efna til kosninga. Efnahagsbandalagið hefur dregið að láta Tyrklandi í té 600 milljóna dollara efnahagsað- stoð vegna þessa. Evren sagði í ávarpi sínu, að enda þótt mikið hefði áunnizt á árinu 1981, væri þó ekki raunhæft að halda því fram að tekizt hefði að koma á fullkom- inni reglu og lögum. En batahorf- ur væru góðar, bæði í efnahags- legu og pólitísku tilliti. Evren skýrði einnig frá því að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði í Tyrklandi á árinu 1982 um nýja stjórnarskrá sem myndi ryðja brautina fyrir myndun nýrra stjórnmálaflokka og kosninga- laga. 15. janúar Umboösmenn HHÍ eru um land allt. Peir svara fúsir öllum spurningum þínum um vinningslíkur, miöaraðir langsum og þversum, trompmiöa, endurnýjun, vinningsupphæöir, - Já, hvaöeina sem varöar starfsemi HHÍ. Kynntu þér hvaða umboðsmaður hentar þér best reykjavík: .fyrjr -| 5 janúar Aöalumboöið, Tjarnargötu 4, sími 25666 Verslunin Búsport. Arnarbakka 2—6. simi 76670 Bókabúðin Álfheimum 6. sími 37318 Bókabúö Fossvogs. Grímsbæ, sími 86145 Bókabúð Jónasar Eggertssonar. Rofabæ 7, sími 83355 , Bókaverslun Ingibjargar Einarsdóttur, Kleppsvegi 150. simi 38350 Frímann Frímannsson. Hafnarhúsinu. sími 13557 Neskjör, Ægissíöu 123, sími 19832 Ölöf Ester Karlsdóttir, c/o Rafvörur. Laugarnesvegi 52. simi 86411 Verslunin Straumnes. Vesturbergi 76. sími 72800 Þórey Bjarnadóttir. Kjörgarði. sími 13108 KÓPAVOGUR: Anna Siguröardóttir. Hrauntungu 34. sími 40436 Borgarbúöin, Hófgerði 30, sími 40180 Blómaskálinn v/Nýbýlaveg, sími 40980 GARÐABÆR: Bókaverslunin Gríma. Garöaflöt 16-18, simi 42720 HAFNARFJÖRÐUR: Rafkaup. Reykjavíkurvegi 66. sími 52979 Reynir Eyjólfsson, Strandgötu 25, sími 50326 Verslun Valdimars Long. Strandgötu 41. simi 50288 MOSFELLSSVEIT: Bókaverslunin Snerra s f . Þverholti, sími 66620 KJÓS: Hulda Sigurjónscjþttir, Eyrarkoti UMBOÐSMENN Á REYKJANESI: Grindavík Ása Einarsdóttir. Borgarhrauni 7. simi 8080 Hafnir Guölaug Magnúsdóttir, Jaðri. sími 6919 Sandgerði Hannes Arnórsson, Víkurbraut 3, simi 7510 Keflavík Jón Tómasson, sími 1560 Flugvöllur Erla Steinsdóttir. Aöalstööinni. sími 2255 Vogar Halla Árnadóttir, Hafnargötu 9. sími 6540 UXí rr<;\ anu'' HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS hefur vinninginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.