Morgunblaðið - 12.01.1982, Page 12

Morgunblaðið - 12.01.1982, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982 Kirhildur l»ork*if.sdóllir Ak-xandcr Maschal Kri.xtinn DamVlsson Malldór VilhelmNNon iohn Speight Klísabet Krlingsdóllir æyintýri Ásrún Davíðsdóttir (•unnar Kjarnaxon Dóra Kinarsdóttir Kristinn Sigmundssíin (íardar ('ortes Tónlíst Jón Ásgeirsson Opnun Islensku óperunnar með aðsetri í Gamla bíói er slegin slíkum ævintýrabjarma að vart mun verða jafnað til nokkurs annars viðburðar í ís- lensku tónlistarlífi. Um tilurð þess að íslenska óperan gat fest kaup á Gamla bíói og einnig hversu fjöldi fólks hef- ur lagt nótt við dag til að full- gera bæði húsið og sýninguna fyrir 9. janúar, hefur verið tí- undað rækilega svo að litlu er þar við að bæta. Það sem nú blasir við er viðgangur fyrir- tækisins og framtíðin en þar skiptist fólk.í fylkingar sem þó sameinast í þeirri einlægu ósk að íslenska óperan verði blóm- legt fyrirtæki til heilla fyrir land og lýð. Óperettan Sígaunabarón- inn, eftir Jóhann Strauss, er tæplega samklædd tilefninu en líkleg til skemmtunar og ánægju fyrir þann stóra hóp er ann léttri og líflegri tónlist. Jóhann Strauss var snillingur í lagsmíði og hafði auk þess mikil áhrif á samtíð sína með frjálslegu og leikandi hljóð- falli. Allt var þetta fellt í fal* legan hljómsveitarbúning, svo vel, að tónlist hans, sem risin er upp úr danstónlist, heldur velli þrátt fyrir allar svipt- ingar sem sveigt hafa tónlist- arsmekk og danshegðan al- mennings, síðan valsinn var mest í tísku fyrir aldamótin síðustu. Þó tónlistin í Síg- aunabaróninum sé ekki djúpt skorin og heldur léttvæg, nema þar sem tónskáldið kem- ur því við að spinna sínar fal- legu og snjöllu laglínur, er óperettan skemmtilegt og leikandi verk. Að velja vinsælt og skemmtilegt verk felur í sér þá hættu að flutningurinn nái ekki að hylja fáfengilegt inni- hald og er reynsla margra góðra Íistamanna sú, að þá fyrst reyni á hvort glæsileik- inn í flutningi geti yfirskyggt það sem á vantar í gerð verks- ins. Sá listamaður í sýningu Síg- aunabarónsins, sem skapar í rauninni lifandi sviðsverk og slær í gegn, er leikstjórinn Þórhildur Þorleifsdóttir. Þröngt og óbifanlegt leiksvið hússins verður lifandi mann- lífsiða undir hennar stjórn. Þeir sem stóðu að sýningunni við hlið Þórhildar í gerð sviðs- verksins, Gunnar Bjarnason, höfundur leikmyndar, ljósa- meistari hússins, Kristinn Daníelsson, og Dóra Einars- dóttir, er sá um búninga, eiga ekki lítið í þessari eftirminni- legu sýningu. Það er ekki nóg að Kristinn hafi staðlað ljós- virkni sýningarinnar, heldur hefur hann einnig haft veg og vanda af því að kaupa og setja upp ljósaútbúnaðinn. Aðstæð- ur þær sem Dóra vinnur við eru slíkar að árangurinn er hreint ótrúlegur, þrátt fyrir ýmsa galla, eins og t.d. húfu- leysi hermannanna, og ósmekklegan kjól Saffi í loka- atriði óperettunnar. Kristinn er, að þvi er undirritaður best veit, starfsmaður Þjóðleik- hússins. Það gæti orðið bæði Þjóðleikhúsinu og íslensku óperunni til gagns, að sam- starf þessara stofnana yrði sem margþættast. Vinnuað- staða og verktækniþjálfað starfslið Þjóðleikhússins gæti orðið íslensku óperunni mikils virði og á móti ætti Þjóðleik- húsið að geta haft gagn af söngliði og húsnæði óperunn- ar, Gamla bíói, til sérstakra leiksýninga. Þrátt fyrir slíka samvinnu gætu þessi fyrir- tæki keppt um hylli almenn- ings, keppt saman að því marki að gera veg óperunnar sem mestan hér á landi. Fram- gangur sýningarinnar er ávallt í höndum hljómsveitar- stjórans sem að þessu sinni er Austurríkismaður og heitir Alexander Maschat. Það var ávallt gott jafnvægi í samspili hljómsveitar og söngvara með litlum undantekningum, eink- um á samskeytum söngatriða, sem voru þó svo litil að hvergi spillti til hlustunar. Það sem skiptir einnig miklu máli fyrir heild sýningarinnar, er hraði hennar og undir stjórn Masch- at var „tempóið" gott. Það er ekki auðvelt verk að þýða texta, sem er niðurnegld- ur er varðar áherslur og fjölda atkvæða við tónlist, er í mjög litlu má breyta. Egill Bjarna- son þýddi textann er verkið var frumflutt hér á landi fyrir 20 árum og í samanburði við gamalt æfingahandrit frá þeim árum hafa verið gerðar nokkrar breytingar til bóta, þó enn séu setningar, sem eru ))Það er í rauninni margt skylt með Garð- ari Cortes og Barinkay í sígaunabaróninum. Báðir finna þeir fjár- sjóð og gefa hann þjóð sinni. Vonandi getur þjóðin endurgoldið fjársjóðinn eftir að hafa ávaxtað hann í Is- lensku óperunni. Er það ekki stórkostlegt ævin- týri?U hálfgert „Tarzan“-mál og auð- veldlega hefði mátt breyta, jafnvel þó víkja yrði til nótu og nótu. Val á söngfólki er vandasamt verk og er ljóst að við þessa sýningu hefur heimafólk verið valið, sem vel er skiljanlegt vegna þeirrar vinnu er fylgt hefur öllum undirbúningi og því lítil nýt- ing á aðkomufólki, sem aðeins kæmi til að syngja. Viðfangsefnið hefur mikið að segja varðandi aðsókn en einn veigamesti þátturinn um aðsókn og athygli manna á óperuflutningi hefur, um allan heim og á öllum tímum, verið tengdur glæsilegum flytjend- um, nema í örfáum tilfellum þegar um flutning nýs lista- verks er að ræða. Operan er og verður fyrst og fremst til í glæsilegum söng og án áhrifa söngvárans er leikhús óper- unnar að mestu tóm vitleysa, óraunveruleg tilgerð og í besta falli falleg tónlist. Sá áhuga- hópur sem unnið hefur að framgangi óperunnar er eðli- lega fremstur í flokki sýn- ingarfólks. Ungt óperufyrirtæki þarf að eiga áhuga ungra söngvara og það eru gleðileg tíðindi hversu kór óperunnar er vel mannað- ur ungu söngfólki, en úr þeim hópi sungu og spiluðu nokkrir smá strófur eða léku önnur hlutverk. Signý Sæmundsdótt- ir (Irma) og Þórdís Þórhalls- dóttir (Katicza) sungu „brúð- artertulagið" mjög fallega. Stefán Guðmundsson söng hlutverk Ottókar og opnaði óperuna. Stefán er enn í söngnámi og því lítið hægt að segja annað en að hann stóð sig vel sem elskhugi Arsenu, er sungin var af ungri, lítt reyndri söngkonu, Ásrúnu Davíðsdóttur. Ásrún hefur fallega en litla rödd og gerði margt vel bæði í leik og söng. Sá af nýliðunum, er vakti mesta athygli og var meira fagnað en öðrum söngvurum sýningarinnar, var Kristinn Sigmundsson, er fór með hlut- verk Homonay greifa. Krist- inn er stórefnilegur söngvari og verður fróðlegt að fylgjast með honum í framtíðinni, sérlega ef hann þorir að leggja allt að veði til að verða söngv- ari. Czipra, „sígaunakerling- in“, var sungin af Önnu Júlí- önu Sveinsdóttur, og eins og segja má um Elísabet Erlings- dóttur, er söng hlutverk Mira- bellu, er sönghlutverkið á lægsta registri þeirra og náði þrátt fyrir ágætan söng og leik ekki að hljóma nógu skýrt. Aðalhljómstyrkur Önnu Júlíönu og Elísabetar liggur hærra en gert er ráð fyrir í hlutverkum þessara heiðurs- kvenna. Carnero greifi var kostuleg „týpa“ í útliti og flutningi John Speight. Á þeim tíma, sem óperettan er samin, er fulltrúi siðgæðisins hlægilegur og eðlilega sá eini sem bíður lægri hlut. Þrátt fyrir næstum of kátlegt gervi skilar John Speight sinu hlut- verki mjög veí. í svona kátlegu gervi verður hlutverkið vara- samt og erfitt. í mildara gervi hefði hlutverkið leyft að spilað væri meira á kómískan leik- máta. Að vera bæði kómískur í útliti og í leik er erfitt án þess að yfirdrífa og þar með skjóta yfir markið, sem John Speight tekst auðveldlega að forðast. Zsupán svínabóndi er sunginn af Halidóri Vilhelms- syni með miklum glæsibrag. Halldór hefur sterka tilfinn- ingu í þá átt að yfirdrífa, en með meiri þjálfun í leiktækni gæti hann orðið frábær óperu- söngvari. Sígaunastúlkan Saffi er sungin af Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Ólöf er frábær söngkona en bætti ekki neinu við það sem allir vita og ætlast til af henni. Það er ekki ónýtt fyrir óperuna að hafa á að skipa slíkri söngkonu til að takast á við erfið sönghlut- verk. Síðast en þó fyrst skal nefna til sögu þessarar mann- inn, sem hefur staðið í farar- broddi og magnað með fólki slíkan áhuga að það hefur nær því selt sál sína, klifið með honum þrítugan hamarinn og flett blaði í tónlistarsögu okkar fámennu þjóðar, magn- að með fjölda manns trú á til- tæki, sem margir telja ófram- kvæmanlegt og dæmt til að mistakast. Það er í rauninni margt skylt með Garðari Cortes og Barinkay í Sígauna- baróninum. Báðir finna þeir fjársjóð og gefa hann þjóð sinni. Vonandi getur þjóðin endurgoldið fjársjóðinn eftir að hafa ávaxtað hann í ís- lensku óperunni. Er það ekki stórkostlegt ævintýri? Forseti íslands, Vigdís Finnbogadótt- ir, las upp úr dagbók Magnús- ar Stephensen í ávarpi sínu. Magnús segir þar frá er hann hlustaði á Töfraflautuna eftir Mozart og þar sem Mozart er fyrsta tónskáldið sem nefnt er á nafn á hinu nýja óperuleik- sviði íslendinga, flaug það í hug undirritaðs, að gaman væri að heyra Garðar Cortes syngja Mozart sem næsta verkefni. Þessi fyrsta hátíð- arsýning við opnun óperunnar er fagnaðarstund og af því til- efni var Jón Nordal beðinn að semja hátíðarforleik. Jón nefnir verk sitt Tileinkun. Verkið er látlaust, hljómfal- legt en helst til viðburðalítið til samanburðar við tilefnið eða þá hátíðarstemmningu er ríkti í sölum „Reykjavíkur Biografteater". íslensku óper- unni er óskað alls góðs í fram- tíðinni og að í starfi hennar eigi íslensk söngmennt eftir að blómstra með miklum glæsibrag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.