Morgunblaðið - 12.01.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982
27
Ljó.sm. Kmilía.
Sönghópurinn flytur braginn um Borgarleikhúsið undir stjórn Sigurðar Rún-
ars Jónssonar.
Þorsteinn Gunnarsson flytur ávarp sitt. Hægra megin við Þorstein stendur
Jón Hjartarson, en vinstra megin Stefán Baldursson og Baldvin Tryggvason.
Ilvað segja íslendingar búsettir í NorðurEvrópu og Bandaríkjunum
um þaó kuldakast, sem ríkt hefur á þessum slóðum að undanfórnu?
„Kaldasti vetur í Danmörku í 150 ár“
„MIKLAR frosthörkur hafa farið
yfir Danmörku að undanförnu og
segja Danir, að veturinn nú sé
einn sá kaldasti í 150 ár en frost
hefur farið í <-20°,“ sagði Einar
Ágústsson sendiherra í Kaup-
mannahöfn.
„Snjókoma er ekki mikil um
þessar mundir í Kaupmannahöfn,
en snjónum er rutt af götunum
jafnóðum og hann fellur til jarðar,
svo færð er ekki erfið af þeim sök-
um. Það er fremur hálkan sem
— segir Einar Ágústs-
son sendiherra
í Kaupmannahöfn
valdið hefur umferðartöfum en í
Danmörku er ekki leyfilegt að aka
á negldum dekkjum né á dekkjum
með keðjum. Annars mundum við
Islendingar ekki tala um erfiða
færð eins og hún er nú í Kaup-
mannahöfn. Ástandið er aftur á
móti mun alvarlegra á Jótlandi
þar sem geysað hafa slæm veður
og færð verið afar erfið. Hafnir og
sund í kringum Danmörku eru nú
ísilögð svo að ísbrjótar hafa ekki
við að halda þeim opnum. Ég hef
verið í jólaleyfi og kom til Dan-
merkur aftur 7. janúar, þannig að
ég hef ekki fylgst gjörla með veð-
urfarinu nema síðustu daga,“
sagði Einar Ágústsson sendiherra.
„Vatnið fraus í leiðslum og klósettskál“
„ÉG TALAÐI við einn íslenskan
skólabróður minn í gær, sem býr í
útjaðri London, stendur nokkuð
hærra en miðborgin. Sagði hann
mér að vatnið hefði frosið í leiðsl-
unum svo og í klósettskálinni, þar
sem hann leigir. Þegar hann
þurfti að fara niður í miðborgina
tók það hann 4 klukkutíma, en
venjulega tekur ferðin ekki nema
rúmlega einn klukkutíma,“ sagði
Þorkell Jóelsson, sem nemur tón-
list í London ásamt unnustu sinni
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur.
„Við sem búum hérna í mið-
borginni verðum ekki eins vör við
þetta kuldakast, sem gengið hefur
yfir Bretland að undanförnu. Það
— rætt við Þorkel
Jóelsson, sem stund-
ar tónlistarnám
í London
er þó fremur kalt í húsunum, en
við getum kynt upp í íbúðinni, sem
við leigjum. En við höfum ekki
gert það heldur klæðst gömlu,
góðu lopapeysunum.
íslendingum þætti snjókoman
ekki mikil hér, en ætli það sé ekki
um 5 cm snjólag á götunum og
frost er um 10°.
Bretarnir eru bara svo illa búnir
undir svona veðráttu og hefur það
skapað ýmis vandræði. Umferð-
artafir og óhöpp hafa orðið vegna
þess að bílarnir hafa ekki verið á
snjódekkjum eða öðrum búnaði
sem hæfir í snjó. Ofanjarðarlest-
irnar hafa einnig tafist en neðan-
jarðarlestirnar hafa gengið eðli-
lega.
I fyrstu held ég að Englend-
ingarnir hafi verið svolítið stoltir
yfir því að fá snjó. Þeir höfðu þá
líka eitthvað til að tala um á
„pöbbunum". En nú held ég að
þeir séu að verða hálfleiðir á veðr-
inu. Allt útlit er fyrir að kuldun-
um sé að linna, því spáð er batn-
andi veðri,“ sagði Þorkell Jóelsson.
„20—30° frost í New York undanfarið“
„UNDANFARNA daga hefur
frost í New York verið milli
20° — 30°, en engin snjókoma og er
hér um kaldasta tímabil í sögu
Bandaríkjanna að ræða síðan far-
ið var að halda skrár yfir veðurfar
hér í landi,“ sagði ívar Guð-
mundsson, sendiráðunautur í New
York.
„Snjókoma hefur ekki verið í
sjálfri New York borg og hér er nú
heiðskírt og fallegt veður. En í
— segir ívar Guð-
mundsson sendiráðu-
nautur í New York
norðurhluta New York fylkis eða í
Buffalo hefur verið talsverð snjó-
koma.
Fólk hefur kvartað undan því
hér, að húsin séu ekki nógu vel
upphituð, en það er í lögum að
ákveðið hitastig verður að vera í
leiguíbúðum. Það hafa ekki borist
neinar spurnir af því að íslend-
ingar, sem hér dvelja hafi átt í
vandræðum vegna kuldans.
Það er víðar en í New York, sem
er kalt um þessar mundir, er það
einkum í Miðríkjunum, sem kuld-
ar hafa geysað og í gærmorgun
mældist frost í Norður-Flórída,
sem er mjög sjaldgæft,“ sagði ívar
Guðmundsson sendiráðunautur.
„Færðin slæm, bflar skildir eftir heima“
„í MOSKVU hefur snjóað mikið að
undanförnu en veður hefur verið
stillt en færðin slæm. Reynt hefur
verið að ryðja snjónum af götun-
um jafnóðum, en það gengið mis-
jafnlega vel. Greinilegt er að borg-
arbúar skilja farartæki sín eftir
heima, en ferðast með almenn-
ingsvögnum eða neðanjarðarlest-
unum, því lítið er um einkabíla á
götunum," sagði Estrid Brekkan
ritari og skjalavörður íslenska
— segir Estrid Brekkan
ritari í íslenska sendi-
ráðinu í Moskvu
sendiráðsins í Moskvu.
„Miklar frosthörkur hafa verið
samhliða snjókomunni og frost
farið í 30°. Það virðist þó vera að
draga úr kuldunum, því frost var
ekki nema 11° í gær og liggur við
að okkur finnist bara heítt núna,“
sagði Estrid.
„I Moskvu dvelja tveir íslenskir
stúdentar og höfum við ekki heyrt
að væst hafi um þá í þessum kuld-
um. I okkar húsakynnum er góður
hiti en við vitum ekki hvernig
ástandið er hjá hinum almenna
borgara. Enda þótt kalt sé í veðri
kippa Rússarnir sér ekki upp við
það, því þeir eru vanir slíku,"
sagði Estrid Brekkan.
„Fór á gönguskíðunum í vinnuna“
ið straum af kostnaði við nauðsynlega
undirbúningsvinnu áður en fram-
kvæmdir hófust, og það reiddi í fyrra
sumar af hendi allt tiltækt fé úr hús-
byggingarsjóði sinum í von um, að
ekki þyrfti að koma til frekari stöðv-
unar á byggingarframkvæmdum.
í byggingarmálum Leikfélagsins
hafa borgaryfirvöld jafnan sýnt fé-
laginu traust og samstöðu, og virt þau
rök Leikfélagsmanna að leiguhúsnæði
félagsins í Iðnó væri fyrir löngu orðið
úrelt sem leikhús, og raunar ósam-
boðið bæði leikendum og áhorfendum.
Án þessa trausts værum við eflaust
enn skemur á veg komin en raun
ber vitni. En betur má ef duga skal!
Það er skoðun Leikfélagsmanna, að
til þess að áætlun byggingaraðila eigi
að geta ræst, verði borgaryfirvöld að
auka fjárveitingar sínar til bygg-
ingarinnar frá því sem verið hefur.
Um leið og Leikfélag Reykjavíkur
fagnar þeirri viðleitni, sem fram kom
við aðra umræðu um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar nú fyrir
skemmstu, skorar leikhúsráð Leikfé-
lagsins á alla viðstadda, og alla sem
unna íslenskri leikmenningu, að beita
sér fyrir því af einurð að áætlanir
standist og leikhúsið verði vígt 18. ág-
úst 1986!“
„í BUFFALO snjóaði mikið um
helgina og er jarðfallinn snjór um
hálfur metri. Allar samgöngur
tepptust og fór ég því á gönguskíð-
um í vinnuna," sagði Auðólfur
Gunnarsson, læknir, sem kynnir
sér skurðlækningar á krabba-
meinssjúklingum i Buffalo í New
York fylki.
„Hér er líka óvenju kalt eða
— rætt við Auðólf
Gunnarsson, sem dvel-
ur í Buffalo í New York-
fylki og kynnir sér
krabbameinsskurð-
lækningar
20° og hefur ekki verið svona
kalt á þessum slóðum síðan um
1883. Fólk er hvatt til að halda sig
innan dyra og vera ekki að fara út
nema nauðsyn beri til. Skólum var
lokað í gær svo og flestum versl-
unum. Nú er verið að ryðja göt-
urnar, svo ástandið er óðum að
batna,“ sagði Auðólfur Gunnars-
son.
að
dórs
um 45 er ólögleg og allt tal um
annað sé endaleysa. Bílstjórar
stöðvarinnar hafi haldið akstri
áfram eftir að atvinnuleyfin hafi
verið innkölluð og þeim bannað að
aka frá og með klukkan 14 síðast-
liðinn laugardag. Það væri lögbrot,
sem skylt væri að stöðva og því
væri gripið til þessara aðgerða.
Hvað varðaði bannið við afgreiðslu
gjaldmæla í bifreiðar stöðvarinnar
sagði Brynjólfur, að þar sem bíl-
stjórar hefðu verið sviptir at-
vinnuleyfunum, hefðu þeir ekki
lagalega heimild til að vera með
slíka mæla í bifreiðum sínum. Því
væri eðlilegt að koma í veg fyrir að
þeir fengju slíka mæla.
Morgunblaðið hafði samband við
lögreglustjórann í Reykjavík, Sig-
urjón Sigurðsson, og staðfesti
hann að umrætt bréf hefði borizt
embætti lögreglustjóra. Sagðist
hann á þessu stigi ekki geta tjáð
sig um málið, bréfið hefði borizt til
sín rétt fyrir lokun í gær og því
ekki gefizt tími til að ákveða við-
brögð vegna þessa máls, en það
yrði líklega gert í dag.
„Við teljum að ráðuneytisstjóri
hafi nú farið nokkuð út fyrir
valdsvið sitt. Það að banna
ákveðnu fyrirtæki að veita okkur
þjónustu sína, fellur ekki undir
hans ráðuneyti, heldur undir lög-
reglustjóra, sé það ljóst að við-
skiptin séu ólögleg. Þá teljum við
það hæpnar aðgerðir að ætla að
stöðva okkur með lögregluvaldi.
Það yrðu líklega einhverjar mestu
lögregluaðgerðir, sem um getur ef
á að reyna slíkt,“ sagði Guðmund-
ur Ásmundsson, einn af stjórnar-
mönnum Bifreiðastöðvar Stein-
dórs sf. í samtali við Morgunblað-
ið.
Þá sagði Guðmundur, að bíl-
stjórar stöðvarinnar hefðu ætlað
að kaupa gjaldmæla, bæði nýja og
til endurnýjunar og hefðu verið
með ákveðið tilboð frá Gjaldmæla-
þjónustunni. Þegar að afgreiðslu
hefði átt að koma, hefði Kristinn
Gunnarsson, deildarstjóri í sam-
gönguráðuneytinu, hringt í Gjald-
mælaþjónustuna og bannað henni
að afgreiða bifreiðastöðina. Ekki
fékkst þó skrifleg tilskipun um af-
greiðslubannið og þætti eigendum
stöðvarinnar slík vinnubrögð lúa-
leg og benda til þess að staða ráðu-
neytisins í málinu væri ekki jafn
sterk og menn þar vildu láta líta út
fyrir.
Þá hefði það frá upphafi verið
einlægur vilji eigenda bifreiða-
stöðvarinnar að dómstólar skæru
úr um málið. Það væri ljóst að
verulegur ágreiningur væri um
málið og því eðlilegast að svo yrði
gert og rekstri stöðvarinnar haldið
áfram þar til niðurstaða fengist og
þá áfram væri hún stöðinni í vil.