Morgunblaðið - 12.01.1982, Side 27

Morgunblaðið - 12.01.1982, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982 31 þátttakenda var Michel Lechat, prófessor við Miðstöð faraldsfræði slysa (Disaster Epidemiology Centre) við Louvain-háskólann. Hann varpaði fram þeirri hug- mynd að e.t.v. myndi heilbrigðis- kerfið nýtast best ef starfsfólki þess og tækjum yrði komið fyrir í djúpum byrgjum. Nokkrum vikum eftir árás gæti starfsfólkið, ef á lífi, komið upp á yfirborð jarðar með tæki sín, ef í lagi og óskemmd, og tekið til við lækn- ingar. Þyrfti því e.t.v. að endur- skoða hefðbundna siðfræði lækna- stéttarinnar. Alþjóðleg samtök lækna I desember 1980 voru stofnuð í Sviss alþjóðleg samtök lækna gegn styrjaldarhættunni (Inter- national Physicians for the Pre- vention of War). Var þetta á ráð- stefnu þar sem mættir voru m.a. læknar frá báðum stórveldunum. Niðurstaða ráðstefnunnar var sú að læknum sem til staðar væru eftir kjarnorkuárás væri ómögu- legt að hjálpa sjúkum og slösuðum svo vel færi. Ennfremur var það niðurstaða ráðstefnunnar að jafn- vel þótt kjarnorkuvopn yrðu aldrei notuð væri kjarnorkuvígbúnaðar- kapphlaupið það dýru verði keypt að það drægi til sín fjármagn frá verkefnum til lausnar fátækt og margvíslegum sjúkdómum. Nýlega héldu þessi alþjóðlegu samtök lækna sína fyrstu ráð- stefnu. Var hún haldin í Airlie House sunnan við Washington D.C. í Bandaríkjunum. Þar voru mættir tæplega 100 læknar frá Bandaríkjunum, Sovétríkjunum, Japan, Englandi, Frakklandi, Hollandi, Kanada, V-Þýzkalandi, Svíþjóð og Noregi. Aíleiðingar kjarnorkustyrjaldar Reynt hefur verið að draga upp raunhæfa mynd af því sem gæti gerst í kjarnorkustyrjöld milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna um miðbik áttunda áratugarins. Það, sem virðist augljóst, er, að: 1. rúmlega 200 milljónir manna yrðu drepnar á augabragði. 2. rúmlega 60 milljónir munu slasast alvarlega, þar af 30 millj- ónir af geislaveiki, 20 milljónir af áverkum og bruna og 10 milljónir munu vera brenndar, með áverka og geislaveiki. 3. heilbrigðiskerfið mun ekki hafa möguleika á að hjálpa í nokkrum mæli, því 80% lækna munu deyja og 80% sjúkrarúma eyðileggjast og þar með birgðir af blóði til blóðgjafa, sýklalyf og verkjalyf; vatn og matur eitrast; og flutnings- og fjarskiptakerfið yrði óstarfhæft. 4. áhrifin á umhverfið eru óút- reiknanleg. 5. almannavarnir munu ekki geta breytt tölu dauðsfalla og áverka í nokkrum mæli. 6. styrjöldin hefði ýmsar aðrar afleiðingar: matvælaframleiðslan breyttist algerlega; geislavirkt úr- felli yrði stöðugt vandamál; þeir sem eftir lifðu hefðu minna mót- stöðuafl gegn sjúkdómum og stæðu frammi fyrir fæðuvanda- máli og byggju í heiisuspillandi umhverfi, stöðugt í hættu fyrir lífshættulegum sýkingum. 7. miklar loftslagsbreytingar vegna minnkunar á ózónlaginu munu hafa áhrif á allt líf á jörð- inni. 8. meðal eftirlifenda kæmi fram aukin tíðni hvítblæði og ann- arra illkynja sjúkdóma, sérstak- lega hjá börnum. Með allt þetta í huga er ekki undarlegt að læknar um allan heim skuli margir hverjir álíta að hættan á kjarnorkustyrjöld sé okkar stærsta heilsugæsluvanda- mál. Við því vandamáli þurfum við að bregðast. Fyrirbyggjandi aðgerdir Nútima læknisfræði kennir okkur ákveðna hluti: þegar með- ferð ákveðins sjúkdóms er ófull- nægjandi eda þar sem kostnaður- inn er óbærilegur, þá verður að beina athyglinni að fyrirbyggj- andi aðgerðum eins og dr. Hiatt bendir á. Hvort tveggja á við um kjarnorkustyrjöld: meðferð væri tilgangslaus og kostnaðurinn him- inhár. Eg fæ tæpast skilið að stóraukin framleiðsla gereyðingarvopna sé einn liður fyrirbyggjandi aðgerða. Þó heyrist slíku fleygt nú um stundir. Ef stórveldin hafa í raun áhuga á að semja um takmörkun kjarnorkuvopna ættu þau fræði- lega séð að geta samið um algert afnám þeirra. Það væri hin eina og sanna fyrirbyggjandi aðgerð. Hin brennandi spurning verður því: getum við treyst á frumkvæði þeirra sem líta á aukningu gereyð- ingarvopna sem fyrsta skref af- vopnunar? Ps: Lesið bls. 575 í símaskránni 1981. Ileimildir: (Udráttur úr skjölum einnar undirnefndar old ungadcildar Handaríkjaþings, 19. júní I9K0. The Lancet, leiðari 15. nóv. 1980 (breskt lækna tímarit) iAIMA, leiðari JI. nóv. 1980 (bandarÍMkt lækna- tímarit) Koston Sunday (ilobe, 7. des. 1980 (bandarískt dagblað) Nordisk mt-dirin, 8—9/81, vol. %: bls. 213—215 (samnorrænt læknatímarit) Höfn, 14. okt. 1981 9. — Rxb4, 10. Rd6+ — Ke7, 11. Rxc8+ — Dxc8, 12. Rc3 — Hd8, 13. I)b3 13. — Dc4! 14. Hcl Mótbragðið 14. Rd5+!? — Dxd5, 15. Dxb4+ - Ke8, 16. e4 — Rc6! leiðir einnig til hag- stæðs endatafls fyrir svart. 14. — Dxb3, 15. axb3 — R8c6, 16. Bg2 — Ra5, 17. Ra4 — Hac8, 18. 0-0 — Ilxcl, 19. Hxcl — Hd2, 20. Bf3 — 15. 21. Hc5 — b5, 22. Rc3 - Kd6, 23. Hc8 — Hxb2, 24. e4 — Kd7, 25. Hc5 — Hc2, 26. exf5 — Rxb3, 27. f6+ — gxf6, 28. Bg4+ — Kd6, 29. Hc8 — Rc5, 30. Rdl — Hcl, 31. Kg2 Síð- asta gildran — ef 31. — Hxdl?? 32. Hd8+. 31. — Rc2, 32. Bf5 — Rd4 og hér gafst hvítur upp enda staðan auð- vitað gjörsamlega vonlaus. Hvítt: Conquest (Knglandi) Svart: Guðmundur Sigurjónsson Ben-Oni-byrjun 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. g3 — c5, 4. d5 — exd5, 5. cxd5 — d6, 6. Rc3 - g6, 7. Bg2 - Bg7, 8. Rf3 - 04), 9. 0-0 — a6, 10. a4 — Rbd7, 11. Rd2 — He8, 12. e4 — Hb8, 13. Rc4 — Re5!? Hér er 13. — Rb6 talið öruggara. 14. Rxe5 — Hxe5, 15. f4 — He8, 16. Khl? Of hægfara. Til greina kom 16. a5,16. h3 og einnig 16. e5! 16. — b5, 17. axb5 — axb5, 18. e5 Þetta þekkta uppbrot lítur enn nokkuð vel út, því ef riddarinn á f6 hörfar fær hvítur e4-reitinn fyrir riddara. Guðmundur á aftur á móti sterkan millileik sem tryggir honum frumkvæðið. 18. — b4! 19. Ka4 - Bg4, 20. Db3 — Rd7, 21. Hel? — dxe5, 22. d6 — Be6, 23. I)c2 - c4, 24. Be3 - I)c8, 25. Hacl - I)a6, 26. Rc5 - Rxc5, 27. Bxc5 — exf4, 28. gxf4 — Db5, 29. Df2 — Bxb2, 30. Hbl — Bc3, 31. Hecl — Bf5, 32. Hxc3 — Bxbl, 33. Hh3 c3, 34. Dh4 — h5 og hvítur gafst upp. Neyðast Færeyingar til að draga úr laxveiðum? Imrshöfn, 8. janúar frá frólUriUra Mbl. Jovan Arjje. FÆREYSKA landsstjórnin er nú und- ir miklum þrýstingi bæði heima fyrir og erlendis vegna stefnu sinnar í laxveiðimálum við Færeyjar, og hefur Paul Kllefsen, lögmaður, sagt, að landsstjórninni sé nauðugur einn kost- ur að draga í land varðandi laxveið- arnar, ef einhvert samkomulag á að takast með Færeyingum og EBE, Efnahagsbandalagi Evrópu. Landsstjórnin er undir sérstökum þrýstingi bæði frá Norðmönnum og Islendingum og frá Íslandi hefur hún fengið boð um að taka þátt í alþjóðlegri laxaráðstefnu í Reykja- vík 18. janúar nk. Landsstjórnin hefur hins vegar ekki tekið ákvörð- un um, hvort hún hyggst taka þátt í umræddri laxaráðstefnu, en skrif- stofustjóri landsstjórnarinnar, Arni Olafsson, fer til Reykjavíkur 17. janúr nk. Færeyingar hafa í þessari viku átt viðræður við EBE um fiskveiði- málin á árinu 1982, en á þeim fund- um hefur engin niðurstaða fengizt. Fulltrúar aðila munu hins vegar hittast á fimmtudag í næstu viku til að freista þess að ná samkomulagi. Það eru einkum viðræður um laxamálin, sem allt strandar á. EBE gerir kröfu um, að Færeyingar stórminnki veiðar sínar á laxi og veiði á þessu ári aðeins um 40% af því, sem þeir veiddu á sl. ári. Lands- stjórnin hefur nýverið gefið út leyfi til færeyskra báta til að veiða 1600 tonn af laxi í ár, en talið er næsta víst að þau verði ýmist dregin til baka, eða í það minnsta minnkuð. Innan EBE er það einkum írland, sem stendur fast á þvC að laxveiðar Færeyinga verði að minnka. Landsstjórnin hefur lagt fram kröfupakka á hendur EBE til mót- vægis við kröfur bandalagsins um minnkandi laxveiðar, en EBE hefur hafnað þessum kröfum Færeyinga, sem m.a. ganga út á aukin fiskveiði- réttindi þeim til handa innan fisk- veiðilögsögu bandalagsins við Grænland. Stórútsölu- markaðurinn heldur áfram HRIKALEG VERÐLÆKKUN AFSLÁTTUR 60-S0Z Fatnaöur á börn og fulloröna. Skór. Skrautvörur og ýmislegt fleira. Stórútsölumarkaóurinn Kjörgarði KjaHar^lA J V 09 gerið ^ superkaup á súpervörum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.