Morgunblaðið - 12.01.1982, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANUAR 1982
45
Mannlífið eða
Marmarans höll?
Matthías Jónasson skrifar:
„Laugardaginn 9. jan. birtist í
Morgunblaðinu minningargrein
um Sólveigu Erlendsdóttur og lýk-
ur henni með tilvitnun í kvæði eft-
ir Einar Benediktsson. Hefir er-
indi þetta afbakazt svo mjög, að
innri bygging þess raskazt og
meginhugsun skáldsins týnist. Því
leyfi eg mér að gera eftirfarandi
leiðréttingu. í tilvitnun Fríðu
Jensdóttur er erindið haft svona:
Hafknörrinn glæsti og fjörunnar flak
fljóta bæöi, trú þú og vak.
Þessir hringdu . . .
Enginn minn-
ist á áburð
S. hringdi og hafði eftirfarandi
að segja: — Mér finnst hún hálf-
kyndug þessi orkumálaumræða
okkar. Það koma ráðherrar og alls
konar menn fram í sjónvarpi og
fjalla um orkumál, og það er engu
líkara en þeir séu með járnblendi
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur les-
endur til að skrifa þætt-
inum um hvaðeina sem
þeim liggur á hjarta —
eða hringja milli kl. 10
og 12 mánudaga til
föstudaga. Bréf þurfa
ekki að vera vélrituð.
Þeir sem ekki koma því
við að skrifa slá þá bara
á þráðinn og Velvakandi
kemur orðum þeirra
áleiðis. Nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng þurfa að
fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar
þess óski nafnleyndar.
Mannlifiö er sem moldarhrúga
musteri guös eru hjörtu sem trúa
þó hafi þau ei yfir höföi þak.
Hér á „mannlífið“ sýnilega ekki
heima! í texta skáldsins sjálfs er
erindið þannig:
Hafknörrinn glæsti og fjörunnar flak
fljóta bæöi. Trú þú og vak.
Marmarans höll er sem moldarhrúga.
Musteri guös eru hjörtun, sem trúa,
þó hafi þau ei yfir höfði þak.
Ljóð skálda eru viðkvæmari en
flest annað sem til er vitnað."
og ál á heilanum. Það á m.a. að
reisa járnblendiverksmiðju á
Reyðarfirði. Undarlegt að enginn
skuli tala um áburðarframleiðslu,
þó að áburð vanti um allan heim,
og sárvanti sums staðar. En á
áburð minnist enginn, nema einn
og einn maður sem er að skrifa
greinarstúf í sínu horni. Þó ku
markaðir vera nógir fyrir áburð
og sala því tiltölulega trygg. Það
er eins og þessir menn séu haldnir
einhverri álveiki eða járnblendi-
kvilla. Þó er vitað að áburðar-
framleiðslu getur fylgt alls konar
gagnleg aukaframleiðsla, t.d.
framleiðsla á brennsluefni fyrir
bifreiðar. Enginn minnist á þetta
núna. Hvernig stendur á þessu?
Fjölmargir
orðnir dauð-
leiðir á
Morgunvöku
4607-3819 hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Mikið er ég
orðin hundleið á þessari Morg-
unvöku, hún er að gera mann
vitlausan. Þegar ég heyri mærð-
arlegan orðaflauminn dettur
mér oft í hug hendingin um
hlandkoppinn í visunni hans
Einars Benediktssonar. Það
þyrmir yfir mig þegar bunan
byrjar á morgnana. Eg get
ekki hugsað mér leiðinlegra út-
varpsefni, og ég veit að fjöl-
margir eru orðnir dauðleiðir á
þessu, t.d. húsmæður sem eru
heima á þessum tíma og langar til
að hlusta á útvarpið, og þá helst
á eitthvað sem lífsmark er með.
Þessi vaðall vikum saman og án
afláts, 10 tíma á viku, er með
öllu óþolandi. Ég veit ekki hvað
ég vildi ekki heldur fá, og mér
finnst þetta einum of langt
gengið.
r
I Morgunblaðinu
fyrir 30 árum
Gert hreint við
bæjardyrnar
Allt af hefir þótt mannsbragur
að því, aö menn geröu hreint fyrir
sínum dyrum, og svo mun enn
um ókomin ár. Lika er fróðlegt að
veita því athygli, hvernig hverjum
einum ferst það úr hendi.
Gfrt hrefnt fyrir dyrum.
Ég vil að þessu sinni leiöa hugi
manna að þvi sérstaklega. hvern-
ig mönnum tekst aö gera hreint
við bæjardyrnar sínar, varinhell-
una og hlaðiö.
Og viö athugun kemur greini-
lega í Ijós, aö sú hreingerning er
með ýmsum hætti engu síður en
aðrar.
Hvernig væri að taka
sér reku í hönd?
Á sumrum safnast ryk, sandur
eða aur við dyrnar þínar og
nábúans, líka á gangstéttina meö
fram húsinu. Öðrum árstíöum
fylgir vatnselgur, svellalög eða
eitthvaö enn annaö. Stundum
líka snjór eins og núna.
Og þá er ekki úr vegi að
spyrja: Hefir þú gert hreint fyrir
þínum dyrum? — Sumum er
metnaöarmál aö halda öllu þrifa-
legu kring um húsin sin, og ef til
vill segir einhver, að það geti
beðið sumarsins.
En það getur líka verið leiðin-
legt aö hafa subbulegt viö dyrnar
sínar aö vetrarlagi. Miklu
skemmtilegra væri, að menn
tækju sér reku í hönd og mokuðu
hressilega gangstéttina sína og
svo vitaskuld tröppurnar.
í Velvakanda
fyrir 50 árum
Líftryggið yður
hjá þvi fjelagi, sem ekki llytur
peningana út úr landinu.
Andvaka,
Sími 1250.
Þú ert þreyttnr,
daufur og dapur í skapi. Þetta
er vissulega í sambandi við
slit tauganna. Sellur ljkamans
þarfnast endurnýjunar. — Þú
þarft strax a8 byrja aC nota
Fersól. Þá færðu nýjan lífs-
kraft, sem endurlífgar líkams-
starfsemina.
Fersól herðir taugarnar,
styrkir hjartað og eykur lík-
amlegan kraft og lífsmagn.
Fæst í flestum lyfjabúðum og
Músikleikfimin
hefst mánudaginn 18. janúar
Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir konur á
öllum aldri. Byrjenda- og framhaldstímar í
húsi Jóns Þorsteinssonar, Lindargötu 7,
kennari Gígja Hermannsdóttir.
Uppl. og innritun í síma 13022 eftir kl. 3.
Ú tsala
fSCW |*C
Skólavöróustíg 16
HANDKLÆÐI
GARDÍNUEFNI
BÚTAR
EFNI
Sauna-sól
Stofan Bárugötu 11
Aukiö vellíöan og hraustlegt útlit.
Varist bruna og óþægindi í sólar-
landaferöinni.
Tímapantanir í síma 22031.
Þeir sem horfið hafa frá eðlilegu lífi =
í samfélagi okkar, um lengri tíma, !
eiga oft erfiða leið til baka. |
ÁTAKS er þörf.
ÁTAK
ÚTVEGSBANKIÍSLANDS