Morgunblaðið - 12.01.1982, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 12.01.1982, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982 47 Amnesty International byrj- ar aðgerðir gegn kúgunarað- ferðinni „mannshvarfi44 MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Amnesty International: Amnesty-félagar og stuðningsmenn í yfir 100 löndum sameinast um að vekja athygli á kúgunaraðferð, sem ýmsar einræðisstjórnir beita til að ryðja úr vegi meintum andstæðingum. Amnesty International hefur byrjað alþjóðlegar aðgerðir gegn „mannshvarfi". Standa þær til mánaðarloka og er Islandsdeild Amnesty þátttakandi í þeim. Með þessari skjótvirku og út- breiddu aðferð hafa þúsundir manna verið numdir á brott og látnir „hverfa" á undanförnum ár- um að undirlagi yfirvalda — jafn- vel hafa stundum einkennisklædd- ir lögreglumenn eða hermenn framkvæmt mannránið. Misrétti þetta bitnar á fjölskyldu og vinum hins „horfna" og heldur öðrum, sem stjórnin grunar um græsku, í skefjum. Heimildir sýna glögglega að „mannshvarfi" hefur verið beitt í einu landinu á fætur öðru á und- anförnum áratug — í Chile, Arg- entínu, Guatemala, E1 Salvador, Eþíópíu, Guineu, á Filippseyjum, í Alþýðulýðveldinu Yemen og í öðr- um löndum. Auk fjöldamorðanna, sem áttu sér stað í Kampútseu undir Khmer Rouge og í Úganda á valdatímum Idi Amin, voru einnig fjöldamargir látnir „hverfa". Aðaleinkenni kúgunaraðferðar ÍSLANDSDEILD amnesty international Pösthólf 7124. 127 Reykiavik ”MANNSHVARF”1982 þessarar er, að enginn kann skil á hinum handteknu, þeir eru „horfnir" án vegsummerkja og stjórnvöld segjast enga vitneskju hafa um dvalarstað þeirra eða ferðir. Vitaskuld er óttast um líf fjölda fórnarlambanna. Aðstandendum er jafnvel einnig varnað að syrgja hinn „horfna", fjölskylda hans verður að búa við stöðuga óvissu. Það ber við að fjöl- skylda „horfins" manns fær fregn- ir um, að hann hafi sést í fanga- búðum, t.d. getur komið fyrir að fangi, sem látinn hefur verið laus, geti skýrt frá slíku. Oftast líða þó vikur, mánuðir og ár án nokkurra frekari fregna. I Guatemala, þar sem þúsundir manna hafa horfið, hafa mörg lík fundist, sem hafa verið sködduð, svo að þau þekkist ekki. í Argent- ínu hafa, að því að talið er, „horf- ið“ fimmtán þúsund manns síðan stjórnarbylting varð 1976. Tók þá herforingjastjórn við völdum og stofnaði hún fjöldamargar leyni- búðir í ýmsum héruðum landsins. Pyntingar voru algengar og marg- ir fanganna eru taldir af, enda þótt stjórnvöld neiti enn að gera grein fyrir þeim. Meðlimir Amnesty Internation- al um allan heim vilja með bréf- um, beiðnum, plakötum, fundum og öðrum ráðum beina athygli manna að allmörgum hinna „horfnu" fanga. Má þar nefna verkalýðsleiðtoga á Filippseyjum, verslunarmann í Zaire, trúarleið- toga í Eþíópíu, kennara í Alþýðu- lýðveldinu Yemen. í sumum öðrum löndum hafa stjórnir, sem ekki eru lengur við völd, beitt „mannshvörfum", t.d. í Afganistan, Brasilíu, Austur- Timor, Sýrlandi, Morokkó, Mexíkó og Namibíu. Þessi herferð Amnesty Inter- national hefur það einnig að Lögreglustöð í Derb Moulay Cherif, Casablanca, Marokkó. Margir fangar, sem Amnesty International hefur fylgst med, t.d. fólk frá Sahara, hafa verið þarna í einangrunarklefum í mjög langan tfma. markmiði að auka og efla viðleitni annarra aðila, sem leitast við að hamla gegn kúgunaraðferð þess- ari: Sameinuðu þjóðirnar líta al- varlegum augum á vandamálið. Hafa þær skorað á ríkisstjórnir aðildarrríkja að hafa samstarf um að finna fórnarlömbin og að binda endi á mannréttindabrot af þessu tagi. Mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna hefur komið á fót vinnuhópi, sem safnar gögnum og krefur yfirvöld um upplýsingar. Þegar að fyrsta starfsári liðnu skýrði vinnuhópurinn frá, að nokkrir þeir fangar, sem hann hefði leitað að, hefðu fundist og verið látnir lausir. 24 ára maður valdur að bruna 24 ARA gamall maður var valdur að bruna í verzluninni Uppsetningabúðinni að Hverfisgötu 74 þann 20. desember síðastliðinn. Hann var úrskurðaður í gæzluvarðhald þann 3. janúar síðastliðinn. Miklar skemmdir urðu í Uppsetn- ingabúðinni, sem er í fjögurra hæða húsi, en búið er á þremur efstu hæðun- um. Talsverður eldur logaði þegar arar fóru inn og fundu eld á þrem- slökkvilið kom á vettvang og lagði ur stöðum. Um klukkustund tók að frá honum mikinn reyk. Reykkaf- ráða niðurlögum eldsins. / Laugardalshöll 12.janúar kl. 2030/ 13. janúar Id. 2030/14. janúar kl. 20 Siggi Sveins á fullri ferð’ Tekst íslandi að sigra O/ympíu-meistarana aftur? Heiðursgestur: Valur Arnþórsson stjórnarformadur Sambandsins Aðgöngumidahappdrætt/ - glæsilegur vinningur W HSÍ er handhafi íþróttastyrks fj Sambands íslenskra samvinnufé/aga 1982 Dregið í leikhléinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.