Morgunblaðið - 14.02.1982, Síða 23

Morgunblaðið - 14.02.1982, Síða 23
Símtal við Indriða Indriði G. Þorsteinsson? Já. Þetta er á Morgunblaðinu. Nújá. Hann Ólafur K. Magnússon tók af þér mynd á dögunum, þar sem þú stendur við bílinn þinn. Jæjajá. Helvíti mikill dreki. Dreki! — Þetta er minni gerð af bíl. Ég felli mig ekki við þetta drekatal. Mér sýnist þú vera í Vonarstræt- inu. Já, ætli ég hafi ekki verið að fara á Borgina. Þegar ég hef lokið mínu dagsverki, slæ ég mér stundum und- an brekkunni og fer í kaffi á Borg- ina. Þar hittir maður útgerðarmenn og spekinga, kaupmenn og pott- orma. Og hvað spjalliði? Stundum er verið að fella ríkis- stjórnina, stundum bara talað um þjóðlegan fróðleik. En það er jafnan býsnast yfir ýmsu í kaffinu á Borg- inni. Við erum þar andspyrnumenn á ýmsan ófarnað, bæði í austri og vestri. En hvað ertu að brasa helst þessa dagana? Ja, ég er nú bara í mínum verkum ýmsum. Annars er ég latur um þetta leyti árs. Það er í manni hríð- ar- og vetrarkvíði og maður vinnur nú ekki andskoti mikið með það yfir sér. Ekkert sérstakt á döfinni? Jú. Núna er ég að byrja að velta fyrir mér frumdrögum að nýrri skáidsögu, sem á að heita Pappírs- veislan. Þá er ég að ganga frá kvik- myndahandriti um Daníel Bruun og svo er í farvatninu bók um Finn Jónsson listmálara. Heilinn er semsé alltaf á hreyfingu. Jæja, þakka þér Indriði... Heyrðu, þið eigið ekki að láta hann Óla ganga svona lausan í mið- bænum. Maður kemur dauðþreyttur úr sínu dagsverki á gömlum bíl að fá sér kaffi og þá er bara Óli K. þar mættur og tekur myndir! MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982 71 Mor^funblaðið/ól.K.M. Morjfunblaðið/Kristján. Mor^unblaðið/Rax. Hin haga Þegar blaðamaðu: Morgunhlaðsins (E.Pá.) var á ferð í Þnrlákshöfn fyrir skömmu gekk hann fram á slúlku eina kófsveitta við trésmíðar í verksmiðju MAT þar í plássi. Stúlkan heitir Ingibjörg og er Ketilsdóttir. Hún lauk prófi frá Verslunarskólanum, en söðlaði svo um og gerðist nemi í trésmíðum í Iðnskólanum. Hér til forna fóru sögur af konum sem skáru út í tré og fengu þá gjarnan að viðurnefni „hin haga“. Ingibjörg sagði að sér líkaði vel trésmíðin. Lítið varið í Reykjavík Tvær ungar stúlkur voru í starfs- kynningu svonefndri hér á Morgun- blaðinu í síðustu viku. Þær eru komnar alla leið úr Húnavallaskóla, eru þar við nám í 9da bekk grunn- skóla. Þær heita Hildur Ágústsdótt- ir, Geitaskarði og Gerður Dagný Pétursdóttir, Hólabæ. Báðar fimm- tán ára gamlar og kváðust velja hér hjá ættingjum og hafa borgað ferðir sínar hingað suður sjálfar. Hvernig líst ykkur á dagblaðið? Okkur líst ágætlega á okkur. Við höfum skoðað okkur lítillega um, en það er nú mest lítið sem við höfum gert. Skrifuðum að vísu stutta grein um starfskynninguna, sem kannski birtist einhvern tímann. Það hefur ekkert komið ykkur á óvart hér? Nei, þetta var mest líkt því sem við höfðum gert okkur í hugarlund norður í Húnavatnasýslu. Nema tölvurnar. Við kunnum ekki á svo- leiðis vélar. Hvernig líst ykkur á Reykjavík? Það er lítið varið í Reykjavík. Jú, við höfum nú komið hér áður. Ég átti heima hérna einu sinni, segir Hildur og Dagný bætir við: Eg hef komið hingað einu sinni áður. Þið kunnið betur við ykkur í sveit- inni? Já, það er miklu betra að vera í sveitinni. En það er svo sem ekki víst að við gerumst bóndakonur. Við gæt- um alveg hugsað okkur að verða blaðamenn ... eyinga sem voru píndir í þræla- sölu. Eg hefði ekkert á móti því að það færi þangað, þetta mál- verk. Þú ert einbúi, Eggert? Eg er einbúi, já — eins og er. Bý að Bjargi, farðu rétt með það, góði, ég bý að Bjargi við Nesveg og kann vel við mig þar. Það er ágætt að dunda við það í ellinni að mála. Annars er ekki veðrátta til þess nema á sumrum. Flestir vilja, sko, mála í dagsbirtu. Það nýtur sín betur á fletinum í fullri dagsbirtu. Og það er nú ekki nema á sumrin sem það er svoleiðis veðrátta á Islandi. Nú eru hér tvær teikningar eftir systur þína á sýningunni — er listhneigð í ættinni? Ja, þær teikna ágætlega, syst- ur mínar tvær, svo var hann frændi minn, hann Guðmundur í Miðdal. Móðuramma mín var systir Piinars í Miðdal. Og það er nú sonur hans Guðmundar sem er með þessa feikna fleti útum allar álfur — hann Erró. Já, þetta er frændfólk mitt, en það er á allt annarri línu auðvitað en ég. Þeir kalla þig naívista, Egg- ert? Já, ég er svona realisti, segir Eggert Magnússon, Bjargi. Sýningu hans í Djúpinu lýkur á morgun, mánudag, svo nú eru síðustu forvöð að sjá verk Egg- erts Magnússonar, sem listrýnir Morgunblaðsins, Bragi Ásgeirs- son, segir að „eigi eftir að festast í sessi á íslenzkum myndlistar- vettvangi, hvort heldur sem hann heldur áfram að mála eða lætur hér staðar numið“. Já, ég er svona realisti Það er litadýrð í Djúpinu. Þar sýnir Eggert Magnússon, Bjargi við Nesveg. Nkrítinn kall og vill óður og uppvægur selja myndir sín- ar. Sjómaður í mörg ár, nú kominn í land og spyrðir fisk hjá Matthíasi í Bæjarútgerðinni. Já, ég hef unnið í skreiðar- verkuninni, segir hann; en er nú heima eins og er. Hef verið veik- ur svolítið í auga og svo var okkur nú sagt upp vegna fisk- leysis. Fáum samt kauptrygg- inguna. Ég er með vélstjóra- skírteini upp á vasann og var lengi vélstjóri á línuveiðurum, bátum og togurum. Fæddist í Reykjavík 1915. Fer semsé að komast á ellilaun og kannski ég geti þá farið að mála af ein- hverju viti. Ég fæ ellilaun í mars og þá kannski hægist eitthvað um hjá mér. Hefurðu málað lengi? Ja, ætli það séu ekki tíu ár — þetta hefur lengi blundað í mér, en ég hef ekki haft aðstöðu til þess. Alltaf til sjós. Málað svolít- ið á sumrum í frítíma mínum, en ekki meir. Það þarf ekkert, vin- ur, að skrifa um það — Bragi er búinn að skrifa um þessa sýn- ingu og svo er hún að verða búin. Það er ekkert að skrifa um hana. En það spillir kannski ekki fyrir. Nei, ætli það spilli nokkuð fyrir. Annars er mér sagt að þetta sé EM síðasta sýningin hér í Djúpinu, það á að fara að breyta hér í kaffihús, eða brennivínssölu, held ég. Jú, það er kannski rétt að þú segir lítillega frá þessum myndum. Það gæti bara reddað töluverðu, ef það kæmi í blaðinu. Auglýsingar hafa mikil áhrif. Og þetta hérna er Tyrkjarán- ið, segir Eggert og stendur á Morifunblaðiö/OI.K.M. fætur: Mér þykir verst að geta ekki selt það. Mér finnst nú, að Vestmannaeyingarnir ættu að kaupa þessa mynd. Svona til minningar um 400 Vestmanna-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.