Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982 5 Kynningarblaðið um skipulagsmál í Rvík borið út um helgina HIÐ UMDEILDA kynningarblað um skipulagsmál i Reykjavík verdur borið í hús Reykvíkinga um helgina. I>etta kom fram á blaðamannafundi sem borgarstjóri, Egill Skúli Ingi- bergsson, efndi til ásamt nokkrum embættismönnum borgarinnar í gær. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur, forstöðumanns borgarskipulags, voru prentuð 35.000 eintök af rit- inu. Kostnaður við útgáfu og dreifingu þess hefði verið áætlað- ur um 150.000 kr. í janúar sl. Þó mætti ætla að hann yrði eitthvað hærri þar sem prentuð hefðu verið fleiri eintök en þá var gert ráð fyrir. Egill Skúli kvað megintil- gang útgáfu ritsins að kynna borgarbúum aðalskipulag austur- svæða Reykjavíkur eða hin nýju byggingarsvæði austan við Elliða- ár. Þó væri þar einnig að finna skipulag annarra svæða í borg- inni. Er borgarstjóri var spurður álits á ummælum sjálfstæð- ismanna í borgarstjórn að blaðið væri áróðursrit meirihluta borg- arstjórnar, svaraði hann því til, að þessa gagnrýni mætti án efa rekja til þess að blaðið hafi komið út á þeim tíma er kosningar eru í nánd. Honum hefði þó ekki þótt ráðlegt að fresta útgáfu þess af þeim sök- um. Að hans hyggju ættu lesendur blaðsins að dæma um það sjálfir hvort áróðri væri þar til að dreifa. Egill sagði ennfremur, að borg- arstjórn hefði samþykkt í júlí á síðasta ári, að koma á framfæri nýja skipulaginu með útgáfu þessa blaðs. Hann kvaðst þó ekki reka minni til þess að slik kynning hefði áður farið fram með þessum hætti. Guðrún sagði að sýningar hafi verið haldnar á Kjarvalsstöð- um á ýmsum skipulagstillögum, en reynslan hefði leitt í ljós, að ekki hefði nægjanlegur fjöldi fólks sótt þessar sýningar. Af þeim sök- um m.a. hefði verið ráðist í að koma þessu blaði út. H-listinn í Hafnarfirði - framboð Félags óháðra borgara Á FÉLAGSFUNDI í Félagi óháðra borgara, Hafnarfiröi, 31. mars sl., var einróma samþykkt eftirfarandi framboðslisti félagsins í bæjar- stjórnarkosningunum í Hafnarfirði 22. mai nk.: 1. Vilhjálmur G. Skúlason prófessor. 2. Andrea Þórðardóttir, húsmóðir. 3. Arni Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður. 4. Sjöfn Magnúsdóttir, húsmóðir. 5. Snorri Jónsson, fulltrúi. 6. Hulda G. Sigurðardóttir, kennari. 7. Steinþór Einarsson, garðyrkj umaður. 8. Margrét Pálmadóttir, söngkona. 9. Jóhann Guðbjartsson, iðnverkamaður. 10. Kristín Sigurbjörnsdóttir, skrifstofumaður. 11. Eðvald Marelsson, verkamaður. 12. Örn Ólafsson, vélstjóri. 13. Gunnar Linnet, tölvunarfræðingur. Kópavogur: Skátar ganga í hús í dag í dag, laugardaginn 3. apr- íl, ganga skátar í Kópavogi í hús þar í bæ og taka við skeytapöntunum, en ein aðal- fjáröflunarleið þeirra er og hcfur verið sala skátaskeyta til fermingarbarna. Skátafélagið í Kópavogi, Kópar, hefur einnig gefið út sérstakt fermingarblað, en í því eru nöfn allra barna sem fermast í Kópa- vogi í vor. I fermingarblað- inu eru einnig greinar um skátastarf og aeskulýðsmál 14. Gunnar Jónsson, verkamaður. 15. Ingibjörg Bjarnadóttir, húsmóðir. 16. Ríkharður Kristjánsson, stýrimaður. 17. Guðmundur Guðmundsson, vélvirki. 18. Haukur Magnússon, húsasmíðameistari. 19. Droplaug Benediktsdóttir, húsmóðir. 20. Július Sigurðsson, skipstjóri. 21. Málfríður Stefánsdóttir, húsmóðir. 22. Brynjólfur Þorbjarnarson, vélsmiður. (Fréttatilkynning) Sýningu Ragnheið- ar lýkur um helgina YFIRLITSSÝNINGU á verkum Ragnheiðar Jónsdóttur Ream, sem er á Kjarvalsstöðum, lýkur nú um helgina. Sýningin er opin frá klukkan 14 til 22. Sýningin verður ekki framlengd. í Kópavogi. Blaðið er prýtt fjölda mynda og hefur því verið dreift í öll hús í Kópa- . .Yogimim. . Matvörudeild Allt í páskamatinn. Matreiöslumeistarar okkar sýna og kynna niðurskurð og framleiðslu á páskasteikinni. Ennfremur kynntar pizzur og fresca. Yfir 20% afslátt- ur á takmörk- uðu magni af kæli og frysti- skápum. Nýr eldislax fyrir ferminguna. Sýnt uppdekkaö veislu- borð. Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-11 2 Matvörudeild S-86-l 11. VefnaSarv.d. S-86-113 í dag fyrir þá fjölmörgu viö- skiptavini okkar, sem eiga erfitt meö aö gera páskainn- kaupin á verzlunartímum. Þá bendum viö einnig á fjölbreytt úrval af glæsilegum gjöfum fyrir fermingarbörnin, gjafir, sem gera gagn. í tilefni dagsins gefum viö 10% afslátt Komiö í hjarta borgarinnar Austurstræti 22 í dag. HLJÓMDEILD \tv\KARNABÆR wM 1 Austurstræti 22 r Sími frá skiptiboröi 85055 Við höfum opið til kl. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.