Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 JlforattiiIMfafrtík Sími á ritsljórn og skrifstofu: 10100 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982 Mót háum hliðum og hækkandi sóL Myndin var tekin i Bláfjöllum í blíöunni i gærdag. MorKunbladiö/Kristján. Pétur Sigurðsson: Skipainnflutningur eft ir framsóknarleiðum „Þetta eru svik, þessu skipi á að skila,“ sagði Garðar Sigurðsson Kaup á 10 ára göinlum togara, Einari BcnedikUsyni, frá Bretlandi, og hcimild til erlendrar lántöku vegna kaupanna, varð tilefni harðra deilna utan dagskrár á Alþingi í gær. Pétur Sigurðsson hóf umræðuna og taldi vafa leika á eignaraðild kaupcnda hins brezka togara á þeim skipum, sem þeir teldu sig taka af skipaskrá til mótvægis við togarann. Annað þessara skipa hafi farizt fyrir allnokkru en hitt verið tekið af skrá með fyrirgreiðslu úreld- ingarsjóðs, sem hafi það hlutverk að hjálpa útgerðaraðilum til að hætta rekstri úreltra skipa til að smækka ofstóran skipastól. Krafði hann tvo framsóknarráðherra, Tómas Arnason, viðskiptaráð- herra, og Steingrím Hermanns- son, sjávarútvegsráðherra, skýr- inga á afskiptum þeirra af þessu máli. Garðar Sigurðsson sagði m.a.: „Þetta heita svik. Þessu skipi ber að skila aftur". Hann sagði rúm- lega 50 stór og vel búin fiskiskip (loðnuskip) bætast í þann skipa- stól, sem gerður er út á þorsk- stofninn. Sá skipainnflutningur, sem framsóknarráðherrar kæmu mjög við sögu í, gerði aðeins illt verra varðandi hlut útvegs og sjó- manna. Ráðherrar töldu eignaraðild viðkomenda á öðrum umræddra báta, Sæhrímni, til staðar. Það skip hætti nú veiðisókn og það réttlæta heimildina til skipakaup- anna og erlendrar lántöku í tengslum við þau. Sjá bls. 28: „Vafamál sem veikja Alþingi." _ r Staða stöövarstjóra Pósts og síma, Isafirði: Jafnréttisráð sættir sig ekki við svör Steingríms Tveir kvenumsækjendur höfðu lengri starfsaldur, en karlinn, sem var ráðinn STEINGRÍMUR Hermannsson, samgönguráðherra, veitti í janúarmánuði síða.stliðnum stöðu stöðvarstjóra Pósts og síma á ísafirði. Umsækjendur voru 6, þar af 4 konur og fengu þrír umsækjendur atkvæði starfsmannaráðs PósLs og síma, tvær konur og einn karl. Ráðherra veitti karlinum stöðuna og hefur Jafnréttisráð óskað skýringa á þessari veitingu, þar sem báðar konurnar, sem atkvæði fengu, höfðu lengri starfsaldur hjá símanum en karlinn. Engin svör hafa borizt frá ráðherra önnur en þau að hann hafi veitt stöðuna „að vandlega athuguðu máli“ Samkvæmt bréfaskriftum ráðu- neytisins og Jafnréttisráðs hefur ráðið ekki sætt sig við skýringar ráðherra á veitingunni. í svarbréfi, sem það ritar Steingrími Her- mannssyni segir: „Jafnréttisrað óskar eftir upplýsingum um hvern- ig atkvæði féllu í starfsmannaráði og jafnframt ítrekar ráðið spurn- ingu sína um hverja þá hæfileika, starfsreynslu og menntun sá hefur til að bera, umfram aðra umsækj- endur, sem skipaður var i starf stöðvarstjóra á ísafirði. Sam- kvæmt 5 gr. og 10. gr. 5 tl. jafnrétt- islaganna ber atvinnurekenda að veita ráðinu skriflegar upplýsingar um málefni er varða jafnrétti kynj- anna.“ í fyrra bréfi sínu til Steingríms Hermannssonar segir Bergþóra Sigmundsdóttir, framkvæmda- stjóri Jafnréttisráðs m.a.: „Sam- kvæmt þeim upplýsingum, sem Jafnréttisraði hafa borizt, fengu þrír umsækjendur meðmæli Pósts og síma, tvær konur og einn kari. Konur þessar höfðu báðar lengri starfsaldur en karlinn, sem var ráðinn." í svarbréfi ráðherra segir m.a.: „Við umfjöllun Starfsmannaráðs fengu þrír umsækjendur atkvæði, þau Lilja Jakobsdóttir, Kristmann Kristmannsson og Inga Þ. Jóns- dóttir. í bréfi til ráðuneytisins dags. 4. janúar þ.á., leggur póst- og símamálastjóri til að einum þeirra umsækjenda, sem atkvæði fengu í Starfsmannaráði verði veitt stað- an. Það var mat samgönguráð- herra, að allir þessir umsækjendur væru hæfir til að gegna téðu starfi. Að vandlega athuguðu máli ákvað samgönguráðherra að skipa Kristmann Kristmannsson í stöðu stöðvarstjóra Pósts- og símamála- stofnunarinnar á ísafirði." Gerry Mulligan ásamt kvartett á Listahátíð HINN þekkti jazzhljómlistarmaó- ur, Gerry Mulligan. hefur ásamt kvartett sínum, lýst sig reiðubú- inn til að koma hingað til lands í sumar og halda hljómleika á veg- um Listahátíðar. Að sögn Örnólfs Arnasonar, framkvæmdastjóra Listahátíðar, hefur Listahátíðar- nefnd fullan hug á að fá Mulligan hingað til lands og ætti þvi fátt að geta komið í veg fyrir að af þess- ari heimsókn verði. Meðvitundar- laus eftir um- ferðarslys á miðvikudag FJÓRTÁN ára gömul stúlka liggur nú meövitundarlaus á gjörgæzludeild Borgarspítal- ans eftir að hafa orðið fyrir bifreið í Álfabakka í Breið- holti, skammt fyrir vestan Stekkjarbakka. Slysið átti sér stað kl. 17.45 á miðviku- dag. Bifreið var ekið vestur Álfabakka og ber ökumaður, að stúlkan hafi gengið fyrir- varalaust í veg fyrir bifreið- ina, án þess að gæta að um- ferð. Urskurður kjaradóms: Hjúkrunar- stéttirnar fengu 6% launahækkun Urskurður kjaranefndar og kjaradóms um sérkjara- samninga félaga innan BHM og BSRB felur í sér launa- flokkahækkun, sem meta má frá 1% til 6% launahækkun, samkvæmt upplýsingum er Morgunblaðið fékk í gær- kvöldi. Mest varö hækkunin hjá hjúkrunarstéttum, þar sem nánast allir hækkuðu upp um tvo launaflokka, en reikna má hækkun um hvern launaflokk til um það bil 3 til 3,5% launahækkunar. Megin krafan hafði hljóðað upp á launaflokkahækkanir yfir alla línuna, en þeirri kröfu hafnaði kjaradómur á þeirri forsendu, að svo umfangsmiklar breytingar væru fremur tilheyrandi aðal- kjarasamningi. Þá var einnig tek- ið tillit til þess að engar þær grunnkaupshækkanir hafi orðið er færast eigi yfir á BHM, sem á sín- um tíma fékk 3,25% launahækkun eins og aðrir launþegar. Fjármála- ráðherra hefur á hinn bóginn ný- lega gert samkomulag við nokkra hópa innan þessara sambanda, þar sem um það bil þriðji hver starfsmaður hækkar um launa- flokk, og var það tekið upp í dómn- um, sem jafngildir um 1% launa- hækkun að meðaltali, reiknist hver flokkur um 3%. Svavar Gestsson um atvinnuhorfur: Ljóst að víðtækra aðgerða er þörf „Það virðist Ijóst að víðtækra aðgerða er þörf. Það er verið að vinna að málinu í Framkvæmdastofnun, Þjóðhagsstofnun og á Vinnumálaskrifstofu iðnaðarráðu- neytisins. Tekin verður saman skýrsla um hvaða áhrif þetta hefur á þjóðlífið, og ákvörðun um hvað gera skuli í framhaldi af því,“ sagði Svavar Gctsson í tilefni af þeim atvinnuhorfum sem framundan eru vegna þeirra takmarkana sem fyrirséðar cru á loðnuveiðum. Svavar sagði einnig, að til með- ferðar væri sérstök beiðni vegna þessa frá bæjarstjórn Siglufjarðar. Beðið væri niðurstöðu úr heildarat- hugun á atvinnuástandinu og horf- um um allt land, síðan yrði málið kynnt í ríkisstjórn og hún myndi taka ákvörðun um hvað gert yrði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.