Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982 21 Óperettan sem varð að innrás HARÐNANDI deilu Breta og Argent- ínumanna um Falklandseyjar síðustu daga var líkt við „gamanóperu“, en fréttir brezkra blaða um að Argentínu- menn kynnu að láta til skarar skríða reyndust ekki orðum auknar. Deiian um Falklandseyjar á rætur að rekja til aldagamallar heimsveldis- togstreitu Breta, Frakka og Spán- verja, en aðdragandi núverandi upp- gjörs hófst þegar argentínski fáninn var dreginn að húni á eynni Suður- Georgíu og þjóðsöngur Argentínu sunginn þar. Alls gengu um 43 Argent- ínumenn af leiguflutningaskipi á land til að rífa gamla hvalveiðistöð fyrir argentínskan skransala sem vill selja hana í brotajárn. Miles 100 Leith QrytviKen\ SOUTH T GEORGIA FALKLAND ISLANDS #<’Slanley . FALKlAND ISLANDS DLPENDENCtES ANTARCTICA 1 Brezka utanríkisráðuneytið mót- mælti landgöngunni harðlega, en það argentínska svaraði því til að mennirnir á Suður- Georgíu væru þar í löglegum er- indagerðum. Blaðafréttir af mál- inu reyndust ýktar. Skipið „Endurance", sem Bretar sendu á vettvang, var ísbrjótur, en ekki fallbyssubátur, og er við vísinda- rannsóknir á Falklandseyja- svæðinu á hverju ári frá des- ember til marz. Argentínumenn hleyptu af byssum á Suður- Georgíu eins og blöðin sögðu, en aðeins til að veiða dýr til matar. Engin árás var gerð á skrifstofu argentínska flugfélagsins í Port Stanley, höfuðborginni, heldur var brezka fánanum aðeins fleygt inn um dyrnar. Þótt málið virtist smávægilegt hófst mikið vopnaskak í Buenos Aires og fimm argentínsk her- skip voru send á vettvang. Fyrir- menn argentínska heraflans hafa setið á fundum og brezkir þingmenn hafa krafizt kröftugra ráðstafana til að verja eyjarnar. En enginn trúði því í alvöru að Argentínumenn mundu gera innrás. Um 1.700 manns búa á Falk- landseyjum, um það bil helming- urinn í Stanley, en hinn helm- ingurinn í einangruðum byggð- um og á stórum sauðfjárbúum. Flestir eyjaskeggjar eru af brezkum uppruna, en nokkrir eru með norrænt blóð í æðum og lifa á fiskveiðum, hvalveiðum og fuglarækt, auk sauðfjárbúskap- ar. Aðaleyjarnar eru Austur- og Vestur-Falkland, sem Falk- landssund greinir að, en þar við bætast um 200 smærri eyjar. Fjarlægðin frá austurströnd Suður-Ameríku er um 520 km. Saga eyjanna hófst þegar enskur skipstjóri, John Davis, fann þær 1592 og tilkynnti að þær virtust yfirgefnar og gróð- urlausar. Eyjarnar voru lengi látnar að mestu leyti afskipta- lausar, þótt Frakkar og Spán- verjar vissu um þær. En 1764 stofnuðu Frakkar nýlendu á eyj- unum, þótt þeir seldu þær Spánverjum tveimur árum síðar. Bretar stofnuðu nýlendu á Vestur-Falklandi 1765. Spán- verjar viðurkenndu kröfu Breta til hluta Vestur-Falklands eftir deilur milli landanna 1771, en 1774 yfirgáfu Bretar nýlenduna. Árið 1811 yfirgáfu Spánverjar nýlendu þá sem þeir fengu frá Frökkum. Árið 1820 stofnaði Argentína, sem þá hét „Sameinuðu La Plata-héruðin“, nýlendu á Falk- landseyjum, en hún átti sér stutta sögu. Bretar endurvöktu tilkall sitt til eyjanna 1832 og ári síðar stofnuðu þeir nýlendu þar að nýju. Orrustan við Falklands- eyjar var fyrsta meiriháttar flotaviðureignin í fyrri heims- styrjöldinni. í síðari heimsstyrj- öldinni höfðu Bandamenn her- stöð á eyjunum. Bretar hafa svarað kröfum Argentínumanna til eyjanna með yfirlýsingum um að þeir séu skuldbundnir til að virða þá ósk eyjaskeggja að verða áfram brezkir. Deiluaðilar hafa reynt að ná samningum um lausn deil- unnar síðan 1968, en síðasta lota viðræðnanna, sem fór fram í New York í lok síðasta mánaðar, fór út um þúfur. Auk Argentínu gerir Chile tilkall til Suður- Georgíu. Ýmsir halda því fram að vopnaskak Argentínumanna eigi rætur að rekja til innanlandserf- iðleika argentínsku herforingja- stjórnarinnar. Æ fleiri lands- menn hafa snúizt gegn herfor- ingjunum sem veltu Isabel Peron forseta úr sessi fyrir sex árum vegna ástandsins í efnahagsmál- um landsins. Almenningur fagnaði yfirleitt herbyltingunni 1976 og taldi að þar með mundi ljúka hryðju- verkum vinstrimanna og efna- hagslegu öngþveiti. Hvarf þús- unda meintra vinstrisinna í mik- illi herferð stjórnvalda gegn hryðjuverkum, er fylgdi í kjöl- farið, dró ekki úr stuðningi al- mennings við hershöfðingjana. Nú hefur andstaðan gegn Kortið sýnir Falklandseyjar og eyna Suður-Georgíu sem tilheyrir þeim. herforingjunum aukizt vegna þess að þeim hefur ekki tekizt að koma aftur á velsæld og þeim skipulagsbreytingum, sem þeir hugðust koma til leiðar til að snúa við þeirri efnahagsstefnu en Juan heitinn Peron fyrrum einræðisherra mótaði og fylgt hefur verið í 30 ár. Landsmenn hafa ýmigust á tilraunum her- foringjanna til að auka frjáls- ræði í efnahagsmálum og halda enn tryggð við Peron, sem er þakkað það að kjör fólks voru aldrei betri en á valdadögum hans. Hótanir Argentínumanna um innrás í Falklandseyjar voru ekki teknar hátíðlega í Bret- landi, þótt ríkisstjórn Argentínu lýsti því yfir að hún mundi reyna að beita „öðrum ráðum“ til að leysa deiluna. Þó var vitað að áhugi Argent- ínumanna á Falklandseyjum hafði aukizt vegna nýlegra rann- sókna, sem hafa verið gerðar og benda til þess að veruleg olía kunni að leynast á hafsvæðinu umhverfis eyjarnar. Svo langt hefur verið gengið að sagt hefur verið að Falklandseyjar geti orð- ið „annað Kuwait“ og kannski er það ein skýringin á innrásinni. ' " „ ' Port Stanley, höfuðstaður Falklandseyja, sem Bretar hafa ríðið í 133 ár, en Argentínumenn alla tíð gert kröfu til. Argentínumenn hófu innrásina með því að ná á sitt vald flugvellinum við bsinn. AP-símsmynd Plöntur í geimnum ruglaðar í ríminu Houston, Texas, 2. apríl. Al*. PLÖNTUR, sem ræktaöar voru í geimnum í tilraunaskyni, gátu aldrei gert upp við sig hvað átti að snúa upp og hvað niöur. Tveir litlir „garðar" voru sendir út í geiminn. Voru í þeim ýmsar tegundir plantna. Var ætlunin að sjá hvernig lífsskilyrði gróðurs væru í himingeimnum. Þegar „garðarnir" voru teknir niður til jarðar aftur og plönturnar rannsakaðar kom í ljós að þær voru vel á sig komnar að öðru leyti en því að þær voru afskræmdar í vext- inum. Var greinilegt að þyngd- arleysið í geimnum ruglaði þær í ríminu þannig að þær gátu ekki áttað sig á því hvað átti að snúa upp og hvað niður. jp I málaferl- um út af aprílgabbi Aþenu, 2. apríl. Al*. RÍKISÚTVARPIÐ í Grikklandi hefur fengið óvæntan mótbyr í seglin vegna aprílgabbs síns. Einn hlustandi hefur nú höfðað mál á hendur útvarpinu fyrir að dreifa röngum upplýsingum. Frétt útvarpsins var á þá leið að mengunin í Aþenu væri orðin 11 sinnum meiri en hættumörk leyfðu. Var íbúum ráðlagt að fara með börn sín úr borginni hið snarasta. „Mér fannst þetta enginn brandari," sagði Athanasisos Michos, 36 ára gamall Aþenu- búi. „Ég þaut af stað til að sækja börnin í skólann og sagði konunni að pakka niður. Við værum á förum úr borg- inni.“ Hefur Michos farið fram á skaðabætur, sem nema sem svarar 830.000 Bandarikjadöl- um, vegna áfallsins sem hann varð fyrir. Yfirmaður útvarps- ins sagði aprílgabbið „smekk- leysu" og rak þegar í stað þann starfsmann sem stóð fyrir fréttinni. BENIDROM1982:11. MAl 1.&22.JUNI 13.JULI 3.& 24 AGUST 14SEPT. 5.0KT0BER VBRHBD11. BamORM MJMII B FERÐAMDSTOON AÐALSTRÆTI9 SÍM128133 11255 UMBOÐSMENN: Sígurbjörn Gunnarsson, Sporthúsiö hf., Akureyri — simi 24350 Helgi Þorsteinsson, Asvegi 2. Dalvik — simi 61162 Feröamiöstöð Austurlands. Anton Antonsson — Selás 5. Egilsstöóum — simi 1499 og 1510 Viöar Þorbjörnasonn, Noróurbraut 12, Höfn Hornafirói — sími 8367 Friöfinnur Finnbogaaon, c/o Eyjabúó, Vestmannaeyjum — simi 1450 Bogi Hallgrímsson, Mánagerói 7. Grindavik — simi 8119 Bjarni Valtýsson, Aóalstöóinni Keflavik, Keflavik — simi 1516 Gissur V. Kristjénsson, Ðreióvangi 22. Hafnarfirói — simi 52963 Ólafur Guöbrandsson, Merkurteig 1, Akranesi — simi 1431

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.