Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982
„Valddreifing“ undir vinstri stjórn í Reykjavík:
Samband við borgarbúa hef-
ur aldrei verið minna —
vilji fólksins virtur að vettugi
Eftir Markús Örn
Antonsson, borgar-
fulltrúa
Kkki er ofsögum sagt af skrumi
og sýndarmennsku Alþýðubanda-
lagsins þegar dregur aö kosningum:
Kftir margendurtekna kjaraskerð-
ingu alþýðubandalagsráðherra á síö-
ustu misserum þykir sýnt að söngur-
inn frá 1978 „Kosningar eru kjara-
barátta" verður hjáróma og falskur
og þá er um að gera að lappa örlítið
upp á efnisskrána og kyrja þann
kveðskap, sem flytjendurnir telja að
láti betur ■ eyrum áheyrenda og af-
hjúpi ekki jafn rækilega falsið og
hlekkingarnar, sem venjulegt, heið-
virt fólk veit ekki hvort eru með-
fædd ósköp eða áskapaður eiginleiki
hjá málsvörum miðstýringarvalds og
ríkisforsjár, forystufólkinu í Alþýðu-
bandalaginu.
Hrist er fram úr erminni nýtt
prógramm: „Valdið til borgar-
anna“, sem reyndar hefur verið
falið uppi í erminni allt þetta
kjörtímabil án þess að nokkuð
væri aðhafzt til að færa valdið til
borgaranna í Reykjavík nema síð-
ur sé eins og vikið verður að síðar.
Andstætt öllum grundvallarþátt-
um í hugsjón og stefnu kommún-
istanna eða sósíalistanna í Al-
þýðubandalaginu, verður vald-
dreifing, aukin áhrif íbúa hinna
einstöku hverfa Reykjavíkur, gerð
að meginmáli yfirstandandi kosn-
ingabaráttu ef dæma má af skrif-
um Þjóðviljans og málflutningi
alþýðubandalagsmanna í borgar-
stjórn. Reyndar hafa framsókn-
armenn líka verið að rembast við
að koma frá sér einhverjum slík-
um hugmyndum um aukið lýðræði
í borginni eins og þeir viti upp á
sig skömmina eftir fjögurra ára
samstarf við Alþýðubandalagið í
meirihluta í borgarstjórninni. Það
er líka hverju orði sannara, að á
þessum fjórum árum hefur verið
um skipuleg vinnubrögð að ræða
hjá vinstri meirihlutanum til að
koma í veg fyrir lýðræðisleg áhrif
borgarbúa á ákvarðanir borgar-
stjórnar. Þegar samtök borgar-
anna hafa af einhverju tilefni vilj-
að koma á framfæri gagnrýni eða
athugasemdum við fyrirætlanir
vinstri meirihlutans hafa þær ver-
ið hundsaðar gjörsamlega.
Ekkert gert í fjögur
ár — gamlar tillögur
dregnar fram
Alþýðubandalagsmenn og fram-
sóknarmenn hafa haft fjögur ár
til að koma valddreifingar-
áformum sínum í framkvæmd.
Kratar líka. Ekkert hefur bólað á
slíkum ákvörðunum eða fram-
kvæmdum. Hins vegar er mikið
talað nú og margt lagt fram í til-
löguformi eins og reyndar áður
fyrir borgarstjórnarkosningar.
Sýndartillögur Alþýðubanda-
lagsins um ráð og nefndir íbúa í
hinum ýmsu hverfum borgarinnar
eru engin nýjung. Þessi mál voru
ofarlega á baugi hjá alþýðubanda-
lagsmönnum fyrir síðustu kosn-
ingar, í orði kveðnu, eins og flest
önnur stefnumið þess flokks, sem
lögð voru fram í blekkingarskyni
og aldrei verða að veruleika, því að
alvara hefur aldrei legið að baki
einu einasta orði, sem lofað hefur
verið.
Það hefði verið hægðarleikur
einn fyrir Alþýðubandalagið að
koma þessum „áhugamálum" sín-
um eitthvað áleiðis í meirihluta-
samstarfinu, ef vilji hefði verið
fyrir hendi. Allir voru vinstri
flokkarnir með aukin tengsl borg-
arfulltrúa og borgarbúa á dagskrá
hjá sér fyrir síðustu kosningar.
Það átti að auglýsa borgarstjórn-
arfundi og dagskrá þeirra sér-
staklega í blöðum og auglýsa við-
talstíma borgarfulltrúa allra í sér-
stökum viðtalsskrifstofum hjá
Reykjavíkurborg. Hver hefur séð
slíkar tilkynningar síðustu fjögur
„Sýndartillögur AlþýÖu-
bandalagsins um ráö og
nefndir íbúa í hinum ýmsu
hverfum borgarinnar eru
engin nýjung. Þessi mál
voru ofarlega á baugi hjá
alþýðubandalagsmönnum
fyrir síðustu kosningar, í
orði kveðnu, eins og flest
önnur stefnumið þessa
flokks, sem lögð voru
fram í blekkingarskyni og
aldrei verða að veruleika,
þvi að alvara hefur aldrei
íegið aö baki einu einasta
orði, sem lofað hefur ver-
ið.“
árin? Ekki nokkur maður. Þær
hafa aldrei birzt og áttu áreiðan-
lega aldrei að birtast.
Alþýðubandalagsmönnum og
framsóknarmönnum hefði verið í
lófa lagið að sameinast í tillögu-
gerð um valddreifingarmálin og
vinna þeim framgang á vettvangi
borgarstjórnar með einhverjum
aðdraganda. Þegar nokkrar vikur
eru til kosninga líta tillögur þess-
ara flokka loks dagsins ljós, hvor í
sínu lagi og án nokkurra tilrauna
til samræmingar, þó að í ýmsu séu
grundvallaratriðin hin sömu.
Þetta sýnir náttúrulega einu sinni
enn samstöðuleysið, sem verið
hefur um allan málatilbúnað og
stjórnun Reykjavíkur þetta kjör-
tímabil. Eining um þessa tillögu-
gerð náðist vitaskuld ekki fremur
en annað.
Ferill Alþýðubanda-
lagsins: Samtök
borgaranna hundsuð
En lítum aðeins nánar á feril
vinstri meirihlutans undir forystu
Alþýðubandalagsins í dreifingu
valdsins, samráði við borgarana,
tilliti til óska íbúa einstakra
hverfa og hvernig þær hafa verið
látnar endurspeglast í ákvörðun-
um hinna auðmjúku þjóna þeirra í
borgarstjórnarmeirihlutanum.
Tilfærð skulu nokkur dæmi:
• Borgarstjórinn (hinn óháði
framkvæmdastjóri, hver er
hann? borgarinnar) hefur ekki
efnt til neinna funda um mál-
efni Reykjavíkur og fram-
kvæmdir í hinum ýmsu mála-
flokkum og í hinum ýmsu
hverfum borgarinnar eins og
borgarstjórar gerðu í tíð meiri-
hluta sjálfstæðismanna tvisvar
á kjörtímabili.
• Snemma á þessu kjörtímabili
mæltust íbúasamtök í Fella- og
Hólahverfi til þess að fá fund
með borgarfulltrúum við sund-
laugarmannvirki sem þá var í
byggingu í hverfinu og vildu
leggja áherzlu á, að fram-
kvæmdum yrði hraðað. Borg-
arfulltrúar sjálfstæðismanna
mættu en enginn fulltrúi meiri-
hlutans.
• Þegar nýtt skipulag Ártúns-
holts var til meðferðar í skipu-
lagsnefnd og borgarstjórn, mót-
mælti Framfarafélag Árbæjar-
og Seláshverfis að framtíðar-
útivistarsvæði þessara hverfa,
þar sem búið var að planta 9000
trjáplöntum, skyldi tekið undir
byggð, og vildi viðræður við
borgaryfirvöld. Þessi tilmæli
voru hundsuð. Alþýðubanda-
lagsmaðurinn, sem gegnir for-
mennsku í skipulagsnefndinni,
sagði að engin ástæða væri til
að ræða við þetta fólk fyrr en
ákvarðanir hefðu verið teknar
um skipulagið.
• í skipulagi hinna svonefndu
austursvæða (Rauðavatn, holt
og hæðirnar) er gert ráð fyrir
tengingu gatnakerfis þeirra og
Fella- og Hólahverfis í Breið-
holti. Enda þótt þetta bjóði
heim verulegri röskun í
umferðarmálum þess hverfis og
geti valdið háskalegum umferð-
arþunga í nágrenni skóla og
annarra stofnana fyrir börn,
var ekkert samráð haft við full-
trúa íbúa hverfisins og eiga
þeir þó félag, sem heitir Fram-
farafélag Breiðholts III. Eftir
að skipulagið var afgreitt hélt
framfarafélagið fund, þar sem
þessi áform voru mjög gagn-
rýnd.
• Fulltrúar meirihlutans hafa
ekki virt viðlits þá íbúa Gnoð-
arvogs og nágrennis, sem hafa
mótmælt skipulagi íbúðar-
byggðar milli Suðurlands-
brautar og Miklubrautar, aust-
an Skeiðarvogs. Þeim var neit-
að um viðræðunefnd og ekkert
tillit hefur verið tekið tii mót-
mæla 9000 borgarbúa gegn
þessu skipulagi. Svo mikið lá
meirihlutanum á að fullkomna
valdníðsluna á þessu fólki, að
tillaga okkar sjálfstæðismanna
um frestun þessara umdeildu
skipulagsákvörðunar fram yfir
borgarstjórnarkosningar, var
felld.
Þetta eru aðeins fá dæmi, sem
koma upp í hugann við fljótlega
upprifjun. Af mörgu er að taka.
Stefna sjálfstæð-
ismanna: Náin sam-
vinna eins og
dæmin sanna
Við sjálfstæðismenn höfum
jafnan lagt okkur fram um að
hafa náið og gott samband við
borgarbúa um málefni Reykjavík-
ur. Borgarstjórinn gegndi lykil-
hlutverki í þessu sambandi með
hverfafundum sínum tvisvar á
kjörtímabilinu eins og áður var
vikið að. Davíð Oddsson, borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins í
kosningunum í vor, hefur staðið
fyrir slíkum fundum á þessu kjör-
tímabili.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
fluttu snemma á þessu kjörtíma-
bili tillögu um Reykjavíkurviku
annað hvert ár, þar sem borgar-
búum yrði gefinn kostur á að
kynna sér starfsemi stofnana og
fyrirtækja borgarinnar. Reykja-
víkurvika var haldin öðru sinni á
sl. sumri og þá kynntir Strætis-
vagnar Reykjavíkur, Slökkviiiðið
og Bæjarútgerðin. Borgarbúar
fengu tækifæri til að heimsækja
þessa starfsstaði og útbúnir voru
sérstakir kynningarbæklingar um
þá.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
hafa átt gott samstarf við samtök
íbúa í hverfum borgarinnar, þegar
þau hafa látið að sér kveða í ýms-
um framfaramálum. Við teljum
æskilegast að frumkvæðið komi
frá fólkinu sjálfu, það sé styrkt til
athafna eins og gert var að okkar
undirlagi, með fjárveitingum úr
borgarsjóði til starfandi
framfarafélaga, en fyrst og fremst
með því að hafa opin eyru og vilja
hlusta á það sem fulltrúar fólksins
hafa að segja, hvort sem um er að
ræða áhugasamtök á ýmsum
sérsviðum eða heildarsamtök íbúa
í heilum hverfum.
Við höfum virt vilja fólksins í
verki þegar við höfum haft að-
stöðu til þess. Vinstri meirihlut-
inn hefur jafnan skellt skollaeyr-
um við rökstuddum athugasemd-
um og réttlátum kröfum hins al-
menna borgara og hafnað sam-
ráði. Virkt samstarf borgarstjórn-
ar og borgaranna og raunveruleg
áhrif þeirra á ákvarðanir borgar-
fulltrúa verða bezt tryggð með því
að fela sjálfstæðismönnum á ný
forystuhlutverk í málum okkar
Reykvíkinga.
viö synum
á Akranesi
Laugardaginn 3. apríl frá kl. 10-17 aö Bárugötu 21
-í vöruskemmu Trésmiöjunnar Akurs hf.
Komið og skoðið SAAB - spyrjið sölumennina út úr og
kynnist SAAB af eigin raun með því að prufukeyra.
TOCGURHR
SAAB
UMBOÐIÐ