Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982 + SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR fré Dalbrún, Borgarnesi, lést á Sólvangi, 1. apríl. Þuriður Þórarinsdóttir, Þorgrímur Halldórsson, og börn. Maðurinn minn og faðir okkar, JÚLÍUS JÓHANNESSON, Ægissíöu 127, lést fimmtudaginn 1. apríl. Helga Guójónsdóttir og börn. Eiginmáður minn. AÐALSTEINN MAGNÚSSON bankastarfsmaöur, Ferjubakka 4, Reykjavík, lést á heimili sínu 1. april. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Lárusdóttir. + Mágkona mín og fööursystir okkar, HALLDÓRA NIKULÁSDÓTTIR PÉTURSSON, Ijósmóöir, Sílkirk, Canada, andaöist 2. mars. Bálför hennar hefur fariö fram. Sigfúsína Ólafsdóttir, Nikulás Brynjólfsson, Auöur Brynjólfsdóttir, Guörún Brynjólfsdóttir. + Faöir okkar og tengdafaöir minn, VIGGÓ GUDMUNDUR BJÖRNSSON frá Súgandafiröi, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 5. april kl. 15.00. Hallur Viggósson, Kristrún Viggósdóttir, Guómundur Jónsson, Dagný Viggósdóttir, Guöni Viggósson. + Minningarathöfn um son minn, JÓN VALDIMAR LOVDAL, Hábergi 36, Reykjavík, er lézt af slysförum 1. marz sl., verður í Kópavogskirkju, þriðjudag- inn 6. apríl kl. 13.30. Sigrún Jónsson. + Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför GUÐMUNDAR GUDMUNDSSONAR frá Ófeigsfiröi, Hagamel 41, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Huldu Sveinsson, læknis, svo og lækna og starfsfólks á deild 14 G 4. hæö Landspítalanum, Reykjavík, fyrir frábæra umönnun og hjálp í erfiöleikum. Ester Skúladóttir, Auöur Guömundsdóttir, Magnús Randrúp, Erna Guðmundsdóttir, Bragi Björnsson, Steinunn A. Guömundsdóttir, Ásbjörn V. Sigurgeirsson, barnabörn. + Hjartanlega þökkum viö öllum þeim sem auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför mannsins míns, fööur okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRARINS MAGNÚSSONAR, skósmiös, Haðarstíg 10, Reykjavík. Ingibjörg Guömundsdóttir, Guömundur Þórarinsson, Magnús Þórarinsson, Guöbjörg Jónsdóttir, Helga Þórarinsdóttir, Guöbjörg Þórarinsdóttir, Gunnar Helgason, Þuríður Þórarinsdóttir, Þorgrímur Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Karl Vernharð Þor- leifsson — Minning „Allir hafa átt sér einhvern tíma vor. Allir í þesKum heimi mismörg ganga spor. Og einn er endir á öllum lífsins leiöum.“ Karl Vernharð Þorleifsson, bóndi á Hóli í Dalvík, hefur nú gengið þá götu til enda þar sem jarðvist okkar allra lýkur eftir mislanga göngu. Örlögin eru und- arleg og erfitt reynist mannskepn- unni að ráða gátu þessa lífs. Karl Vernharð Þorleifsson var fæddur 5. janúar 1926 á Hóli í Ðalvík. Dáinn 1. mars 1982 s.st. Karl var sonur Þorleifs Kristins Þorleifssonar fyrrum bónda á Hóli og konu hans Svanhildar Björns- dóttur. Hann var einn af átta börnum þeirra hjóna. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum á Hóli og vann við bústörfin með þeim alla tíð þar til hann tók við búinu af þeim árið 1958 og eignaðist jörð- ina um líkt leyti og bjó þar alla tíð síðan með konu sinni Önnu Jó- hannesdóttur er hann giftist 23. apríl 1959, og börnum þeirra. Karl var góður og farsæll bóndi. Hann var næmur á eðliskosti og afurðasemi síns búfénaðar og hafði alla tíð af honum góðar nytj- ar og varð aldrei fyrir búsifjum. Meðal annarra búgreina rak Karl hænsnabú sem gerði honum m.a. kleift að fullnægja einum þætti í sínu eðli, gjafmildinni, og munu mörg eggjakílóin í hans búskap- artíð hafa farið frá Hólsheimilinu í ýmsar áttir án endurgjalds og var mitt heimili meðal annars æði oft aðnjótandi þessara eðlislægu kosta Karls. Það var oft gestkvæmt á Hóli. Þar komu margir og þáðu góð- gerðir. Karl var veitull og við- ræðugóður. Kona hans einnig með sinn sérstæða myndarskap í fram- reiðslu. Þar voru veitingar ekki skornar við nögl. Karl var hlé- drægur maður og tranaði sér ekki fram né tróð á tám síns samferða- fólks. Hann var ekki einn af þeim sem auðgaði sig eða umbylti bú- rekstri sínum með sparifé annarra eins og algengt hefur verið á und- anförnum árum af allra stétta auðhyggjufólki. Nei, hann bætti og rak sitt bú og heimili af eigin afrakstri, hyggjuviti og dugnaði. Karl fór með hreint borð úr þess- um heimi, skuldaði aldrei neinum neitt og var alla tíð heldur veit- andi en þiggjandi. Þjóðfélagið væri betur statt í dag ef megin- þorri þegna þess væri þannig þenkjandi. Karl hafði fínbyggða en létta lund og var næmur á hið afbrigðilega í samfélaginu. Hann hafði mikla líkamsburði sem-kom oft berlega í ljós í hans daglegu störfum. Hann var ákaflega af- kastamikill og hirðusamur verk- maður svo eftirtekt og undrun vakti hjá þeim sem best til þekktu og mun hann ekki hafa ætlað sér oft á tíðum af í þeim efnum þar sem hann gekk ekki heill til skóg- ar nú í seinni tíð og lést hann á heimili sínu við störf síðla kvölds. Hann var fljótvirkur og stórvirkur í heimanbúnaði eins og honum var eðlislægt og hóf þegar göngu með risandi sól á vit hins ókunna og horfinna áa og ástvina. Við hin daglegu störf á heimil- inu naut Karl aðstoðar og dugnað- ar konu sinnar og barna sem lágu ekki á liði sínu að halda uppi reisn og myndarskap þessa gamla ætt- arseturs. Karl var góður heimilis- faðir og voru þau hjón samhent að veita börnum sínum gott og heil- brigt uppeldi og hvöttu þau til dáða með ýmsu móti. Því hefur sú hvatning nú þegar borið góðan ár- angur enda eðli og efniviður góður í þeim systkinum öllum. Stundum er sagt að maður komi manns í stað. Það mun rétt vera að heimurinn ferst ekki þó ein góð sál hverfi af sjónarsviðinu. Hins vegar hefur hver maður sinn lit ef svo má segja og Karl bar lit af sinni skapgerð, lífsreynslu og um- hverfi sem sést ekki meir. Margur mun sakna vinar, rabbstunda, veitinga og viðskipta við fráfall hans. Þessar fátæklegu línur eiga að færa eiginkonu hans Önnu Jó- hannesdóttur og nánustu ættingj- um hins látna innilegar samúð- arkveðjur. Kristinn Guðlaugsson Nýi gönguskálinn á Tungnahrygg. Gönguskáli reistur á Tungnahryggsjökli Dalvík, 22. mars. ÞANN 13. mars sl. var hópur manna úr Skagafirði og Eyjafirði utanverð- um staddur uppi á Tungnahryggs- jökli að ganga frá gönguskála sem unnið hefur verið við að koma þar upp. Tungnahryggsjökull er á Trölla- skaga en svo nefnist fjallgarðurinn sem skilur að byggðir Skagafjarðar og Eyjafjarðar. + Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö anc'lát og útför GUÐGEIRS ÓLAFSSONAR. Oktavia Ólafsdóttir (Thor Leifur A. Ólafsson, Guðjón Kristjánsson. »n). + Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúö viö andlát og útför eigin- manns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Hjallabrekku 7, Kópavogi. Margrét Síguróardóttir, Páll Ásgrímsson, Geirtrud Ásgrímsson, Katrín Asgrímsdóttir, Jörundur Guölaugsson, Arnþór Ásgrímsson, Eygló Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö fráfall og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, SIGFÚSAR HALLDÓRSSONAR, Hraunbæ 82. Sigurborg Helgadóttir, Halldór Sigfússon, Jófríóur Hanna Sigfúsdóttir, Brynja Sigfúsdóttir, Guórún Sigfúsdóttir, Jóhanna Ósk Sigfúsdóttir, Anton Sigfússon, og barnabörn. Steinar Ragnarsson, Jón Axel Steindórsson, Jóhann Páll Valdimarsson, Sigurður Sigurösson, Magnea Þorfinnsdóttir, Það var Ferðafélag Svarfdæla sem hrinti þeirri hugmynd í fram- kvæmd að byggja gönguskála á Tungnahryggsjökli en úr Skíðadal er gönguleið yfir jökulinn ofan í Skagafjörð. Fékk Ferðafélagið til liðs við sig Pál Pálsson, gamal- kunnan skálasmið hjá Ferðafélagi Islands, og kom Páll norður í Svarfaðardal sumarið 1980 og smíðaði skálann ásamt Júlíusi Friðrikssyni, bónda í Gröf. Til stóð að flytja skálann í hlutum með þyrlu úr Skíðadal upp á Tungnahrygg en ýmis Ijón voru í veginum. Síðastliðið sumar gekk svo Ferðafélag Skagafjarðar til liðs við Svarfdælinga og var skál- inn fluttur til Skagafjarðar þar sem hann var settur saman og komið fyrir á ýtusleða. Þannig var hann fluttur fram í Kolbeinsdal og þaðan upp á Tungnahrygg þar sem honum var komið fyrir á þar til gerðum undirstöðum, en úr Kolbeinsdal er nokkuð greið leið að skálanum. Þann 13. mars sl. voru svo sam- an komnir um 27 manns á Tungnahrygg til að ganga frá skálanum en þar er skálinn stað- settur í um 1200 m hæð yfir sjó á melrana í norðurjaðri Tungna- hryggs. I skálanum eru kojur fyrir 8 menn en ef þröngt er setið mætti koma fleirum þar fyrir. Veðurfar var fremur leiðinlegt þennan dag, syrti að seinni hluta dags með stormi og hríð svo varla var stætt •við framkvæmdir. Aðfaranótt 14. mars gistu í skálanum 8 manns er unnið höfðu að frágangi skáians, 4 skíðamenn úr Svarfaðardal og 4 Skagfirðingar en í býtið á sunnu- dagsmorgun var haldið til byggða Skagafjarðar niður Kolbeinsal en þá var komið stillt veður en mjög blindað sökum snjókomu og þoku. Komið var niður að Víðinesi í Hjaltadal um kl. 14.30. Fréttaritarar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.