Morgunblaðið - 03.04.1982, Side 17

Morgunblaðið - 03.04.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRIL 1982 17 aldrei góöri lukku að stýra eins og dæmin sýna okkur, jafnvel frá síð- ustu vikum. Tökum í útrétta hönd FriÖjóns Það hefur vissulega vakið þjóð- arathygli, að Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra skuli sýna þann drengskap heima í sínu kjör- dæmi að viðurkenna þá staðreynd, að nauðsynlegt sé að ríkisstjórnin fari frá áður en efnt verði til nýrra kosninga, til þess að Sjálf- stæðisflokkurinn komi sem sterkastur út úr þeim. Enginn vafi er á því að Friðjón hefur orðið fyrir áhrifum og tekur með þess- ari afstöðu tillit til þeirra sjón- armiða, sem hann hefur orðið var við í einkaviðtölum og á fundum með stuðningsmönnum sínum fyrir vestan. í hnotskurn má orða þessa hugsun svo, að þýðing Sjálfstæðisflokksins fyrir land og þjóð verði ekki borin saman við persónulega hagsmuni neins ein- staklings, hversu stór í sniðunum sem hann kann að þykjast vera. Ekki skorast ég undan því að við- urkenna, að á valdatíma þessarar ríkisstjórnar hafi ég oftar en ekki tekið djúpt í árinni og stundum um of, kannske. Einmitt vegna þess hlýt ég nú að taka í framrétta hönd dómsmálaráðherra og er reiðubúinn að vinna að því með honum drengilega og opinskátt að finna leiðir út úr þeirri sjálfheldu sem Sjálfstæðisflokkurinn óneit- anlega er í á Alþingi. Og verður meðan ríkisstjórnin situr. Þetta skiljum við Friðjón báðir. Þetta verður að þróast. Mikilvægasti áfanginn í bili eru sveitarstjórn- arkosningarnar. Síðan verða menn að meta stöðuna að nýju og vinna úr henni eins vel og hún gef- ur tilefni til. Kjörorð okkar nú hlýtur að vera: Stöndum aftur saman. Sjálfstæðismaður með sjálf- stæðismanni. Vinnum gömlu vígin á ný. "ERU ÞINGFRÉTTIRNRR BÚNflK, JÓNRTRN?" FÆÐA HEILBRIGÐI Eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson dósent Innan þessara marka er rúm fyrir nærri því ótakmarkaða fjöl- breytni í fæðuvali og hreyfingu. Einnig getur verið gott að breyta um umhverfi, jafnvel taka upp nýja tómstundaiðju ef kostur er. Best er þegar megrunin verður upphafið að betri lífsvenjum þar sem hollfæði og hollusta eru höfð í fyrirrúmi, en óskynsamlegir siðir lagðir af, helst fyrir fullt og allt. Ef viðkomandi býr einn eða þarf ekki að hugsa um matseld fyrir aðra getur verið best að reyna að hætta að miklu leyti að hugsa um mat án þess þó að máltíðaskipan fari úr skorðum. Flcstum hentar betur að taka allt sitt neyslumynstur til endur- skoðunar og betrumbæta það. Skipuleggja kúrinn vandlega og hafa ávallt ráð við þeim vandamál- um sem upp kunna að koma. Oft er það ekki megrunin sjálf sem er erfiðust heldur hitt að falla ekki í gamla farið að henni lokinni. Þess vegna þarf að gera varanlega breytingu á hegðun- armynstri og neysluvenjum. Hvað fæðinu viðkemur á að leggja áherslu á allt grænmeti, gróft korn, kartöflur, magurt (fitu- skorið) kjöt, magran fisk, skelfisk og magrar mjólkurafurðir (m.a. kotasælu, skyr, léttmjólk). Notfærið ykkur til hins ýtrasta að af sumum tegundum grænmetis má borða ótakmarkað magn. Gild- ir það m.a. um gúrkur, tómata, papriku, kálmeti, salat og sveppi. Reynið jafnframt að lagfæra matseldina. Glóðarsteikið, bakið eða sjóðið (í sem minnstu vatni) fæðuna í stað fitusteikingar. Drag- ið sem mest úr notkun fitu og syk- urs í allri matargerð. Notið tækifæriö og dragið var- anlega úr allri neyslu á djúpsteikt- um mat, feitum hamborgurum, pylsum, bjúgum, sælgæti og gosi. Sparið jafnframt feitar sósur og feitmeti. Þeir sem fara oft á veitingahús ættu að hafa í huga að það er í tísku að borða einungis smárétti, jafnvel forrétt eða súpu eingöngu. Með því móti er líka hægt að kom- ast oftar út að borða. Reynið að koma máltíðum í fastar skorður. Sleppið ekki úr máltíöum og síst af öllu morgun- verði. Borðið sem minnst milli mála og helst ekkert eftir kvöld- mat. Það er óþarfi að hræðast það þótt megrunin fari einstöku sinn- um úr skorðum. Ekki þarf heldur að hafa áhyggjur af því þótt lík- amsþunginn standi stundum í stað i fáeina daga. Forðist sem mest spennu og streitu meðan á megruninni stendur. Streita getur hæglega leitt til ofáts sem aftur leiðir af sér meiri streitu og svo koll af kolli. Mikilvægt er að fullvissa sjálf- an sig um að maður ráði fyllilega við kúrinn. Það sem helst þarf að óttast er óttinn sjálfur. En ótti við megrun eða ofát er óþarfa aukaálag. Meginatriðið er að þér fer smám saman að líða betur. Þú ert að reyna að breyta lífi þínu í annan farveg þar sem holl fæða og skynsamlegar lífsvenjur sitja í fyrirrúmi nú og framvegis. Að lokum þetta: Ef þú missir kíló á viku er Ijóst að megrun get- ur tekið langan tíma. Þú þarft auð- vitað þolinmæði og þrautseigju í talsverðum skömmtum. En það er þess virði. Vörumarkaðurinn hf. Sími 86113. Nýkominn Franskur og belgískur sumarfatnaður barna. Franskir smábarnaskór og ungbarna- fatnaður frá Frakklandi og Spáni. Opið til kl. 4 í dag Bruarland Klógaröui v Hagalandi 4, Mosfellssveit (við Álafoss) laugardag og sunnudag kl. 1 — 6. HELGAFELL ‘frn Hér sjáið þið nýjasta útlitið frá INVITA, Sanne P, úr massífri eik, líka til úr furu eða mahogni. Eidaskálinn býður 39 gerðir INVITA innréttinga i allt húsið. Bjóðum sérsmiðaðar INVITA innréttingar með öllum kostum staðlaðra skápaeininga. Möguleikarnir eru næstum óendanlegir. Látið okkur að- stoða viö skipulagningu heimilis- ins. INVITA hentar alls staðar. INVÍTA innréttingar i allt húsid Komid - sjáid og sannfærist um gædin frá INVITA ELDASKALINN GRENSÁSVEG112, 101 REYKJAVÍK SIMI: 91-39520 & 91-39270 -»... «-'m * » — «. » — -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.