Morgunblaðið - 03.04.1982, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982
H
Koupku
Lionsconnbursbo
um halgino
b'l styrkfcor
öldruöum
LIONSKLÚBBURINN
FJÖLNIR
Sovésk „inn-
rás“ í Noreg
Osló, 2. apríl.
Krá Jan Krik Lauré, fréllarilara Mbl.
FJÓRIIM sovéskum vöruflutninga-
birreiðum var í dag ekið úr vöru-
flutningaskipi upp á hafnarbakkann
i Drammen. Var það að sögn gert til
að koma mætti öðrum bílum, sem
voru í flutningaskipinu, í land. Allur
bílainnflutningur til Noregs fer um
höfnina í Drammen.
Þessi sovéska „innrás" er frek-
leg móðgun við Norðmenn. Sov-
ésku bílarnir höfðu alls ekkert
leyfi til að fara i land. Þetta er
nánast endurtekning á atburði,
sem átti sér stað fyrir réttu ári.
Þá fóru 11 sovéskar vörubifreiðir,
sem áttu að fara til Angóla, á land
í höfninni í Drammen. Norðmenn
mótmæltu þá harðlega, án nokk-
urs sýnilegs árangurs.
Atburður þessi var tilkynntur
bæði utanríkisráðuneytinu norska
svo og dómsmálaráðuneytinu, sem
væntanlega munu bera fram harð-
orð mótmæli við sovéska sendi-
herrann í Osló.
Stjórn Willoch
situr áfram
Osló, 2. apríl.
Frá Jan Krik Ijiuré, fréltaritara Mbl.
KTJÓRN Kaare Willoch heldur enn
velli í Noregi, en ekki mátti miklu
muna að hún tapaði meirihluta sín-
um í Stórþinginu vegna svonefnds
Reksten-máls. Við atkvæðagreiðslu
um málið munaði aðeins einu at-
kvæði á þinginu.
Geysileg umræða hefur orðið
um þetta mál í Noregi að undan-
förnu. Snýst það um ríkisábyrgð
fyrri ríkisstjórnar á láni til út-
gerðarmannsins Hilmars Reksten.
Eldgosið í Mexíkó:
10.000 manns eru ein-
angraðir á gossvæðinu
Pilchucalco, Mcxíkó, 2. apríi.
VANDR/KÐAÁSTAND ríkir nú á
gossvæðinu í Tabasco-héraði í SA-
Mexíkó. Héraðið er eitt mesta ræktun-
arsvæði landsins. llm 10.00(1 manns
hafa verið innilokaðir í nágrenni eld-
fjallsins, El ( hiconal, frá þvi á mánu-
dag er fjallið gaus fyrst.
Stórhættulegt er að reyna að nálg-
ast fólkið úr lofti því aska sest í
flugvélahreyfla og stöðvar þá. Þá er
einnig talið vonlítið að reyna þyrlu-
flug af sömu ástæðum. Hins vegar
hefur hjálpargögnum verið varpað
niður hátt úr lofti. Óvíst er hvort
þau hafa komist til fólksins.
Björgunarsveitir hafa enn ekki
komist landleiðina til fólksins vegna
rúmlega hálfs metra þykks öskulags
á jörðu niðri. Undir venjulegum
kringumstæðum tekur það um 10
stundir að komast til þorpanna, sem
eru einangruð, en engir vegir liggja
að þeim — aðeins stígar.
Norskir þingmenn
uppvísir að smygli
Hermaður í El Salvador dregur látinn skæruliða á brott eftir átök, sem urðu við kjörstað í nágrenni San Salvador.
Bandaríkjamenn veita
áframhaldandi stuðning
1‘arís ojí Bonn, 2. apríl. Al*.
ALKXANDKR Haig, utanríkisráð-
herra Kandaríkjanna, lét hafa eftir
sér í frönsku dagblaði, að ólíklegt
væri að skæruliðar vinstrimanna
na'ðu undirtökunum i Kl Salvador.
Sagði hann stjórnvöldum ekki
standa meiri ógn af skæruliðunum
nú en fyrir ári.
Haig sagði ennfremur að ef bar-
átta skæruliðanna gegn stjórn-
völdum héldi áfram eftir þing-
setninguna í landinu myndi
Bandaríkjastjórn veita stjórn-
völdum nauðsynlegan stuðning tii
að halda velli i baráttunni gegn
skæruliðunum.
Alheimsfundur krata, sem hald-
inn hefur verið í Bonn fyrir Jukt-
um dyrum undanfarna tvo daga,
fordæmdi íhlutun Bandaríkja-
manna og Kúbu í málefni E1
Salvador. Sagði ennfremur í yfir-
lýsingu fundarins að kosningarnar
á sunnudag leystu engan vanda í
landinu. Var þar hvatt til samn-
ingaviðræðna til að binda enda á
borgarastyrjöldina, sem geisað
hefur undanfarin tvö ár.
Þá var frá því skýrt í dag að
einn leiðtoga hægri manna í El
Salvador, Robert D'Aubnisson,
fengi framvegis leyfi til að heim-
sækja Bandaríkin. Honum var
bannað að koma til landsins í
stjórnartíð Jimmy Carters, fyrr-
um Bandaríkjaforseta.
Veður
víöa um heim
Akureyri vantar
Amsterdam 10 heióskírt
Aþena 18 rigning
Bangkok 35 heiðskfrt
Beirút 24 skýjað
Berlín 20 sól
BrUssel 13 skýjað
Buenos Aires 25 rigning
Chicago 18 skýjaö
Dublin 13 skýjað
Frankturt 17 heiöskirt
Genl 12 heiðskirt
Helsínki 10 heiðskírt
Hong Kong 22 rtgning
Honolulu 27 skýjað
Jerúsalem 24 skýjað
Jóhannesarborg 27 heiðskirt
K aupmannahöfn 7 sól
Kairó 23 skýjaö
Lissabon 15 heiðskírt
London 13 skýjað
Los Angeles 15 skýjaö
Madrid 12 sól
Manila 35 bjart
Mexicoborg 31 heiðakírt
Miami 26 skýjað
Montevídeo 24 heióskirt
Montreal 14 heiðskirt
Moskva 4 skýjaö
New York 19 skýjað
Osló 3 skýjað
Paris 14 skýjað
Perth 24 bjart
Reykjavik vantar
Rió de Janeiró 30 skýjað
Róm 22 heiöskirt
San Francisco 10 rigning
Santiago 20 skýjað
Sao Paulo 26 skýjað
Singapore 32 rigning
Stokkhólmur 14 sól
Sydney vantar
Tel Aviv 27 heiöskirt
Tókió 15 skýjað
Toronto 8 rok
Vancouver 6 heiðskirt
Vínarborg 13 heiðskfrt
Osló, 2. apríl, frá Jan Krik Lauré, frétUmanni
KORMAÐIIR iðnaðarmálanefndar
norska Stórþingsins hefur ákært
nokkra nefndarmenn fyrir það, sem
hann nefnir skýlaust brot á reglugerð
um innflutning tollfrjáls varnings. Seg-
ir hann nokkra nefndarmanna hafa
flutt tollfrjálsan varning með sér til
landsins í trássi við lög. Aumt sé til
þess að vita að þingmenn skuli ekki
þekkja landslög betur en raun beri
vitni.
ERLENT
Morgunblaósins.
Smygl það sem formaðurinn vitn-
• ar til var þegar nokkrir nefndar-
manna fóru með þyrlu út í einn olíu-
pallanna á Norðursjó. Þar var
tollfrjáls varningur til sölu. Keyptu
mennirnir talsvert af vindlingum,
súkkulaði og ilmvötnum.
I Noregi er óheimilt að koma með
lollfrjálsan varning til landsins
nema dvalist hafi verið utan land-
helgi í að minnsta kosti einn sól-
arhring. „Ég er sannfærður um að
það var ekki ætlun nefndarmann-
anna að smygla þessum vörum. Hins
vegar er lágmarkskrafa að þeir
þekki eigin landslög."
Mennirnir, sem um ræðir, þurftu
ekki að gangast undir tollskoðun er
þeir sneru aftur til lands eftir heim-
sóknina á borpallinn. Nefndarfor-
maðurinn hefur hins vegar ákveðið
að nafngreina þá ekki. „Eg er enginn
uppljóstrari,“ segir hann.