Morgunblaðið - 03.04.1982, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982
29
Löggæslumál á Seltjamarnesi:
Hugmyndum
ríkisvalds-
ins mótmælt
Eftir Magnús
Erlendsson bæjar-
fulltrúa
Fyrir réttum áratug var Sel-
tjarnarnes hreppsfélag og íbúar
hreppsins um sautján hundruð. Þá
önnuðust tveir lögreglumenn lög-
gæslu í hreppnum. Nú, áratug síð-
ar, er Seltjarnarneskaupstaður í
hópi stærri kaupstaða landsins,
íbúar á fjórða þúsund, en sem fyrr
aðeins tveir lögreglumenn að
störfum. Hér hefur ríkisvaldið
brugðist hrapallega, því þrátt
fyrir árlegar áskoranir og beiðnir
bæjaryfirvalda á Seltjarnarnesi
um fjölgun lögreglumanna, hefur
hið opinbera látið þessar beiðnir
sem vind um eyrun þjóta.
Magnús Krlendsson
Einstakir hæfíleikamcnn
Það hefur hinsvegar verið lán
íbúa bæjarins að þeir tveir lög-
reglumenn, sem hér hafa báðir
starfað um langt árabil, hafa
reynst einstakir embættismenn í
starfi, og hlotið lof og traust íbú-
anna sakir mannkosta og árvekni.
Sem dæmi þar um má geta þess,
sem vafalítið er einsdæmi, að bæj-
arstjórn Seltjarnarneskaupstaðar
samþykkti samhljóða fyrir rúmu
ári, að senda lögreglumönnunum
báðum þakkarbréf bæjaryfirvalda
fyrir vel unnin störf. A margan
hátt minna vinnuaðferðir lög-
reglumannanna tveggja á það sem
best þekkist t.d. í Bretlandi, en á
degi hverjum ekur lögreglumaður
um allar götur Seltjarnarnesbæj-
ar minnst tvisvar til þrisvar sinn-
um, athugar hvort eitthvað sé at-
hugavert við hús eða íbúðir, og
lætur viðkomandi húseigendur
vita ef eitthvað óeðlilegt er á ferð-
inni. Þessi þjónusta við íbúana er
mjög þakkarverð og jafnframt
ómetanleg. Annar þáttur þessa
máls er ekki minna virði, æskan í
bænum lítur lögreglumennina tvo
sem vini og félaga, en ekki óper-
sónulegt yfirvald sem beri að
óttast.
Óeölilegt vinnuálag
Að baki þessarar góðu þjónustu
liggur hins vegar óeðlilegt vinnu-
álag. Hvor lögreglumaðurinn fyrir
sig verður að leggja á sig 10 tíma
vinnuálag dag hvern og síðan
bakvakt það sem eftir er nætur.
Til langframa telst slíkt til vinnu-
þrælkunar og á ekki að þekkjast.
Sú hlið málsins sem þó er öllu al-
varlegri, snýr að því að vera að-
eins einn í starfi. Þótt íbúar Sel-
tjarnarnesbæjar séu upp til hópa
friðsemdarfólk og löghlýðið, er
þar sem annars staðar misjafn
sauður í mörgu fé, og þeir atburðir
hafa skeð að lögreglumennirnir
hafa slasast, og það jafnvel alvar-
lega í ryskingum við ólánsfólk.
Væri hér framfylgt lögum um
fjölda lögreglumanna, hefði mátt
afstýra mörgum þessara slysa.
Krafa bæjaryfirvalda og bæjar-
búa er því skýlaus. Framfylgt sé
lögum um einn lögreglumann á
hverja 500 íbúa.
Hugmyndir ríkisvaldsins
Nú hafa þær fréttir borist, að
dómsmálaráðuneytið íhugi að
leggja fyrir Alþingi frumvarp til
laga um breytingu á lögum nr. 74
27. apríl 1972 um skipan dóms-
valda í héraði, lögreglustjórn o.fl.
Samkvæmt þessum hugmyndum
myndi Seltjarnarneskaupstaður
teljast til umdæmis Reykjavíkur
um lögreglustjórn alla. Bæjar-
stjórn Seltjarnarneskaupstaðar
hefur samhljóða með atkvæðum
bæjarfulltrúa allra flokka mót-
mælt þessum hugmyndum. Bæjar-
yfirvöld hafa ekki á móti hagræð-
ingu í rekstri löggæslu eða sparn-
aði, en telja frumvarpið lítið
framlag í þeim efnum, þar sem
ekki er ráðist í endurskipulag alls
höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt
myndi við tilkomu lögreglumanna
frá Reykjavík hverfa hið mann-
eskjulegu persónulega samband
þegar tugir lögreglumanna hefðu
hér vaktstöðu til skiptis.
1‘jónustuskrifstofa
fógetaembættis
Seltjarnarnes hlaut kaupstað-
arréttindi 9. apríl 1974. Frá þeim
tíma hefur þar verið rekin þjón-
ustuskrifstofa frá fógetaembætt-
inu í Hafnarfirði. Þar hafa íbúar
bæjarins getað fengið ýmis gögn,
samanber veðbókarvottorð, öku-
skírteini, vegabréf o.s.frv. Sú al-
varlega hætta er fyrir hendi, að
við breytingu á skipan dómsvalda
í héraði, yrði sú þjónusta flutt úr
bænum. Slíkt væri óheillaskref
áratug aftur í tímann, og yrði
kröftuglega mótmælt, ekki aðeins
af bæjaryfirvöldum, heldur öllum
ibúum bæjarins. Seltirningar gera
þá kröfu til allra þingmanna
Reykjaneskjördæmis, hvar í flokki
sem þeir standa, að þeir haldi
vöku sinni og komi í veg fyrir að
ríkisvaldið dragi úr þeirri þjón-
ustu sem sístækkandi kaupstaður
á skýlausan rétt á.
Árásir á sendiráð
BANDARÍSKA sendiráðið í Guate-
rnala varð fyrir árás á fimmtudafr,
sprengja sprakk við handaríska sendi-
herrabústaðinn í Aþenu og skotið var á
ítalska sendiráðið i Teheran — þriðja
sendiráðið þar á fáeinum dögum.
Skotárásin á sendiráð Bandaríkj-
anna í Guatemalaborg var gerð í
skjóli myrkurs, en engan sakaði og
lítið tjón varð á byggingunni, þótt
sprengjukúlur færu gegnum veggi.
Síðasta árásin á sendiráðið var gerð
í október sl.
Heimagerð sprengja sprakk fyrir
utan bústað sendiherra Bandaríkj-
anna í Aþenu og sketnmdir urðu á
vegg sem umlykur garðinn, en engan
sakaði. Vinstrihópur, sem kallar sig
„Byitingarbaráttu alþýðunnar"
(ELA) og hefur játað á sig rúmlega
12 sprengjuárásir undanfarin fjögur
ár, sagðist bera ábyrgðina á spreng-
ingunni. Þetta var fyrsta árásin á
sendiherrabústaðinn í rúm 20 ár.
Að minnsta kosti þrír menn létu
kúlum rigna yfir sendiráð Ítalíu í
Teheran og þar með hafa þrjár árás-
ir verið gerðar á sendiráðið á einni
viku. ítalski sendiherrann hefur beð-
ið írönsk stjórnvöld um aukna vernd.
Engan sakaði í síðustu árásinni og
lítið tjón varð. (AP).
Basar
Kökubasar og flóamarkaöur verður haldinn í Fram-
heimilinu í dag laugardaginn 3. apríl kl. 14.00.
Framkonur.
Buxur kr. 299,-
Blússur kr. 130,- kr. 450,-
Kjólar kr. 275,-
Jakkar kr. 355,-
VERZLUNIN blb!
Frakkastíg 12, s. 11699.
Nýr oa stærri matseðill
Skyndibitastaður
Hagamel 67. Sími 26070.
Góðborgari kr. 29,00
Góðborgari meó osti kr. 33,00
Góóborgari
m/osti og skinku kr. 39,00
Aukaborgari
meó ofangreindu kr. 10,00
Fiskborgari kr. 28,00
Roast beef borgari kr. 39,00
Franskar kartöflur kr. 14,00
Hrósalat kr. 11,00—15,00
Kokteil- eóa
remoulaóisósa kr. 11,00—15,00
Kjúklingsósa kr. 8,00—10,00
V« grillkjúklingur kr. 36,00
Vt grillkjúklingur kr. 65,00
UM HELGAR
Bernaisesósa kr. 16,00—21,00
Rjómasveppasósa kr. 14,00
Rauðvínssósa kr. 13,00
Karrýsósa kr. 12,00
Kynning 3. og 4. apríl
V« grillkjúklingur, fransk-
ar kartöflur, kjúklinga-
sósa og glas af kóki,
verð kr. 58,00.
Matreiðslumeistari: Birgir Viðar Halldórsson