Morgunblaðið - 03.04.1982, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982
35
Skagfirska söng-
sveitin í Reykja-
vík og sæluvikan
Eftir Jón Björnsson
Sæluvika Skagfirðinga hófst
þann 21. mars. Það hefur verið ár-
legur viðburður í fleiri tugi ára að
halda þessa skemmtiviku sem
kölluð er „sæluvika" seinni part
vetrar — eða nánar tiltekið um
mánaðamótin mars—apríl. Það
eiga margir af eldri kynslóðinni
góðar minningar frá þeim gömlu,
góðu dögum, því ekki voru
skemmtiatriðin síðri þá en nú til
dags. Sýnd voru ágætis leikrit eins
og t.d. Ævintýri á gönguför, Lén-
harður fógeti, Skugga-Sveinn o.fl.
Ennfremur voru sýndar „revíur".
Einnig voru málfundir haldnir þar
sem ýmsir ræðumenn ræddu þau
mál sem efst voru á baugi í hérað-
inu. (Þá var Blanda ekki komin til
sögunnar.) En allir skemmtu sér
konunglega.
Nú er þetta orðið allt öðruvísi
1982. Það má segja að sæluvikan í
dag sé svipuð og aðrar vikur árs-
ins — þar sem skemmtanahald er
orðð óslitið um hverja einustu
helgi. En vissulega er þó ýmislegt
jákvætt sem boðið er upp á nú
þessi seinni ár. En að þessu sinni
komu hingað góðir gestir sunnan
yfir heiðar. Skagfirska söngsveit-
in í Reykjavík kom fljúgandi á
föstudag í sæluviku 26. mars, alls
70—80 manns.
Söngsveitin söng hér í Bifröst
undir stjórn Snæbjargar Snæ-
bjarnardóttur á föstudag kl. 8.30
og laugardag kl. 3 fyrir troðfullu
húsi, við mjög góðar undirtektir
áheyrenda. Snæbjörg er frábær
söngstjóri og hefur sjáaniega
mjög næmt eyra. Einnig hefur
hún mjög góðan efnivið að vinna
úr.
Á söngskrá voru 18 lög. Mörg
þeirra mjög vandasöm í flutningi
eins og t.d. lög eftir G. Rossini og
G. Verdi o.fl. Einsöngvarar voru
fimm. Steinn Erlingsson söng lag
úr Rakaranum frá Sevilla með
miklum glæsibrag. Hlíf Káradótt-
ir sópran og Sverrir Guðmundsson
tenór sungu bæði einsöng og tví-
söng í iaginu Vald örlaganna eftir
Giuseppe Verdi. Ennfremur sungu
þau einsöng og tvísöng í fleiri lög-
um með miklum ágætum. Snorri
Þórðarson söng einsöng í laginu
Hraustir menn eftir Romberg og
gerði því vissulega góð skil. Þó er
þetta lag erfitt í söng og mjög
þekkt og sungið oft af öðrum. Ein-
ar Lúthersson, kallaður sólókall-
ari í söngskrá, söng í rímnalagi
eftir Jón Ásgeirsson. Þetta lag féll
ekki í minn smekk. (En það getur
svp sem verið ágætt fyrir því.)
í stuttu máli má segja að þetta
„prógram" allt væri viðamikið og
erfitt. I heild var kórinn vel sam-
æfður. Samræmi í röddum yfir-
leitt gott. Tenórinn hefði mátt á
stundum halda svolítið betur í við
bassann. En kórinn og einsöngvar-
ar skiluðu þessu öllu með mikilli
prýði. Snæbjörg var heldur ekki
að halda aftur af því í „forte-
söng“. Það má segja að söngstjór-
inn hafi spilað á kórinn eins og
hljóðfæri.
Undirleikari var hinn kunni öðl-
ingur, Ólafur Vignir Albertsson,
sem lék á píanóið af sinni alkunnu
list eins og hans var von og vísa.
Kórinn varð að endurtaka mörg
lög og syngja fjölda aukalaga.
Áheyrendur kunnu vel að meta
þennan ágæta söng, enda mikið
klappað og aidrei ætlaði að linna.
Og vissulega setti söngsveitin
mikinn svip á sæluvikuna að þessu
sinni.
Söngstjóri, undirleikari og
söngfólk, hafið þökk fyrir komuna
og syngið um sólina og komandi
vor. Lifið heil.
Þorlákshöfn:
Tregur afli alla-
an marsmánuð
1‘orlákshofn, 2. apríl.
HÉK IIEFIIK verið mjög slæm tíð og
tregur afli allan marsmánuð og ekki
nein veruleg breyting á því enn hvað
snertir afla, en gæftir eru betri núna.
En þá er að koma stopp og er því
heldur lítil von um páskahrotu að
þessu sinni þar sem tveir róðrar eru
eftir fram að því að öll veiðarfæri eiga
að vera komin á land.
Bátafiskur á land kominn nú eru
16.720 tonn en á sama tíma í fyrra
10.726 tonn. Bátarnir eru miklu
fleiri nú eða 40 á móti 25 í fyrra.
Togaraafli nú er um 1.900 tonn. Þrír
afiahæstu bátarnir eru Njörður
með 726 tonn, Arnar með 705 tonn
og Húnaröst með 644 tonn. í frysti-
húsi Meitilsins hf. hefur verið unn-
in dagvinna að undanförnu. 75
stúlkur vinna þar við snyrtingu og
pökkun. Það þarf því mikinn fisk til
handa slíku húsi ef á að vinna með
fullum afköstum. En nú hefur ann-
ar togari fyrirtækisins verið í slipp
og er reyndar ókominn enn og þá er
erfitt um vik. Þó hefur það tekist
undravel að haida dagvinnu í hús-
inu enda unnin bátafiskur meðfram
eins og hægt hefur verið að þessu
sinni. Kagnheiður.
DREGINN ÚT 6. APRIL
Húseign að eigin vali fyrir 700.000.* krónur.
Langstærsti vinningur á einn miða hérlendis.
Happdrætti
Nú má enginn gleyma að endurnýja!