Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 31 „Progressive tension". Eitt af fáum verkanna á vefnaðarsýningunni sem er eftir karlmann, Kanadamanninn Marcel Marois. Sinfóníuhljómsveit Lundúna leikur í tónleikasalnum sem tekur rúmlega 2000 manns í sæti. Tónleikasalurinn er stærsti salur Barbican og þykir hljómburður þar með afbrigðum góður. árum og staðið af sér alla storma Barbican-galleríið. „Dómararnir“ eftir André Fougeron, 1950. sem hafa verið ófáir i gegnum tíðina. Á „AFTERMATH“-sýningunni er að finna þennan skemmtilega járn- skúlptúr eftir Picasso. „Kona með kerru“, heitir hann og er frá árinu 1950. (I.jósm. Mbl.: hhs.) það er sú franska sýning „After- math (sem þýða má eftirköst) 1945—54“. „Það sem gefur að líta í Barbican eru einmitt ein allsherj- ar eftirköst eftir eftirstríðsárin, ömurlegasta tímabilið í sögu breskrar byggingarlistar," segir Gradidge í greininni. Hann ber lof á allt skipulag innandyra en segir síðan að það sé undarleg árátta meðal breskra, sem ættu að hafa nóg af grárri Lundúnaþokunni, að vilja endilega flytja hana með sér inn í híbýli sín líka. það verður þó að segjast þeim er lögðu síðustu hönd á verkið fyrir opnunina til hróss að reynt hefur verið eftir föngum að draga úr grámósku steypunnar og ýmsir möguleikar eru skemmtilega nýtt- ir. Gróðurhús utan um leikhús Ekki eru allar vistarverur Barbican komnar í gagnið þó að af nógu sé að taka nú þegar. Barbi- can-leikhúsið verður ekki opnað fyrr en í byrjun júní, en þá hefur Royal Shakespeare Theatre, sem þarna hefur loksins öðlast fast heimilisfang, sýningar á Hinriki IV, eftir meistarann, að sjálf- sögðu. Leikhúsið er hannað í ná- inni samvinnu við leikhúsfólk, og uppfyllir að sögn fróðra manna marga drauma þess. M.a. þann að geta alltaf horft framan í áhorf- endur, sama hvar staðið er á svið- inu. Engar raðir eru meðfram bekkjunum, heldur gengið beint inn í þá úr anddyrinu. Það er því eins gott að vera ekki seinn fyrir og álpast inn í vitlausan bekk. Yfir leiksviðinu er gríðarmikill geimur þar sem hægt er að hafa sviðsmyndir allt að sex leikrita til taks og láta síga niður á sviðið eftir hentugleika. Er séð var fram á að þessi „sviðsgeymsla" yrði, séð að utan, enn einn steinkumbald- inn, var brugðið á það ráð að gera gróðurhús utan um turninn, sem nú þjónar ágætum tilgangi jafnt utan sem innan. I tónleik^alnum hefur Sinfón- íuhljómsveit Lundúna hafið tón- leikahald og þykir hljómburður- inn með því besta sem völ er á, enda miklu til kostað að svo mætti verða. Oftar en einu sinni voru innviðir salarins, sem eru úr timbri að hluta, rifnir niður með- an á byggingunni stóð og ekki settir upp aftur fyrr en tónlist- armenn voru fyllilega ánægðir. Við opnunina stjórnaði Vladimir Ashkenazy hljómsveitinni, en í apríl munu m.a. fiðlusnillingurinn Yehudi Menuhin og píanóleikar- inn Cristina Ortez koma fram með sinfóníunni, svo eitthvað sé nefnt. I myndlistarsölunum stendur sýningin „Aftermath 1945—54“, sem áður var getið, til júníloka. En þá víkur hún fyrir sýningum sem tengjast „Festival of India“, mikilli Indlandshátið sem mun setja sterkan svip á listalífið í London í sumar. „Aftermath" er afar yfirgripsmikil sýning, fengin að láni hjá Pompidou-safninu í París. Þar er margt sem gleður augað; verk Picassos, Giacometti og ótal annarra snillinga, en sjón er sögu ríkari. Ekki er þó hægt að skilja við myndlistina í Barbican án þess að minnast á geysiskemmtilega sýn- ingu á kanadiskri vefnaðarlist sem prýðir anddyri og ganga til júníloka. Fyrir þá sem eru bæði listelskir og nýjungagjarnir er þessi sýning sannkallað gósenland og erfitt að ímynda sér að eitthvað geti fylgt í kjölfar hennar, sem hylji gráa veggi gímaldsins á jafn sannfærandi hátt. Völundarhús sem vert er að skoða Þegar inn í Barbican er komið í siærsta anddyri Harbican hangir stór stál- og akrílskúlptúr eftir ástralska listamanninn Michael J. Santry. Myndverkið er lýst upp að innan og á að tákna nokkurs konar hjarta Barbican. má segja að vegir liggi til allra átta — ekki bara út og suður held- ur líka upp og niður. A leiðinni í kvikmyndasalina, sem allir eru neðanjarðar, hefur til að mynda verið komið upp speglaborg sem skáskjótast þarf meðfram á leið í djúpið og gerir það að verkum að erfitt getur verið að átta sig á því hvort maður er á leið upp eða niður í völundarhúsinu. Blm. prís- aði sig sælan að vera í fylgd með þaulvönum manni, sem hefur það að atvinnu að svala forvitni fjöl- miðlafólks um báknið. Aðspurður kvað sá það aðeins hafa tekið sig þrjár vikur að læra áttirnar í hverjum krók og kima. Hvort það er met skal ekki fullyrt en hins vegar er engin ástæða til að ferða- menn láti stærð Barbican fæla sig frá því að fara í skoðunarferð á stað sem býður upp á jafn fjöl- breytta menningarneyslu. Eða, eins og það er orðað í auglýsing- um, sem þessa dagana blasa við um alla Lundúnaborg: „Fyrst að Sinfóníuhljómsveit Lundúna og Konunglega Shakespeare-leikhús- inu tókst að finna Barbican og gera það að heimili sínu, getið þið það líka.“ Á eftir má síðan fá sér bol, sem prentað hefur verið á: „Ég fann Barbican“. Þess má líka geta að fyrir þá sem eru fótgangandi í City nægir að koma auga á St. Páls kirkjuna, úr því er Barbican með allar sínar lystisemdir ekki langt undan. Fjórtán strætis- vagnaleiðir liggja þangað og einar tíú járnbrautastöðvar eru í nokk- urra skrefa fjarlægð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.