Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
IttorjjunWfiínfc
SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982
Manni ógn-
að með hnífi
í GÆR krafðist Rannsóknarlögregla riksins gKzluvarðhaldsúrskurðar yfir
tvítugum pilti vegna síbrota. Hann var ásamt félaga sínum handtekinn
síðastliðið fimmtudagskvöld skammt frá Hrafnistu. Starfsmaður sá til pilt-
anna þar sem þeir voru á 3. hæð elliheimilisins Hrafnistu við Laugarás og
kom að þeim í kjallara hússins. Þá voru þeir klæddir í sloppa bryta, höfðu
rótað talsvert í kjallaranum og var annar þeirra með kústskaft.
Styggð kom að piltunum og lögðu
þeir á flótta. Maðurinn tók á rás á
eftir þeim og náði öðrum þeirra,
þegar hann hrasaði. Þá snéri félagi
hans við og barði manninn með
kústskaftinu. Maðurinn snérist til
varnar og brá pilturinn þá hnífi á
loft og ógnaði manninum, sem lét
þá undan síga.
Hann gerði viðvart um piltana
og var eftirför hafin og voru þeir
teknir skömmu síðar. Atvik þetta
gerðist um klukkan 20 en fyrr um
daginn hafði sést til piltanna við
Hrafnistu.
Piltar þessir misþyrmdu nætur-
verði á Hrafnistu á hroðalegan
hátt í júní 1978. Þeir réðust á næt-
urvörðinn, sem var 66 ára gamall,
og börðu hann í höfuðið með tré-
kylfum svo hann hlaut alvarleg
höfuðmeiðsi og missti mikið blóð.
Hann úlnliðsbrotnaði og fingur-
brotnaði.
Annar piltanna sem þarna var að
verki, ruddist fyrir skömmu inn á
heimili aldraðra hjóna við Berg-
staðastræti, ásamt öðrum pilti.
Þeir réðust á húsráðanda, sem er
81 árs, slitu síma úr sambandi og
kröfðust peninga. Gömlu hjónin
létu mennina fá það fé, sem þau
höfðu handbært, 1.400 krónur og
höfðu þeir sig á brott.
Sá er RLR hefur krafist gæzlu-
varðhalds yfir, var látinn laus úr
fangelsi þann 9. marz síðastliðinn
en hinn var á skilorðsbundinni
reynslulausn og hefur hann nú ver-
ið látinn hefja afplánun eftirstöðva
refsidóms síns. Þeir hafa ítrekað
brotið af sér frá 1978.
Tíð núverandi ríkisstjórnar:
Dollaraverð hefur
hækkað um 157,65%
SÖLUGENGI Bandaríkjadollara hef-
ur hækkað um 0,6% frá því á þriðju-
daginn, en þá var gengið skráð
10.288 krónur, en í gærdag var það
skráð 10.350 krónur.
Frá 1. apríl sl. hefur sölugengi
Bandaríkjadollara hækkað um
1,20%, en þann dag var gengið
skráð 10.228 krónur. Ef þróunin er
hins vegar skoðuð frá því, að ríkis-
stjórnin heimilaði formlegt geng-
issig 4. marz sl. kemur í ljós, að
sölugengi Bandaríkjadollara hefur
hækkað um 5,3%, en þann dag var
það skráð 9.829 krónur.
Frá áramótum hefur sölugengi
Bandaríkjadollara hækkað um
26,45%, en síðasta dag ársins var
gengið skráð 8.185 krónur. Þá má
geta þess, að sölugengi Banda-
ríkjadollara hefur hækkað um
157,65% frá því að núverandi ríkis-
stjórn tók við völdum í febrúar
1980, en þá var gengið skráð 4.017
krónur.
LOÐNUVEIÐAR í LOÐNUVEIÐIBANNI — Loðna gekk inn á Eyjafjörð, sem og fleiri firði og
flóa Norðanlands, rétt fyrir páska. Fullvaxnir veiðimenn náðu sér í loðnu til beitu og strákarnir á
Akureyri létu sitt ekki eftir liggja. Þeir mættu niður á Höfners-bryggju með stangirnar sínar og kræktu
síðan loðnu upp á bryggjuna og iðulega voru 3—4 loðnur á spæninum. (Ljósm. — áij).
„Mikil örtröð báta
með öllu landi“
Skreiðarmarkaður
í Nígeríu:
„Ekki vitað
hvenær hann
opnastá ný“
— segir Luke Osobase
nýskipaður sendiherra
Nígeríu á íslandi
„ÞVÍ miður, þá get ég ekki sagt neitt
um hvenær skreiðarmarkaðurinn i
Nígeríu opnast á nýjan leik. Það eru til
birgðir í landinu og við eigum við
mikla efnahagsörðugleika að stríða,"
sagði Luke Osoba.se, nýskipaður
sendiherra Nígeríu á íslandi, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann, en
Osoba.se hefur aðsetur í Dublin á. ír-
landi.
Osobase mun afhenda Vigdísi
Finnbogadóttur, forseta íslands,
trúnaðarbréf sitt á mánudag.
Osobase segir að seðlabanki Níg-
eríu hafi orðið að gera ráðstafanir
til að draga úr innflutningi um tíma
og þegar búið verði að endurskipu-
leggja innflutninginn verði vafa-
laust opnað fyrir skreiðarinnflutn-
inginn á nýjan leik. Hann segir
ennfremur, að nauðsynlegt sé fyrir
íslendinga að reyna á einhvern hátt
að efla viðskipti sín við Nígeríu, til
dæmnis með kaupum á olíu.
Sjá viðtal við Osobase á bls. 20.
Sigurgeir í Eyjum tók þessa
mynd fyrir nokkrum dögum þar
sem skipverjar á Júlíu í Vest-
mannaeyjum eru að hífa pokann
inn og er auðséð að aflinn er
blandaður, ýsa, flatfiskur, þorsk-
ur og ufsi. Gísli skipstjóri er í
brúarglugganum.
„ÞAÐ er mikil örtröð báta með öllu
landinu á þessum slóðum, 50—60
bátar í einni kös,“ sagði Einar Sig-
urðsson, skipstjóri á Arnari frá Þor-
lákshöfn í talstöðvarsamtali við
Morgunblaðið í gær, en hann var þá
að draga grunnt út af Stokkseyri.
„Það er tregt núna yfir heild-
ina,“ sagði Einar, „þetta var ágæt-
is fiskirí í nokkra daga eftir páska
en það er að fjara út að því er
virðist. Aflinn sem fékkst var upp
í fjöru, ekki kvikindi á Selvogs-
bankanum, en mikil umferð skipa
þar sem einhver von er. Við höfð-
um verið hér allt upp á 20 faðma
og þetta er þorskur, nokkuð ýsu-
blandaður, en það er þröngt hérna
og ég byði ekki í það ef brældi í
þessa veiðarfærasúpu. Hér eru
bátar á heimaslóð, Grindvíkingar
og Sunnanbátar og Norðanbátar
hafa verið að koma sér fyrir, svo
maður vonar bara að þetta fari að
lagast og að flotinn dreifist þá, því
það nær enginn árangri í þessari
örtröð."
Eyjabátar hafa verið að rótfiska
í Kantinum suður og austur af
Eyjum síðustu daga og í gær lönd-
uðu kantbátar allt upp í 40—50
tonnum en Suðurey VE var með
mestan afla og sama var að segja
um Eyjabáta sem komu austan úr
Meðallandsbugt, Þórunn Sveins-
dóttir og Valdimar Sveinsson. Afl-
inn vestan við Eyjar hefur hins
vegar farið minnkandi síðustu
daga og er þorskurinn nær full-
hrygndur.
Varnarliðið sótti veik-
an Rússa á haf út
KLUKKAN sjö i gærmorgun barst
Slysavarnafélagi íslands beiðni frá
rússneska verksmiðjutogaranum
Topaz. Skipið, sem er 2433 lestir að
stærð, var þá um 285 sjómílur suð-
vestur af Reykjanesi. Læknir skips-
ins óskaði eftir að sóttur yrði alvar-
lega veikur skipverji. SVFÍ tilkynnti
Skipadeild Sambandsins, sem hefur
umboð fyrir rússnesk skip hér, um
beiðnina og einnig sovézka sendi-
ráðinu, sem lagði áherzlu á að mað-
urinn yrði sóttur.
Hægur vindur var af SSA og
sjólítið. Um klukkan 10 lögðu
björgunar- og leitarflugvél af
Herkules-gerð og þyrla varnar-
liðsins af stað frá Keflavíkur-
flugvelli. Um klukkan 12.30 fór
sjúkraliði um borð í rússneska
togarann og um klukkan 13 var
veiki maðurinn kominn um borð í
þyrlu varnarliðsins. Þyrlan lenti
svo á Reykjavíkurflugvelli um
þrjúleytið og var maðurinn fluttur
í Landakotsspítala.