Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 33 hinum verndandi hugsjónum Dana hafi ofur einfaldlega verið óyfirstíganlegur sem fyrr. Menningarlegt djúp milli Grænlands og Danmerkur Undanfari heimastjórnarinnar olli ekki aðeins töluverðri vitund- arvakningu á stjórnmálasviðinu, heldur varð hann og til þess að staðfesta með greinilegum hætti það menningarlega djúp og þá menningarbaráttu sem á sér stað milli Grænlands og Danmerkur svo og hinna Norðurlandanna. Það voru einkum andstæðingar heima- stjórnar og þeir þjóðfélagshópar sem síðast á tímabilinu létu berast af eigin hrifningu, sem gerðu hvað mest úr vonum manna. Stuðnings- mennirnir, sem árum saman höfðu miðað stjórnmáiastarf sitt við að koma á heimastjórn, fóru að sjálfsögðu ekki varhluta af efa- semdum, öryggisleysi og hættum, en þrátt fyrir allt voru menn einn- ig í þeirra hópi fullir eftirvænt- ingar, þó svo þeir væru ef til vill örlítið raunsærri en svo margir aðrir. Andstæðingar heimastjórn- arinnar voru efins í trúnni á hæfi- leika Grænlendinga til að uppfylla allt það sem vænst yrði af þeim í kjölfar heimastjórnar hvað snerti vinnuframlag, afköst og fórnar- lund. Eflaust hafa andstæðingarn- ir einnig ofmetið sjálfa gildistöku heimastjórnarinnar sem einstæð- an viðburð er gæti umbreytt þeim grænlenska veruleika er menn þekktu líkt og hendi væri veifað. Reyndar litu stuðningsmennirnir á gildistökuna sem einstæðan at- burð, einslags friðsamlega bylt- ingu — en samt í rauninni sem eðlilegt framhald hins umfangs- mikla stjórnmálastarfs síðustu 10 ára. Þannig gátu þeir í gleði sinni yfir árangri velviljaðs og heiðar- legs samstarfs Grænlendinga og Dana eftir sem áður komið auga á vandamálin, hætturnar og skuld- bindingarnar auk þeirra banda sem gera myndu Grænland að hluta hins danska ríkis enn sem fyrr. Þess vegna verður að telja það lán að það skyldi verða sá flokkur sem mest hafði barist fyrir heimastjórninni er náði völdum á hinu nýja landsþingi. Þannig var samstundis hægt að halda starfinu áfram á sömu grænlensku forsendum og höfðu í aðalatriðum getið heimastjórnina af sér. Vegna afleiðinga hinnar víðtæku efnahagskreppu í heimin- um gafst heldur enginn tími til að gæla við gyllivonir. Andstæðingar og stuðningsmenn urðu að drífa sig í vinnugallana og komast að raun um meðal annars hvaða þýð- ingu það hefur fyrir lítið samfélag að vera algerlega háð olíu til allr- ar orkuneyslu og upphitunar. A þessu ári eru svo í undirbún- ingi fyrstu eiginlegu umræðurnar um árangur heimastjórnarinnar. Á vori komanda fara fram kosn- ingar. Sveitarfélögin á Suður-Græn- landi hafa fyrir sitt leyti leitast við að varðveita og styrkja tengsl- in við ísland, Færeyjar og Skand- inavíu við hátíðarhöldin vegna 1000 ára afmælis komu Eiríks rauða til Grænlands — og verður það að teljast greinilegt pólitískt merki um þá reynslu og þau markmið sem tengjast hugmynd- inni um heimastjórn. Sem frjáls- bornir menn rétta Grænlendingar fram höndina til samstarfs á sviði menningar og þjóða í millum með manneskjulegu ívafi bæði til mót- vægis og til viðbótar hinu skrif- finnskukennda og formfasta sam- starfi sem á sér stað í hinum viða- miklu bandalögum sem um þessar mundir blómstra úti í hinum svo- kallaða stóra heimi. Á vissan hátt má líta á endur- nýjun og eflingu mannlegra, menningarlegra og alþýðlegra tengsla við Island, Færeyjar og Skandinavíu sem sérstakt framlag Suður-Grænlendinga til lifandi heimastjórnar í Grænlandi. Á hinn bóginn þýðir áherslan á þetta samstarf milli þjóðanna engan veginn að gleyma skuli harðneskjulegum raunveruleika hins daglega lífs við heimastjórn. Ef styrkja á samstarfið, verður maður líka að vera reiðubúinn að setja sig inn í daglegt stjórnmála7' og efnahagslíf hvors annars, alveg eins og er að gerast með einstök- um hætti á þessum stað. Hér er lagður grundvöllur að skilningi og samstarfi milli þjóðanna svo og að bjartari framtíð. í þessum anda langar mig til að gera grein fyrir nokkrum megin- dráttum í umræðunni um heima- stjórnina frá mínum bæjardyrum séð. í mínum augum hefur heima- stjórnin sömu merkingu og Græn- land og ég hef þá trú að það væri engin framtíð fyrir ættland mitt án hennar. Umbætur á skipun sveitarstjórna Hið nýja landsþing samþykkti þegar i stað að aflokinni gildis- töku heimastjórnar umbætur á skipun sveitarstjórna eins og eðli- legt var. Þetta var gert í samræmi við þá almennu stefnumörkun sem fram kom í nefndarálitinu um heimastjórn og var miðuð við þróun síðustu ára í sjálfstjórn sveitarfélaga í Danmörku. Landfræðilegri skiptingu sveit- arfélaga var ekki breytt. Hins veg- ar var í innri skipan komið á fast- mótaðri pólitískri stjórn með þannig skipulagi að sveitarstjórn- in hafði hér eftir sem hingað til æðsta og síðasta orðið í töku ákvarðana, en jafnframt var dag- leg stjórnun fengin í hendur fjár- málanefndarinnar auk starfandi nefnda. Jafnframt lét landsþingið greinilega í ljós að óskað væri eft- ir að starfhæfni byggðaráðanna yrði efld. í sem allra stærstum og almennustum dráttum má segja að venjulegt sveitarfélag í Græn- landi sé gríðarstórt óbyggt land- svæði með einum bæ þar sem langstærsti hluti íbúanna auk opinberrar og einkarekinnar þjón- ustu er samankominn og þar fyrir utan nokkur fjöldi sveitabyggða sem eru mjög mismunandi stórar. Þannig verður bærinn allsráð- andi miðstöð í stjórnmálalegu og stjórnarfarslegu tilliti sem er afar evrópsk að allri uppbyggingu, en sveitabyggðin er hins vegar í nán- um tengslum við hinn grænlenska veruleika sem mótast af náttúru- öflunum, kunnáttu og hefðum sem eru Evrópubúum framandi. Byggðarráðin eru stjórnaraðilar byggðanna í stjórnmálalegum og stjórnarfarslegum efnum þannig að í raun fara byggðaráðin með hlutverk sveitarstjórnarinnar, fjármálanefndarinnar og hinna starfandi nefnda. Minnst einn meðlimur byggðaráðsins, venju- lega formaðurinn, er jafnframt meðlimur sveitarstjórnarinnar. Oft stangast hagsmunir byggða og bæja á. íbúar byggðanna hafa fyrst og fremst atvinnu sína af veiðum og fiskveiðum, tekjur eru venjulega áberandi lægri í byggð- unum en í bæjunum, aldursdreif- ing íbúanna þar sem tiltölulega mikið er af eldra fólki er öðru vísi en í bæjunum og loks búa sjaldn- ast margir með æðri menntun og því sem næst engir Danir utan bæjanna. Ennfremur veldur skipt- ing sveitarfélagsins í kjörsvæði því að bak við sæti byggðafulltrú- ans í sveitarstjórninni eru venju- lega mun færri atkvæði en bak við sæti venjulegra bæjarfulltrúa. Þar eð fjármuni til þróunar í byggðunum verður annað hvort að taka af framlagi því sem áður fyrr rann óskert til bæjanna eða með því að leggja á hærri skatta, sem íbúar bæjanna verða einkum að borga, eru árekstrar oft afleiðing- in. Munurinn milli bæja og byggða er byrði sem nýju sveitarfélögin og heimastjórnin tók í arf frá samþjöppunarstefnunni í Græn- landi á sjöunda áratugnum. Á þeim árum var það yfirlýst stefna að safna íbúum landsins saman í eins fáa bæi og hægt var, einkum á hinum svonefndu strandsvæð- um. Þannig er vandi einstakra sveitarfélaga í stjórnun og stjórn- málalegum efnum varðandi sam- skiptin milli bæja og byggða I raun merki um mun almennari vandamál. Samþjöppunarstefna án tillits til grundvallaratriða Hin svonefnda samþjöppunar- stefna byggist í aðalatriðum á þröngsýnum sjónarmiðum um ágæti þess að iðnvæða öll þjóðfé- lög án tillits til stærðar, legu og forsendna. Takmarkið var í upp- hafi að fá fólk til að taka þátt í eins konar evrópsku markaðshag- kerfi, þar sem skipulag menntun- ar og framleiðslu miðaðist ein- göngu við óskir um víðtæka sér- hæfingu ásamt fleiru án þess að tillit væri tekið til forsenda af völdum náttúrunnar og samfé- lagslegra og menningarlegra sér- kenna. Á þennan hátt myndaðist tæknivætt, viðkvæmt og stirt samfélag. Óátalið urðu þess háttar forsendur af fræðilegum, evrópsk- um toga ráðandi afl í öllu opin- beru starfi, með þeim afleiðingum m.a. að stór hluti íbúanna í byggð- unum eru enn í dag og stundum með réttu ákaflega vel á verði og gagnrýnir á hin nýju grænlensku yfirvöld. Þegar tekið er tillit til yfirlýstra markmiða landsstjórnarinnar í stjórnmálum — að efla byggðir og útkjálka — hefur hin gamla fé- lagslega, menningarlega og póli- tíska spenna samt sín áhrif í nú- tímanum. Að sjálfsögðu bjóst eng- inn við að breytingar á gamalli og gróinni stefnu gætu borið umtals- verðan og mikinn árangur í einni svipan. Andstæðurnar eru enn fyrir hendi. Ríkið hefur enn útslitaáhrif á m’kilsverðum sviðum, einkum í húsnæðis- og atvinnustefnu svo og á sviði vörudreifingar. Auk þess ber allt stjórnkerfið enn sem fyrr merki um viðhorf og mat eldri tíma í gegnum menntun og þjálf- un starfsfólksins. Á grundvelli þess sem lýst hefur verið eru grænlenskar sveitar- stjórnir í dag pólitískar valda- miðstöðvar sem byggja á vald- dreifingu, þar eða sveitarfélögin þekkja vandamál varðandi upp- byggingu og samfélagsleg efna- hagsmál af eigin raun á mjög svo áþreifanlegan og beinan hátt úr daglega lífinu. Hér veldur einnig að stjórnmálamenn og embætt- ismenn í sveitarstjórnum neyðast til að eiga mjög mikið saman að sælda í sínum daglegu störfum með þeim gleðilega árangri að grænlenskar skoðanir stjórnmála- manna og hin nánu tengsl við raunverulegt ástand mála hafa orðið stöðugt áhrifameiri en við- horf fortíðarinnar og hið gamla valdakerfi. „Byltingin étur börnin sín“ Það er mín skoðun að þróunin geri einkar miklar kröfur til grænlenskra stjórnmálamanna. Hinir beinu og stöðugu árekstrar við andstæðurnar í þjóðfélaginu og þörfin til að verka hvetjandi á daglega stjórn þar sem Grænlend- ingar eru sjaldnast í meirihluta, skyldan til að berjast gegn hinum auðveldu, hefðbundnu lausnum, allt leggur þetta þungar byrðar á hendur stjórnmálamannanna. Það er afar erfitt að halda lífi í hug- sjóninni í hinni hægfara þróun í átt til grænlensks þjóðfélags. Og kröfurnar og vandamálin láta ekki á sér standa. Ef til vill verður þetta best tjáð með málshættin- um: „Byltingin étur börnin sín.“ Stjórnmálamennirnir verða að gjalda þess í ríkum mæli sem manneskjur að tryggja framtíð- ina. En einnig það tilheyrir hinu daglega lífi í Grænlandi, þar eð merkin um marga eyðilagða mannævina sjást út um allt frá þeim tíma er menn fluttust úr kunnugum heimi í lítilli sveita- byggð til stóru bæjanna með há- hýsum þar sem fólk fékk að búa á steinsteyptri hillu fjarri öllu sem það þekkti og því þótti vænt um. Það er sárt að þurfa að verða vitni að því enn í dag neyðast menn til að byggja háhýsi á Grænlandi. Það er ríkið sem reisir húsin og sveitarfélögin sem verða að leysa hin félagslegu vandamál. Það sem ríkið sparar tapa sveitarfélögin og íbúarnir mörgum sinnum. Það er von mín um heimastjórn- ina að fyrstu ár hennar verði ekki um of gengið á stofninn. Við erum ekki nein stórþjóð, en við höfum þegið að arfi stórt land með stór vandamál og hvað gagnar það okkur að sigrast á framtíðinni, ef við erum þá ekki lengur til? Hið áberandi hlutverk sveitar- félaganna og hraðfara þróun þeirra hefur haft í för með sér eðlilega og nauðsynlega spennu milli miðstjórnarvaldsins og hins dreifða valds. Orsakir þessarar þróunar er að finna í því að áframhaldandi „grænlandsering" þýðir óhjákvæmilega að sveitaryf- irvöld eflast, þar eð ekkert getur komið í staðinn fyrir skilning þeirra á aðstæðum hvers annars. Auk þess verður það að viðurkenn- ast að hin grænlensku og dönsku miðstýrðu stjórnvöid leitast við að breiða út áhrif sín. Þannig hefur sambandið milli sveitarstjórna og landsstjórnarinnar áhrif á þróun- ina. Andstæðingar heimastjórnar- innar og yfirborðsfólk heldur því gjarnan fram að í stað fjarstýr- ingar frá Kaupmannahöfn sé nú tekin við fjarstýring frá Godt- haab. í mínum huga eru andstæð- urnar nauðsynlegar fyrir þróun heimastjórnarinnar. Valddreifing sveitarstjórnar- kerfisins er í augum Grænlend- inga alveg eðlileg afleiðing hins gríðarlega landflæmis á Græn- landi. Togstreita er merki um heilbrigði og sönnun þess að heimastjórn er án efa hið rétta SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.