Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 35 HoflemGlobetfotter/ _v______^_______________ • Curfy Neal elskar að skemmta fólki. Hann kem- ur öllum í gott skap með brosinu einu. boltanum I körfuna með leikir eiga jú fyrst og fremst að vera skemmtun sem allir hafa ánægju af. Fyrir börnin eru leik- mennirnir sannkallaðir töfra- menn. Allir leikmenn Harlem Globetrotters byrjuðu íþrótt sína á leikvöllum eða á dagheimilum. Og enn sitja í þeim öilum bernsku- brekin og barnagamanið. Frægustu leikmenn liðsins Tveir af frægustu leikmönnum Harlem Globetrotters eru Hubert Geese Ausbie og Curly Neal. Geese Ausbie er stjarna liðsins. Sýninga- maður og töframaður með boltann fram í fingurgóma. „Eg kem fram við alla eins og þeir séu börn þegar þeir horfa á leiki okkar. Það skemmtir fólki og mér líka,“ segir Ausbie. „Ef ég sé börn leika sér í körfubolta fer ég oft og iðulega til þeirra og leik mér með þeim. Tek fáein skot og glettist við þau. Ég elska börn,“ segir Ausbie sem er mikill fjölskyldumaður sjálfur. Geese hóf að leika með Globetrott- ers eftir að hann lauk háskóla- námi í Philander Smith í Little Rock. Geese Ausbie var fæddur körfuboltastjarna, og í gagn- fræðaskóla skoraði hann iðulega yfir 70 stig í leik með liði sínu. Hann fékk meira en 100 tilboð um skólavist frá bandarískum háskól- um, en valdi Philander Smith vegna þess að þar var bróðir hans við nám. í háskólaliðinu var hann stór stjarna og skoraði fleiri stig á keppnistímabilinu en kappar sem léku á sama tíma eins og Wilt Camberlain og Jerry West og það segir sína sögu. Eftir að háskóla- náminu lauk gerðist Geese leik- maður með Harlem Globetrotters, í stað þess að gerast leikmaður í bandarísku atvinnumannadeild- inni. Ausbie elskar að skemmta fólki. Hann segir: „Ég get skorað stig hvenær sem ég vil. En það er ekki málið. Fólkið kemur til að sjá allt aðra hluti.“ Skapar stemmningu með brosinu Curly Neal getur komið öllum í gott skap og fengið fólk á sitt band með brosinu einu saman. Neal er einna þekktastur af leikmönnum Harlem-liðsins. Hann er líka án efa vinsælasti íþróttamaður í heiminum í dag, eftir að stjörnur eins og Pele og hnefaleikakappinn Ali lögðu skóna á hilluna. Neal er heimsþekktur fyrir snilli sína, hefur enda leikið körfuknattleik í 90 þjóðlöndum í sex heimsálfum. „Ég get ekki sagt ykkur hversu hamingjusamur ég er að geta fengið fól.k til að hlæja og skemmta sér,“ segir Curly Neal. Það er sannkölluð fjöskyldu- skemmtun að sjá Harlem Globe- trotters. Þar sér maður allt það besta í körfuknattleik ásamt töfrabrögðum og skemmtun. Eitt er víst, að sjón verður sögu ríkari í Laugardalshöllinni á morgun og þriðjudag þegar þessir heimsþekktu íþróttamenn mæta á fjalirnar. ÞR. • Lionel Garretter ekki I randræðum með að troða báðum böndum eins og sji má. „Ef þið eigið ekki börn til að fara með á leikinn þá skuluð þið fá þau lánuð og bjóða þeim“ Texti: Þórarinn Ragnarsson • Larry Rivers, snillingur I því að reka knött- inn. Hér reynir hann gegnumbrot i hnjinum. En____________________ það er ekki oft sem körfuknattleiksmenn reyna sttkL í dag kemur til landsins hið heimsfræga sýningarlið í körfuknattleik, Harlem Globetrotters. Liðið mun leika þrjá sýningarleiki hér á landi, en jafnframt vera með sýningar fyrir vangefna og fatlaða þeim að kostnaðarlausu. En það er venja sem leikmennirnir í Harlem-liðinu hafa jafnan þegar þeir eru í sýningarferðum sínum. Þeir gleyma ekki lítilmagn- anum. Ekkert íþróttalið í veröldinni er jafnþekkt og snillingar Harlem Globetrotters. ísland er hundraðasta landið sem þeir heimsækja. Síðan liðið var stofnað árið 1927 hefur það ferðast næstum 3 millj- ónir mílna, eða 120 sinnum kringum hnöttinn. Alls hefur liðið tekið þátt í yfir Reiknað er með að rúmlega 15.000 leikjum og talið er að áhorf- þrjár milljónir komi til að sjá sýn- endur á leikjum þeirra séu rúmar 100 milljónir. Allir hafa skemmt sér jafn vel. Harlem-liðið á að- sóknarmet hvað varðar körfu- knattleik. Það var árið 1950 í Berl- ín, en þá komu 75.000 manns til að sjá liðið leika. Nokkrir af frægustu leik- mönnum Harlem Globetrotters munu leika með liðinu hér á landi. Þeir eru Geese Ausbie, Lionel Garrett, og sá stærsti sem er sjö fet og einn þumlungur, „Baby Face“ Paige. ingarleiki Harlem-liðsins á þessu ári. Liðið sýnif í N-Ameríku, Nýja Sjálandi, Afríku, Ástralíu og víð- Æfingin skapar meistarann — En hvað er það sem gerir Harlem-liðið svona sérstakt? Jú, eins og í flestum greinum íþrótta er það æfingin sem skapar meist- arann. Allir leikmenn Globetrott- ers hafa leikið körfuknattleik frá því þeir muna eftir sér. Og leikni þeirra með körfuboltann er slík, að með ólíkindum er. Það er sama hvað er gert. Hraðaupphlaup, skot af löngu færi, knattmeðferðin og síðast en ekki síst allt sprellið sem leikmenn gera á vellinum. En hvernig má það vera að lið sem leikið hefur meira en 15.000 leiki getur alltaf fyllt hjá sér húsið á hverri sýningu? Er ekki farið að slá í þessa karla? Nei, síður en svo. Að sögn kunnugra verður liðið alltaf betra og betra. Og aðsóknin eykst í samræmi við það. Liðið í heild svo og hver einstakur leik- maður er ávallt að koma með eitthvað nýtt. Þá leika þeir alltaf undir tónlist og lagið sem þeir halda mest uppá, og er ávallt í för með liðinu, er hið þekkta „Sweet Georgia Brown“. Leikmenn vita að hver nýr leikur á eftir að verða þeim eftirminni- legur og þar eiga eftir að sjást nýj- ar brellur. Það er nefnilega þann- ig, að leikmenn Harlem, hver og einn, eru alltaf að fitja upp á ein- hverju spennandi sem gleður augu áhorfenda. Skemmtilegast er að horfa á leiki Harlem Globetrotters með 0 Stjarna í Hði Harlem Globe- trotters, Geese Ausbie. Hann kem- ur fram við alla eins og börn. Enda segist hann elska þau og er mikill fjölskyldumaður sjálfur. Hér er hanii ísamt ungum aðdíendum. 0 Robert Paige leikur sér að því að troða aftur fyrir sig með brosi i vör. En bros og skemmtun er vöru- merki leikmanna Harlem Globe- trotters. börnum. Ef þið eigið engin börn sjálf til að fara með á leikina, þá skuluð þið bara fá þau lánuð og bjóða þeim með. Það eru börnin sem skilja leik Globetrotters mest og best. Börnin skilja vel alla þá skemmtun sem leikmenn Harlem fá út úr íþróttinni. íþróttakapp-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.