Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 37 Hjálmur Þorsteinn, lengst til hægri, rcAur rii skipverja á Árnesingi. Þeir eru frá vinstri: Einar Ármannsson, Brynjólfur Gestsson og Tryggvi Marteinsson, en la lúkarnum situr lukkuhvolpur sem þeir féiagar fengu i veiðarfærin. Kristján Pálsson, lengst til hægri, ræðir við ritstjórn og blaðamenn Snáps í Grunnskóla Þorlákshafnar. reist það var von á liði smiða frá Eyjum sem ætluðu að vinna innivinnuna á skömmum tíma, því það er ráðgert að opna í apr- 11, en byrjað var að byggja í febrúarlok, þ.e. lið Gunnars Helgasonar byrjaði að reisa þetta 240 fermetra timburhús á fimmtudegi og það var orðið fokhelt á sunnudegi. Samskonar hús mun vera í smíðum í Sand- gerði. Heimir Jónasson: Fögur kirkja rís í Þorlákshöfn I Þorlákshöfn er nú verið að reisa glæsilega kirkju, við blaða- menn hittum þar að máli Ingi- mund Guðjónsson sóknarnefnd- arformann og ræddum við hann um kirkjuna. Ingimundur er einskonar framkvæmdastjóri kirkjunnar, og sér um að kalla saman mannskap til verka. Eins og fyrr sagði þá er þetta mjög falleg kirkja, stærð hennar er 12X25 m og verða um 180 sæti niðri, en loftið er um 120 fer- metrar. Kirkjan er að mestu leyti unnin í sjálfboðavinnu. Ingimundur tjáði okkur að það væri gífurlegur áhugi hjá Þorlákshafnarbúum að standa saman um að koma verkinu áfram og ljúka því sem fyrst. Fyrsta skóflustungan var tekin í apríl þann 28. 1979 og er áætlað að verkinu ljúki á því herrans ári 1983. Prestur á staðnum er séra Tómas Guðmundsson, sóknarprestur í Hveragerði. Hannes Gunnarsson yfirsmið- ur hefur nokkurskonar yfir- stjórn við verkið en bygg- ingarmeistari er Sverrir Sigur- jónsson. Kirkjuna teiknaði Jör- undur Pálsson, húsasmiður ríkisins. Áætlaður kostnaður mun nú vera í kring um 50 millj. gamalla króna og er það aðal- lega efniskostnaður en Ingi- mundur tók það skýrt fram að fólkið hér í Þorlákshöfn væri mjög jákvætt fyrir þessu. For- maður byggingarnefndar er Ragnheiður Olafsdóttir. I kjallara undir austurenda kirkjunnar er líkhús. Ætlunin er að hlaða lágan vegg utan með kirkjunni. Er okkur fannst við hafa for- vitnast nóg, pökkuðum við okkar pjönkum saman, þökkuðum Ingimundi fyrir spjallið og héld- um á brott. (á.j.). Vió litum við í Meitlinum og þar voru konurnar f óða önn að pakka útflutningsverðmætunum. ÞAÐ Traust og ending hvers mannvirkis byggist á góóu hrá- efni og vandaðri smíði. Þiö fáiö steypustál járnbindivír mótavír gluggagirói þakbita þakjárn pípur í hitalögn og vatnslögn í birgðastöö okkar Borgartúni31 sími27222 Allt úrvals efni á hagkvæmu veröi. BYGGISTÁ ÞESSU SINDRA STALHE RÆÐUM BORGARMÁLIN Frambjóöendur Sjálfstæöisflokksins í borgarstjórnarkosningunum 22. maí vilja opiö stjórnmálastarf, sem byggist á sterkum tengslum kjós- enda og kjörinna fulltrúa þeirra. Þess vegna erum viö tilbúin til áö hitta ykkur aö máli og skiptast á skoöunum til dæmis í heimahúsum, á vinnustööum eöa hjá félögum og klúbbum. Síminn okkar er 82900 eöa 82963 — hafiö samband ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? Þl At GLYSIR l M ALLT LAND ÞEGAR Þl' AIGLYSIR I MORGLNBLAÐINt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.