Morgunblaðið - 20.04.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
13
Góð byrjun
nægði ekki
EINS OG vænta mátti eftir fjögurra
marka ósigur Þróttar gegn Dukla
Prag í Laugardalshöllinni á dögun-
um, var liðið slegið út er liðin léku
siðari leik sinn í fjögurra liða úrslit-
um keppninnar í Prag um helgina.
Lokatölurnar í Prag urðu 23—19
fyrir Dukla, sem vann með fjögurra
marka mun í Höllinni, því saman-
lagt með 8 mörkum. Dukla Prag
mætir austur-þýska liðinu Rostock
sem sigraði Gunzburg í samanlögðu,
tapaði að vísu 18—22 fyrir Gunzburg
um helgina, en hafði áður unnið með
8 mörkum.
Þróttarar byrjuðu annars mjög
vel gegn Dukla, skoruðu hvert
Þróttara
gegn Dukla
markið af öðru og áður en varði
hafði liðið náð fjögurra marka
forystu. Hefði liðið haldið því og
skorað fleiri mörk en í Reykjavík
hefði það nægt, en fljótlega kom í
Ijós að ekkert yrði úr þeim
draumi. Tékkarnir sóttu í sig veðr-
ið, jöfnuðu í 7—7 og náðu síðan
fjögurra marka forystu fyrir
leikhlé, 13—9. Hélst sú forysta
síðan allt til leiksloka og raunar
lítil spenna.
Mörk Þróttar skoruðu: Sigurður
Sveinsson 6, Jens Jensson 5, Páll
Ólafsson 4, Gunnar Gunnarsson 2,
Einar Sveinsson og Gísli Óskars-
son eitt hvor.
Blikadömur á
alþjóðamót
ÍSLANDSMEISTARAR Breiðabliks
í kvennaknattspyrnu ætla greinilega
að búa sig vel undir 1. deildarkepp-
nina í ár. Stúlkurnr munu halda til
Danmerkur í næsta mánuði til þátt-
töku á svonefndu ID ’82 móti.
Er hér um að ræða alþjóðlegt mót
kvennaliða og eru þátttakendur um
500 talsins. Er leikið í fjórum ald-
urshópum og keppa Blikastúlkurnar
í ejsta flokki.
í þeim flokki verða lið frá einum
sjö þjóðlöndum þannig að róðurinn
verður hreint ekki svo léttur. v
Oddný nær sínu
bezta í 400 m
ODDNÝ Árnadóttir hlaupakona úr
ÍR setti persónulegt met í 400 metra
hlaupi er hún keppti á frjálsíþrótta-
mótinu mikla í San Jose í Kali-
forníu, sem kennt er við Bruce Jenn-
er.
Oddný varð fimmta í úrslitum
400 metra hlaupsins á 56,28 sek-
úndum, en hlaupið vannst á 53,11
sekúndum. Oddný átti bezt áður
56,3 sekúndur, en sá tími var tek-
inn á handklukkur. Rafmagnstím-
inn svarar til um 56,1 sekúndu á
handklukku.
Undanfarna tvo mánuði hefur
Oddný dvalizt í Kaliforníu við æf-
ingar, en er væntanleg til landsins
um næstu helgi. Oddný var
sprettharðasta frjálsíþróttakonan
hér á landi í fyrra, setti íslands-
met í 100 og 200 metra hlaupum.
• Landsliðshópurinn í sundi sem stóð sig svo vel í Kalottkeppninni. Talið neðst frá vinstri: Anna F. Gunnarsdóttir
Ægi, Guðbjörg Bjarnadóttir Selfossi, Hugi S. Harðarson Selfossi, Guðrún F. Ágústsdóttir Ægi, María Gunnbjörns-
dóttir ÍA, Kagnheiður Runólfsdóttir ÍA, Ingi Þór Jónsson ÍA, Ingólfur Gissurarson aðstoðarlandsliðsþjálfari, Snorri
Magnússon landsliðsþjálfari, Árni Sigurðsson ÍBV, Tryggvi Helgason Selfossi, Sigurður Ólafsson fararstjóri og
Þröstur Ingvarsson Selfossi.
7 íslandsmet hjá íslenska
sundlandsliðinu í Finnlandi
SJÖ ÍSLANDSMET voru sett í
Kalott-keppninni í sundi sem fram
fór í Oulun í Finnlandi um helgina.
Auk þess fékk ísland 9 gullVerðlaun
af 24 mögulegum, 3 silfurverðlaun
og eitt brons. Verður það að teljast
allgott, en engu að síður náði ís-
lenska liðið aðeins þriðja sætinu af
fjórum, breiddina vantaði, íslenska
sundfólkið annað hvort í fararbroddi
eða rekandi lestina.
Ef rennt er yfir metin sjö, þá sá
Ingi Þór Jónsson um tvö þeirra í
einstaklingskeppnunum. Hann
synti 100 metra skriðsund á 53,03
sekúndum og varð þar í þriðja
sætinu. Þá synti hann 200 metra
flugsund á 2.10,94, en hann sigraði
í því sundi. Guðrún Fema Ág-
ústsdóttir setti íslandsmet og
sigraði í 200 metra bringusundi,
synti á 2:43,54 og Eðvald Eð-
valdsson sigraði og setti Islands-
met í 100 metra baksundi, synti á
1:02,22. Þá sigraði íslenska karla-
sveitin í 4x100 metra fjórsundi á
nýju íslandsmeti, synti á 4:04,27.
Islenska karlasveitin setti einnig
met í 4x200 metra skriðsundi,
synti á 8:06,24, en varð að gera sér
annað sætið að góðu. Loks setti
íslenska kvennasveitin Islandsmet
í 4x100 metra fjórsundi, synti á
4:47,2, en varð þó engu að síður í
fjórða og neðsta sætinu í þeirri
grein.
Þá eru metin sjö upptalin, en
auk þess sigraði Tryggvi Helgason
í 200 metra bringusundi á 2:30,99
og Árni Sigurðsson varð þar ann-
ar á 2:31,45, því glæsilegur árang-
ur í þessari grein þrátt fyrir að
met væru ekki slegin. Guðrún
Fema sigraði í 100 metra bringu-
sundi kvenna án þess að standa í
metaslætti, og Ingi Þór gerði slíkt
hið sama í 100 metra flugsundinu.
ísland hafnaði í þriðja sæti
stigakeppninnar, fékk 177 stig en
þar af hreppti karlaliðið 122 stig.
Má því segja að stúlkurnar hafi
ekki staðið sig sérlega vel. ís-
lensku piltarnir voru jafnir Svíum
í sveitakeppni karla, en það voru
einmitt Norður-Svíar sem sigruðu,
fengu 246 stig. Norður-Finnar
veittu harða og mikla keppni, en
þeir fengu samtals 241 stig. Sem
fyrr segir var keppt í 24 greinum,
8 keppendur voru í hverri grein, 2
frá hverri þjóð.
Sunfl
..... ... ... .
Oddur Sigurðsson virðist vera kominn í góða æfingu, eins og timi hans í 400
metra hlaupinu sýnir. Ljósm. Mbl. Is'trarinn Kagnarsson.
Oddur setur nýtt
met í 400 metrum
„ÞAÐ hlaut að koma að þessu, ég
hef verið það léttur á sprettinum að
undanförnu. Og vonandi er þetta að-
eins upphafið að enn meiri bætingu
metsins,” sagði Oddur Sigurðsson
spretthlaupari úr KK í samtali við
Morgunblaðið í gær, en hann setti
nýtt Islandsmet í 400 metra hlaupi á
frjálsíþróttamóti í Baylor i Banda-
rikjunum um helgina, hljóp á 46,4
sekúndum.
„Ég hljóp fyrst á 46,72 sekúnd-
um í riðli, var sem sagt sex hundr-
uðustu frá metinu. Þetta var mjög
létt hlaup og bjóst ég því við góðri
bætingu í úrslitunum. Ég fékk
góða keppni, varð fjórði og fékk
46,4 sekúndur, en skólafélagi minn
sigraði á 45,7 sekúndum. Raf-
magnstímatökutækin þurftu endi-
lega að bila í úrslitahlaupinu, og
handtímatakan því látin ráða, en
með tilliti til mismunar á milli
handtímatöku og rafmagnstíma-
töku hef ég hlaupið á sekúndu-
broti betri tíma en gildandi raf-
magnsmet er,“ sagði Oddur.
Oddur Sigurðsson átti sjálfur
bezta árangur íslendings frá upp-
hafi, hljóp á 46,64 sekúndum
sumarið 1980. Tími Odds í Baylor
svarar til 46,54 á rafmagnstíma-
tæki.
„Það eru ýms mót framundan og
NÚ LIGGJA fyrir fjórar beiðnir hjá
llandknattleikssambandi íslands
um leyfi fyrir crlenda leikmenn. Lið
KA sem réði til sín danskan þjálfara
eins og skýrt hefur verið frá óskar
eftir leyfi fyrir hann og tvo aðra
Dani sem léku með honum i danska
liðinu Kibe. Það er því hugsanlegt að
þrír danskir leikmenn verði í liði KA
vonandi fæ ég gott tækifæri til að
bæta mig enn frekar,“ sagði Oddur
í samtalinu við Mbl. Oddur kemur
heim um miðjan júní, eftir banda-
ríska háskólameistaramótið. Þeir
Óskar Jakobsson ÍR, sem er á
sama skóla og Oddur, hafa tryggt
sér rétt til þátttöku á mótinu.
í handknattlcik næsta keppnistima-
bil. Þá bíða KK-ingar eftir að fá leyfi
fyrir Anders Dahl en hann ætlar að
leika með KK-liðinu na sla keppnis-
tímabil. Andcrs lék líka með Kibe-
liðinu. Það má þvi segja að hálft
Kibe-liðið verði hér á landi næsla
keppnistímabil. —ÞK.
Leika þrír Dan-
ir með KA?