Morgunblaðið - 20.04.1982, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
Kyjólfur Sigurósson, kjörforseti Evrópudeildar Kiwanis tekur fyrstu skóflustunguna. Á horfa nokkrir af
framámönnum Kiwanis og Geðverndarfélags íslands.
Framkvæmdir hafnar við
áfangastað geðsjúkra
SÍÐASTLIÐINN nmmtudag
hófust verklegar framkvæmdir
við áfangastað fyrir geðsjúkl-
inga, sem reistur verður á vegum
Geðverndarfélags íslands í sam-
vinnu við Kiwanismenn, sem á
undanfornum árum hafa verið
ötulir við að safna fé í þessum
tilgangi. Áfangastaður er ætlað-
ur til félagslegrar og starfslegrar
endurhæfingar þeirra geðsjúkl-
inga, sem hafa náð því marki, að
þurfa ekki lengur að dvelja á
geðsjúkrahúsum en eru enn ekki
reiðubúnir til að lifa á eigin veg-
um í þjóðfélaginu, segir í frétta-
tilkynningu frá Geðverndarfé-
laginu.
Geðverndarfélagið hefur
lengi unnið að því að bæta
skilyrði til endurhæfingar
geðsjúklinga og hefur í því
skyni komið upp húsrými fyrir
22 sjúklinga að Reykjalundi
þar sem þeir hafa átt kost á
fjölþættri endurhæfingu
ásamt öðrum sjúklingum. Hef-
ur dvölin að Reykjalundi og
endurhæfing sú, sem sjúkl-
ingar hafa hlotið þar, reynst
mörgum ómetanleg lyftistöng.
Þá hefur Geðverndarfélagið í
samvinnu við Kiwanisklúbba á
íslandi einnig stuðlað að bygg-
ingu Bergiðjunnar, sem er
verndaður vinnustaður, rekinn
í tengslum við Kleppsspítal-
ann. Þar starfa nú daglega
30—40 manns að framleiðslu
byggingareininga, gangstétt-
arhellna, auk ýmissa smáhluta
úr blikki og tré, sem þarf til
húshalds og byggingar. Til
þess að reyna að draga úr ein-
angrun geðsjúkra og tala máli
þeirra hefur Geðverndarfélag-
ið haldið uppi fræðslu um
geðsjúkdóma og hvernig draga
megi úr tíðni þeirra og afleið-
ingum. I þessu skyni hefur fé-
lagið gefið út tímaritið Geð-
vernd.
Áfangastaður er endurhæf-
ingarheimili þar sem lítill hóp-
ur sjúklinga með geðræn
vandamál getur dvalist í
ákveðinn tíma til að njóta fé-
lagslegrar endurhæfingar.
Dvöl á áfangastað hefur aðal-
lega tvíþættan tilgang:
1. Að veita nauðsynlegan fé-
lagslegan og tilfinninga-
legan stuðning meðan á
endurhæfingu stendur.
2. Að veita markvissa endur-
hæfingu til þess að auka
hæfni til starfs og til dag-
legs lífs.
Meðan einstaklingur dvelst
á áfangastað er reynt að leggja
áherslu á sjálfstæði hans og
stuðla að því að hann taki sem
mesta ábyrgð á dvöl sinni
sjálfur. Gert er ráð fyrir því að
vistmenn á áfangastað stundi
reglulega vinnu, vinnuþjálfun
eða nám. Ennfremur er gert
ráð fyrir því að þeir greiði
leigu og framfærslukostnað og
sjái um framkvæmd heimilis-
haldsins. Geðheilbrigðis-
starfsfólf er bakhjarl heimilis-
ins, leiðir starfsemina og veitir
stuðning og aðstoð eftir því
sem þörf krefur.
Skortur á áningastöðum og
öðrum tækifærum til endur-
hæfingar getur haft ýmsar
bagalegar afleiðingar. Þannig
hefur hann í för með sér að
stór hópur einstaklinga verður
a'ð dveljast langdvölum á
sjúkrastofnunum þótt þeir
hafi ekki þörf fyrir þá meðferð
og umönnun, sem slíkri stofn-
un er ætlað að veita. Þeir fylla
rými, sem ætlað er bráðveik-
um sjúklingum. Kostnaður við
dvöl þeirra er gífurlegur og
miklu meiri en vera mundi á
áfangastað. Siðast en ekki síst
getur of löng dvöl á stórri
stofnun dregið úr sjálfstæði,
sjálfstrausti og fru.mkvæði
manns og þannig dregið úr
endurhæfingarhæfni hans.
Áfangastaður Geðverndar-
félagsins mun rísa af grunni á
hinu nýja byggingarsvæði í
Fossvogi. Húsið er teiknað af
arkitektunum Manfreð Vil-
hjálmssyni og Þorvaldi S. Þor-
valdssyni. Það verður 184 fer-
metrar að grunnfleti á tveimur
hæðum. Byggt verður úr ein-
ingum Bergiðjunnar. í húsinu
verður rými fyrir 8 sjúklinga.
Einnig verður í því lítil íbúð
fyrir húsráðendur, sem sjá um
daglegan rekstur og aðstoð við
íbúana. En geðheilbrigðis-
starfsfólk mun sjá um aðra
nauðsynlega aðstoð. Fyrstu
skóflustunguna tók Eyjólfur
Sigurðsson, kjörforseti Evr-
ópudeildar Kiwanis-hreyf-
ingarinnar og aðalhvatamaður
að söfnun Kiwanis.
Þó Kiwanismenn hafi safnað
myndarlegri fjárfúlgu til þess
að koma áfangastaðnum upp,
er Geðverndarfélaginu enn
fjár vant í því skyni. Til þess
að afla fjár er Geðverndarfé-
lagið með happdrætti, sem
dregið verður í 4. júní næst-
komandi. Heitir félagið á alla
velunnara starfseminnar að
styðja byggingu áfangastaðar-
ins með því að kaupa happ-
drættismiða félagsins. Öll
önnur framlög eru einnig vel
þegin. Nýlega færði ónefndur
velunnari félaginu 55.000
krónur að gjöf.
Fyrirhugaður áfangastaður Geðverndarfélags íslands, sem framkvæmdir
eru nú hafnar við að Álfalandi 15.
+
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
GUÐLAUG ÓLAFSDÓTTIR
frá Hagavik,
lóst að Hátúni 10, 17. apríl.
Guömundur Runólfason.
Móöir okkar,
SÓLVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Stigahlíö 42,
lést á heimili sínu, 17. apríl.
Hólmfríöur Magnúadóttir,
Vigfús Magnússon,
Guömundur K. Magnússon.
t
Faöir minn, tengdafaðir og afi,
ÞÓRHALLUR BJARNASON,
vsrkstjóri,
Barmahlíö 7,
veröur jarösunginn í dag kl. 3 frá Fossvogskirkju. Þeir sem vildu
minnast hans láti Sólheima í Grímsnesi njóta þess. Minningargjöf-
um er veitt móttaka hjá Styrktarfélagi vangefinna.
Örn Smári Þórhallsson, Matthildur Kristinsdóttir
og dætur.
t
HALLDÓR HAFLIÐASON,
flugstjóri,
Lynghaga 1, Roykjavík,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni miövikudaginn 21. apríl kl.
13.30.
Ólöf Inga Klemenzdóttir,
Hafliöi Halldórsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Þórunn Halldórsdóttir, Jóhann Steinsson,
Hrafnhildur I. Halldórsdóttir, Halldór Þór Þórhallsson,
Sveinbjörn Hafliöason, Anna Lárusdóttir
og barnabörnin Halldór og Ólöf Inga.
Móöir okkar, t SIGRÍDUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Klapparstíg 12, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 21. apríl kl.
13.30. Kamma N. Thordarson, Kristín Sigurjónsdóttir, Þórunn Sigurjónsdóttir,
t Faöir okkar, fósturfaöir og tengdafaöir.
SÆMUNDUR ELÍAS ARNGRÍMSSON,
Landakoti, 5 » 3 • •
veröur jarösunginn frá Bessastaöakirkju, miövikudaginn 21. april.
kl. 2 e.h.
Halldóra Sæmundsdóttir, Einar Einarsson,
Jóanna Sæmundsdóttir, Guðmundur Georgsson, Ragnhildur Jónsdóttir,
Arngrímur Sæmundsson, Bára Þórarinsdóttir,
Hitdimundur Sæmundsson, Aöalheióur Steingrimsdóttir,
Guöjón Brynjólfsson, Sigríöur Steindórsdóttir,
Jóhannes Hjaltested, Sigurlaug Stefánsdóttir.
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö
andlát og útför,
ÓLAFARJÓNSDÓTTUR,
Alftárósi.
Axel G. Thorsteinson, Halldór Thorsteinson,
Ágústa Erlendsdóttir, Oddfrióur Erlendsdóttir,
og aörir aöstandendur.
Lokað
í dag vegna jarðarfarar
SIGURÐAR SIGURÐSSONAR
málarameistara.
Málarabúóin,
Vesturgötu 21.