Morgunblaðið - 20.04.1982, Blaðsíða 32
Síminn á afgreiðslunni er
83033
Jttor£imbIní>ií>
ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
Stálu bíl og
eyðilögðu
ÖKUFERÐ þriggja pilta, sem stálu Skoda-bifreið aöfaranótt sunnudagsins, endaði með ósköpum. Þeir
óku á Ijósastaur á Flugvallarvegi, skammt frá Hótel Loftleiðum, með þeim afleiðingum, að bifreiðin
bókstaÓega rifnaði í sundur og toppur hennar þeyttist af. Piltarnir voru fluttir í slysadeild en reyndust
lítið meiddir. Grunur leikur á að þeir hafi verið ölvaðir.
Kópavogur:
Rúmlega 200
manns sóttu
um 27 lóðir
RIIMLEGA 200 umsóknir bárust um
27 einbýlishúsalóðir í Kópavogi, en
umsóknarfrestur rann út i gær. Lóð-
irnar eru við Hlíðartún og Álfatún
austast í Kópavogi, næst Ástúni,
neðan l'verbrckku.
Reiknað er með, að úthlutun
fari fram um mánaðamótin, en
lóðirnar eiga að verða byggingar-
hæfar í október í haust. Síðar í ár
verður úthlutað lóðum undir ein-
býlishús og raðhús í Marbakka og
Sæbólslandi í Kópavogi.
Electran
1 leiguflug
milli Ítalíu
og Kamerún
Steftiir í mikil átök fínnist
ekki nýr vidrædugrundvöllur
— segir Þorsteinn Pálsson um óraunhæfar kröfur verkalýdsfélaganna
BUIST er við, að svör Þjóð-
hagsstofnunar við fyrirspurn-
um VSÍ um afleiðingar þess á
verðbólgu og atvinnustig, ef
kaupkröfur yrðu samþykkt-
ar, liggi fyrir á föstudag.
Næsti fundur ASÍ og VSÍ
verður á föstudag og þá verð-
Framboðsfresturinn
rennur út á miðnætti
425 einstaklingar verða kosnir 22. maí
FRAMBOÐSFRESTUR vegna bæjar-
og sveitarstjórnakosninganna 22. maí
næstkomandi rennur út á miðnætti i
nótt. Kosið verður í 22 kaupstöðum og
37 kauptúnahreppum. Kosningar í
strjálbýli fara hins vegar fram 26. júni.
Að sögn Unnars Stefánssonar hjá
Sambandi íslenzkra sveitarfélaga
verða í kosningunum 22. maí kosnir
425 einstaklingar í borgar-, bæjar- og
sveitarstjórnir. I Reykjavík verður
kosinn 21 borgarfulltrúi, í Kópavogi,
Hafnarfirði og á Akureyri verða
kosnir 11 bæjarstjórnarmenn á
hverjum stað, 9 bæjarfulltrúar í 11
kaupstöðum og 7 fulltrúar í 7 kaup-
stöðum. { 37 kauptúnahreppum
verða kosnir samtals 223 sveitar-
stjórnamenn.
ur
væntanlega fjallað
þessa útreikninga.
um
Alþýðusambandið hefur skor-
að á verkalýðsfélög að afla sér
verkfallsheimilda, en samnings-
tímabilinu lýkur 15. maí. í álykt-
un 72-manna nefndar ASI síð-
astliðinn fimmtudag, segir, að
vinnuveitendur tefji samninga-
viðræður og skorað er á þá að
hefja nú þegar raunhæfar við-
ræður.
Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, segir hins
vegar, að vinnuveitendur leggi
einmitt alla áherzlu á raunhæfar
viðræður og þess vegna hafi verið
óskað eftir ákveðnum upplýsing-
um frá Þjóðhagsstofnun. „Finn-
ist ekki einhver annar flötur á
samingaviðræðum en núverandi
kaupkröfugerð, þá stefnir í
stórkostleg átök, ef einhver al-
vara er á bak við þessa skjótu
verkfallshótun strax í upphafi
samningaviðræðna þegar heill
mánuður er eftir af samnings-
tímanum," sagði Þorsteinn Páls-
1 son meðal annars.
Sjá nánar á miðopnu blaðsins.
Electra-vöruflutningaflugvél Arn-
arflugs, sem félagið keypti af ís-
cargo á dögunum, er nú komin í
leiguflug milli Genúa á Ítalíu og
Kamerún i Afríku.
Að sögn Halldórs Sigurðssonar,
sölu- og markaðsstjóra hjá Arnar-
flugi, mun vélin flytja byggingar-
efni milli Ítalíu og Kamerún, en
flugið milli þessara tveggja staða
tekur um 15 klukkustundir.
Vélin er nýkomin úr skoðun hjá
Fred Olsen í Osló, en ýmsar lag-
færingar voru þar gerðar á henni.
Electra-vöruflutningaflugvél
Arnarflugs
Heimsóttu barnaspltala Hringsins
Skemmdarverk á húsum
í Flatey á Skjálfanda
llúsavík, 19. apríl.
SKEMMDARVERK voru unnin í
fvrra á húsum i Flatey á Skjálfanda,
en hús þessi hafa verið notuð til
sumardvalar síðan byggð lagðist
niður i eynni. Húsunum hefur verið
vió haldió og sum þeirra endurbætt
og það sem skemmt var i fyrra hafði
verió lagfært. Nú um páskahelgina
hafa óþurftarmenn aftur gengið á
land í Flatey og framið sams konar
spjöll og gengið hálfgeróan ber-
serksgang um húsin. Brotizt var inn
í þau, rúður brotnar og Ijósastæói og
umgengnin eins og íslendingum er
ekki sæmandi.
Við höfnina standa verbúðir
sem notaðar hafa verið á vorin í
sambandi við verkun grásleppu-
hrogna og sem veiðarfærageymsl-
ur. Inn í þá skúra, sem næstir
voru, hafði verið brotizt og þar
ruslað til og gerð tilraun til að
kveikja í einum skúranna, en sú
tilraun heppnaðist ekki. Ef eldur
hefði brotizt út hefðu mikil verð-
mæti farið forgörðum bæði í þess-
um skúr og nærliggjandi, en þar
voru geymd veiðarfæri. Það sem
vekur undrun manna er að ólæstir
skúrar voru látnir í friði, en brot-
izt inn í læsta skúra.
Skemmdarverk sem þessi eru
letjandi fyrir fólk og svo kann að
fara, að fólk hætti að halda hús-
um við og geti því ekki veitt sér þá
ánægju að dvelja um tíma á forn-
um slóðum og æskustöðvum.
— Fréttaritari
I.jÓNm.: KÖK.
Körfuknattleiksmennirnir úr Harlem Globetrotters sýndu listir sínar í fyrsta
sinni I Laugardalshöllinni í gærkveldi. Fyrr um daginn heimsóttu þeir lam-
aða og fatlaða og einnig litu þeir inn á barnaspítala Hringsins. Á meðfylgj-
andi mynd eru þeir á barnaspítalanum og sýna sjúklingunum knattfimi sína.