Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1982 Paul McCartney horfir um öxl MILLER: Hvers virði er þér nýja albúmið? McCARTNEY: Áður en við byrjuðum á því var ég tilbúinn með titilinn, „Tug of War“. Ég vildi vinna öll lögin í kringum þetta stef. Hugmyndin að baki er togstreitan, að allt sé þetta í rauninni eilíft stríð. Sp.: Má skilja það þannig, að þú sért að bregðast við þeirri gagnrýni, sem síðasta sólóplatan þín fékk, að hún væri of yfir- borðskennd? Sv.: Stundum getur fólk hitt naglann á höfuðið. Sumir hafa t. d. spurt mig hvort ég sé ekki orðinn leiður á að setja saman heldur lítilfjörleg lög og ég get ekki annað en svarað því játandi. Það er nefnilega þannig, eins og þú veist, að ég get bókstaflega sest niður í þrjá tíma og komið fram með hundrað lög og það sem meira er, tíu þeirra gætu slegið í gegn. Það var komið að þeim tímamótum hjá mér, að ég var farinn að hugsa, að ef ég væri að verða yfirborðskenndur þá yrði ég að hætta því, fá meiri tilfinningu í lögin. Þess vegna var ég hrifinn af „Tug of War“. Sp.: Varstu með John Lennon í huga? Sv.: Nei. En þegar við vorum u. þ.b. hálfnaðir með plötuna var John myrtur. Ég get ekki trúað því enn þann dag í dag en „Here Today“ er eina lagið, sem bein- línis snýst um það. Hins vegar hefur það auðvitað haft áhrif á „Tug of War“ og líka á „Some- body Who Cares“. Dauði Johns var mér ofarlega í huga þegar ég vann að þeim. Sp.: Hittust þið oft áður en hann dó? Sv.: Já, við hittumst nokkuð oft og alltaf þegar einhver vand- ræði voru með fjármálin. Við gátum ekki unnið saman án þess að fara rífast og það var ekki beinlínis gott fyrir kunnings- skapinn. Éftir að Sean fæddist (sonur Johns og Yoko) kom ég nokkrum sinnum til hans í New York en brátt slettist upp á vinskapinn. Ég var vanur að koma án þess að gera boð á und- an mér og einu sinni varð hann verulega vondur. „Heyrðu mig,“ sagði hann, „hvers vegna ertu alltaf að koma hér okkur að óvörum? Hvers vegna hringirðu ekki áður?“ Ég brást illa við, óþarflega illa, og ég held að ég hafi ekki séð hann eftir þetta. Ég hringdi nokkrum sinnum og svo lengi sem talið snerist um fjöl- skylduna og tilveruna yfirleitt fór vel á með okkur. I síðasta sinn sem ég talaði við hann í síma fannst mér sem allt væri eins og í gamla daga. Ég hef tal- að við Yoko síðan og hún sagði við mig: „Veistu, honum þótti reglulega vænt um þig.“ Ég held að við höfum í raun verið mjög nánir, en það var með okkur eins og stundum með bræður, að þeir rífast og slík rifrildi geta orðið bitur. Sp.: Ég var að skoða gömul viðtöl og það vakti athygli mína hve John ber þér oft illa söguna. Áttu ekki erfitt með að sætta þig við það? Jú. Vegna þess, að ég veit að hann sagði þetta. Það er þó skrítið hvað verður minnisstæð- ast. Halda mætti, að stóru stundirnar kæmu oftast upp í hugann en svo er ekki. Það eru smámunirnir, eins og t.d. þegar við rifumst hvað heiftarlegast um Apple-fyrirtækið. Ég man að hann horfði á mig, tók ofan gler- augun og sagði lágum rómi: „Það er bara ég.“ Þannig vil ég muna Nú á dögunum kom út nýja albúmið hans Paul McCartneys, „Tug of War“ eins og það heitir, togstreitan, hið eilfía stríð. Af þessu tilefni átti Jim Miller, tónlistargagnrýnandi vikuritsins Newsweek, viðtal við McCartney í New York, sem fer hér á eftir þýtt og endur- sagt. í þessu viðtali fjalla þeir um til- veruna vítt og breitt, albúmið, fjöl- skylduna og hvernig það er að eldast og þroskast. Ekki síst um John Lenn- on, félaga hans í Bítlunum, sem féll fyrir morðingjahendi. Þeim samdi illa eins og alkunna er og Lennon var ekk- ert að skafa utan af skoðunum sínum á McCartney, kallaði hann meira að segja „hégómagjarnan“ á plötu sem hann gaf út. Nú er Lennon látinn og ummælin verða ekki aftur tekin. „Tug of War“ er á sinn hátt helguð minn- ingu Lennons, þar reynir McCartney að semja sátt við sjálfan sig og losa sig við byrðar fortíðarinnar. ég á við að stríða, hvernig ég tjái mig. Eins og þegar John dó, þá tróð fréttamaður hljóðnemanum næstum upp í mig og spurði: „Hvað finnst þér?“ Og ég sagði: „Þetta er nú meira vesenið." Auðvitað hljómaði það kjána- lega, jafnvel kæruleysislega, en seinna um kvöldið hágrét ég. Ég var alls ekki sá kaldi karl, sem sagði „þetta er nú meira vesenið" og ég er líka hættur öllum afsök- unum þó fólk misskilji mig. Svona er ég og það þýðir ekkert að vera með víl og vol. Maður verður að horfa fram á við. Sp.: Hvað skiptir þig mestu núna? Sv.: Fjölskylda min, fyrst og fremst. Tónlistin er í öðru sæti. Fátt annað. Peningarnir skipta ekki eins miklu og ætla mætti. Fólk segir að vísu, „þú getur trútt um talað, þú átt nóg af þeim“, en okkur Lindu hefur alltaf fundist, að ef við misstum allt sem við eigum, gætum við bara farið til Jamaica. Þar hafa þeir þessa litlu kofa á ströndinni og ég gæti gerst garðyrkjumaður John Lennon George Harrison Ringo Starr Paul McCartney eftir því. Meinið var, að þegar hann og Yoko voru alveg yfir sig ástfangin vissum við hinir ekki hvernig við áttum að taka því. Hvað með þó þau vildu láta taka af sér myndir allsber? Á þessum tíma sögðum við hins vegar: „Andskotinn sjálfur, sjáið þau. Þau eru orðin kolvitlaus bæði tvö.“ Þetta var allt annað en auð- velt. Við þekktum gamla, góða Johnny, en hann hafði breyst. Allt í einu var hann kominn framan á plötualbúm kviknak- inn og okkur fannst það and- styggilegt. Ég veit líka að marg- ir aðrir voru á sama máli. „Hvers vegna er hann ekki eins og hann var I Bítlunum? Hvers vegna þurfti hann að missa glór- una?“ fékk maður oft að heyra. Mér þykir það leitt vegna Johns og Yoko, að við skyldum ekki geta tekið þessu betur. Þegar ég lít til baka skil ég þó hvers vegna. „Give Peace a Chance", stórkostlegt, og allsber á „Two Virgins", hvers vegna ekki? Ég er engin tepra, þetta koma bara svo flatt upp á okkur. Sp.: Hvaða minningar frá bítlatímanum eru þér kærastar? Sv.: Allar. Yfirleitt á égekkert nema góðar minningar frá þess- um tíma. Þú veist hvernig það er. Fólk fer í frí og hundleiðist, kemur aftur heim og ári síðar man það ekki eftir neinu nema björtu hliðunum. Fyrir mig eru það þær stundir þegar John slakaði á, steig ofan af stallinum ef svo má segja. Eins og t.d. þeg- ar við sátum eina nóttina á hót- elherbergi og hlustuðum á kass- ettu, „Rubber Soul“ að mig minnir . Á annarri hliðinni voru lögin mín og á hinni lögin hans og ég man að hann sagði: „Lík- lega finnst mér þetta bara gott hjá þér, já, ef satt skal segja, þá finnst mér það bara gott.“ Með því er ég ekki að segja, að honum hafi líkað mín lög betur en sín eigin, nema kannski þetta litla augnablik — og það var ekki mjög líkt honum. Hann barðist alltaf fyrir sjálfan sig. Hann var mjög eigingjarn, en ekki á nei- kvæðan hátt. Vildi vera númer eitt, en ekki á kostnað annarra. í rauninni gat hann verið mjög hlýlegur. Sp.: Þú sagðir nýlega í viðtali: „Ég hef alltaf haldið, að maður þyrfti að vera næstum gallalaus til að geta fallið fólki í geð ... en nú er mér farið að skiljast, eftir allan þennan tíma, að fólk vill fá að sjá slæmu hliðarnar líka.“ Með John í huga og sjálfselskuna hans: Hverjar eru slæmar hlið- arnar á Paul McCartney? Sv.: Slæmu hliðarnar. Já. Ég held ég vilji nú ekkert vera að opinbera þær. Þær eru nógu margar. Það, sem ég átti þó við, var að John gat sagt frá breysk- leika sínum með því að syngja um hann. Ég er hins vegar ekki þannig skapi farinn. Sp.: Eftir dauða John sagði Yoko, að fólk hefði ekki skilið raunverulegar tilfinningar þínar vegna þess, að þú ættir svo erfitt með að tjá þær. Sv.: Já, þetta er eitt af því, sem eða trésmiður. Sp.: Hvað með fjármálavafstr- ið, finnst þér skemmtilegt að standa í því? Sv.: Fjármálin hafa engan for- gang hjá mér, en mér leiðast þau ekki. Eg setti mér mitt mark strax í upphafi og að ná því sem lagasmiður er eitt og sem fjár- málamaður annað. Ég vissi hvað ég ætlaði mér og þetta er hluti af því. Sp.: Þú ert nú að verða fertug- ur. Hvernig finnst þér að eldast? Sv.: Ég hef engar áhyggjur af því og í rauninni tek ég bara ekki eftir því. Auk þess, með tilliti til barnanna, þá kæri ég mig ekkert um að reyna að vera unglegur. Ég vil vera faðir. Æskufjörið, rokkið og allt það — ég er búinn að vera í því nógu lengi. Nú vil ég fara að líta á mig sem full- þroska mann. Mér líkar líka bet- ur hvernig ég bregst við hlutun- um. Ég er ekki eins uppstökkur yfir smámunum og áður, reyni að sjá hvað setur. Alveg eins og pabbi var alltaf að brýna fyrir mér. Hann sagði t.d.: „Reyndu að setja þig í annarra spor, sonur sæll,“ og ég sagði: „Já, pabbi.“ „Vertu umburðarlyndur, sonur minn.“ „Já, pabbi." „Hófsamur." „Já, pabbi." Auðvitað gekk ekki alltaf á þessu, þetta er svona samantekt frá æskuárunum — en nú skiptir þetta allt miklu máli fyrir mig. Hófsemi? Stór- kostlegt! Hve margir væru ekki enn meðal okkar ef þeir hefðu þekkt þá dyggð. Umburðarlyndi? Stórfínt. Eg vona að fólk sýni mér umburðarlyndi og ég er til- búinn til að endurgjalda það.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.