Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982 57 Texti: Ágúst Ingi Jónsson Ljósmyndir: Ragnar Axelsson Slappað af í kaffistofunni, enda ekki unnið í bónus þennan daginn. plássinu og verður það fyrsti veg- arkaflinn, sem lagður verður slitlagi á staðnum. I tengslum við heilsugæzlustöðina er verið að reisa sex íbúðir fyrir aldraða og stahda vonir til, að þær verði fokheldar í ár. Heilsugæzlustöðin er rekin í tengslum við sjúkra- húsið á Sauðárkróki. I félagsheimilinu Höfðaborg var mikið að snúast er blaða- menn litu þar við, en félagsheim- ilið er leigt grunnskólanum yfir vetrartímann. í öðru fundar- herbergjanna voru yngstu börnin í leikskóla og í hinu kenndi Tékk- inn Jiri Hlavalcek á hljóðfæri og þjálfaði barnakór. Á leiksviðinu hömuðust strákar í körfubolta, en þar fer fram kennsla í íþrótt- um og leikfimi. í eldhúsinu er kennd matreiðsla, auk þess sem þar er eldað fyrir börn og ungl- inga úr nágrannahreppum, sem sækja skóla til Hofsóss. Útibú Búnaðarbankans, frá útibúinu á Sauðárkróki, er í húsinu og loks er að nefna „ráðhús staðarins", eins og Garðar Sveinn orðaði það, skrifstofu sveitarstjóra. Hofsóshreppur, Hofshreppur og Fellshreppur vinna í samein- ingu að mörgum hagsmunamál- um byggðarlaganna og má í því sambandi nefna útgerð, frysti- hús, skólamál og heilsugæzlu. Á döfinni er stækkun skólahússins og fyrsti áfangi viðbótarinnar er bygging 100 fermetra bókasafns. Félagslíf á staðnum stendur með miklum blóma og að sögn Gísla og Garðars Sveins er það félag vart til á landsmælikvarða, sem ekki starfar á Hofsósi. Ekki þarf að hafa mörg orð um hversu mikil mannkynning og mann- ræktun er að félagsstarfinu. Sönglíf er mjög mikið á Hofsósi, enda er söngfélagið Harpa löngu landsþekkt. Lionsklúbburinn starfar af krafti og fyrst dæmi eru tekin má ekki gleyma leikfé- laginu, sem undanfarið hefur sýnt leikritið Markólfa eftir Dar- io Fo. Meðal helztu leikara eru Gísli oddviti, sem leikur mark- greifann, Garðar Sveinn, sveitar- stjóri, sem leikur vinnumanninn, og Guðni Óskarsson, kennari og fulltrúi krata í sveitarstjórn, en hann leikur ráðsmanninn. Svanhildur GuAjónsdóttir, Halldóra Márusdóttir, Guðbjörg Guönadóttir, Margrét Kristjánsdóttir og Maren Sveinbjörnsdóttir. Þær sauma íslenzka fána Á SAUMASTOFUNNI á Hofsósi er mest áherzla lögð á vinnufatnað og þá einkum sloppa, bæði mislita og hvíta, sem henta til vinnu í mjólkurbúum, sláturhúsum og frystihúsum. Svanhildur Guðjónsdóttir var i forsvari þeirra fimm kvenna sem voru við vinnu er Morgunblaðið bar að garði. Hún sagði innflutning gera saumastofum erfitt fyrir og saumastofan á Hofsósi væri þar engin undantekning. En saumakonur á Hofsósi gera meira en að sauma vinnusloppa. Þar eru saumaðir íslenzkir fánar og eru þeir ekki framleiddir ann- ars staðar. Auk islenzka fánans sauma þær þjóðfána annarra ríkja ef eftir því er óskað. Þannig barst eitt sinn neyðarkall frá utanríkisráðuneytinu og bifreið var send hraðferð norður á Hofsós til að sækja finnska fána. Þjóð- höfðingi Finna var þá væntanleg- ur hingað til lands og átti reyndar að lenda á Keflavíkurflugvelli fáum stundum síðar. Þær björg- uðu því, saumakonurnar á Hofs- Westinghouse hitavatnsdunkar Höfum fyrirliggjandi Westinghouse hitavatnsdunka í 4 stæróum: TR 221 20 gallon - 80 lítrar TL 522 52 gallon - 200 lítrar TL 622 66 gallon - 250 lítrar TL 822 82 gallon - 300 lítrar Vandlátir velja Westinghouse KOMIÐ-HRINGIÐ-SKRIFIÐ vió veitum allar nánari upplýsingar. Kaupfélögin um allt land Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykiavik Simi 38900 Notar þú Ijósmynd þeqar þú Ijósritar? Ef svarið er Ef svarið er JÁ NEI muntu án efa viðurkenna, að gæðin verða oftast léleg. Dökku og svörtu fletirnir í mynd- inni renna saman og útkoman verður þrælsvört, en Ijósu og hvítu fletirnir hverfa alveg. Sem sagt, andstæðurnar verða alltof miklar. Til þess að geta náð góöum árangri, þarf Ijósmyndin að innihalda rasta, þ.e. vera sam- ansett af svörtum punktum eins og í dagblaða- prentun. Polaroid hefur nú loksins leyst vandann og býöur nú Ijósmyndir til Ijósritunar meö áður óþekktum frábærum gæöum. Allur galdurinn er fólginn í því að nota sérstaka rastafolíu við augnabliksmyndatökur á s/h Polaroid-filmu. Þannig verð- ur myndin tilbúin til fjölföldunar 60 sekúndum eftir að hún er tekin. Rastafolían og Polaroidfilman notast í myndavélar af gerðinni 600 SE, fullkominn, handheld myndavél, einföld í notkun, vél sem getur leyst allar þínar Ijósmynda- þarfir, bæði til fjölritunar og annars, bæði í s/h positiv, negativ og í litum, allt á svipstundu. ættirðu strax að huga að notkun Ijósmynda í vörulistum þínum, skýrslum o.fl. Kynningar- gögn þin hafa mun sterkari áhrif, ef þau eru myndskreytt. Ef þú hefur útilokað notkun mynda i einföldum fjölrituðum gögnum, hlýtur það að vera vegna þess hversu leleg útkoman hefur veriö hingað til. Polaroid EINKAUMBOÐ LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F. LAUGAVEGM78 REYKJAVIK SlMl 85811 □ Sendið mér upplýsingar um rasta- myndatökur □ Ég vil gjarnan sjá hvernig rasta- mynd lítur út úr okkar Ijósritunar- vél. □ Vinsamlegast sendið mér upplýs- ingar um aðrar Ijósmyndavélar, tæki og vinnsluaðferðir sem létta störfin og spara tíma og kostnað í atvinnulífinu. Nafn: ................................. Fyrirtæki: ............................ Heimilisfang: ......................... ....................... Simi: Polaroid-vörur fást í flestum Ijósmynda- vöruverslunum landsins. Hafðu samband viö þína verslun. Þaö er hagur ykkar beggjal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.