Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 24
72 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 9. MAl 1982 FRÆGUSTU NÆTURKLÚBBAR PARÍSARBORGAR HEIMSÓTTIR Fáklæddar stúlkur, heimsfrægir skemmtikraftar og dýrindis matur Fréttaritari Morgunblaðsins í París, Anna Nissels, gerði sér lítið fyrir eigi fyrir löngu og kannaði frægustu nætur- klúbba borgarinnar heimsfrægu við Signubakka. París er sem kunnugt einhver frægasta borg heims, hvað varðar fjör- ugt næturlíf, og ber flestum, sem þangað hafa komiö, saman um að engin borg komist með tærnar þar sem París hafi hælana. Lesendur Morgunblaðsins verða bara að dæma hver fyrir sig, en hér fer á eftir lýsing Önnu á þremur af frægustu næturklúbbunum. Moulin Rouge Sjálfsagt er Rauða Myllan einn þekktasti „kabarett" Parísarborg- ar og vel þekktur um allan heim, einkum og sér í lagi vegna hins víðfræga „Can Can“. Ég brá mér á þennan heims- fræga stað fyrir nokkru og varð svo sannarlega ekki fyrir von- brigðum. Húsið er smekklega inn- réttað, auðvitað allt klætt rauðu eins og nafnið gefur til kynna, og andrúmsloftið rómantískt. Kerti höfð á borðum og öll þjónusta mjög til fyrirmyndar. Gestir geta fengið sér snúning við létt lög á undan kabarettinum sjálfum, svo og á eftir. Þarna er hægt að fá dýrindisrétti og má sem dæmi nefna „Les fillets du Sole au Champagne" og „La terr- ine du chef“ svo eitthvað sé nefnt. Þannig mætti reyndar lengi telja. Þetta góðgæti er reyndar ekki allskostar gefið og kostar um 140 franka. Séu menn annars svangir og buddan orðin létt eftir daginn er hægt að borga sig eingöngu inn á kabarettinn. Kostar það 200 franka og er kampavín innifalið. Klukkan tíu slokkna öll ljós og allir bíða spenntir og þó einkum og sér í lagi vegna hins fræga „Can Can“. Næstu tvo tímana troða upp alls kyns listamenn, allt fyrsta flokks fólk á sínu sviði. Rauða Myllan býður ætíð upp á eitt skemmtiatriði, sem kemur áhorfendum til að undrast yfir hinu líflega hugmyndaflugi stað- arins. Það atriði, sem mér fannst bera af, var þegar stórt búr, fullt af vatni, kom upp úr gólfinu. í því syntu þrír höfrungar og sýndu þeir hæfni sína á mjög fjölbreytt- an hátt. Falleg stúlka stjórnaði þeim og einn höfrunganna virtist greindari en félagar hans því hann átti heiðurinn af því að af- klæða stjórnandann. Vakti það auðvitað almenna kátínu. Reyndar sakar ekki að geta þess, að stúlkan var ekki kappklædd. Saga Rauðu Myllunnar er orðin býsna löng. Húsið var sett á stofn árið 1889 í húsnæði, sem hafði ver- ið vel sótt, „Danshús hvítu drottn- ingarinnar". Rauða Myllan varð vinsæl á svipstundu og óðar mið- punktur borgarinnar og þar með heimsins. Einkum var það fyrir tilstilli nýstárlegs dans, sem stúlkur staðarins höfðu í frammi og gera enn að sjálfsögðu — hinn franski „Can Can“. Fjölmargir listamenn, málarar, og rithöfundar líkt og Toulouse- Lautrec, Willette, Bonnard, Sy- einlen, Lorrain og Carco hrifust með og tóku þátt í því að útbreiða frægð Rauðu Myllunnar um allan heim. Húsið brann í febrúar 1915 og var síðan ekki opnað aftur fyrr en í desember 1925, rúmum tíu ár- um síðar, og þá með pomp og pragt. Enn þurfti að loka 1937, en eftir miklar og gagngerar endur- bætur á húsnæðinu var opnað á ný, en þó ekki fyrr en 1951. Enn ávann Rauða Myllan sér vinsældir á skömmum tíma. Helstu stjörnur og skemmtikraft- ar mættu til leiks; Chaplin, Bing Crosby, Madeleine Robinson, Lily Pons og Peter Ustinov. Síðustu ár- HÚSGÖGN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.