Morgunblaðið - 09.05.1982, Page 25

Morgunblaðið - 09.05.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982 73 Stúlkurnar, «em troda upp í þessum næturklúbbum, eru ekki aöeins bréðlaglegar oft á tíöum heldur og ágætir dansarar. Skrautið vantar ekki í sýningarnar. Þessi mynd er úr Lídó. in hefur staðurinn fest sig æ betur í sessi í næturlífi borgarinnar; töfrandi og æsandi dregur Rauða Myllan að sér þúsundir í hverjum mánuði, alls staðar að úr heimin- um. Lídó Saga Lídó hefst 1945 þegar Clerico-bræðurnir keyptu danshús með sama nafni og réðu til sín forstjórann Pierre Louis-Guerin. Pierre, sem áður hafði verið við- riðinn skemmtihús og gleðileiki lét taka staðinn algerlega í gegn. í janúar 1946 var frumsýningin á fyrstu revíunni, sem bar nafnið „Án samhengis, án skynsemi". Sex mánuðum síðar hófst vinna við enn frekari endurbætur á hús- inu og möguleikarnir jukust fyrir vikið. Farið var að bjóða upp á kvöldverð með sýningum, sem fljótt náði vinsældum og er enn svo. Ótal frægir skemmtikraftar tróðu upp og bestu stjórnendur voru ráðnir. Allt fram til ársins 1962 var Lídó á sama stað, en síð- an var nýtt húsnæði tekið í notk- un. Skipt var um sýningar, að minnsta kosti annaö hvert ár. Hið sívinsæla Lídó er nú til húsa á 116 bis Avenue Champs Elysées, aðal- breiðgötu Parísarborgar. Þykir staðurinn einn glæsilegasti kab- arett-veitingastaður í Evrópu ef ekki heiminum. Staðurinn tekur 1200 manns í sæti og allir eiga að njóta sama útsýnis. Andstætt því, sem gerist í öðrum veitingahúsum, er það ekki sviðið sjálft sem hækkar eða lækkar heldur áhorfendur með öllum stólum og borðum, þannig að enginn skyggir á annan. Lídó hefur yfir að ráða einhverjum fullkomnasta búnaði sinnar teg- undar, 360 ljóskastarar og tölvu- stýrt ljósblendikerfi, tvö risastór kvikmyndatjöld, bestu hljóm- flutningstæki, sem völ er á, sund- laug, skautasvell, gosbrunnar, lyftitæki á sviðin fjögur og á áhorfendasalinn, þannig að hægt er að gera nánast hvað sem er. Eldvarnir gerast ekki traustari og loftræsting er til fyrirmyndar og meðfærileg að auki. Ekki færri en 60 dansstúlkur vinna í Lídó, auk 24 karldansara, fimm söngvara og 30 manna hljómsveitar. Mjög oft koma fræg- ir skemmtikraftar fram, um 800 búningar eru til reiðu, fleiri hundruð kíló af glimmeri og öðru skrauti, sex hundruðu pör af sér- hönnuðum skóm, fjaðrir af fasön- um, strútum og öðrum fágætum fuglum, refapelsar í tugatali, fleiri tonn af leikbúnaði og skreyting- um, auk ógnvekjandi „vélaverks". Hvorki meira né minna en 3000 manns starfa að staðaldri við að halda staðnum gangandi. Daglega eru framreiddar um 800 máltíðir og ókjörin öll af sérbökuðu sæta- brauði og viðlíka góðgæti. Nei, það verður enginn fyrir vonbrigðum með kvöldstund í Lídó. Nixon, fyrrum Bandaríkjaforseti, skemmti sér víst konunglega kvöldið á undan mér. Daginn eftir ætlaði tískukóngurinn Yves Saint Laurent að halda afmæli sitt þar fyrir vini og vandamenn. Crazy Horse Rétt eins og nafnið gefur til kynna er allt „crazy“ í Crazy Horse. Þeir, sem vilja sjá eitthvað „brjálæðislegt" í tvo tíma á ferð sinni um París, ættu að líta við þarna. Þeir verða ekki fyrir von- brigðum. Það var í maí 1951 að klúbbur- inn , var stofnsettur. Áður hafði eigandinn, Alain, rekið lítinn veit- ingastað í „Les Halles“-hverfinu og fékk hugmyndina í blaði, sem viðskiptavinur hafði skilið eftir og fjallaði eitthvað um það, sem í Bandaríkjunum var nefnt „list- sýningar" eða „burlesque". Strax við opnun varð „Crazy Horse" einkar vinsæll staður. Þetta var eitthvað nýtt, eitthvað óþekkt og féll vel í kramið. Fimm naktar konur með söng manna á borð við Charles Aznavour inn á milli atriða. Eftir þrjátíu ár eru þessar sýningar orðnar víðfrægar og aldrei vinsælli en nú. í tvo klukkutíma á hverju kvöldi dansa 24 naktar stúlkur víðs vegar úr heiminum, við tónlist sérstakr- ar hljómsveitar hússins. En fleira er að vísu á boðstólum. Þarna koma fram á hverju kvöldi frægir skemmtikraftar víðs vegar að. Á hverja sýningu koma 2—300 manns og tæpast er það stórmenni til, sem ekki hefur eytt kvöldstund í „Crazy Horse". Þ*iur föngulcgu tátur troða upp í Crazy Horse-klúbbnum fræga. Sagt er aö flest stórmenni heimsins hafi litið þar inn og vart að undra. Kr. 432.-. adidas Kr. 401.-. Kr. 395.-. Kr. 447.-. neldur sýningu í dag frá kl. 10.00 til 18.00 SKOÐAÐU FYRSTU HÚSGAGNASÝNINGU STÆRSTU, BESTU OG ÓDÝRUSTU HÚSGAGNAVERSLUNAR LANDSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.