Morgunblaðið - 03.06.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1982
7
Lærið vélritun
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heima-
vinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl
13.
Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 3. júní.
Vélritunarskólinn,
Suðurlandsbraut 20.
TÖSKUOG
HANZKABUÐIN HF
SKÓLAVÖRÐUSTIG 7.
S.15814 REYKJAVIK.
iPeglers
Koparkranar fyrir vatn, gufu og
olíu, ávallt fyrirliggjandi.
VALD. POULSEN'
Suðurlandsbraut 10,
sími 86499.
Ólafur R. Grímsson Margrét S. Björnsdóttir Svavar Gestsson
Valdabaráttan í Reykjavík
Margrét S. Björnsdóttir skrifar grein um kosningaúrslitin í Þjóðviljann í
gær og dregur þar taum Ólafs R. Grímssonar á kostnað Svavars
Gestssonar. Þetta er athyglisverö staöreynd, þegar til þess er litiö, aö
Margrét er fyrrverandi formaöur Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur. En
Reykjavík veröur einmitt orrustuvöllur þeirra Svavars og Ólafs fyrir
næstu kosningar, ef og þegar þeir sækjast báöir eftir sæti sem efst á
framboöslista hins síminnkandi flokks. Ólafur R. Grímsson hefur þó fleiri
járn í eldinum. Sumir segja, aö hann ætli aö ýta Skúla Alexanderssyni til
hliðar í Vesturlandskjördæmi, og aörir, aö mikil hræösla hafi gripið um
sig í Alþýöuflokknum af ótta viö, aö Ólafur ætli næst aö brjótast til valda
í tómarúminu þar. í þeirri von, aö það blíðki Ólaf veröur nú dregið úr
leiöaraskrifum Jóns Baldvins í Alþýðublaöiö.
Flokkur án
stefnu
„Kinn fundanna fjallaði
um borgarmálastarfið og
þar mættu flestir aðal- og
varaborgarfulltrúar flokks-
in& l*að fannst mér koma
mjög skýrt fram hversu
litla sérstöðu stefna okkar
hafði. Mér fannst fundur-
inn allt eins geta verið í
Alþýðufiokknum eða jafn-
vel í Framsóknarflokkn-
um.“ Hver er flokkurinn
og hver skrifar? Flokkur-
inn er Alþýðubandalagið
og höfundurinn er Margrét
S. Björnsdóttir, fýrrum
formaður Alþýðubanda-
lagsfélags Reykjavikur.
Tilvitnunin er tekin úr hug-
leiðingu hennar um úrslit
borgarstjómarkosn-
inganna, sem birtist í Þjóð-
viljanum í gær. llndir
formennsku Margrétar
gekkst ABR fyrir fundaröð
um störf og stefnu Alþýðu-
bandalagsins og á fundin-
um um borgarmálastarfið
vissi formaður ABR ekki,
hvort hún væri innan um
krata eða framsóknar-
menn!
í grein sinni gagnrýnir
Margrét S. Björnsdóttir
viðbrögð flokksforystu Al-
þýðubandalagsins og Þjóð-
viljans við afhroði Alþýðu-
bandalagsins í kosningun-
um. Og andstöðu sína við
Svavar Gestsson, flokks-
formann, undirstrikar
Margrét sérstaklega með
því að komast svo að orði,
að það sé helst grein Ólafs
R. Grímssonar í Þjóðviljan-
um á laugardag, sem sagt
var frá hér i blaðinu í gær,
sem sýni, að ekki þurfi allir
í forystu Alþýðubandalags-
ins á „barnaskólalærdómi
í pólitík" að halda.
En með hliðsjón af þeirri
umkvörtun Margrétar S.
Björnsdóttur, að hún hafi
ekki vitað, hvort hún væri
á fundi með krötum eða
framsóknarmönnum í því
félagi, sem hún stjórnaði
þó sjálf, hlýtur það að
koma mörgum „sósíalist-
um“, eins og hún kallar
sjálfa sig, á óvart, að Mar-
grét skuli taka afstöðu með
Ölafi R. Grímssyni á móti
Svavari Gestssyni og hún
skuli í því sambandi sér-
staklega nefna Þjóðvilja-
grein Ólafs. Grein hans
gengur nefnUega út á það,
að nú hafi alþýðubanda-
lagsmenn haft næg not af
framsóknarmönnum og
skuli að nýju hefja sam-
vinnu við krata, enda hafi
ný kynslóð krata „víðari
heimssýn" en hinir eldri og
Alþýðubandalagið hafi eins
og kratar „sótt röksemdir í
baráttu" evrópskra jafnað-
armannaflokka.
Hin mikla ógn
Ekki eru allir kratar
fagnandi yfir þessu bón-
orði Ólafs R. Grímssonar,
en þeir úr röðum krata,
sem mæla með frekari
samvinnu við Alþýðu-
bandalagið, ráða yfir öfl-
ugu leynivopni. Sagt er, að
þeir láti í það skína í við-
ræðum við flokksbræður
sína, að tU þess kunni að
koma, ef Ólafi R. Gríms-
syni takist ekki að koma á
einhvers konar tengshim
við Alþýðuflokkinn, þá
muni hann hugsa sér til
hreyfings úr Alþýðubanda-
laginu og eigi tæplega i
annað hús að venda en Al-
þýðuflokkinn. Rökin fyrir
því eru þau, að Ólafur R.
Grimsson hafi þegar verið i
Framsóknarflokknum,
Samtökum frjálslyndra og
vinstri manna og nú Al-
þýðubandalaginu og aug-
Ijóslega vUji sjálfstæðis-
menn ekki við honum
taka, fari hann enn á flakk
mUli flokka.
Jóni Baldvin
úthýst
Ein helsta krafa Þjóðvilj-
ans og forkólfa Alþýðu-
bandalagsins, sem vUja
koma á vináttu- og
hræðslubandalagi við
krata, er sú, að Jón Bald-
vin Hannibalsson fái ekki
að leika lausum hala á Al-
þýðublaðinu. Með hliðsjón
af þessu vekur það sér-
staka athygli, að í gær
skrifar Árni Gunnarsson,
alþingismaður, forystu-
grein Alþýðublaðsins. Efni
hennar fellur og vel að
óskum alþýðubandalags-
manna. því að Árni leggur
sig fram um að gera sem
minnst úr Sjálfstæðis-
flokknum og kosningasigri
hans. Má helst skilja þau
niðurrifsskrif sem viðleitni
tU að skapa Alþýðuflokkn-
um sérstöðu sem eina og
sanna stjórnarandstööu-
flokknum. En hver trúir
þeim áróðri toppkrata, þeg-
ar þeir í sömu mund leita
skjóls og styrks hjá þeim
flokki, sem þykist ráða
mestu i ríkisstjórninni, Al-
þýðubandalaginu?
Kristján Thorlacius formaður BSRB í ræðustól.
Fulltrúaþing Kennarasambands
íslands stendur í þrjá daga
„HÉR ER mikill urgur í
mönnum, og þá helst yfir kjara-
málum og ástandi í skólamálum
yfirleitt,“ sagði Kristín Tryggva-
dóttir á fulltrúaþingi Kennara-
sambands íslands, sem hófst
fyrsta þessa mánaðar og lýkur í
dag.
Þetta þing sækja 150 fulltrúar
frá 11 félögum í Kennarasam-
bandi íslands hvaðanæva af
landinu, en einnig hafa rétt til
setu fulltrúar á eftirlaunum og
fulltrúar nemenda í Kennara-
háskóla Islands.
Þau mál sem efst eru á
baugi á þinginu eru að sjálf-
sögðu skóla- og uppeldismál,
en einnig eru kjaramál kenn-
ara á dagskrá, svo og skipulag
samtakanna sjálfra, þar eð
þetta er fyrsta þing sem hald-
ið er eftir að stofnþing var
haldið í júnímánuði 1980. Þá
voru sameinuð í eitt Lands-
samband framhaldsskóla-
kennara og Samband grunn-
skólakennara, en í Kennara-
sambandi íslands eru nú um
3000 félagsmenn.